Morgunblaðið - 02.02.1994, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994
41
Eru Islendingar gáfumannaþjóð?
Frá Halldóru M. Steingrímsdóttur:
Ég er reið. Af hverju? Ég opna
ekki svo útvarp eða sjónvarp, þegar
fréttaþættir eru að ekki heyrist eitt-
hvert neikvætt væl. Atvinnuleysið
eykst dag frá degi. Gjaldþrot, eng-
inn fískur.
Fréttamenn gerið þið ykkur ekki
grein fyrir því, hvað þið eruð að
gera, kunnið þið ekkert í mannleg-
um samskiptum? Þið eruð að bijóta
landann markvisst niður og draga
þrótt úr fólkinu í landinu.
Það sem við verðum að gera, er
að skoða pólitík út frá því sem ger-
ist annars staðar í heiminum og
draga ályktanir af því. Hvar gengur
vel núna? Peningar Vesturlanda
virðast flytjast mikið til Asíu. Hvað
gera Japnir, þeir nota heilann vel,
byggja fólkið markvisst upp og
banna neikvæða umfjöllun um fjár-
mál í fjölmiðlum. Þannig fá þeir
jákvæða framleiðni, það er afköst
hvers vinnandi manns aukast. Einn-
ig leggja þeir áherslu á hreyfingu
og leikfimi á hveijum degi. Japanir
eiga enga gullnámu aðra en fólkið
og heilastarfsemi þess. Þeir fram-
leiða allskonar tæki og tól, sem
gleðja Vesturlandabúa og Vestur-
landabúar flytja því fjármagn sitt
yfir til Asíu og Asíubúar verða því
ríkari en við fátækari.
Það sem við þurfum að gera, er
að fækka alþingismönnum niður í
20, því færri sem stjórna, því fleiri
mál vinnast í gegn og málin ganga
hraðar fyrir sig. Þessir 20 menn
ættu, öfugt við þá sem nú eru starf-
andi, eingöngu að vera menn með
reynslu af rekstri fyrirtækja og
vera hæfir sölu- og markaðsmenn
með hugsjónir til almenningsheilla.
Dæmi um það sem við gætum
gert er að styðja betur við þá sem
eru að auglýsa ísland sem óvana-
legt ferðamannaland, til dæmis
íjalla- og jöklaferðir á vélsleðum.
Éinnig að styðja við bakið á þeim
sem vilja selja lífrænt ræktað græn-
meti. Til dæmis með því að niður-
greiða rafmagn til gróðurhúsa og
annarra fyrirtækja sem framleiða
vörur sem hægt væri að selja til
útlanda.
íslendingar! Einföld atriði úr
þjóðhagfræði eru: Aukin framleiðni
samasem meiri afköst, meiri velta
í peningum. Meiri peningavelta:
peningar koma í hendur fleiri aðila.
Hvernig á að fá meiri peninga
inn í landio? Meðal annars með fjöl-
breyttari framleiðslu til útflutnings
og góðri markaðssetningu. Síðan
þurfum við að vera dugleg að eyða
þessum peningum innaniands og í
íslenskar vörur, þá hafa fleiri at-
vinnu og meiri peninga, sem hald-
ast þá innanlands.
Við íslendingar eigum yfirleitt
ekki eins bágt og ætla mætti, af
öllum þeim barlómi sem heyrist.
Þeir sem eiga verulega bágt eru
börn, með útblásinn kvið af sulti,
engin föt til að klæðast og sem
hafa engan sem þykir vænt um þau
og getur eða vill annast þau.
HALLDÓRA M.
DÓTTIR,
snyrtifræðingur,
Fannafold 217a,
Reykjavík.
STEINGRIMS-
í sannleika sagt?
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur:
Eftir áhorf á þáttinn „I sannleika
sagj,“ miðvikudaginn 19. janúar og
vegna lokaorða geðlæknis í þættin-
um sem hann ætlaði ekki að
„brenna inni með“ um það að fólk
skyldi nú leita sér hjálpar í tíma,
ákvað ég að dýfa penna í blek.
Maðurinn minn var ábyrgur
gerða sinna þegar hann sprengdi
húsið sitt (og annarra) í loft upp
sl. sumar. Það varð hans síðasta
framkvæmd í lífínu, því hann lést
í sprengingunni. í raun hrópaði
hann á hjálp á svo afdrifaríkan
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Peningar töpuðust
PENINGAR töpuðust sl. fímmtu-
dag, gæti hafa verið í Austur-
bergi, í strætisvagni nr. 112 eða
við Kringluna. Hafi einhver fund-
ið peningana er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 687563.
Kuldahúfa tapaðist á
Grettisgötu
BRÚN kuldahúfa tapaðist á
Grettisgötu sl. laugardagskvöld
á milli Barónsstígs og Vitastígs.
Skilvís finnandi vinsamlega
hringi í síma 11261 eða 27446.
Lyklar töpuðust
ÓMERKTUR hringur með átta
lyklum á tapaðist á leiðinni frá
Landspítalanum að útvarpshús-
inu um Eskihlíð og Hamrahlíð
sl. miðvikudag. Skilvís finnandi
er vinsamlega beðinn að skila
lyklunum á lögreglustöðina við
Hverfisgötu. Fundarlaun.
Úlpa týndist í fyrra
DÖKKBLÁ vatns- og vindheld
úlpa tapaðist í fyrra. í staðinn
fyrir flipann á rennilás úlpunnar
var búið að setja silfurlitan lykla-
hring og í vasa hennar var
„skoskur" tweed-ullarhattur.
Éigandinn man síðast eftir að
hafa verið í úlpunni í heimsókn
á Fæðingardeild Landspítalans
síðast í nóvember og í sæluvímu
eftir að hafa séð barnið sitt man
hann ekkert hvað hann hefur
gert við úlpuna, en hún gæti
hafa verið skilin eftir hvar sem
er í Reykjavík. Hafí einhver fund-
ið úlpuna er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma 18565.
Lyklakippa með
fjarstýringu
LYKLAKIPPA með fjarstýringu
merkt Globus fannst fyrir nokkru
í Blesugróf. Upplýsingar í síma
675802.
Lyklar fundust
LYKLAR í svörtu veski merktu
Umferðarskólanum fundust í
Grafarvogi sl. sunnudag. Eigandi
má hafa samband í síma 675802.
Úr tapaðist
GYLLT kvenmannsúr með gylltri
spöng eða armbandi tapaðist, lík-
lega fyrir utan LA kaffi, aðfara-
nótt sunnudags. Hafi einhver
fundið úrið er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
98-22109.
Handtaska tapaðist
BRÚN sporöskulöguð handtaska
tapaðist í Þjóðleikhúskjallaranum
eða á leiðinni frá Hringbraut að
Dvergabakka aðfaranótt sl.
sunnudags. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 672658.
Taska tapaðist
LÍTIL rauð leðurtaska tapaðist á
Café Amsterdam sl. laugardags-
kvöld. Viti einhver um afdrif
töskunnar er hann vinsamlega
beðinn að láta vita í síma 686757.
Hjól tapaðist
NÝTT blátt reiðhjól af gerðinni
Diamond hvarf úr læstri reið-
hjólageymslu við Hátún fyrir 1-2
mánuðum. Hafi einhver orðið var
við þetta hjól er hann vinsamlega
beðinn að láta vita í síma 620418.
Þór.
Peningaveski hvarf
SVART seðlaveski hvarf úr fata-
geymslu í versluninni 10-10 í
Hraunbæ sl. föstudagskvöld. í
veskinu voru skilríki en engir
peningar. Upplýsingar í síma
674275.
GÆLUDÝR
TVEIR kettlingar fást gefins á
gott heimili. Upplýsingar í síma
651050.
hátt. Hann var í prísund, prísund
þess manns sem sér ekki í örvænt-
ingarfullum tilraunum raunveru-
leikann í réttu ljósi, né heldur fyrir
afleiðingar gerða sinna til fullnustu.
Hann átti sín góðu og slæmu tíma-
bil, eitt slæmt hafði gengið yfír
fyrir rúmu hálfu ári, sem varð til
þess að ég flutti í burtu.
Ég reyndi hvað ég gat að fá hjálp
honum til handa en lítið gekk í því
efni, menn virtust hvorki hafa vilja,
né vilja skilja alvöru málsins. ég
hitti landlækni að máli í júní 1993,
með ítarlega lýsingu á viðleitni hans
og viðskiptum við lækna og fleiri,
þar sem ýmsar brotalamir, að ég
tel, bar á góma.
Til dæmis hvers vegna geðlæknir
símsendi sjúklingi svefntöflur án
þess að hafa nokkuð verið í sam-
bandi við viðkomandi um langt
skeið? Hvers vegna einn læknir ráð-
leggur innlögn á spítala og annar
segir nei, o.fl., o.fl.
Landlæknir sagðist skyldu tala
við þessa menn alla, meira veit ég
ekki en ég vona og bíð að ekki séu
einstaklingar til hér sem þurfa að
ganga píslargöngu í reiðileysi,
vegna sinnuleysis, skipulagsleysis,
ábyrgðarleysis eða viljaskorts innan
heilbrigðiskerfís þessarar þjóðar.
Virðingarfyllst,
GUÐRÚN MARÍA ÓSKARS-
DÓTTIR,
Látraströnd 5,
Seltjarnarneai.
LEIÐRETTINGAR
Óskiljanleg'ur
myndatexti
Vegna mistaka í tæknivinnslu
féllu niður orð í myndatexta með
viðtali við Sólveigu Þorvaldsdóttur
jarðskjálftaverkfræðing sem birtist
í Morgunblaðinu á laugardag og
varð textinn við það óskiljanlegur.
Textinn birtist undir fyrirsögninni
í gegnum gólfíð og hljóðar svona
réttur: Allir sem dóu í húsinu í
Northridge voru sofandi í rúmum
sínum og fundust þeir með því að
fara inn í svefnherbergi á hæðinni
fyrir ofan og ijúfa gólfið. Að sögn
Sólveigar hafa bandarískir fjölmiðl-
ar ekki haft aðgang að skaðasvæð-
unum.
Við lækkum
byggingarkostnað
0 Handlaug
0 Salerni
0 Baökar
0 Blöndunartæki
ÁLFABORG?
KNARRARVOGI 4 •
686755
Námskeið og leshringar
um dulfræði og heimspeki.
Námskeiðin eru haldin vikulega
og eru í 2 mánuði.
í leshring verða m.a. lesnar bækurnar:
Vitundarvígsla Manns og Sólar og Bréf um dúl-
fræðilega hugleiðingu eftir Tíbetska ábótann Djwhal
Khul og bókin A U M eftir Roerich.
Báðir þessir kennarar eru leiðandi í Trans-Himalaya-
skólanum. Bækurnar fjalla m.a. um þróun og framtíð
mannsins, Hvíta bræðralagið og launhelgamar.
Þátttökugjald á námskeið er kr. 2.000,- á mánuði.
Upplýsingarí síma 91-79763.
Áhugamenn um þróunarheimspeki.
HHS/WAN
IFULLUM GANGI
20-40% AFSLÁTTUR
AF ÚTSÖLUVÖRUM
15-20% stgr. afsláttur af öllum vörum
meðan á útsölunni stendur.
Dæmi um verð: áður/ nú:
33,3x33,3 2.187 1-531
20x20 1/80 1.185
20x20 14580 1.099
31,6x31,6 /2.576 1.546
TT Tl JJ
TT i K * r.i UJ
5 * ’ . wrmiiL
l'JI’k ■■
Li 1j T 1 11 11 11 LLl
Stórhöfða 17 við GulUnbrú, siml 67 48 44
Rangar tölur um
úrslit á ísafirði
I frétt um niðurstöður prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins á ÍSafírði sem
birtist á miðopnu blaðsins í gær var
ranglega farið með tölur um fylgi
lista sjálfstæðismanna við síðustu
bæjarstjórnarkosningar á ísafirði.
D-listinn fékk 655 atkvæði (ekki
532) og I-listinn 385 atkvæði (ekki
328 atkvæði). Morgunblaðið biðst
velvirðingar á mistökunum.
• Sjálfstyrking *
Námskeið þar sem á 30 stundum er unnið markvisst
með nemendum að eftirtöldum markmiðum:
• Kynnast betur eigin styrk og kostum
• Koma sjálfum sér og eigin hugmyndum á framfæri
• Læra að þola mótlæti og taka gagnrýni
• Standa á rétti sínum og bregðast við yfirgangi
• Laða það besta fram í sjálfum sér og öðrum
• Læra að gefa af sér og gera eðlilegar kröfur
• Móta eigin lífsstíl og persónuleika
Leiðbeinandi er:
Sœmundur Hafsteinsson
sálfrœðingur
Stiómtækniskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22