Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 43 SKIÐI / OLYMPIULEIKARNIR I LILLEHAMMER Asta fánaberi í annað sinn Fimm íslenskir kepp- endur og níu aðstoðar- menn í Lillehammer ÍSLENSKU ólympíufararnir fimm voru kynntir á blaða- mannafundi Ólympíunefndar íslands í gær, en aðeins tveir þeirra voru á fundinum, en hin- ir eru erlendis. Júlíus Hafstein, formaður Óí, sagði að kostnaður nefndarinnar vegna leikanna væri ekki mikill, án þess að nefna neinartölur í því sambandi. Ásta' S. Hall- dórsdóttir verðurfánaberi ís- lands við opnunarhátíðina eins og í Albertville fyrir tveimur árum. Eins og fram hefur komið áður eru fimm íslendingar sem keppa í Lillehammer; Ásta S. Hall- dórsdóttir (23 ára), Kristinn Björnsson (21) og Haukur Arnórs- son (22) keppa í svigi, stórsvigi og risasvigi. Göngumennirnir Daníel Jakobsson (20) og Rögnvaldur Ing- þórsson (25) taka þátt í öllum fjór- um göngugreinunum; 10, 15, 30 og 50 km göngu. Meðalaldur ís- lensku keppendanna er aðeins 22,2 ár. Níu verða í íslenska fylgdarlið- inu; Sigurður Einarsson, formaður SKI, verður fararstjóri. Aðrir eru: Svein Bye frá Noregi, sem er yfir- þjálfari alpaliðsins en honum til aðstoðar er Hans Ottoson frá Sví- þjóð, en hann hefur þjálfað Ástu í Ostersund. Svíinn Bo Eriksson er aðalþjálfari göngumanna og honum til aðstoðar er Hans Anders Isaks- son frá Svíþjóð. Ólafur Björnsson, sem býr í Lillehammer, verður göngumönnunum til aðstoðar. Sig- urveig Gunnarsdóttir frá ísafirði er sjúkraþjálfari liðsins og síðan verða þeir Júlíus Hafstein og Ari Bergmann Einarsson fulltrúar Ólympíunefndar íslands við opnun- arhátíðina. Iseikarnir verða settir laugardag- inn 12. febrúar. Keppendurnir búa í Ólympíuþorpinu. Ásta og Kristinn héldu utan í dag og ætla að und- irbúa sig í Östersund og Geilo fyr- ir leikana. Haukur er á Ítalíu en ætlar síðan yfir til Austurríkis og æfa þar áður en hann kemur til Lillehammer. Daníel og Rögnvald- ur eru báðir við æfingar í Svíþjóð og verða þar fram að leikum. VISA ísland færði Ólympíunefnd íslands 500 þúsund króna styrk í gær vegna Vetrarleikanna, en VISA hefur verið helsti styrktarað- ili síðustu Ólympíuleika. Mörg önn- ur fyrirtæki hafa styrkt Óí myndar- lega vegna þátttöku í leikunum. STAÐAN A-RIÐILL Fj. leikja u T Stig Stig ÍBK 17 12 5 1685: 1450 24 SNÆFELL 17 7 10 1414: 1485 14 SKALLAGR. 16 I 6 10 1328: 1354 12 lA 16 4 12 1330: 1530 8 VALUR 17 4 ' 13 1475: 1649 8 B-RIÐILL Fj. leikja U T Stig Stig NJARÐVIK 17 15 2 1551: 1349 30 GRINDAVIK 17 13 4 1509: 1424 26 HAUKAR 16 10 6 1346: 1219 20 KR 16 8 8 1467: 1423 16 TINDASTOLL 17 4 13 1233: 1455 8 Morgunblaðið/Kristinn Slegid á létta strengi ÓLYMPÍUFARARNIR Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði og Ásta S. Halldórsdóttir frá ísafirði segjast í góðri æfingu og tilbúin í slaginn í Lillehammer. í gær mátuðu þau fötin sem þau klæðast við opnunarhátíðina 12. febrúar. Erum nánasl á heimavelli - segja ólympíufararnirÁsta Halldórsdóttir og Kristinn Björnsson ÁSTA S. Halldórsdóttir og Kristinn Björnsson keppa bæði á Ólympíuleikum í annað sinn og þekkja því vel þá tilfinningu sem því fylgir. Þau sögðust vera vel upplögð og til í slaginn. „Við erum reynslunni ríkari frá því í Albertville og eins þekkjum við aðstæður mun betur en í Frakklandi fyrir tveimur árum — erum nánast á heimavelli í Lillehammer," sagði Ásta, en þau hafa æft f Noregi og Svíþjóð undanfarin ár. Kristinn sagði að undirbúningur- inn hjá sér hefði gengið vel. „Ég byijaði reyndartímabilið frekar brösótt, var meiddur í baki í fímm vikur fyrir jólin. En eftir að ég komst á fætur aftur hefur þetta gengið vel. Ég er að koma úr mán- aðar keppnisferðalagi um Evrópu og var orðinn frekar þreyttur á að búa í ferðatöskunni. Ég tók þátt í 14 mótum á þessum tíma og gekk svona upp og ofan. Ég bætti mig verulega í risasvigi en er á sama stað og áður í svigi og stórsvigi. Ólympíuleikarnir leggjast vel í mig. Ég ætla mér að nota tækifærið og keyra á fullu — grípa gæsina með- an hún gefst. Vonandi hitti ég á það. Ég geri mér vonir um að ná minnsta kosti 20. sæti í svigi,“ sagði Kristinn. Ásta sagði að undirbúningurinn hefði gengið vel hjá sér í haust en síðan hefði komið smá lægð strax eftir áramótin, en var komin aftur á gott skrið núna síðustu daga. „Ég HANDBOLTI Danir vildu fa íslendinga Handknattleikssamband íslands varð að hafna boði frá Dan- mörku, um að karlalandsliðið tæki þátt í fjögurra þjóða móti um miðjan mars. Ástæðan fyrir því er að síð- ustu umferðirnar í 1. deildarkeppn- inni fara fram á sama tíma hér á landi. Danir ætla að bjóða Króötum í stað íslendinga. Landslið S-Kóreu tekur þátt í mótinu og Danir bíða eftir svari frá Egyptum. er mjög ánægð með árangurinn það sem af er vetri. Ég hef bætt mig verulega í svigi og er komin vel innfyrir hundrað á styrkleikalista FIS og er í fyrsta ráshópi í Evrópu- bikarmótum. Besti árangurinn í vetur er 11. sæti í svigi í Evrópubik- armóti og fékk ég fyrir það 22,48 stig,“ sagði Ásta. Hún segist gera sér vonir um að vera á meðal tuttugu fyrstu í svig- inu, sem er hennar sérgrein. „Eg stefni á 15. sætið í sviginu, það ætti ekki vera fjarlægur draumur." Hún segist fara á þessa leika miklu öruggari með sjálfan sig en í Albert- ville. „Ég fraus nánast í startinu í stórsvigskeppninni í Albertville vegna taugaspennu. Nú veit ég að hveiju ég geng og það ætti að hjálpa mér,“ sagði Ásta. KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN Þrettándi sigurinn í röð BIKARMEISTARAR Keflavíkur lentu í kröppum dansi að Hlíð- arenda í gærkvöldi þegar þeir mættu neðsta lið úrvaldsdeild- arinnar, Val. Valsarar voru yfir þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka, en urðu síðan að játa sig sigraða, 101:107. Þar með voru Keflvíkinar búnir að leika sinn þrettán sigurleiki í röð í deild- og bikarkeppni. Gestirnir notuðu alla sína menn þrátt fyrir erfiðan bikarleik um helgina og pressuðu stíft í byij- un en Valsmenn voru sýnd veiði en ekki gefin, ef miðað er við stöðuna í deildinni, og komust yfir um miðjan fyrri hálfleik. Kefl- víkingar skiptu byijunarliðinu að mestu útaf en það þurfti tíu stig í röð frá Sigurði Ingimundarsyni til Stefán Stefánsson skrífar að jafna leikinn. Bikarmeistararnir voru að ná yfirhöndinni eftir hlé þegar Franc Booker lenti í útistöð- um við nokkra leikmenn Keflavíkur og tók þá við sér svo að þegar sjö mínútur voru til leiksloka hafði Valur yfir 79:77. Endaspretturinn var síðan Suðurnesjarnanna. „Við áttum alveg eins að geta unnið en þeh' eru samt með betra lið,“ sagði Svali Björgvinsson þjálf- ari Valsmanna. Bragi Magnússon lék jafnbest þeirra en Franc Boo- ker, Brynjar Karl Sigurðsson og Gunnar Zöega áttu góða spretti. I Keflvíkingar gátu leyft sér þann munað að skipta fjórum úr bytjun- arliðinu útaf og fá fjóra leikreynda óþreytta í staðinn. „Það er erfitt að ná stemmingu eftir góðan bikar- leik en við lögðum allt í leikinn enda töpuðum við hér síðast. Það var samt visst vanmat en þetta hafðist þó og sigur er alltaf sigur,“ Björn Bjömsson skrifar DIEGO Maradona var í gær rekinn frá Newell’s Old Boys, eftir að hafa ekki mætt á æfíngar hjá féiaginu í viku. Við þetta minnka líkurnar á að kappinn leiki með Argentínu í HM í Bandarikjunum. Maradona hefur átt við meiðsli að stríða. v. OSSIE Ardiles, framkvæmda- stjóri Tottenham, snaraði pen- ingabuddunni á borðið í gær og keypti Kevin Scott, varnarleik'-^ mann, frá Newcastle á 850 þús. pund. Scott var fyrirliði Newcastle, þegar Ardiles var stjóri á St. James Park. RUEL Fox, sóknarleikmaður Norwich, skrapp til Newcastle í gær, til að ræða við Kevin Keegan, framkvæmdastjóra félagsins, sem er tilbúinn að borga 2,2 millj. pund fyrir Fox, sem yrði dýrasti leikmað- ur félagsins. Keegan keypti Andy Cole frá Bristol City fyrir ellefu mánuðum á 1,75 millj. punda. IRINA Privalova frá Rúss- landi, setti heimsmet í 50 m hlaupi innanhúss í Moskvu í gær, er hún hljóp vegalengdina á 6,03 sek. URSLIT sagði Albert Óskarsson sem ásamt Raymond og Jóni Kr. Gíslasyni, var bestur Keflvíkinga. Grindvíkingar sterkir Leikmenn Tindastóls máttu þola tap, 70:89, fyrir Grindvíking- um. Leikurinn bauð strax upp á mikinn hraða og var varnarleikur liðanna öflugur. Grindvíkingar voru sterkari á loka- sprettinum og tryggðu sér þá ör- uggan sigur. Nökkvi Már Jónsson og Pétur Guðmundsson léku mjög vel fyrir Grindvíkinga og þegar heimamenn reyndu að stöðva þá, opnaðist svæði fyrir Wayne Casey. Páll Kolbeinsson var bestur heima- manna, en þeir Robert Buntic og Ingvar Ormarsson áttu góða spretti. Valur-IBK 100:107 fþróttahúsið Hlíðarenda, Orvalsdeildin í körfuknattleik, þriðjud. 1. febrúar 1994. Gangur leiksins: 0:2, 9:8, 22:22, 29:24, 36:38, 40:43, 42:47, 42:50, 42:53, 53:61, 74:74, 79:77, 90:95, 98:107, 100:107. Stig Vals: Franc Booker 29, Bragi Magnús- son 24, Ragnar Þór Jónsson 19, Brynjar Karl Sigurðsson 15, Guðni Hafsteinsson 4, Gunnar Zöega 4, Bergur Már Emilsson 3, Bjarki Guðmundsson 2. Stig ÍBK: Raymond Foster 27, Sigurður Ingimundarson 22, Albert Óskarsson 16, Guðjón Skúlason 14, Kristinn Friðriksson 14, Jón Kr. Gíslason 8, Brynjar Harðarson 4, Böðvar Þ. Kristjánsson 2. Dómarar: Jón Otti Ólafsson og Héðinn Gunnarsson. Áhorfendur: Um 180. UMFT-UMFG 70:89 Sauðárkrókur: Gangur leiksins: 6:12, 14:19, 33:31, 36:26, 39:41. 44:48, 50:56, 58:68, 62:74, 70:89. Stig UMFT: Robert Buntic 16, Páll Kol- beinsson 16, LárusPálsson 15, IngvarOrm- arsson 12, Hinrik Gunnarsson 7, Sigurvin Pálsson 2, Ómar Sigmarsson 2. Stig UMFN: Nökkvi Már Jónsson 24, Wa- yne Casey 19, Pétur Guðmundsson 17, Guðmundur Bragason 12, Hjörður Harðar- son 9, Marel Guðlaugsson 4, Ingi K. Ingólfs- son 2, Bergur Eðvarðsson 2. Dómarar: Kristinn Albertsson og Árni Freyr Sigurlaugsson, vægast sagt slakir. Áhorfendur: 350. 1. deild karla: Höttur - Þór..................53:75 1. deild kvcnna: ÍR-ÍS.........................61:49 Knattspyrna England 1. deild: Crystal Palace — Peterborough..3:2 Grimsby — W.B.A................2:2 Spánn Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Real Madrid — Tenerife..........0:3 ■Einn svartasti dagur I knattspyrnusögu Real Madrid var i gær þegar liðið var slejjfc—. ið út úr bikarkeppninni af Tenerife, sem vann samanlagt 5:1. Þremur leikmönnum Real Madrid var vikið af leikvelli áður en flautað var af. Áhangendur Real voru æfir og köstuðu öllu lauslegu úr stúkunni niður á völlinn til að mótmæla leik sinna manna. Enn hitnar undir hjá Benito Floro fram- kvæmdastjóra sem mátti varla við þessu áfaili. Ranion Mendoza, forseti félagsins, var að vonum óánægður en vildi ekkert segja um það hvort þetta hafi veri siðasti leikur Floro.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.