Morgunblaðið - 15.02.1994, Page 1

Morgunblaðið - 15.02.1994, Page 1
64 SIÐURB STOFNAÐ 1913 37. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter. Fylgst með birgðalestinni BRESKIR friðargæsluliðar aka á eftir hollenskri flutningalest með hjálpargögn á fjalivegi milli bæj- anna Vitez og Gornji Vakuf í Lisac-fjöllum í Bosníu. Þurfti bílalestin að doka við á veginum þar sem stórskotaliðsárás á Gornji Vakuf stóð yfir. Kosningar nálgast í Suður-Afríku Zúlumenn krefj- ast stofnunar sjálfstæðs ríkis Durban, Höfðaborg. Reuter. KONUNGUR suður-afrískra Zúlúmanna, Goodwill Zwelithini, sagði í gær að Zúlumenn væru reiðubúnir að stofna eigið ríki í andstöðu við ríkisstjórn Suður-Afríku og Afríska þjóðarráðið, ANC. A fundi sem hann átti með F.W. de Klerk forseta í Durban afhenti hann forsetanum minnisblað þar sem hann segir Zúlumenn hafna hinni nýju stjórnarskrá landsins og að ekki sé hægt að skerða rétt þjóðar Zúlumanna til sjálfsákvörðunar. Um fimmtíu þúsund Zúlumenn höfðu komið saman fyrir utan ráðhúsið í Durban, þar sem fundurinn átti sér stað, og skutu margir með skammbyssum og rifflum upp í loft- ið. Lét einn maður lífið og nokkrir særðust áður en Zwelithini gerði hlé á fundinum og kom út og bað menn sína um að sýna stillingu Goodwill Zwelithini greindi þús- undum stuðningsmanna sinna frá innihaldi minnisblaðsins á fundi á fótboitaveili í Durban fyrir fundinn með de Klerk. Þar sagðist hann vera reiðubúinn að beijast fyrir sérstakri stjórnarskrá er næði til héraðanna KwaZulu og Natal. Mangosuthu Buthelezi, pólitískur leiðtogi Zúlu- manna og frændi Zwelithinis, sagði á sunnudag að ofbeldi og dauði væri framundan. Zúlumenn neita að taka þátt í fyrstu lýðræðislegu kosn- ingunum í Suður-Afríku í apríl og hafa tekið.upp samstarf við hvíta öfgamenn. De Klerk sagði á blaðamanna- fundi að loknum fundinum með Zwelithini að hann teldi að hægt væri að finna ásættanlega lausn fyrir Zúlúmenn með samningavið- Oryggisráðið styður hótun NATO um sprengj uárásir ræðum. Nelson Mandela, leiðtogi ANC, sagði í gær að hann treysti ekki kaupsýslumönnum til að byggja upp efnahagslíf landsins án afskipta rík- isins. Meginverkefnið að loknum kosningum væri að skapa ný at- vinnutækfæri og því kynni að þurfa ríkisafskipti til að ýta undir hagvöxt. ------♦ ♦ ♦------ Sameinuðu þjóðunum, Washingfton. Reuter. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna, að fulltrúum Kína og Rússlands undanskildum, lýsti í gær yfir stuðningi við loftárásir á vegum Atlants- hafsbandalagsins á stöðvar Serba í kringum Sarajevo, ef aftur verða gerðar stórskotaliðsárásir á borgina. Ráðið samþykkti enga ályktun um málið en Madeleine Albright, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði ákvörðun NATO vera i samræmi við fyrri ályktanir ráðsins. Því þyrfti ráðið ekki að álykta upp á nýtt. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði að hótun NATO um Ioftárásir stæði óbreytt þrátt fyrir yfirlýsing- ar sumra embættismanna SÞ um að úrslitakostirnir væru sveigjanlegir. Reuter. Frosthörkur í Bretlandi BRETAR vöknuðu upj) við vondan draum í gærmorgun. Uti var hörku- frost og blindhríð en þvi eiga Bret- ar ekki að venjast. Olli þetta miklum truflunum á samgöngum og fjöl- mörg umferðarslys urðu í hálkunni. Á myndinni má sjá frosinn gos- brunn fyrir utan breska þingið. Sendiherra Bosníu hjá Samein- uðu þjóðunum sagði í umræðum í öi'yggisráðinu, að hótanir NATO um loftárásir á stórskotaliðshreið- ur Serba við Sarajevo ættu aðeins að vera fyrsta skrefið. Væri einn- ig nauðsynlegt að ijúfa umsátrið um fimm aðrar borgir, sem eru „griðasvæði" samkvæmt ákvörð- unum SÞ. Nokkur skoðanamunur virðist vera með yfírmönnum frið- argæsluliðs SÞ í Bosníu og yfir- mönnum NATO og segja þeir fyrr- nefndu, að áherslan á Sarajevo dragi athygli umheimsins frá versnandi ástandi annars staðar i landinu. Samkvæmt ályktun NATO frá í síðustu viku hefur Serbum og múslimum verið gefinn tíu daga frestur til að afhenda gæsluliðum SÞ öll stórskotaliðsvopn innan 20 km radíuss frá miðborg Sarajevo. Lewis MacKenzie, fyrrverandi yfirmaður SÞ-liðsins í Bosníu, sagði í gær, að Serbar kynnu að nota athyglina, sem væri á Sarajevo, til að auka árásir sínar annars staðar og margt bendir til, að nokkur ágreiningur sé með SÞ og NATO hvað varðar þá stefnu, sem nú hefur verið tekin. Munu Danir taka ráð- in af Færeyingum? I'ói'shufn. Frá Grækaris Djurlmus Maniiussun, fróltaritara Morgunbluðsins. SVO getur farið á næstunni, að danska stjórnin sjái sig tilneydda að taka öll ráð af Færeyingum og selja þeim ný fjárlög, sem samin yrðu í Kaupmannahöfn án samráðs við færeyska stjórn- málamcnn. Er ástæðan sú, að Lögþingið virðist ekki ætla að fall- ast á þá kröfu Dana óbreytta, að sett verði lög uni fiskveiðistjórn og framseljanlega kvóta. Danska stjórnin setti það skil- yrði fyrir endurfjármögnun og aðstoð við að greiða erlendar skuldir Færeyinga, að sett yrðu lög um stjórn fiskveiða og teknir upp framseljanlegir kvótar. Á það fyrra mun verða fallist -en sjávar- útvegsnefnd Lögþingsins hefur hins vegar breytt frumvarpinu á þann veg, að öll kvótasala verður bönnuð og má hvorki leigja þá né lána og verður kvótinn bundinn við skip. Færeyska blaðið Dimmalættíng sagði á laugaidag og hafði eftir heimildum í Danmörku, að yrði ákvæðið um fvamseljanlegu kvót- ana ekki samþykkt, myndi danska stjórnin skerast í leikinn og setja Færeyingum ný fjárlög. „Og við samningu þeirra verða færeyskir stjórnmálamenn hvorki spurðir um eitt né neitt,“ hafði ■ blaðið eftir heimildarmönnum sín- ,um í Danmörku. Frumvarpið um stjórn fiskveiða við Færeyjar verður lagt fram á Lögþinginu í vikunni ef danska stjórnin verður þá ekki búin að taka við stjórn mála á Eyjunum. Noregur Skilyrtur stuðningur við aðild MEIRIHLUTI norskra kjósenda er fylgjandi því að Norðmenn gerist aðilar að Evrópusamband- inu (áður Evrópubandalaginu) ef Svíar og Finnar ganga í sam- bandið, samkvæmt nýrri skoð- anakönnun. Alls sagðist 41% Norðmanna vera hlynnt aðild að Evrópusam- bandinu og 39% vera á móti ef Finnar og Svíar fengju aðild. 19% kjósenda voru enn óákveðin. Þetta er í fyrsta skipti frá því aðildarvið- ræðurnar hófust að meirihluti kjós- enda er fylgjandi aðifd. Það er þó óvíst að Finnar og Svíar gangi í Evrópusambandið. Sámkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í Svíþjóð í gær, hefur and- staða við aðild aukist frá síðustu könnun. 32% segjast vera hlynnt aðild, 40% eru á móti og 28% hafa ekki gert upp hug sinn. I gær sagði svo Martti Pura, landbúnaðarráð- herra Finnlands, að ef finnskir bændur fengju ekki vilyrði fyrir viðvarandi niðurgreiðsluin yrðu Finnar að endurskoða aðildaráform sín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.