Morgunblaðið - 15.02.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 15.02.1994, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 Kaupa sér frysti fyrir ódýrt kjöt FYRIRTÆKI, sem selja frysti- kistur og frystiskápa, hafa orð- ið vör við aukinn áhuga fólks á þessum heimilistækjum undanfarna daga og vikur. Það er óvenjulegt miðað við árs- tíma, því helsti sölutími tækj- anna er í sláturtíðinni á haust- in. Þessi aukni áhugi er rakinn til lækkandi verðs á kjöti, enda hefur farið sögum af fólki sem hefur keypt mikið magn svína- kjöts og kjúklinga undanfarna daga. Morgunblaðið hafði samband við Bræðurna Ormsson, Heimilis- tæki og Húsasmiðjuna. Hjá Bræðrunum Ormsson sagði sölu- maður, að töluvert hefði verið spurt eftir frystiskápum hjá fyrir- tækinu í gær. Sending á leiðinni Sölumaður hjá Heimilistækjum sagði að fyrirtækið ætti ekki frystikistur þessa dagana en send- ing væri á leiðinni. Töluvert hefði verið spurt um kistur og skápa undanfarið, sem væri óvenjulegt miðað við árstíma. Margir hafa fremur áhuga á kistum en skáp- um, enda verðmunur þar á umtals- verður. Hjá Húsasmiðjunni sagði sölu- maður að enginn sérstakur kippur hefði komið í eftirspurnina nú eft- ir helgina, en salan hefði að vísu verið óvenju glaðleg undanfarið, eins og hann orðaði það. Hjá tannlæknum REYNT verður að bjarga tönnum Tinna en ekki víst að takist vegna þess hve illa þær eru farnar. Frá vinstri: Bragi Asgeirsson tannlæknir, Haukur Filipusson tannlæknir, Sveinn Ragnarsson og Helgi Sigurðsson dýralæknir sem rétt grillir í hnakkann á. Hesturinn Tinni fer til tannlæknis RÁÐIST var í óvenjulegar tannlækningar um helgina þegar reynt var að bjarga framtönnum fjögurra vetra fola sem stokkið hafði á grind. Folinn, sem er í eigu Guðrúnar Eddu Bragadóttur, braut í sér nokkrar tennur og vildi faðir Guðrúnar, Bragi Ásgeirsson tannlæknir, reyna að bjarga tönnum hestsins. Folinn er fiögurra vetra og heitir Tinni. Hann var deyfður, síðan tekin röntgenmynd og mót af tönnunum. Við eftirgrennslan reyndust þær sprungnari en talið hafði verið, tvær þeirra mjög illa farnar og eina vantar í neðri góm og ekki víst að fáist næg festa fyrir gullbrú í hestinn. Bragi Ásgeirsson tannlæknir sagði í samtali við Morgunblaðið að Tinni, sem er ættbókarfærður, væri lítið taminn og þennan dag hefði foiinn verið járnaður. Hann hefði verið bundinn og hugsanlega eitthvað fokið í hann og því hefði hann stokkið á grindina. „Þetta er vissulega óvenjulegt en við vild- um gera allt til þess að bjarga tönnunum. Búið er að taka fyrsta mót og eftir'að sjá hvort hægt er að smíða eftir steyptu módeli. Það kemur hins vegar í ljós síðar í vikunni. Ef ekki tekst að bjarga tonnunum er náttúrlega illa komið fyrir honum,“ sagði Bragi Ás- geirsson tannlæknir. Tálknfirðingnr, síðasti ísfisktogari á sunnanverðum Vestfjörðum, seldur með 5601 kvóta Sjálfstæðismenn í Garðabæ Efstu sæt- in óbreytt Breytingar gerð- ar á tillögu upp- stillingarnefndar ENGAR breytingar verða á fimm efstu sætunum á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ við bæjarsljórnarkosn- ingarnar í vor. Tillaga uppstill- ingarnefndar um nýtt fólk í 4. og 5. sæti var felld með sex at- kvæða mun á fundi fulltrúaráðs- ins í gærkvöldi. I 1. sæti er Benedikt Sveinsson hæstaréttarlögmaður, í 2. sæti Laufey Jóhannsdóttir sölustjóri, í 3. sæti Erling Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri, í 4. sæti Sigrún Gísladóttir skólastjóri og í 5. sæti er Andrés B. Sigurðsson fram- kvæmdastjóri. í 6. sæti er Már Másson nemi, í 7. sæti Smári Hauksson bakari, í 8. sæti Jón Búi Guðlaugsson verk- fræðingur, í 9. sæti María Richter húsmóðir, í 10. sæti Margrét Tóm- asdóttir hjúkrunarfræðingur, í 11. Guðmundur Hallgrímsson lyfja- fræðingur, í 12. sæti Áslaug Hulda Jónsdóttir nemi, í 13. sæti Einar Guðmundsson flugvélstjóri, og í 14. sæti Sverrir Hallgrímsson hús- gagnasmiður. Að sögn Sverris Hallgrímssonar formanns uppstillingarnefndar lagði nefndin til að Lárus Blöndal lögfræðingur skipaði 4. sæti og að Sigurveig Jónsdóttir kennari yrði í 5. sæti, en tillagan var felld með sex atkvæða mun á fundinum. MeitíUinn og Vinnslustöð- in stofna félag um skipið VINNSLUSTÖÐIN í Vestmannaeyjum og Meitillinn í Þorlákshöfn hafa sameiginlega fest kaup á togaranum Tálknfirðingi með 560 þorskígildistonna kvóta af karfa, ufsa, ýsu og grálúðu, sem jafngild- ir um 1.000 tonnum af fiski upp úr sjó. Kaupverðið er um 220 millj- ónir króna. Kaupendurnir hafa stofnað fyrirtækið Mel hf. um út- gerð togarans og að sögn Sighvats Bjarnasonar framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar er ætlunin að gera togarann út frá Vestmanna- eyjum undir nafninu Sindri VE 60 og láta það leggja ýmist upp afla í Þorlákshöfn eða Eyjum. Sighvatur Bjarnason sagði að bæði fyrirtækin, sem eiga mikinn kvóta, muni jafnframt flytja kvóta á skipið. Vinnslustöðin hefur nýlega selt frá sér togarann Guðmundu Torfadóttur. Sighvatur sagði að fyrirtækin hefðu hvort fyrir sig verið á höttunum eftir skipi en ákveðið að sameinast um að reka einn togara með nægum aflaheim- ildum „í staðinn fyrir að vera að puðrast með tvo“. Hann sagði að með þessu vonuðust Vinnslustöðin og Meitillinn eftir að ná hagræðingu og aukinni hagkvæmni í rekstri en bæði fyrirtækin stefndu að því að auka hjá sér fullvinnslu í landi. Með sölunni á Tálknfirðingi fer síðasti ísfisktogarinn úr byggðum við sunnanverða Vestfírði. Kaup- / dag Hannes Hlífar Reykjavíkurskákmótinu lauk um helgina ogþar vakti árangur Hann- esar Hlífars mesta athygli 7/45 Dansmeistarar Meistarar meðal atvinnumanna í dansi kenna nú hér á landi' 23 Ópið Þjófarnir þökkuðu fyrir sig 24 Flutningsjöfnun________________ Skeljungur skrifar til samkeppnis- ráðs 26 Leiöari Samkeppni á kjötmarkaði 26 Iþróttir ► Lítt þekktur Norðmaður sigraði með ýfirburðum í 30 km göngu í Lillehammer - Glæsilegur árangur fatlaðra íþróttamanna í Svíþjóð endurnir fá skipið afhent þegar út- runninn er 30 daga frestur sveitar- félagsins á Tálknafírði til þess að neyta forkaupsréttar en Pétur Þor- steinsson, framkvæmdastjóri Hrað- frystihússins á Tálknafirði, sagðist ekki telja nokkrar líkur á að til þess komi. Tálknfirðingar semja við aðila á Patreksfirði Tálknfírðingur er fjórtán ára gamalt skip, smíðað í Noregi, 351 tonn að stærð. í áhöfn skipsins hafa verið 15 menn og fylgja nokkr- ir skipinu til nýrra eigenda. Eftir sölu skipsins á Hraðfrystihúsið á Tálknafírði um 720 þorskígildis- tonna kvóta, mestallt í þorski, að sögn Péturs. Hraðfrystihúsið hefur gert samning við útgerðarfyrirtæk- ið Háanes á Patreksfírði um að línu- bátar þess, Andey og Guðrún Hlín, veiði fyrir skipið og leggi upp á Tálknafírði. Dregur ekki úr vinnu í landi Nokkrir skipveija af Tálknfirð- ingi fá vinnu á bátum Háaness. Háanes leggur álíka mikinn kvóta og Hraðfrystihúsið með í samning- inn en hættir jafnframt fiskvinnslu. Sala togarans hefur því ekki áhrif á vinnu fískvinnslufólks á Tálkna- firði að sögn Péturs, auk þess sem veiðar línubáta bjóða upp á tvöföld- unarmöguleika, þannig að aðeins helmingur veidds afla dregst frá kvóta yfír vetrarmánuðina. Sveit Zia sigraði í 5. skipti SVEIT Zia Mahmoods sigr- aði á Flugleiðamótinu í brids sem lauk í gærkvöldi. Mótið hefur verið haldið þrettán sinnum og hefur sveit Zia sigrað fimm sinnum. Áttatíu sveitir tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Sveit Zia sigraði með 191 stigi en sveitina skipa auk hans Bart Bramley, Russ Ekeblad og Mark Molson. í 2. sæti varð sveit Landsbréfa, hlaut 182 stig, og í 3. sæti varð sveit Rafmagnsveitu Reykjavíkur, einnig með 182 stig. í 4. sæti varð sveit Glitnis með 180 stig og í 5. sæti varð sveit Brynj- ólfs Gestssonar, einnig með 180 stig. Landbúnaðarnefnd Alþingis gerir breytingar á búvörufrumvarpinu Ágreiningur er milli þing- manna slj órnarflokkanna ÁGREININGUR er milli fulltrúa stjórnarflokkanna í landbúnaðarnefnd Alþingis um frumvarp landbúnaðarráðherra um breytingar á 52. grein búvörulaga sem Iagt var fram fyrr í mánuðinum í tilefni af dómi Hæstaréttar í skinkumálinu. Egill Jónsson formaður nefndarinnar sagði að þegar nefndarálitið kæmi fram fæli það í sér breytingar á frumvarp- inu og sagði að vegna þeirra breytinga sem frumvarpið fæli í sér væri einnig nauðsynlegt að styrkja 72. grein búvörulaganna en hún fjallar um heimild landbúnaðarráðherra til að leggja á verðjöfnunar- gjöld á landbúnaðarvörur. Gísli S. Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokks í nefndinni, er andvígur því að gerðar verði breytingar á frumvarpinu. Álit þriggja lögfræðinga var kynnt í nefndinni í gær. Þar er lagt til að bætt verði inn setningu um að við- auka í frumvarpinu þar sem talin eru upp tollskrárnúmer yfír landbúnað- arvörur sem háðar eru leyfi fram að gildistöku Úrúgvæsamnings GATT verði veitt ótvíræð lagastoð. Lög- fræðingarnir leggja einnig til að gerðar verði breyingar á 53. og 72. grein búvörulaganna til að styrkja forræði landbúnaðarráðherra til álagningar verðjöfnunargjalda á fleiri innfluttar vörur en taldar eru upp í viðaukanum. Gísli kvaðst ekki viss um að þær breytingar sem lögfræðingarnir legðu til stæðust alþjóðlega samn- inga sem Islendingar hefðu gert. f I i B i I I I f f I I I I i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.