Morgunblaðið - 15.02.1994, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
5
Verðið yfir 90
milljónir króna
BRYGGJUHÚSIÐ við Vesturgötu 2 þar sem Álafoss var lengi með
verslun er auglýst til sölu eða leigu í Morgunblaðinu á sunnudag.
Húsið sem er tvær hæðir, ris og kjallari, samtals um 1.200 fermetr-
ar að stærð, er aðeins til sölu í einu lagi og segir Guðvarður Gísla-
son, veitingamaður, eigandi hússins að söluverðið sé yfir 90 milljón-
ir króna.
Húsið var upphaflega reist árið
1846 við norðurenda Aðalstrætis
upp af bryggju sem þar var og var
áskilið að göng yrðu í gegnum
húsið mitt niður á bryggjuna.
Segja má að húsið hafi verið hugs-
að sem einhvers konar borgarhlið
og þegar ákveðið var að númera
hús í Reykjavík ákvað bæjarstjórn
að miða við þetta hús og telja frá
því og var ákveðið að jafnar tölur
skyldu vera á hægri hönd.
Húsið var fyrst ein hæð með
portbyggðu risi og auk þess kvist-
ur yfir þar sem gangurinn lá í
gegnum húsið. Skömmu seinna var
húsið lengt til austurs og settir á
það kvistir og eftir aldamótin var
önnur hæð byggð ofan á. Guðvarð-
ur keypti húsið af Framkvæmda-
sjóði fyrir fáum árum sem end-
urnýjaði húsið mikið. Hann sagði
að það hentaði mjög vel til veit-
ingareksturs, enda hefði hann ætl-
að sér að nota það til þeirra hluta,
en áætlanir hans breyst, þar sem
%
--------1-----------------
Rauði kross-
inn áfram
í Bosníu
ALÞJÓÐARÁÐ Rauða krossins
mun leitast við að fylla það
skarð sem skilið verður eftir í
hjálparstarfi Rauða krossins,
Bosníu-Herzegóvínu, ef Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna og samstarfsaðilar hennar
neyðast til að yfirgefa landið.
Komi til loftárása herja NATO
er ólíklegt að stofnunum Sam-
einuðu þjóðanna verði vært í
landinu að minnsta kosti á yfir-
ráðasvæði Serba.
Alþjóðaráðið hefur undanfarnar
vikur verið að búa sig undir að
taka yfir hlutverk Flóttamanna-
stofnunarinnar í Bosníu-Herzegó-
vínu. Þörfin fyrir neyðaraðstoð
meðal óbreyttra borgara er gífur-
leg, sérstaklega er skortur á mat-
vælum og lyfjum. Ráðið hefur
bækistöðvar á 17 stöðum í landinu
þar sem leitast er við að fylla
birgðaskemmur af neyðarvarningi,
en áætlanir Alþjóðaráðsins gera
ráð fyrir að ástandið versni til
muna bæði á yfirráðasvæðum
Serba og Mið-Bosníu ef til loftá-
rása kemur.
í fyrra hafði Alþjóðaráð Rauða
krossins milligöngu um að 2400
stríðsfangar voru látnir lausir það
sá um matvæladreifingu til að
minnsta kosti einnar milljónar
nauðstaddra og bar tvær milljónir
skilaboða milli ástvina sem misst
höfðu sjónar hver á öðru. Einnig
heimsótti ráðið 14.400 stríðsfanga
og útvegaði 260 heilsugæslustöðv-
um og sjúkrahúsum lyf.
------»-»-4----
Skipaður
sýslumaður
í Borgarnesi
FORSETI íslands hefur, að tillögu
dómsmálaráðherra, skipað Stefán
Skarphéðinsson, sýslumann á Pat-
reksfirði, til þess að vera sýslumað-
ur í Borgarnesi frá 1. mars að telja.
hann hefði tekið að sér stórt verk-
efni á hótel Loftleiðum. Aðspurður
sagði hann að margir hefðu sýnt
húsinu áhuga ekki síst veitinga-
menn.
Til sölu
BRYGGJUHÚSIÐ á Vesturgötu 2 er nú til sölu. Guðvarður Gísla-
son veitingamaður er eigandi hússins og segir að söluverðið sé
90 milljónir króna.
amfetamín
LÖGREGLAN handtók þrjá
menn um tvítugt í miðbæ Reykja-
víkur aðfaranótt laugardags, en
vegfarandi hafði tilkynnt að þeir
væru að selja fíkniefni. Við hand-
tökuna fannst amfetamín á
mönnunum, samtals um eitt
gramm.
Tilkynnt var að mennirnir væru
að selja útlendingum efnið í Austur-
stræti. Amfetamínið var í svokölluð-
um neytendaumbúðum, en menn-
irnir héldu því fram að þeir hefðu
eingöngu ætlað það til eigin neyslu.
Að loknum yfirheyrslum var
mönnunum sleppt úr haldi. Lág-
markssekt fyrir að hafa ólögleg
fíkniefni undir höndum er 20 þús-
und krónur.
Hér skrifar þú nafn kortsins
(EURO, VISA o.s.frv.).
Fyrst skrifar þú lykilnúmerið þitt
einhvers staðar á kortið og síðan
hverja tölu frá 0—9 tjórum sinnurn.
Hefurðu lent í þeirri óþægilegu aðstöðu að muna ekki leyninúmer
greiðslukortsins þíns einmitt þegar þú hefur hvað mest þurft á því
að halda? Sé svo er TALNAVISIR kærkomin lausn fyrir þig.
TALNAVISIR er lítið kort á stærð við greiðslukort sem þú geymir
í seðlaveskinu þínu með greiðslukortinu. Þar „felur“ þú leyninúmerið
fyrir öllum öðrum en sjálfum þér.
Þú færð TALNAVÍSI í sparisjóðnum með nákvæmum leiðbeiningum
þér að kostnaðarlausu. Biddu um hann í næstu ferð.
SPART S.JÓÐIRNIR
w
fyrir þig og þína
Bryggjuhúsið Vesturgötu 2 er til sölu
Þrír með