Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994 19 SVR sem var Fyrirtæki og stofnun Fimmmanna_. i afj 'Uð pc _> RUV tapaði rúmum 70 millj ónum króna á síðasta ári iiú JJ >- // m \ -'t T OÉOi Siiórnarnefnd um I SVRI [t ...-j Fimm manna stjórn skípuð pólitld Fer með leíðakerfiö, ákveður með samning fargjöld og rekur bið- og til tiltekins skiptistöðvar. tíma. Almenningssamgöngnr áfram undir stjórn borgaryfirvalda REYKJAVÍKURBORG er ekki að afsala sér almenningssamgöngum í hendur SVR hf., segir Hörður Gislason, framkvæmdasljóri stjórnarnefnd- ar um almenningssamgöngur. Segir hann að þrátt fyrir alla þá miklu umræðu um Strætisvagna Reykjavíkur í fjöímiðlum að undanförnu vefj- ist það fyrir ótrúlega mörgum að SVR hf. sér einungis um rekstur vagn- anna. Stjórnarnefnd um almenningssamgöngur, sem er ný borgarstofn- un, er ætlað að tryggja áfram almenningsvagnaþjónstu borgarbúa, skipu- leggja leiðakerfið, ákveða fargjald og sjá um rekstur biðskýla. Með breyttum rekstri frá og með 1. desember síðastliðnum var borg- arfyrirtækinu SVR skipt í tvo hluta. Annars vegar SVR hf., sem kaupir vagna af SVR og tekur jafnframt yfir rekstur þeirra og þeirrar þjón- ustu sem tengist vögnunum í Borg- artúni. Hins vegar varð til ný borg- arstofnun, stjórnarnefnd um al- menningssamgöngur, sem fer með málefni almenningssamgangna í Reykjavík. „Borgin er alls ekki að afsala sér almenningssamgöngum í hendur SVR hf.,“ sagði Hörður. „Heldur er það stjórnarnefnd um almenningssamgöngur sem heyrir beint undir borgarstjórn og starfar jafnframt undir borgarráði, sem fer með þennan málaflokk í borginni. Það má að mörgu leyti líkja stjórn- arnefndinni við skólamálaráð eða dagvist barna.“ Sagði Hörður að víða erlendis væri þróunin sú að kljúfa rekstur vagnanna frá borgarstofnunum og bjóða út akstur þeirra með ýmsum hætti. Ýmist allan eða að hluta til. í Reykjavík var valin sú leið að Esso styrkir forvarnar- starf Krabbameinsfélagsins OLIUFELAGIÐ HF. er meðal margra fyrirtækja sem styðja krabbameinssamtökin með því að kaupa árlega miða í happ- drætti Krabbameinsfélagsins. Þegar dregið var í jólahapp- drættinu 24. desember sl. kom í ljós að 100.000 kr. vinningur hafði komið á einn af miðunum sem fyrirtækið átti. Það er venja hjá Olíufélaginu að láta starfsmannafélagið njóta smá- vinninga sem fyrirtækinu hlotnast en gefa stærri vinninga til líknar- mála. í þessu tilviki ákvað félagið að láta vinninginn renna til Krabba- meinsfélagsins sjálfs með þeirri ósk að fjárhæðin yrði notuð til forvarna- starfa. Er í samræmi við rekstraráætlanir og halla sem samþykktur var í fjárlögum REKSTRARTAP Ríkisútvarpsins á síðasta ári var samanlagt rúmar 70 milljónir króna samkvæmt bráðbirgðauppgjöri sem nú liggur fyrir. Tapið er í meginatriðum í samræmi við rekstraráætlanir og þann halla sem samþykktur var í fjárlögum sem nam afskriftum. Tekjur af auglýs- ingum urðu þó minni en ráð var fyrir gert í endurskoðari fjárhagsáætl- un á miðju ári. Á móti kemur að fjármagnsgjöld urðu verulega minni en áætlað var vegna lægri vaxtakostnaðar. Hörður Vilhjálmsson, fjár- málastjóri Ríkisútvarpsins, segir að þetta sé ásættanleg niðurstaða i ljósi þeirra erfiðleika sem við hafi verið að etja i rekstrinum. Gera má ráð fyrir að tekjur sam- kvæmt bráðabirgðauppgjörinu séu endanlegar en eitthvað gæti átt eftir að bætast við á gjaldahlið eink- um vegna útgjalda erlendis, að sögn Harðar, en þó ekki svo mikið að það breyti heildarútkomunni að ráði. Heildartekjur Ríkisútvarps á síðasta ári urðu rétt tæpir 2,1 millj- arður króna, rúmum 16 milljónum undir því sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Mestu munar að auglýsinga- tekjur urðu rúmum 29 milljónum undir áætlunum, tæpar 523 milljón- ir í stað 552 milljóna samkvæmt. áætlunum sem jafngildir 5,3% sam- drætti. Hins vegar urðu tekjur af afnotagjöldum meiri en ráð var fyr- ir gert eða rúmar 1.528 milljónir í stað 1.516 miljóna. Rekstrargjöld urðu hins vegar rúmum 10 milljón- um undir áætlunum eða tæpar 2.170 milljónir og fjármagnsgjöld einnig tólf milljónum undir áætlun- um eða rúmar 34 milljónir í stað 46 railljóna. Rekstrartap ársins að teknu tilliti til fjármagnsliða er því rúmar 72 milljónir í stað 76 millj- óna sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Hallinn á útvarpinu er um 18 millj- ónir króna og fór rekstur dreifikerf- is hlutfallslega mest fram úr áætl- unum eða um 5,4%, en einnig fóru fram úr áætlunum leiklistardeild, rás 2 og íþróttadeild um 2,6-3,3%. Hins vegar er rekstur fréttastofu, rásar 1 og landshlutaútvarpsins og tæknideildar undir áætlunum á bil- inu 2,1-4,6%. Rekstrartap sjónvarpsins er tæp- ar 55 milljónir króna. Innkaupa- og markaðsdeild fer 4,4% fram úr áætlunum, fréttastofa 5,9%, dag- skrárgerð á vegum framkvæmda- stjóra um 7,2%, kostnaður vegna dreifikerfis 2,8% og skrifstofa fram- kvæmdastjóra um 12,7%. Að sögn Harðar færast þar framkvæmdir vegna endurnýjunar á anddyri sjón- varpsins og að teknu tilliti til þriggja milljón króna útgjalda um- fram- áætlanir vegna þess megi gera ráð fyrir að útgjöld séu í kring- um 6% umfram áætlanir. Hins veg- ar er innlend dagskrárgerð 2,5% undir áætlunum, íþróttadeild 7,4% og tæknideild 7,9%. vagnafyrirtækið yrði áfram til í svip- aðri mynd en að stofnað yrði um það hlutafélag með hlutafélaga- stjórn. Möguleiki á útboði Síðan var gerður samningur milli stjómamefndar um almenningssam- göngur og SVR hf. um aksturinn og er samningurinn tímabundinn. „Eftir þann tíma opnast möguieiki fyrir stjómamefnd um almenningssam- göngur að bjóða út aksturinn og þá býður SVR hf. væntanlega í eins og aðrir aðilar," sagði Hörður. „Með þessum aðgerðum er verið að skapa markað til framtíðar en jafnframt verður SVR hf. áfram öflugt fyrir- tæki sem væntanlega býður í akstur- inn. Vagnar fyrirtækisins eru góðir og allur aðbúnaður við þjónustustarf- semina á Kirkjusandi er mjög góður." Þórólfur Árnason, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Olíufélaginu, afhendir Sigríði Lister, formanni Krabbameinsfélags Reykjavíkur, vinningsmiðann. Auglýsingatekjur rýrnað Hörður Vilhjálmsson sagði að að teknu tilliti til þess að RUV hefði tapað tekjum á undanförnum árum og nýir útgjaldaliðir bæst við að hluta vegna aukinnar þjónustu hefði vel tekist til um reksturinn, enda hefðu einstakar deildir brugð- ist vel við þrengri fjárhagsstöðu og skorið niður eins og kostur væri. RÚV hefði tapað 50 milljóna króna auglýsingatekjum á árinu 1992 frá áætlun og aftur svipaðri upphæð í fyrra. Þá hafi tekjur vegna afnota- gjalda dregist saman að raungildi. Þau hafi ekkert hækkað á árinu 1992 og aðeins hækkað um 4% í febrúar 1993. Á sama tíma hafi orðið tvær gengisfellingar, sem reksturinn sé mjög viðkvæmur fyr- ir. Þannig hafi allt aðkeypt efni hækkað um 8,1% í kjölfar gengis- fellingarinnar í lok júní í fyrrasum- ar. Einnig hefðu ýmsir útgjaldaliðir bæst við vegna aukinnar þjónustu svo sem vegna morgunsjónvarps barnanna, Dagsljóss þáttarins og lengri aagskrár á sunnudögum. Að auki hafi einnig bæst við ýmsir aðrir útgjaldaliðir og þó hver þeirra um sig sé smár þá vegi þeir þungt þegar þeir komi saman. „Það hefur verið leitað allra möguleika í hagræðingu og sam- drætti í útgjöldum og það hefur tekist að bregðast við þessu án uppsagna. Okkur hefur tekist að stilla strengina þannig saman að niðurstaða rekstrarreiknings er í samræmi við áætlanir. Því er hins vegar ekki að leyna að frestað var til næsta árs ákveðnum hlutum sem ætlunin hafði verið að taka á í fyrra. Því eru auðvitað takmörk sett hvað hægt er að skera lengi niður,“ sagði Hörður. Rekstrarreikningi lokað mánaðarlega Hann sagði að á árinu 1992 hefði einnig verið hægt að loka rekstrar- reikningi í jafnvægi og þróunin hefði verið sú að frávik frá áætlun- um hjá einstökum deildum hefðu verið að minnka. Hluti af aðhaldi í rekstrinum fælist í því að loka rekstrarreikningi mánaðarlega og sérhver deildarstjóri og fram- kvæmdastjóri væri ábyrgur fyrir sínum útgjöldum. Ef menn væru undir áætlunum í lok árs flyttu þeir muninn með sér yfir á næsta ár og sama gilti ef eytt væri um- fram áætlanir þá flyttist hallinn yfir á næsta ár og drægist frá ráð- stöfunarfé þess árs. Herbert V. Baldursson, deildarhagfræðingur Ríkisútvarpsins, sagði að þeir reyndu að sjá til þess að vel væri farið með það fé sem væri til ráð- stöfunar, enda væri um opinbert fé að ræða. Menn væru virkjaðir til ábyrgðar og í fléstum tilvikum væri vel farið með það fé sem til ráðstöfunar væri, þótt eflaust mætti finna einstök dæmi um hið gagn- stæða. MuffinMix AOOEGGSMilX CwkU 6008 (21.5(b.! Appi innar Bakstur fyrir alla! Kökublöndurnar frá Betty Crocker eru nýjung á inarkaðimim. Þœr gera þér kleift að baka ilmandi kökur og það á mettíma. Nú fást fjórar tegundir aftilbúnu bráefni í pökkum, þú bœtir aðeins vökva og eggi út í blönduna, hrœrir og bakar. Prófaðu Ijúffengu muffins og súkkulaði- kökumar frá Betty Crocker.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.