Morgunblaðið - 15.02.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
21
Viðskipti
Bandarískar refsiað-
gerðirgegn Japönum?
Tókýó. Reuter.
JAPANAR munu grípa til eigin ráðstafana til þess að opna
markaði sína eftir misheppnaðan leiðtogafund Bandaríkja-
manna og Japana þar sem reynt var að ná samkomulagi um
erfiða viðskiptasamninga að^ögn Morihiro Hosokawa forsætis-
ráðherra.
Hosokawa og Bill Clinton for-
seta tókst ekki á þriggja daga leið-
togafundi að ná samkomulagi um
mikilvæg atriði eins og gert hafði
verið ráð fyrir í efnahagssamningi
Bandaríkjanna og Japans frá júlí
1993 er miðar að því að draga úr
greiðsluafgangi Japana og auka
aðgang að tilteknum markaðsgei-
rum.
í viðræðunum við Clinton neit-
aði Hosokawa að samþykkja fjöl-
mörg viðskiptamarkmið á þeirri
forsendu að það mundi leiða til
viðskiptastjórnunar. Bandaríkja-
stjórn kveðst þurfa mælikvarða til
þess að vega og meta að hve miklu
leyti Japanar opni markaði sína.
Talsmaður japönsku stjórnar-
innar segir að Japanar verði að
leggja fram nýjar tillögur um
markaðsopnun fyrir næsta fund
helztu iðnríkja heims, „G7,“ í júlí
til þess að eyða spennu í viðskipt-
unum við Bandaríkin. Clinton og
Hosokawa munu hittast aftur' á
þessum fundi, sem verður haldinn
í Napoli. Hvorugur kveðst viss um
framhaldið í viðskiptum þjóðanna,
en bandarískir embættismenn
gefa í skyn að Japanar verði beitt-
ir hefndarráðstöfunum.
Washington Post hermir að
stjórn Clintons hafi ákveðið að
grípa til takmarkaðra refsiaðgerða
gegn japönskum innflutningi til
þess að treysta samningsaðstöðu
sína. Ekki hafi verið ákveðið gegn
hvaða framleiðsluvöru þvingunum
verði beitt, en tilkynnt hafi verið
að til athugunar sé að setja refsi-
tolla á tiltekna japanska vöru, ef
komizt verði að þeirri niðurstöðu
að Japanar hafí brotið samning frá
1989 um að farsímamarkaður
þeirra verði opnaður fyrir banda-
ríska fyrirtækinu Motorola.
Ef Bandaríkjamenn grípa til
refsiaðgerða munu Japanar vísa
málinu til GATT. Flest dagblöð í
Japan hvetja til rólegra viðbragða
eftir hinar misheppnuðu viðræður
við Bandaríkjamenn.
h
HÁR-LITASPRAY
Gult - rautt
grænt - blátt
hár-litaspray
Rakarastofan
Klapparstíg
Sími 12725.
Skrifstofuhúsnæði í midbænum
Einn viðskiptavina okkar hefur falið okkur að selja 93
fm skrifstofuhúsnæði í Hafnarstræti 20 (Lækjartorg).
Húsnæðið er á 4. hæð og hentar vel fyrir t.d. lögmenn
eða endurskoðendur. Lyfta er í húsinu. Húsnæðið skipt-
ist í móttöku og fjórar rúmgóðar skrifstofur, allar með
útsýni til Esjunnar og yfir höfnina. Upplýsingar veitir
Hjörtur Bragi Sverrisson, lögfr. á skrifstofu okkar frá
kl. 9-12 og 13-17 eða í síma frákl. 10-12 og 13— 15.30.
Skuldaskll hf, Ingólfsstræti 3, Reykjavík, sími 622122.
Njósnað
um veika
starfsmenn
ÞESS eru nokkur dæmi í ná-
grannalandinu Danmörku, að
yfirmenn ráði einkaspæjara til
þess að kanna hvort um raun-
veruleg veikindi starfsmanna
er að ræða. Svo segir formaður
Félags danskra einkaleynilög-
reglumanna, sem kveðst sjálf-
ur hafa haft um tug slíkra
mála á sinni könnu í fyrra
í danska blaðinu Politiken seg-
ir að Félag danskra iðnrekénda
kannist ekki við að einkaspæjarar
njósni um starfsmenn, sem grun-
aðir eru um að vera við hesta-
heilsu þegar þeir tilkynna veik-
indaforföll. Talsmaður félagsins
segir það hins vegar vel þekkt
að yfirmennirnir kanni sjálfir
hvort eitthvað sé bogið við veik-
indaforföllin.
Talsmaður danskra verslunar-
manna kvaðst ekki vita til að
ráðnir væru einkaspæjarar til að
njósna um starfsfólk en sagði
marga launþega orðna lang-
þreytta á hringingum vinnuveit-
enda heim til fólks sem hefði til-
kynnt veikindaforföll til að kanna
hvort það væri raunverulega
veikt.
Fokker
framleið-
ir minna
Amstcrdam. Reuter.
FOKKER flugvélaframleiðend-
urnir skýrðu frá því í gær að
ákveðið hefði verið að draga úr
framleiðslunni og fækka starfs-
mönnum fyrirtækisins um 1.900.
Fyrirtækið hyggst einnig leita
eftir verðlækkun hjá fyrirtækjum
sem það er í viðskiptum við. Fyrr
í mánuðinum snarlækkuðu hluta-
bréf Fokker í verði vegna frétta í
fjölmiðlum um að fyrirtækið
greiddi hátt verð fyrir flugvéla-
parta af móðurfyrirtækinu, De-
utsch Aerospace (DASA), sem er
hluti af Daimler-Benz AG í Þýska-
landi.
Salan á Fokker-flugvélum hefur
minnkað verulega og verð þeirra
lækkað. Stjórnendur fyrirtækisins
telja að salan aukist eftir tvö ár
og hyggjast þá auka framleiðsluna.
Loksins Lottó
íBretlandi
London, Reuter.
FORMLEG tilboð voru gerð í dag í rekstur fyrsta lottós í
Bretlandi í 150 ár í þeirri von að það verði bezta og stærsta
happdrætti heimsins þegar því verður komið á fót síðar á
þessu ári.
Átta bjóða í lottóið og því er
spáð að hlutskarpastur verði brezki
kaupsýslumaðurinn Richard Bran-
son, sem fer eigin leiðir í fjármál-
um. Hann kveðst ekki bjóða í lottó-
ið í hagnaðarskyni og allir nema
hann og einn annar gera sér vonir
um að stórgræða á því.
Branson hyggst láta ágóðann
renna tii líknarmála. Hann er
stofnandi Virgin-hljómplötufyrir-
tækisins, flugfélags og keðju smá-
söluverzlana.
Brezka stjórnin mun tilkynna í
maí hvaða tilboði verði tekið. Bran-
son kveðst viss að hann muni fara
með sigur af hólmi og segir að það
verði hátindurinn á ferli sínum.
Hann segist ætla beita öllu við-
skiptaviti sínu til þess að gera
lottóið að gróðavænlegasta happ-
drætti heims.
Branson býst við að 35 milljónir
manna muni taka þátt í lottóinu í
hverri viku. Kunnugir telja að árs-
veltan verði fjórar milljónir punda,
en hagnaðurinn 70-100 milljónir
punda.
486SX-25 eða 486SX-33 örgjörvi
4MB minni (stækkanlegt í 20MB)
120MB diskur
9.5" LCD s/h skjár eða 8.5" litaskjár
84 hnappa lyklaborð (og auka tengi)
3.5“ drif 1,44MB
Raðtengi, prentaratengi og músartengi
D0S 6 og Windows 3.1 innifaliö
Mleðsla endist u.þ.b 2 tima
Þyngd 2.5kg. eða 2.7kg.
Verðfrákr. 149.900 stgr.
* Valin leröatölva ársins hjá PC-World
Skipholti 50c -105 Reykjavík
Sími 620222 - Fax 622654
SUocJiansíu
Bókhaldslausnin
er í sjónmáli !
Nú byðst þér Macintosh-tölva og MacHansa-
bókhaldshugbúnaður á sérlega hagstœðu verði!
Tilboð 1: %. m/vsk. Stgr. án/vsk.
Macintosh LC475, Seikosha-prentari og Vaskurinn II
(Vaskurinn II er sambyggt sölu- og fjárhagsbókhald) 199.076,- 160.000,-
Tilbob 2:
Macintosh LC475, Seikosha-prentari og Crunnbók-
hald (Grunnbókhald er sambyggt sölu-, viöskipta-
manna- og fjárhagsbókhald) 236.550,- 190.000,-
Tilboö 3:
Macintosh LC475, Microline-prentari og Bókhald I
(Bókhald I er sambyggt sölu-, vibskiptamanna-,
lánardrottna- og fjárhagsbókhald) 299.921,- 240.000,-
Einniger hœgt að fá fjölnotendaútgáfu afMacHansa-forritunum
fyrir þá sem þurfa að tengja marga notendur við kerfið samtímis
Menn og' iiivs hl.
Tæknigarði, liiinIiíiiih 3, Itcykjavík
Sími 91-694992 Fav 91-694991
Apple-umboðið
Skipholti 21, Reykjavfk
Sími 91-624 800 Fax 91-624818