Morgunblaðið - 15.02.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
23
Verslunin hætti
flllt á að seljast
Borað í sprungu
Dælt með þrýstingi í sprungur.
Notum viðkomandi efni sem við
eiga hverju sinni.
Þéttum allar sprungur með
inndælingu og þrýstingi.
Leigjum einnig út vélar og
seljum öll viðeigandi efni.
Með þessu færðu varanlega
lausn á vandanum og öll
vandamál úr sögunni.
Dælum einnig undir gólf og
flfsar og þéttum leka í
steinsteypu.
Erum einnig með
inndælingarslöngur í
steypumót.
Básfell Ltd.
Vesturvör 22, Kópavogi
sími 643565 - l'ax 643564
Endurhæf-
ing fyrir
bakveika
Á VEGUM Heilsustofnunar NLFÍ
í Hveragerði hefur verið skipu-
lögð sérstök endurhæfing fyrir
fólk með viðvarandi verki i baki.
Tveir hópar hafa þegar hlotið
slíka endurhæfingu með góðum
árangri. Byggt er á meðferðar-
áætlunum sem mikil reynsla er
komin á. í hverjum hópi eru 6
einstaklingar sem eru 4 vikur í
senn.
Meðferðin byggir á þrek-, þol-
og sjúkraþjálfun og einnig fræðslu,
einstaklingsmeðferð og virkum
stuðningi fagfótks. Að meðferð lok-
inni er lagt á ráðin um framhaldið
í samráði við heimilislækna og sér-
fræðinga. Sálfræðingur og læknir,
sem sérstaklega hafa kynnt sér
meðferð af þessu tagi, starfa í
meðferðarteyminu.
Þessi hópmeðferð er ætluð fólki
á vinnufærum aldri, sem hefur ver-
ið með óþægindi í baki lengur en í
6 mánuði. Það þarf að hafa reynt
hefðbundna göngudeildarmeðferð
og sjúkdómsgreining þarf að liggja
fyrir.
Fyrirhugað er að taka við nýjum
hópi 1. mars nk. Allar nánari upp-
lýsingar veitir Guðrún Magnúsdótt-
ir, læknafulltrúi heilsustofnunar
NLFÍ.
Hafa dansað sam-
an frá 6 ára aldri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjónin Martin og Alison Lamb segja ungum kennaranemum til,
þeim Hauki Ragnarssyni og Ester Níelsdóttur.
Dans
Jóhann Gunnar Arnarsson
EVRÓPU- og heimsmeistarar
atvinnumanna í 10 dönsum,
Martin _ og Alison Lamb, eru
hér á Islandi þessa dagana. I
mörg áp hafa þau verið í flokki
fremstu para heims á sínu sviði
og nú eru þau að miðla ungum
dönsurum af reynslu sinni og
kunnáttu i Nýja dansskólanum
í Hafnarfirði.
Martin og Alison koma bæði
frá Englandi og hófu að stunda
dans ung að árum; hún 6 ára í
heimabæ sínum, hann 9 ára í
heimabæ sínum Cambridge. Leið-
ir þeirra lágu ekki saman fyrr en
nokkrum árum síðar, þá stóðu
þau á krossgötum; vantaði bæði
mótdansara.
„Alison var sú eina, sem var
eftir, ég hafði ekki um annað að
velja...“, sagði Martin og hló mik-
ið, en segir svo, að þau hafi verið
hjá sama kennara í þann tíma
og sá hafi ráðlagt þeim að reyna
saman, sem þau og gerðu og þau
eru enn að dansa saman í dag.
Allt frá því að þau byrjuðu að
dansa saman hefur dansinn hjá
þeim alltaf farið uppá við; verið
spor í rétta átt! í gegnum árin
hafa þau unnið til fjölda verð-
launa og viðurkenninga, en
Blackpool hefur ávallt verið þeim
nokkurskonar heimavöllur því þar
hafa þau unnið flesta af sínum
persónulegum sigrum. Þau unnu
„Youth“-keppnina þar árið 1981,
komast fyrst í úrslit þar, sem
áhugamenn í suður-amerískum
dönsum, árið 1984, vinna svo
sömu keppni 1987, þá tiltölulega
nýbúin að vinna United Kingdom
keppnina (U.K.).
1987 vendipunktur í lífi
þeirra
Árið 1987 varmikill vendipukt-
ur í lífi Martin og Alison, þau
vinna Blackpool og U.K. ná 3.
sæti í Evrópu- og heimsmeistara-
móti áhugamanna í suður-amer-
ískum dönsum, þau ganga í það
heilaga og ákveða loks að gerast
atvinnumenn í dansinum. Að það
hafi verið erfið ákvörðun að
ganga á vit atvinnumennskunnar
vilja þau ekki meina, nema þá
e.t.v. fjárhagslega, þau þurftu að
hætta í frekar vel launuðum störf-
um og taka áhættuna að dansinn
gæfí betur í aðra hönd. „Þetta
var samt ekki svo erfitt, þetta
var það sem við vildum gera, svo
við dembdum okkur bara útí
þetta!“ sagði Alison.
Þó svo þau hafi upphafiega
aðallega dansað suður-amerísku
dansana, æfðu þau standard
dansana sífellt af meira kappi og
hafa yfirleitt keppt í báðum grein-
unum þar sem þar var mögulegt.
Martin og Alison urðu ekki heims-
meistarar atvinnumanna á met-
tíma; það tekur alltaf vissan tíma
að láta taka eftir sér og einnig
mikinn æfingatíma, oftast tekur
þetta allt að 6 árum. Þau náðu
4. sæti á heimsmeistaramóti í 10
dönsum í Þýskalandi 1991 og svo
héldu þau áfram uppávið og stóðu
að lokum uppi sem heimsmeistar-
ar atvinnumanna í 10 dönsum á
Florida í fyrra.
Hvemig ætli það hafi verið að
vakna morguninn eftir að drau-
matitillinn var í höfn?
„Við sváfum sáralítið um nótt-
ina, því til að fagna þessum
árangri héldum við heljarinnar
teiti, þar sem við skemmtum okk-
ur konunglega og skemmtunin
hélt svo áfram morguninn eftir
og í raun næstu 10 daga á eftir.
Við fórum nefnilega í skemmti-
ferð um Karíbahafið! En að öllu
gamni slepptu þá þurfti maður
að kiípa sig í kinnina til að at-
huga hvort þetta væri ekki
draumur og maður þarf jafnvel
að gera það enn í dag, því þetta
er jú draumur allra keppnisdans-
ara. Hann rættist hjá okkur!“
Martin og Alison voru sam-
mála um það að það að vinna
saman, búa saman... gera nær
allt saman væri ekki auðvelt, en
þau reyna að gera eitthvað í sitt-
hvoru lagi, svona til að breyta
aðeins um andrúmsloft. En þau
segja jafnframt að lykiliinn að
því hve vel gangi sé sá að þau
séu ekki bara hjón heldur einnig
bestu vinir.
Á íslandi í fjórða sinn
Martin og Alison eru hér í 4.
skiptið og kunna þau mjög vel
við sig, segja að Island sé ekki í
líkingu við neinn annan stað sem
þau hafa sótt heim. Allir eru syo
vingjarnlegir; finnst eins og Is-
lendingar séu ein hamingjusöm
fjölskylda! Þau kunna einnig vel
að meta störf íslenskra danskenn-
ara, segja þá hafa staðið sig al-
veg frábærlega og að þeir hafi
alið upp sérstaklega efnilega
unga dansara.
Framtíðin hjá Martin og Alison
er björt, þau eru enn að dansá
og ætla að halda áfram um
óákveðinn tíma; þau láta hvetjum
degi nægja sína þjáningu. Þau
eiga samt örugglega eftir að
dansa létt í gegnum lífið.
Braut framþróunar
Að sögn Níelsar Einarssonar,
skólastjóra Nýja dansskólans,
hefur það margþætt gildi að fá
svo góða kennara til okkar litla
og einangraða eylands. Kennar-
arnir beri með sér ferskar hug-
myndir og upplýsingar hvað-
anæva úr heiminum. Hluti sem
við gætum ekki nálgast nema
með gífurlegum kostnaði. Og
vegna þeirrar miklu þróunar sem
hefur orðið á fáum árum verðum
við að leita út fyrir landssteinana
til að afla nægilegrar þekkingar
til að halda áfram á þessari braut
framþróunar.
Dælt með þrýstingi í sprungur.
Raki eða leki f steypu
Sprungur eða/og raki
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Borað í sprungu
■
Vegna fjölda áskoran
framlengjum við
stórútsöluna aðeins í
dag og á morgun.
Verðið lækkar enn
og bú mátt prútta.