Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
35'
Tvímenningur á Bridshátíð
Fádæma yfirburðir hjá
siglfirzku bræðrunum
___________Brids______________
Arnór G. Ragnarsson
Islandsmeistararnir frá Siglu-
firði, bræðurnir Ásgrímur og Jón
Sigurbjörnssynir, sigruðu með
miklum yfirburðum í tvímenn-
ingskeppninni á Bridshátíð. Þeir
voru meðal efstu para allt frá
upphafi móts, tóku forystuna um
miðbik þess og héldu til loka af
miklu öryggi. Lokaskorin var 419
stig yfir meðalskor eða 9 stig úr
setu.
Það má segja að íslendingarnir
hafi verið fastheldnir á verðlaunaféð
því okkar menn voru í 6 af 8 verð-
launasætum og hirtu 7.500 af 8.600
dollara verðlaunum.
Mótið hófst á föstudagskvöld kl.
21 en hafði þá verið frestað um tvær
klst. vegna örðugleika keppenda frá
Skandinavíu að komast til landsins.
Þeir komu reyndar ekki fyrr en eft-
ir miðnætti en þá höfðu verið spilað-
ar 11 umferðir. Karlarnir byrjuðu
að spila strax en sænsku konurnar
voru örþreyttar og bytjuðu ekki fyrr
en daginn eftir. Helgi Jóhannsson
og Guðmundúr Sv. Hermannsson
leiddu mótið eftir 11 umferðir en Jón
Baldursson og Sævar Þorbjörnsson
voru í öðru sæti og bræðurnir í því
þriðja. Trúlega hefði verið farsælla
fyrir Norðmennina að fara að sofa
þegar þeir komu á föstudagskvöldið,
eins og sænsku konurnar gerðu, því
þeim gekk afar illa í fjórum síðustu
umferðunum og t.d. Glenn Grötheim
og Teije Aa voru með 48 í mínus
eftir þessar 4 umferðir sem spilaðar
voru eftir að þeir félagar komu til
leiks. En það voru fleiri sem byijuðu
illa í mótinu. Þegar útlendingarnir
byijuðu að spila voru Islandsmeist-
ararnir, Bragi og Sigtryggur í neðsta
sætinu og Reykjavíkurmeistararnir
Ásmundur og Hjördís í næstneðsta
sætinu.
Þegar 10 umferðum var óiokið
höfðu Ásgrímur og Jón tryggt sér
afgerandi forystu, 352 stig. Jón og
Sævar voru í öðru sæti með 238,
Grötheim og Aa þriðju með 214 og
Jakob Kristinsson og Matthías Þor-
valdsson fjórðu með 197. Þessi pör
bitust um næstefstu sætin og loka-
staðan varð þessi:
Ásgrimur Sigurbjömss. - Jón Sigurbjömss. 419
Jakob Kristinsson - Matthías Þorvaldsson 289
Jón Baldursson - Sævar Þorbjömsson 245
GlennGrötheim-TeijeAa 230
Valur Sigurðsson — Valgarð Blöndal 219
Guðm. Sveinsson - Sigurður Vilhjálmsson 205
StefánGuðjohnsen-Guðm.Pétursson 178
Mark Molson — Russ Ekeblad 142
GeirHelgemo-TorHelness 134
Helgi Jóhannsson - Guðm. Sv. Hermannsson 95
EiríkurHjaltason-RagnarHermannsson 93
Hjördis Eyþórsdóttir—Ásmundur Páisson 85
Mótið var spennulaust. Það fór
illa af stað og auðséð að fjarvera 6
erlendra para pirraði andrúmsloftið
en endirinn var góður og það er
auðvitað fyrir mestu.
Merk nýjung, tenging við texta-
varp, var tekin upp á þessu móti.
Þeir sem hafa textavarp gátu fylgst
með stöðunni í báðum mótgnum eft-
ir hveija umferð. Mæltist þessi nýj-
ung mjög vel fyrir.
Morgunblaðið/Arnór
Bræðurnir Ásgrímur og Jón Sigurbjörnssynir unnu tvímenninginn
með miklum yfirburðum.
Jakob Kristinsson og Matthías Þorvaldsson náðu öðru sætinu á loka-
sprettinum. Hér ræða þeir við Ólaf Lárusson og Ragnar Magnússon,
í mótslok.
Harður heimur
eftir Benedikt
Laufleur
Harður heimur er nýjasta verk
Gunnars Dals, skálds og heim-
spekings. Hér er um að ræða sögu-
lega heimild með skáldlegu ívafi
um einn merkasta atburð Islands-
sögunnar, jafnvel sjálfrar mann-
kynssögunnar, nefnilega afvopn-
unarviðræður risaveldanna, sem
áttu sér stað hér í Höfða 1989 og
leiddu til endaloka kalda stríðsins.
Lesanda kann að þykja ég hér
helst til stórorður en þegar höfð
er í huga þýðing fundarins í Höfða
til varðveislu friðar í heiminum,
verður vart hægt að tala um ann-
að en kraftaverk. Þetta kraftaverk
birtist í ýmsum myndum: í fyrsta
lagi var hér um að ræða samfund
tveggja voldugustu ríkja heims og
fyrrum hatursþjóða í lítt þekktu
landi sem litla reynslu hafði af
undirbúningi stórfunda af þessu
tagi og hafði þar að auki marg-
falt minni tíma til stefnu en venja
er við slíkar kringumstæður. Þá
tóku umræddar viðræður, sem
heita áttu undirbúningsviðræður,
fljótt nokkuð óvænta stefnu svo
nærri lá að samningar tækjust,
öllum að óvörum, um stórfengari
niðurskurð á kjarnavopnum en
áður þekktist og tók bæði til
skammdrægra sem og langdrægra
eldflauga.
Harður heimur hefur að geyma .
einkar trúverðuga lýsingu á því
stappi og baktjaldamakki sem átt
sér stað í kringum fundinn á
Höfða, áróðursstríði og taugatitr-
ingi stjórnmálamanna, fjölmiðla
sem og alls almenhings, er fylgd-
ist gaumgæfilega með gangi mála
í beinni útsendingu. En bók Gunn-
ars er ekki aðeins gagnmerk sögu-
leg heimild, hún er jafnframt
skemmtilega skrifuð, full af hlægi-
legum uppákomum, húmor og
glettni. Hún er í senn fróðleg,
spennandi og skemmtileg aflestr-
ar. Persónusköpun Gunnars er
sannfærandi og situr eftir í huga
lesandans, sérstaklega á það við
stjórnmálaskörungana Míkhaíl
Gorbatsjov og Ronald Reagan. Þá
eru kumpánarnir Steingrímur
Hermannsson, Matthías Á. Mathi-
esen og Jón Baldvin Hannibalsson
einnig minnisstæðir í sögunni og
krydda bókina að mínum dómi.
Harður heimur ætti því að full-
Gunnar Dal
nægja ólíkum kröfum lesenda og
höfða til flestra.
En bókin hefur fleiri gull að
geyma. Eins og í öllum örðum
verkum skáldsins er þar að finna
þýðingarmikinn boðskap eða er-
indi sem vert er að gefa gaum.
Erindi Gunnars að þessu sinni er
ekki einungis umvafið þeim sögu-
legu atburðum sem þar um ræðir,
heldur koma þau fýrst og fremst
beint frá höfundinum sjálfum, þ.e.
hjarta skáldsins. Gunnar flytur
okkur sígildan óð um vonina og
trúna, um Guð og fegurð heims-
ins, hann flytur okkur óð um
möguleika mannsins og ekki síst
um vilja hans og bjartsýni til að
breyta heiminum á betri veg. En
Gunnar flytur okkur einnig óð sem
þarf að rækta og hafa fyrir í hörð-
um heimi, óð sem þarf að beijast
fyrir andspænis illum öflum er
allt vilja eyðileggja og tortíma,
öflum sem beinlínis þrífast og
nærast á stríði. Bjartsýni Gunnars
er því alla jafna ofin skynsemi og
raunsæi og er það helst til þess
fallið að ljá frásögn hans trúverð-
ugri blæ. Hann sýnir okkur veröld-
ina eins og hún er og hvernig hún
getur orðið. Framlag Gunnars
Dals til lesandans er í senn skerf-
ur til meðvitaðrar tortryggni og
sterkrar trúar á framtíðina. Harð-
ur heimur er bók sem enginn ís-
lendingur ætti að láta framhjá sér
fara.
Höfundur er rithöfundur.
„í skemmtilegum
félagsskap og frábærri
leikGmi hjá Sóleyju hef
ég tapað 7 kflóum sem
mig langar ekkert til að
finna aftur"
Hjördú G. Tborj
„Frábær kennsla, góð
persónuleg tilsögn,
ijölbreyttar og skemmti-
legar æfingar sem skila
sér f auknu þoli og betri
líðan. Streita og
vöðvabólga hverfa"
Nlna B. Ragnarodóttir
Karlatímar
Ibádeginu mánudaga,
muhikudaga og
fÍMtudaga fd. 12.
Gótfir teygju- og
þrektímar
„Það sem mér finnst
einkenna leikfimina hjá
Sóleyju eru mjög íjöl-
breyttir og skemmti-
legir tímar þar sem
mikil alúð er lögð í alla
tilsögn/'
Á.idí.1 Ró.ta
„Ég er búinn að vera
hjá Sóleyju í líkamsrækt
í 5 ár og á hverju hausti
hiakka ég alltaf
til að byrja aftur
Kriftin Björtuidóttir
DANSSTÚDÍÓ
SÓLEVJAR^______
- táfa {jrampm íestaj
Kennarar:
Sóley Jóbamudóttir
Bryndúi Jón.idóttir
Þórný Jóbamudóttir
Engjateigi 1
Símar
687701 og
687801
Hefsl 10. jan.
Innrihui bafin
Skemmtilegir
og hressir tímar
fyrir þá sem vilja
vera í góðu formi.
Púl, sviti og þrek
þar sem aðal-
áherslan er á
góðar þrek-
æfingar, teygjur
fyrir allan
líkamann og
styrkjandi æfingar
fyrir maga, rass
og læri.
Morgantimar
SCðdegiotímar
Kvöldtímar