Morgunblaðið - 15.02.1994, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
+
Systir mín,
SIGÞRÚÐUR JÓNSDÓTTIR,
Unnarbraut 24,
andaðist í Borgarspítalanum að morgni 14. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hörður Jónsson.
t
Elskuleg fósturmóðir mín og amma okkar,
ÞÓRHALLA GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Miðtungu,
Holtum,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 11. febrúar.
Jóna Steinunn Sveinsdóttir
og börn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og iangamma,
LÍSBET GESTSDÓTTIR,
lést laugardaginn 12. febrúar á dvalarheimilinu Garðvangi, Garði.
Hinrik Albertsson, Ráðhildur Guðmundsdóttir,
Helga Albertsdóttir,
Sigrún Albertsdóttir, Eðvald Bóasson,
Ingibjörg Gísiadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og mágkona,
INGIBJÖRG BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR,
Hæðargarði 28,
lést 11. febrúar.
Fyrir hönd vandamanna,
Jón Brynjar Jónsson,
Páll Þorgríms Jónsson,
Esther Maria Ragnarsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ODDUR HALLDÓR JÓNSSON,
Tunguheiði 4, Kópavogi,
fyrrverandi bóndi,
Kolsholti, Árnessýslu,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi 12. febrúar.
Svanhildur Sigurðardóttir,
Sigurður Oddsson, Elín Andrésdóttir,
Gyða Oddsdóttir, Jóhann Guðmundsson,
Bryndís Oddsdóttir
og fjölskyldur.
+
Elskuleg dóttir okkar og systir,
ARNA ÝR ÁRNADÓTTIR,
/ Vesturbergi 30,
lést 13. febrúar.
Kristín Liija Sigurðardóttir, Árni Gunnarsson,
Þórdfs Lilja,
Gunnar Sveinn,
Haukur Jens.
+
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
móðursystir, amma og langamma,
AGNES MATTHÍASDÓTTIR
frá Grímsey,
Álfheimum 26,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 13. febrúar.
Matthías Ásgeirsson,
Kristfn Ásgeirsdóttir Johansen,
Hrafnhildur Ásgeirsdóttir,
Guðbjörg Ásgeirsdóttir,
Sólveig Ásgeirsdóttir,
Ásgeir Kr. Asgeirsson,
Guðný Hreiðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sólveig Sigurðardóttir,
Rolf Johansen,
Hlöðver Örn Vilhjálmsson,
Eyjólfur Jónsson,
Pétur Sigurgeirsson,
Aðalbjörg Guðmundsdóttir,
Matthfas Hreiðarsson,
Eyjólfur J. Stef-
ánsson — Minning
Fæddur 14. júlí 1905
Dáinn 31. janúar 1994
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveúja
vininn sinn iátna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Með þessum fátæklegu orðum
vii ég kveðja tengdaföður minn í
hinsta sinn. Fyrst er ég var kynnt
fyrir honum var á hestamanna-
móti á Vindheimamelum. Þar heils-
aði hann mér hýr og brosmildur
eins og hann var ávallt, áður en
heilsuleysi síðari ára fór að setja
mark sitt á hann. Hann hafði mjög
gaman af hestum og á meðan hann
átti heima á Höfn hafði hann mest
fimm hesta sem voru fallegir og
fjörmiklir. Hann annaðist þessa
vini sína af alúð og umhyggju,
heyjaði fyrir þá á sumrum og gaf
svo í hesthúsin hvem dag að vetri
til.
Þegar starfsævinni lauk á Höfn
og þau hjónin fluttust til Dalvíkur
fylgdu honum tveir hestar sem
styttu honum stundimar þar. Einn-
ig var orgelið með í förinni en
hann byijaði snemma að læra á legri Fallega röddin hans er hljóðn-
hljóðfæri, fyrst sjálfsnám en seinna
fór hann einn vetrarpart til Páls
ísólfssonar og sagði sjálfur að
hann hefði lært mjög mikið af
honum. Hann hafði mjög gaman
af söng og öllu söngstarfi og var
hrókur alls fagnaðar þar sem fólk
kom saman. Ekki spillti fyrir að
eiginkonan, Ágústa Sigurbjöms-
dóttir, hafði sama brennandi áhug-
ann fyrir músíkinni og vom þau
framarlega í kirkjustarfi fyrst á
Kálfafellsstað og síðan á Höfn í
Homafírði. Þar var hann organisti
alit til sjötugs.
Þau hjón Eyjólfur og Ágústa
byijuðu búskap á Kálfafelli í
Suðursveit. Því miður fékk Eyjólf-
ur heymæði, varð að bregða búi
og fluttu þau til Hafnar árið 1952.
Þar keyptu þau hús nálægt sjónum
og nefndu það Reynifell. Hann
starfaði lengi hjá Vegagerð ríkisins
sem verkstjóri á sumrin en starf-
aði við söngkennslu við Hafnar-
skóla og seinna meir sem húsvörð-
ur við sama skóla.
Um 1981 var málum svo komið
að þau vom orðin ijarri börnum
sínum svo ákvörðun var tekin um
að flytja til Dalvíkur í skjól dóttur
og tengdasonar. Þá var Ágústa
farin að kenna þess sjúkdóms sem
dró hana til dauða vorið 1983. Tók
hann fráfalli hennar mjög nærri
sér. Um það bil ári seinna fór hann
að Skjaldarvík og síðan að Krist-
nesi þar sem hann naut mjög góðs
aðbúnaðar og umhyggju af hálfu
starfsfólksins. Þakka aðstandend-
ur fyrir það hér. Ég trúi því að
nú sé hann sæll og glaður og laus
við þrautir þessa lífs. Far heill.
Friður guðs þig blessi.
Tengdadóttir.
Stefán Hafþór
Krtiger — Minning
Fæddur 19. desember 1966
Dáinn 30. janúar 1994
Hann Stebbi er dáinn.
Skyndilega varð tilveran ekki
söm, hún varð dimmari og tóm-
Birting afmælis- og
' minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmælis-
fréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og _með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi.
+
Móðir okkar,
JÓNDfS SIGURRÓS EINARSDÓTTIR
frá Tálknafiröi,
Álftahólum 4,
Reykjavík,
andaöist í Borgarspítalanum 12. febrúar.
Jónfna Vigdís Ármannsdóttir,
Jakob Einar Ármannsson,
Erla Svandfs Ármannsdóttir.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÞÓREY E. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Vallargerði 25,
Kópavogi,
lést í Borgarspítalanum að morgni laugardagsins 12. febrúar.
Agnar Jónsson,
Agnes Agnarsdóttir, Sigurður Magnússon,
Þórey E. Heiðarsdóttir, Agnar Már Heíðarsson,
Pétur Orri Heiðarsson, Magnús Örn Sigurðsson.
uð, við fáum aldrei að sjá brosið
hans og glettnina í augum hans.
Það er sárt að sjá á eftir Stebba,
vini okkar síðan við vorum smá-
strákar í Kópavoginum. Hann sem
var alltaf hress og kátur og hafði
svör við öllu. Það er höggvið stórt
skarð í vinahópinn, skarð sem aldr-
ei verður bætt.
Það var stutt í gamansemina
hjá Stebba, hann gat alltaf séð
spaugilegu hliðamar á öllu, bar sig
ailtaf vel. Minningarnar streyma,
við brosum í gegnum tárin þegar
við lítum til baka. Kannski er
Stebbi búinn að komast að því
núna hver boraði göt á makkarón-
umar. En hann sagðist hafa velt
því mikið fyrir sér þegar hann var
lítill.
Það eru margir sem sakna hans,
þar á meðal lítill níu ára drengur
sem grét sárt þegar hann heyrði
andlát hans. Hetjan hans var fall-
in. Um kvöldið bað lítill drengur
guð og afa sinn, sem honum þótti
afskaplega vænt um, en var farinn
til guðs fyrir nokkru, að geyma
hann Stebba.
Nú eru æskuspor hans máð af
bergi jarðar, en okkur hinum sem
eftir lifum og troðum áfram slóð
lífsins er minningin um Stefán
mótuð og varðveitt í hugum okkar
og hjörtum. Við leiðarlok stöndum
við hnípin og erum harmi lostin
en þjöppum okkur fastar saman
og skiljum betur en áður hvað lífð
er okkur dýrmætt. Við þökkum
Stebba allar samverustundirnar og
biðjum algóðan guð að geyma hann
og varðveita.
Elsku Inga, Ragnar og fjöl-
skylda, aðrir ættingjar og vinir,
við vottum ykkur öllum okkar
dýpstu samúð og biðjum guð að
gefa ykkur styrk á erfiðum stund-
um.
Halla, Dúi, Jón, Eiríkur
og Jóhanna.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS ERNA VIGFÚSDÓTTIR,
Múla,
Vopnafirði,
lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 13. febrúar.
Gísli Jónsson,
Jón Kristinn Gfslason, Ingunn Lára Hannesdóttir,
Heimir Þór Gfslason, Kirsten Nielsen-Toft,
Gfsli Arnar Gíslason, Árný Vatnsdal,
Vigfús Vopni Gfslason,Særún Sævarsdóttir
og barnabörn.
Krííciiykkjur
(ilæsileg lialli-
hlaðborö Megir
síilir og mjög
g(>Ö j)joiHlStll.
Ipplysingar
ísuna22322
FLUGLEIDIR
iítil Lirmmi