Morgunblaðið - 15.02.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRUAR 1994
39
*
Jón Olafsson
— Minning
Enn einu sinni fellur einn af
betri sonum þjóðarinnar langt um
aldur fram af völdum hins ill-
skeytta sjúkdóms, krabbameins.
Nú kveðjum við Jón Ólafsson lög-
giltan endurskoðanda. Það er tóm-
leiki sem hrærist í huga okkar sem
eftir stöndum. Jón Olafsson var
þannig maður að hann var alltaf
tilbúinn að aðstoða alla um allt það
sem honum var mögulegt. Jón var
endurskoðandi Seifs hf. allt frá
árinu 1971, svo hann þekkti orðið
mjög vel alla innviði fyrirtækisins,
enda var hægt að leita til hans um
öll mál.
Það var í desember 1983 sem
ég fyrst hitti Jón, en þá kom ég í
viðtal til hans vegna starfsumsókn-
ar minnar hjá Seifi hf. Strax tókst
milli okkar mjög gott samstarf sem
alrei bar nokkurn skugga á. Reglu-
lega kom Jón í heimsókn til okkar
á skrifstofu Seifs til að fara yfir
bókhaldið og til ýmissa ráðagerða
og áætlana. Hann var mikill bíla-
og útivistarmaður og oft og tíðum
fór mikið af hans tíma hjá okkur
til að ræða þau mál. Oft hlustuðum
við á hann með andakt lýsa jeppa-
ferðum sínum helgarnar áður upp
um fjöll og firnindi. Þá vöktu ferða-
sögur hans um vélsleðaferðir upp
á jökla og alls konar heiðar mikla
hrifningu okkar. Við hrifumst með
honum í þessum sögum og oft stóð
maður sjálfan sig að því að upplifa
þessi ævintýri í huganum eins og
maður hefði verið með í þessum
ferðum. Hann var virkilega öf-
undsverður af þessum áhugamál-
um. Þá var Jón alltaf tilbúinn til
að ráðleggja mönnum um hvaðeina
varðandi okkar eigin bílamál. Þeg-
ar stóð til að kaupa fjallabíl og
breyta var Jón fyrsti maður sem
hringt var 1 til að fá ráðleggingar
hjá, og stóð þá ekki á góðum ráð-
um.
Segja má að það hafi verið sama
hvaða spurningar komu upp um
hvað sem var, það var alltaf hægt
að hringja í Jón og fá ráðleggingar.
Það var að áliðnu sl. sumri sem
hann fór að kenna sér meins og
það var á hreinu að ef Jón kveink-
aði sér, þá var eitthvað að. Jafnvel
eftir mjög erfiðar lyfjameðferðir
stundaði hann vinnu og kom í
heimsóknir sem fyrr. Þá var hann
enn með nýjar áætlanir um að inn-
rétta annan fjallabíl og eyddi löng-
um tíma í að lýsa því hvernig hann
ætlaði að hafa hann öðruvísi en
þann sem hann átti.
Það er ljóst að við öll á skrif-
stofu Seifs hf. eigum eftir að sakna
þess ferska blæs sem alltaf gust-
aði um okkur í heimsóknum hans,
en minningin mun ávallt lifa í huga
okkar.
Við sendum Obbu og börnum
þeirra og öllum aðstandendum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Megi Jón Ólafsson hvíla í friði.
F.li. starfsfólks Seifs hf.,
Rafn Haraldsson.
Blómastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öll tllefní.
Gjafavörur.
t
Móðir okkar,
BRYNDÍS GUÐRÚN ANDERSEN,
er lést í Landspítalanum þann 11. febrúar sl., verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 18. febrúar kl. 13.30.
Mogens Markússon,
Sigþór H. Markússon.
Litli drengurinn okkar,
SIGURMUNDUR
SIGURMUNDSSON,
Háagerði 14,
Reykjavík,
lést 8. íebrúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogs-
kapellu á morgun, miðvikudaginn
16. febrúar, kl. 13.30.
Ingibjörg Rakel Ásgeirsdóttir, Sigurmundur Sigurðsson,
Jórunn Sigurðardóttir, Sigurður K. Eggertsson,
Ásta Halldórsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson.
t
Bróðir okkar,
GUÐMUNDUR ÞÓRÐARSON
frá Ólafsvík,
Hrafnistu, Skjólvangi,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13.30.
Blóm, og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir, en þeim, sem vildu minnast hans,
er bent á Samtök gegn astma og
ofnæmi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Þórðarson,
Marta Þórðardóttir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTRÍÐUR G GUÐMUNDSDÓTTIR,
Langholtsvegi 96,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16 febrúar
kl. 13.30.
Þeim, serin vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á hjúkrunar-
heimilið Skjól.
Guðrún Ingimundardóttir,
Guðni Ingimundarson, Kristfn Sigmundsdóttir,
Guðmundur Ingimundarson, Jóhanna M. Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLÖF ÞORLEIFSDÓTTIR,
Hrauntungu 81,
Kópavogi,
lést á heimili sínu föstudaginn 11. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 18. febrúar kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir,
sem vildu minnast hennar, láti Krabba-
meinsfélagið njóta þess.
Haukur Ársælsson,
Gísli Kr. Hauksson, Hrafnhildur Snorradóttir,
Ólafur Hauksson, Sigurlaug Þ. Bragadóttir,
Ársæll Hauksson, Helga Haraldsdóttir,
Þorleifur Hauksson,
Jóhann G. Hauksson, Björk Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Islenskur efniviður
íslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitiö
upplýsinga.
BS S. HELGASON HF
■ STEINSMIÐ JA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677
+
Móðir okkar og systir,
KRISTÍN E. JÓHANNESDÓTTIR,
Hlíð 1,
ísafirði,
sem lést 4. febrúar sl., verður jarðsungin frá ísafjarðarkapellu
miðvikudaginn 16. febrúar kl. 14:00.
Jóhannes Ragnarsson,
Pétur Ragnarsson
og systkini hinnar látnu.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR HANNESDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 27,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. febrúar
kl. 15.00.
Hannes Magnússon, Elizabeth Cook,
Rósa Þóra Magnúsdóttir, Gunnar Hrafn Richardson,
Elísabet Ragna Hannesdóttir,
Ragnheiður Dísa Gunnarsdóttir.
+
Faðir okkar og tengdafaðir,
ÞORGEIR G.
GUÐMUNDSSON,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju
miðvikudaginn 16. febrúar kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á líknarstofnanir.
Elísabet Þorgeirsdóttir, Örn Norðdahl,
Sigurbjörn Þorgeirsson, Þórunn Pálsdóttir.
+
Bróðir okkar,
SIGURÐUR PÁLSSON,
Ási í Hveragerði,
lést 4. febrúar sl. Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum fyrir auðsýnda samúð.
Jóhann Pálsson og systkini.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginkonu mjnnar, móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
MARGRÉTAR HELGU GARÐARSDÓTTUR,
Nesvegi 4,
Súðavík.
Björn Jónsson,
Ragnheiður Árnadóttir, Baldur Daníelsson,
Kristín Lára Árnadóttir, Þorleifur Ingvarsson,
Ingibjörg Ásdís Björnsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
ELÍS GUÐNASON,
Laufásvegi 19,
lést á heimili sínu föstudaginn 4. febrúar 1994.
Jarðarförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Steinunn Guðmundsdóttir,
Guðni Elísson,
Filippía Ingibjörg Elísdóttir,
Elisa Kristjana Eli'sdóttir
og barnabarn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KARL ÁGÚSTSSON,
Árskógum 6,
lést 5. febrúar.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Þórhalla Ragnarsdóttir,
Þóra Karlsdóttir, Sveinn Helgason,
Ragna Karlsdóttir, * Örn Sigurðsson,
Kristbjörg Karlsdóttir, Gisli Marteinsson,
Guðrún Sveinsdóttir, Grétar Eggertsson,
Karl Huldar Arngrimsson,
Sigurður Þór Arnarson.