Morgunblaðið - 15.02.1994, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 1994
45
Reykjavíkurskákmótið:
Hannes Hlífar og
tveir Rússar sigruðu
__________Skák______________
Margeir Pétursson
HANNES Hlífar Stefánsson
varð efstur á 16. Reykjavíkur-
skákmótinu sem lauk á sunnu-
daginn ásamt Rússunum Zvjag-
insev, sem aðeins er 17 ára, og
stórmeistaranum Pigusov. I
næstsiðustu umferðinni sigraði
Hannes Ivan Sokolov, stiga-
hæsta keppandann og samdi
síðan jafntefli við deFirmian frá
Bandaríkjunum með betri
stöðu, til að tryggja efsta sætið.
Helgi Áss Grétarsson, 17 ára,
kom mest allra á óvart með því
að vinna fjórar síðustu skákirn-
ar og lenda í 4.—5. sæti ásamt
deFirmian. Helgi Áss náði þar
með öðrum áfanga sínum að
alþjóðlegum meistaratitli.
Helgi Áss byijaði ekki vel en
sigurganga hans í lokin var-afar
glæsileg. Fyrst vann hann Ba-
rillaro frá Italíu og síðan stór-
meistarana Rashkovskí, Rúss-
landi, Shabalov, Bandaríkjameist-
ara og Kengis frá Lettlandi.
Þetta er besti árangur sem
bæði Hannes Hlífar og Helgi Áss
hafa náð til þessa. Undirritaður
náði sex vinningum með góðum
endaspretti, en hinir íslensku stór-
meistararnir voru fjarri sínu besta
um helgina og hlutu fimm vinn-
inga. Jóhann Hjartarson var lengi
í baráttunni um efsta sætið, en
tapaði tveimur síðustu skákum
sínum á mótinu fyrir Rússanum
Sjékatsjev og Pólveijanum Wojtki-
ewicz.
Úrslit
Reykjavíkurskákmótsins
1.-3. Zvjaginsev, Rússlandi,
Hannes Hlífar Stefánsson og Pig-
usov, Rússlandi 7 v.
4.-5. DeFirmian, Bandaríkjun-
um og Helgi Áss Grétarsson 6V2 v.
6.-12. Van der Sterren, Hol-
landi, Sjékatsjev, Rússlandi, Kotr-
onias, Grikklandi, G. Garcia, Kól-
umbíu, Henkín, ísrael, Margeir
Péturssog Wojtkiewicz, Póllandi 6
v.
13.-17. Kengis, Lettlandi,
Ehlvest, Eistlandi, Shabalov,
Bandaríkjunum, Ibragimov, Rúss-
landi og M. Ivanov, Rússlandi 5 '/2
v.
18.-28. Atalik, Tyrklandi,
Helgi Ólafsson, Búdnikov, Rúss-
landi, Jón L. Árnason, I. Sokolov,
Bosníu, Jóhann Hjartarson, Van
Wely, Hollandi, Danielsen, Dan-
mörku, Þröstur Þórhallsson,
Ernst, Svíþjóð og Kveinis, Litháen
5 v.
29.-35. Rashkovskí og Bron-
stein, Rússlandi, Link, Þýskalandi,
Snejder, Úkraínu, Guðmundur
Gíslason, Bragi Halldórsson og
Björn Fr. Björnsson 4 '/2 v.
36.-45. Sigurður Daði Sigfús-
son, Jón Viktor Gunnarsson, Gylfi
Þórhallsson, Davíð Ólafsson,
Þröstur Árnason, Werner, Þýska-
landi, Benedikt Jónasson, Jón
Garðar Viðarsson, Halldór G. Ein-
arsson og Héðínn Steingrímsson
4 v.
46.-50. Barillaro, Ítalíu, Arin-
björn Gunnarsson, Burdem
Bandaríkjunum, Tómas Björnsson
og Matthías Kjeld 3 '/2 v.
51.-56. Bragi Þorfinnsson,
Sævar Bjarnason, Happel, Hol-
landi, Áskell Örn Kárason, Krist-
ján Eðvarðsson og Magnús Örn
Úlfarsson 3 v.
57.-61. Sigurbjörn Björnsson,
Stefán Briem, Arnar Gunnarsson,
Van Parreren og Mossin, Svíþjóð
2V2 v.
62. Ólafur B.' Þórsson 1 v.
Þeir keppendur sem jafnir urðu
að vinningum eru taldir upp í röð
eftir Bucholz-stigaútreikningi, þ.e.
samanlagðir vinningar andstæð-
inganna.
Góð aðsókn áhorfenda
Aðsókn að mótinu var sú besta
um margra ára skeið og um helg-
ina troðfylltist Skákmiðstöðin í
Faxafeni. Þegar alþjóðlegu mótin
voru haldin á Hótel Loftleiðum
voru þau yfírleitt vel sótt en það
hefur tekið skákunnendur nokkur
ár að finna leiðina í Faxafenið.
Mikilvæg vinningsskák Hann-
esar Hlífars í næstsíðustu umferð:
Hvítt: I. Sokolov, Bosníu
Svart: Hannes Hlífar Stefans-
son
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3
- b6 4. Rc3 - Bb7 5. a3 - d5
6. Bg5 - Be7 7. Bxf6 - Bxf6
8. cxd5 — exd5 9. g3
Hollenski stórmeistarinn Van
Wely hafði annan hátt á gegn
Jóni L. Árnasyni í sömu umferð:
9. Da4+ - c6 10. g3 - 0-0 11.
Bg2 — c5 sem er líklega nákvæm-
ari leikjaröð.
9. - 0-0 10. Bg2 - De7 11. 0-0
— Hd8 12. b4 — c5 13. bxc5 —
bxc5 14. e3 - Rd7 15. Dd3 -
Rf8 16. Hfbl?!
Sokolov hefur ekki náð neinum
stöðuyfirburðum út úr byijuninni
og gengur illa að finna áætlun í
miðtaflinu. Framrás hans með a
peðinu í næstu leikjum misheppn-
16. - Hac8 17. Re2 - Re6
18. a4 — g6 19. a5 — cxd4 20.
exd4
Hér átti hvítur að drepa með
riddara til að halda jafnvæginu.
Nú fær hann verri stöðu og leikur
síðan a peðinu of langt fram.
20. - Hc4! 21. a6? - Bc8 22.
De3 - Dc7 23. Ha2 - Hc6 24.
Hbal - Dd6 25. Re5 - Hxa6
26. f4 - Db6 27. Dd3 - Hxa2
28. Hxa2 - a5!
Hvíta staðan er nú gertöpuð,
því hann á ekki vörn við Bc8—a6
sem vinnur d peðið í viðbót.
29. Kf2 - Ba6 30. De3 - Bxe2
31. Hxe2 — Dxd4 32. Dxd4 Rxd4
33. Hel - Rc2 34. Hcl - Rb4
35. Hc7 - Bxe5 36. fxe5 -
Rd3+ 37. Ke3 - Rxe5 38. Kd4
- Rg4 39. h3 - Rf6 40. Ha7 -
Hb8 41. g4 - Hb2 42. g5 - Re4
43. Bxe4 — dxe4 44. Hxa5 —
Hb3 45. h4 — Hh3 og hvítur gaf
þetta vonlausa endatafl.
Frá vinstri Þorsteinn Þorsteinsson yfirdómari, Hannes Hlífar, Helgi Áss, Zvjaginsev, Pigusov og
Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar
I heimi anda og herstjóra
Atriði úr Húsi andanna.
Aukið fræðslustarf
Langholtskirkju
FRÆÐSLUSTARF við Langholtskirkju hefur verið aukið. f rúm 2
ár hafa verið bænastundir í kirkjunni alla virka daga kl. 6 síðdegis,
svonefndur aftansöngur og nú er hafin fræðsla eftir aftansönginn
tvo daga vikunnar.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin/Saga Bíó:
Hús andanna - The House of the
Spirits
Leiksljóri Bille August. Handrit
August, eftir samnefndri skáld-
sögu Isabel Allende. Tónlist Hans
Zimmer. Aðalleikendur Jeremy
Irons, Meryl Streep, Glenn Close,
Winona Ryder, Antonio Bande-
ras, Maria Conchita Alonso, Va-
nessa Redgrave, Armin Mueller-
Stahl. New Constantin Film 1993.
Nýjasta mynd danska leikstjór-
ans Bille Augusts tryggir hann í
sessi sem einn athyglisverðasta
kvikmyndagerðarmann samtímans,
Hús andanna rís kannske í heild
sinni ekki jafn hátt og Palli sigur-
vegari en þessar myndir sýna að
hér er maður sem kann flestum
betur að koma erfiðum bókmennta-
verkum á tjaldið með árangri sem
flestir geta vel við unað.
Hús andanna gerist í ónefndu
ríki í Suður-Ameríku (Chile) og
spannar hálfa öld í lifi Truebafjöl-
skyldunnar. Höfuð hennar er Este-
ban (Jeremy Irons) sem í upphafi
myndar er metnaðarfullur, ungur
maður, sem sett hefur markið hátt.
Honum er lofuð hin fagra og vel
ættaða Rosa, en ekki fyrr en hann
hefur sannað sig sem stöndugt
mannsefni. Það tekst honum sem
lánsamur gullgrafari en þá er Rosa
gengin. Esteban kaupir Tres Mar-
ias, niðurníddan búgarð, og með
elju og atorkusemi verður hann með
tímanum héraðshöfðingi og eignast
yngri systur Rosu, hina dularfullu
Klöru (Meryl Streep). Hún er kona
ekki einhöm, sér fyrir óorðna hluti,
er sannkallaður engill í manns-
mynd. Þau eignast dótturina Blöncu
(Winona Ryder), sem í fyllingu
tímans fellir hug til Pedrós (An-
tonio Banderas), sonar ráðsmanns-
ins á Tres Marias, þvert gegn vilja
föður síns. Hann ætlar henni virðu-
legra hlutskipti en að eignast fá-
tækan uppreisnarleiðtoga, en sjálf-
ur verður Esteban á efri árum
áhrifamikill leiðtogi íhaldssamra
stjórnvalda. Pedro kemur engu að
síður þannig við fjölskyldusöguna
að um sinn verður algjört slit milli
Estebans og eiginkonu hans og
dóttur. Þá sigra vinstri öflin í kosn-
ingum en herinn brýtur þau á bak
aftur og jafnvel íhaldssömustu lýð-
ræðissinnar einsog Esteban verða
að taka allt sitt líf til gagngerrar
endurskoðunar.
Fyrstu áhrif þessarar fádæma
efnismiklu og tilfinningaheitu
myndar eru firna sterk og réna lít-
ið er frá líður. Hús andanna minnir
að sjálfsögðu á aðrar, sögulegar,
hádramatískar myndir með um-
brotatíma í bakgrunninum, á borð
við Zhivagó lækni, Z og A hverf-
anda hveli, svo fáar séu nefndar.
En heldur sínum einkennum, suður-
ameríska uppruna og sérstaka
töfraraunsæi sem sameinst i per-
sónu Klöru. Ástin, hatrið, ádeilan á
einræði í hvaða mynd sem það birt-
ist, kemst fyllilega til skila og vel
það í öruggri leikstjórn og yfir höf-
uð eftirminnilegum leik vel valins
leikarahóps í kraftmiklum, velskrif-
uðum óskahlutverkum.
Jeremy Irons fer með langveiga-
mesta hlutverkið af mörgum mikil-
vægum og túlkar þennan metnaðar-
fulla og harðsvíraða mann - sem
þó gerði aldrei annað en það sem
hann taldi best fyrir sig og sína
nánustu - frá æsku til grafar á
óaðfinnanlegann og kraftmikinn
hátt. Enda Irons í hópi nokkurra
bestu leikara samtímans. Kvenhlut-
verkin eru minni en veigamikil þar
sem Glenn Close fer fremst sem
Morela, hin raunamædda og af-
skipta systir Estebans. Meryl
Streep er lítið síðri í hlutverki Klöru,
senurnar á milli hennar og Este-
bans eru ótrúlega áhrifamiklar, en
Winona Ryder og Antonio Banderas
standa þeim aðeins að baki. Auka-
hlutverk eru mörg og vel mönnuð,
m.a. af Armin Mueller-Stahl,
Vanessu Redgrave, Normu Ale-
andro, jafnvel Maria Conchita Al-
onso sýnir tilþrif.
Þetta er erfítt leikstjórnarverk-
efni, hlaðið tilfinningum, afar efnis-
mikið og fjöldasenur margar en
August heldur öllum þáttum vel
saman og nýtur góðra krafta beggja
vegna Atlantshafsins, ekki síst tón-
listar Hans Zimmers. Ekkert pláss
er fyrir óþarfa tilfinningasemi, þó
Hús andanna sé full af fögrum, til-
finningaheitum augnablikum sem
koma við áhorfandann, þá er það
aldrei á ódýran hátt. Hún er engu
að síður ekki gallaláus, oft farið
fljótt yfir sögu, einkum eftir miðbik-
ið, sumar hliðarnar óljósar, svo sem
þingmannsferill Estebans. Myndin
er þó engu að síður u.þ.b. tveir og
hálfur tími og finnst sjálfsagt flest-
um nóg. Fyrir þá sem ekki hafa
lesið bókina er þó upphafsatriðið
versti agnúinn, þar er of mikið sagt
og áhorfandinn upplýstur um afdrif
tveggja aðalpersónanna, því miður.
Þetta eru þó smámunir í saman-
burði við reisn, gæði og sögusnilld
Allende og Augusts - hvort sem þau
lýsa mannsins heitustu tilfinningum
eða ógn og skelfingu einræðis.
Á mánudögum mun Haukur
Jónasson, meðhjálpari, veita leið-
sögn i lestri Lúkasarguðspjalls. Á
þriðjudögum mun sóknarpresturinn
sr. Flóki Kristinsson flytja stutta
fyrirlestra um grundvallaratriði
kristinnar trúar.
Þá eru að hefjast svonefndir
Vinafundir tvisvar í viku en vina-
fundir eru samverur þar sem 6-10
manna hópar koma saman til þess
að lesa og ræða saman um ákveðin
efni. Þeir eru einkum hugsaðir fyr-
ir eldri borgara.
Fyrri hópurinn mun hittast á
þriðjudögum kl. 2.15-3.45 og verð-
ur efni hans lestur ritningarinnar
og helstu trúaratriði kristninnar.
Leiðbeinandi verður sóknarprestur-
inn sr. Flóki Kristinsson.
Síðari hópurinn mun hittast á
fimmtudögum kl. 2-3.30 og verður
umfjöllunarefni hans efri árin og
þær breytingar sem verða á högum
fólks þegar aldurinn færist yfir.
Leiðbeinandi verður Sigrún Gísla-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og
framkvæmdastjóri ellimálaráðs
kirkjunnar í Reykjavík. Þeim til
aðstoðar verður Sigríður Jóhanns-
dóttir.