Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 4
FRÉTTTR/YRRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 ERLENT INNLENT 300 millj- ónir til Vestfjarða nú alls staðar á grunnslóð. Afli línubáta fyrir norðan hefur verið afar góður og togarar reyna að forðast þorskinn til að treina sér kvótann. Skipstjórinn á Bessa seg- ir þorsk um allan sjó og sumir bátar að vestan séu á veiðum kvótalausir. Verð loðnuhrogna hefur hækkað um þriðjung Rikisstjómin hefur til umfjöll- unar tillögur um aðgerðir vegna erfiðleika á Vestfjörðum og hefur verið samþykkt að frumvarp um aðgerðir verði lagt fram í næstu viku, þar sem meðal annars verður kveðið á um 300 milljóna króna framlag í formi víkjandi iána, auk aðgerða í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Mikil eftispum er eftir loðnu- hrognum í Japan og hefur verð hækkað um allt að þriðjung milli ára, en framboð er lítið vegna þess að Norðmenn frysta ekki loðnu- hrogn nú. Er reiknað með að mark- aðurinn geti tekið við allt að 8.000 tonnum af hrognum og verðmætið geti orðið um 1,5 milljarðra króna. 800 milljónir vegna átaks í atvinnumálum Markús Öm Antonsson, borg- arstjóri í Reykjavík, lagði í vikunni fram tillögu í borgarráði til úrbóta í atvinnumálum sem felur í sér að ráðist verði sérstök átaksverkefni á vegum þorgarinnar og borgar- fyrirtækja. í þessum mánuði er fyrirhugað að ráða 170 atvinnu- lausa til starfa. Ætlunin er að veija til þeirra 800 milljónum króna, enda verði Atvinnuleysis- tryggingasjóði gert kleift að leggja fram helming þeirrar upphæðar eða 400 milljónir króna. Tillögunni var vísað til borgarstjómar. Pétur Sigurðsson, formaður Atvinnu- leysistryggingasjóðs, fagnar öllum hugmyndum til úrbóta í atvinnu- málum en gerir ekki ráð fyrir að hugmynd borgarstjóra sé möguleg og bendir á að sjóðurinn hafí ein- ungis 600 milljónir til ráðstöfunar á þessu ári. Páskaferðir að seljast upp Nær allar ferðir-ferðaskrifstof- anna um páskanna eru að seljast upp og hafa Samvinuferðir-Land- sýn tekið á leigu Boeing 747 til að flytja farþega um páskana til Benidorm og írlands. Landsbankinn með 42 milljóna króna hagnað Landsbanki íslands skilað 42,7 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Endanlegar afskriftir bankans á síðasta ári vom 2.306 milljónir, en á sama tíma voru lagðar á af- skriftareikning 2.033 milljónir eða um 170 milljónir króna á mánuði. Heildartap Landsbankans á SIS nam um einum milljarði. Flutningsj öfnun afnumin Allflestir vertíðarbátar búnir með kvótann Flestir vertíðarbátar em búnir eða langt komnir með þorskafla- heimildir sínar og ber mönnum saman um að mjög góð veiði sé Viðskiptaráðherra hefur lagt fram fmmvarp í ríkisstjóm um niðurfell- ingu laga um flutningsjöfnun- arsjóð og innkaupajöfnun olíu og bensíns. Fmmvarpið gerir ráð fyr- ir að flutningsjöfnun af olíu og bensíni verði felld niður. Sighvatur Björgvinsson segir þetta hafa í för með sér að verð á olíu og bensíni verði ekki lengur það sama hvar sem er á landinu og muni auka mjög samkeppni milli olíufélag- anna. ERLENT Aðildar- samningar í höfn ákváðu Króatar og múslimar að mynda sambandsríki í Bosníu með mikilli sjálfstjórn hvers héraðs og var samningurinn undirritaður í Washington enda hafa Bandaríkja- menn stuðlað mjög að samkomu- laginu. SVÍAR, Finnar og Austurríkis- menn náðu á þriðjudagskvöld samningum við Evrópusambandið um aðild ríkjanna eftir að viðræður höfðu staðið yfir linnulaust í 30 klukkustundir. Enn er eftir að greiða úr deilum Norðmanna við sambandið vegna kröfu Spánveija um auknar fískveiðiheimildir við Noreg en líkur benda til að mála- miðlun náist á ráðherrafundi samningsaðila á þriðjudag. Tals- menn bænda í væntanlegum aðild- arríkjum gagnrýna harðlega ákvæði um landbúnaðarmál en matvælaverð verður lækkað til samræmis við markaðsverð í Evr- ópusambandinu. Á hinn bóginn fá stjómvöld að styðja áfram við bak- ið á bændum með beinum styrkj- um, að nokkm leyti úr sameigin- legum sjóðum sambandsins. Þing Evrópusambandsins mun fjalla um samningana á næstunni og búist er við að þjóðaratkvæði verði í haust um þá í ríkjunum sem sækja um aðild. Peres Arafat Færeyingar óánægðir Skýrsla frá OECD um langlífí og lífslikur um allan heim íslendingar með líf- Fyrstu hernaðaraðgerðir NATO HERÞOTUR Atlantshafsbanda- lagsins, NATO, skutu niður fjórar herþotur, sem talið er að hafí ver- ið í eigu Serba í Krajina-héraði í Króatíu, yfír Bosníu á mánudags- morgun. Þotumar fjórar bmtu flugbann Sameinuðu þjóðanna, gerðu árásir á virki múslima og sinntu ekki viðvömnum NATO. Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun NATO árið 1949 sem lið banda- lagsins tekur þátt í hemaði. Rúss- ar lýstu stuðningi við aðgerðina þar sem þoturnar hefðu brotið gegn flugbanninu. Á miðvikudag seigari þjóðum í heimi Meðalaldur Dana hrapar - Atvinnuleysi áhættuþáttur Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.. í SKÝRSLU OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, ynr lífslíkur í aðildarlöndunum 24 eru íslenskir karlmenn í öðru sæti og íslenskar konur í sjötta sæti hvað langlífi varðar. Athygli vek- ur að Danir koma mjög illa út úr könnuninni og hafa hrapað niður listann frá því sem var fyrir tuttugu árum. Reykingar eru taldar eiga stóran þátt í slæmri útkomu Dana, auk þess sem streitu, slæmum neysluveiyum og áfengisneyslu er kennt um. Niðurstoð- urnar eru byggðar á tölum frá 1990. PLO kallar heim samningamenn FRELSISSAMTÖK Palestínu, PLO, ákváðu á laugardag að kalla heim um stundar sakir fulltrúa sína í samningaviðræðunum við ísraela í Kaíró, París og Washing- ton vegna óánægju með viðbrögð ísraelsstjórnar við fjöldamorðinu í Hebron. Leiðtogi PLO, Yasser Arafat, krefst þess að alþjóðlegar friðargæslusveitir tryggi öryggi Palestínumanna á hemumdu svæðunum og jafnframt að land- nemar gyðinga verði allir afvopn- aðir. Shimon Peres, utanríkisráð- herra ísraels, hafnaði kröfum PLO. DANIR segjast fúsir að endurfjár- magna erlend lán Færeyinga að því tilskildu að þeir taki upp físk- veiðistjómun sem feli m.a. í sér að veiðikvótar verði framseljanleg- ir. Vísindamenn segja að ofveiði hafí verið stunduð á miðum Færey- inga. Landstjómin í Þórshöfn hef- ur samþykkt tillögur Dana með nokkmm breytingum og lýsti Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráð- herra Dana, ánægju með þá lausn. Færeyskir útgerðarmenn mót- mæltu harðlega og hótuðu að sigla togaraflotanum í land, með tillög- unum væri verið að rústa atvinnu- greinina. Sjómenn eru einnig æfir vegna þess að gert er ráð fyrir að lækka tekjutryggingu. Reuter Dæmdir fyrir sprengjutilræði Af kvenfólki eru japanskar konur langlífastar, en meðalaldur þeirra er 81,9 ár. Næst á eftir þeim koma þær svissnesku, þá franskar, sænsk- ar, kanadískar og þá íslenskar kon- ur, en meðalaldur þeirra er 80,3 ár. Þar eru danskar konur í 22. sæti með 77,9 ár, en á eftir þeim koma írskar konur með 77,7 og að lokum tyrkneskar konur en meðalaldur þeirra er 68,4 ár. Af körlum eru einnig þeir jap- önsku í fyrsta sæti með 75,9 ár og þá íslenskir karlar með 75,7 ár. I þriðja sæti eru sænskir karlmenn með 74,8 ár. Danskir karlmenn eru í 18. sæti með 72 ár. Einnig meðal karla eru þeir tyrknesku í neðsta sæti, með 64,1 ár. Fyrir tuttugu árum leit þessi tafla öðruvísi út, því þá voru danskar konur í áttunda sæti og karlmennimir í fimmta sæti. Reykingar og áfengisneysla er meiri í Danmörku en í nágranna- löndunum og er það talið hafa sín áhrif, svo nú ætla dönsk heilbrigðis- yfirvöld að skera upp herör gegn reykingum. Tíðni sjúkdóma eins og lungnakrabba, krabbameins í munni og meltingarvegi, skorpulifrar og hjarta- og æðasjúkdóma er hærri í Danmörku en í nágrannalöndunum. Læknum ber saman um að erfitt sé að fínna eina skýringu á lækk- andi meðalaldri í Danmörku, heldur sé um að ræða samverkandi þætti í lífsháttum og aðstæðum, heilbrigð- ■ iskerfinu og erfðum, en vafalaust beri áhættuþættir eins og reykingar mikla sök. Einnig er tíðni sjálfs- morða há í Danmörku og einnig barnadauða. Danskar rannsóknir hafa einnig sýnt að þeim, sem eru atvinnulausir er hættara við sjúkdómum en þeim sem hafa vinnu. Maður undir fímm- tugu, sem ér atvinnulaus í meira en fjóra mánuði á ári á tvisvar sinn- um meira á hættu að látast fyrir aldur fram en maður sem er í vinnu. FJÓRIR arabar voru á föstudag dæmdir sekir um að hafa valdið dauða sex manna í New York í fyrra með því að koma fyrir sprengju í kjallara World Trade Center-skýjakljúfanna í borginm. Um 1.000 manns særðust að auki í tilræðinu. Ákæruvaldið byggði málið á f)ol- mörgum og oft flóknum vísbendingum þar sem vitni voru engin að gerðum mannanna. Svo gæti farið að mennirnir, sem mótmæltu há- stöfum og sögðust vera saklausir, hlytu lifstíðarfangelsi. Á myndinm sést þétt röð lögreglumanna við dómhúsið. Tillaga um norræn- an landamærafána Stokkhólmi. Reuter. # ## TILLAGA um sameiginlega landamærafána fyrir Norðurlönd verður til umræðu á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í næstu viku. Á blaðamannafundi, sem skrifstofa Norðurlanda- ráðs hélt í gær, var greint frá þessari hugmynd. Fáninn yrði svanur á bláum hring á hvítum fleti, en það hefur einmitt ver- ið tákn Norðurlandaráðs um árabil. Verkfalli afstýrt Hannover. Reuter. VINNUVEITENDUR og verka- lýðssamtök í þýskum málmiðnaði náðu á síðustu stundu kjarasamn- ingum í gærmorgun. Síðasti samningafundurinn stóð í 14 stundir samfleytt. Verkamenn fá 2% launahækkun í júní og vinnuveit- endur komu nokkuð til móts við kröf- ur um atvinnuöryggi. Á hinn bóginn samþykktu verkamenn að vinnuvika yrði skorin niður í 30 stundir úr 36 á sumum vinnustöðum sem mun þýða verulegt tekjutap. Ráðgert er að norrænu ráðherr- arnir ræði tillöguna, sem borin er fram af forsætisnefnd þingsins, í næstu viku en ef þeir samþykkja hana verður þessi fáni áberandi við allar helstu landamærastöðvar Norðurlandanna og norrænu sjálf- stjómarsvæðanna. Markmiðið með þessum nor- ræna fána yrði að auka samkennd meðal Norðurlandanna ekki síst í ljósi þess að þrjú þeirra, Svíþjóð, Noregur og Finnland, stefna að aðild að Evrópusambandinu og Danmörk hefur verið aðili í rúma tvo áratugi. Með því að nota sama fánann við öll landamæri myndi ímynd Norðurlandanna sem eins svæðis styrkjast. Reuter * A síðustu stundu CONSTANDT Viljoen, hers- höfðingi og leiðtogi hægri- hreyfingarinnar Afrikaner Volksfront í Suður-Afríku, ræðir við fréttamenn eftir að hafa skráð flokkinn til þátttöku í fyrstu lýðræðislegu kosning- um landsins sem verða í apríl. Skrásetningarfrestur rann út fáeinum mínútum síðar og Ink- atha-frelsisflokkur zúlúmanna var einnig á síðustu stundu. Flokkarnir tveir hafa mótmælt áformum ríkisstjórnar hvíta minnihlutans og Afríska þjóð- arráðsins, flokks Nelsons Mandela, um stjórnarfyrir- komulag og vilja að hvert hérað hafi meiri sjálfstjóm ern áform- að er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.