Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 17 íslenski dansflokkurinn Draumar, Mánans ar, Vitlaust númer og Bless Lára Stefánsdóttir í Mánans ar eftir Auði Bjarnadóttur. __________Ballett______________ Ólafur Ólafsson íslenski dansflokkurinn: Draumar; danshSfundur: Steph- en Mills. Mánans ar; danshöfundur: Auður Bjarnadóttir. Vitlaust númer; danshöfundar: Maria Gísladóttir ásamt dönsur- unum. Adieu; danshöfundur: Lambros Lambrou. Tónlist: Praise, Atli Heimir Sveinsson, Pétur Grétarsson, Chopin, Bruck Owens, Mascagni, Franz Schmidt. Leikmynd og búningar: Karl Aspelund, Leslie Bonnell. Lýsing: Björn G. Guðmundsson. Sviðsetning: María Gísladóttir, Lauren Hauser, Auður Bjarna- dóttir. Þjóðleikhúsið, 3. mars 1994. Með nokkurri eftirvæntingu var beðið þessarar sýningar Islenska dansflokksins, því verkefnaval gaf tilefni til þess. Flokkurinn hefur verið að rísa úr öskutónni á undan- förnum misserum. Þessi sýning var ánægjulegur vottur þess, að upp- byggingin heldur áfram. Hér er á ferðinni fjölbreytt sýning, því boðið er uppá auðlesin verk með alvarlegu ívafi og glettni. Upphafsverkið, Draumar, eftir Stephen Mills, er mjög skemmti- legt. Það er þónokkuð „poppað" og með líflegu hljómfalli, sem er á köflum suðrænt og með frumskóg- arstemmningu. Hraði, snerpa og seigfljótandi hreyfmgar skiptast á í dansinum. Kóreógrafían krefst klassískrar þjálfunar dansaranna, þó dansað sé við nútímatónlist. Hún gerir miklar kröfur til úthalds og styrks, ekki síður en mikillar ná- kvæmni í samdansi. Þó í upphafi hafi örlað á einhverri taugaspennu, hvarf hún þegar leið á dansinn. Verkið Draumar er fullt af gáska og daðri, sem skilaði sér vel. Af einstökum dönsurum vil ég nefna Þóru Guðjohnsen og Hany Hadaya, en þessi dansstíll hentar honum sérlega vel. Sigrún Guðmundsdóttir og ekki síður Jóhann Björgvinsson komu mér nokkuð á óvart. Hlutverk Jóhanns í Draumum er það stærsta, sem honum hefur verið trúað fyrir. Lofar góðu, en á eftir að taka út meiri þroska sem dansari. Ljósin voru mjög vel notuð. Verkið fór að verða dálítið langdregið og það er það helsta sem finna má að því. Því er dálítið illa lokað af hendi höfundar og því lýkur nánast uppúr þurru. En þetta voru samt góðir og skemmtilegir Draumar. Mánans ar eftir Auði Bjarnadótt- ur var næst á efnisskránni. Auður semur verkið, sem er fyrir sólódans- ara og tólf hópdansara, við flautu- konsert Atla Heimis Sveinssonar. Mánans ar er rykkorn, sem geislar mánans lýsa upp, það korn, sem svífur um uppljómað í dularfullu ljósi mánans. Sólóhlutverkið (flaut- an í tónverkinu) er dansað í ljós- geisla tveggja kastara, sem lýsa dansarann upp, eins og rykkorn lýsist upp í mánageisla. Það má segja það alveg beint út, að verkið smellur og er hreint stórkostlegt. Á leiksviðinu er pappírsrusl, ljósabún- aður sviðsins er ekkert hulinn og í bakgrunn er tötralegur skúlptúr. Búningar hópdansaranna eru druslulegir og úr striga. Verkið getur gerst á tunglinu, á ruslahaug, í niðumíddri borg eða — bara hvar sem er. Söguþráður er varla í verk- inu, en sterk skilaboð er þar að finna. Þetta er kynngimagnað verk við stórbrotna tónlist. Mánans ar er samið af innsæi og næmri tilfinningu fyrir mögu- leikum leiksviðsins. Allar staðsetn- ingar eru góðar og allar tengingar með ágætum. Samspil allra dansar- anna gengur upp og sólóhlutverkið í geislanum er frábært. Það er dans- að af Láru Stefánsdóttur. Hún fer á kostum, túlkun hennar er frábær og hún vinnur fullkomlega rétt úr hlutverkinu. Hópurinn skilar sínu mjög vel og gefur verkinu þungan undirtón. Sama verður að segja um leikmynd Karls Aspelunds og einnig um frábæra lýsingu Bjöms B. Guð- mundssonar. í mínum augum vinn- ur Auður Bjarnadóttir mikinn sigur með þessu verki. Hver sá, sem telur sig hafa einhvern snefil af áhuga á íslensku leikhúsi, getur ekki látið Mánans ar framhjá sér fara. Svo einfalt er það. Vitlaust númer er stuttur ballett, sem María Gísladóttir samdi í félagi við dansarana. Tónlistin er eftir Pétur Grétarsson og eru bæði dans- inn og tónlistin samin sérstaklega fyrir Islenska dansflokkinn. Það er ekki í mínum verkahring að fjalla um tónlistina, en samvinna dansara og tónskálda er mjög jákvæður þáttur. Vitlaust númer er skondinn léttur baljett við dálítið tölvukennda tónlist. Útúr símalínunum kemur fólk, sem kannski fær meira og minna „vitlaust númer“ i samskipt- um hvert við annað, enda endar verkið með því, að skellt er á. Þetta verk er fyrst og fremst samið til að skemmta og það tekst því ljóm- andi. Frumsýningargestir voru greinilega með á nótunum. Sviðs- myndin var nokkuð góð, en að mínu mati voru búningar kvennanna dá- lítið fáránlegir og karlarnir eins og gleymst hefði að færa þá í hluta búningsins. Lýsing í þessu verki virðist hafa setið á hakanum, því ljósin voru nánast ekki notuð. I heildina er Vitlaust númer samt ágæt skemmtun. Adieu er ballett um þijú ólík ást- arsambönd, þar sem elskendumir eru að skilja. Pörin em ólík, en skilnaður er alltaf niðurstaðan. í lokakaflanum sameinast pörin síðan í dansi, áður en þau halda hvert í sína áttina, sátt við orðinn hlut. Lambros Lambrou samdi ballettinn fyrir Ballet Austin, þar sem höfund- urinn gegnir stöðu listdansstjóra. Verkið virkar ekki sérlega sterkt eða eftirminnilegt. Þó það hafi ver- ið ágætlega dansað af öllum, var það helst miðkaflinn, sem vakti at- hygli. Þar eru elskendur að skilja að morgni. Líklega nokkuð raun- sönn lýsing á högum ungs fólks. Sigrún Guðmundsdóttir og Guð- mundur Helgason, nýliðinn í flokkn- um, dönsuðu þann kafla. Lokakafli verksins, sem jafnframt var loka- atriði kvöldsins, var hugljúfur og fallegur dans allra þriggja paranna. Adieu er ekki bragðsterkt verk, þó það standi fyrir sínu. Um sýningu íslenska dansflokks- ins í heild verður að segja, að hún tókst ljómandi vel. Hún er góður vitnisburður um metnaðarfullt starf. Það kann að vera erfitt að raða saman í eina dagskrá fjórum jafnólíkum verkum eins og núna var boðið uppá. Röð þeirra hefði að mínu mati mátt vera önnur, til að byggja upp styrk. En þær að- fínnslur eru smámunir einir. Þetta er sýning, sem er fjölbreytt, auðskil- in og umfram allt góð skemmtun. Og svo er verk Auðar Bjamadótt- ur, Mánans ar, dansverk fyrir leik- svið sem enginn áhugamaður um leikhús má láta framhjá sér fara. EFLUM MÁLRÆKIARSJÓÐ í tilefni af50 ára afmœli lýðveldisins. Tekið við framlögum í síma 28530. MÁLRÆKTARSJÓÐ UR Aragötu9,101 Reykjavík TILBOÐ ÓSKAST í Ford RangerXLT King Cab 4x4, árgerð ’89 (ek- inn 28 þús. mílur), Mitsubishi L-300 Mini Van, árgerð '90 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 8. mars kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í Hyster gafallyftara H-100C, 4,5tonn. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. SALA VARNARLIÐSEIGNA Landsbanki íslands auglýsir nú fimmta árið í röð eftir umsóknum um NÁMU-styrki. Veittir verða 7 styrkir. Hf Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, eiga rétt á áð sækja um þessa styrki. @§ Allir þeir sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir 15. mars 1994 eiga rétt á að sækja um styrk vegna þessa námsárs. |§ Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir verða afhentir í apríl 1994 og veittir NÁMU-félögum skv. eftirfarandi flokkun; 2 styrkir til háskólanáms á íslandi, 2 styrkirtil náms við framhaldsskóla hérlendis, 2 styrkir til fram- haldsnáms erlendis og 1 styrkur til listnáms. Umsóknum ertilgreini námsferil, námsárangur, heimilishagi og framtíðaráform, skal skilað til Lands- banka íslands eigi síðar en 15. mars næstkomandi. H§ Umsóknir sendist til: Landsbanki íslands, Markaðssvið b.t. Berglindar Þórhallsdóttur Bankastræti 7, 155 Reykjavík L Landsbanki ísiands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.