Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 7 Lífeyrismál starfsfólks ísfélagsins í Eyjum Lítil viðbrögð enn vegna mikillar vinnu SIGURÐUR Einarsson, forstjóri ísfélags Vestmannaeyja, segir að bréf sem hann sendi til starfsmanna nýlega varðandi lífeyrismál hafi vakið lítil viðbrögð meðal starfmanna fyrirtækisins, enda sé mikil vinna núna í loðnufrystingu og kannski ekki mikill tími til umræðna. Einar Bjarna- son, starfsmannasljóri í frystihúsi fyrirtækisins, segir að bréfið hafi aðeins verið rætt á meðal starfsmanna. I bréfinu er starfsfólki bent á að fyrirtækið muni ekki hafa nein áhrif á ákvörðun starfsmanna kjósi þeir að borga í lífeyrissjóð þar sem þeir telji hagsmunum sínum best borgið. Sigurður segir að markmiðið með bréfinu hafi verið að vekja athygli fólks á þessum málum, því miklir peningar væru í húfi. Hann segir að enginn hafí hingað til sótt um að breyta um lífeyrissjóð, en hann hafi orðið var við að starfsmönnum hafi þótt gott að hreyft hafi verið við þessu máli. „Það er ekki mitt að ráða í hvað lífeyrissjóð fólk borgar," segir hann. „Fólkið á þessa fjármuni sjálft, ekki fyrirtækið." Einar segir starfsmenn almennt vera illa að sér í lífeyrismálum og bréfið hafi vakið fólk til umhugsunar um þessi mál. Hann segist búast við því að þegar loðnufrystingunni ljúki gefist fólki sem hafi á því áhuga tóm til að kynna sér þessi mál betur. Merkingar á heimilis- tækjum samræmdar SIGHVATUR Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lagði á ríkis- stjórnarfundi á föstudag fram frumvarp til laga um merkingar og upp- lýsingar á heimilistækjum varðandi orkunotkun þeirra. Að sögn Þórunn- ar Erhardsdóttur hjá viðskiptaráðuneytinu er með frumvarpinu verið að samræma lög hérlendis tilskipunum Evrópusambandsins um hvaða upplýsingar eiga að koma fram á heimilistækjum. Engar slíkar reglur hafi verið til hér á landi. Þórunn segir að samkvæmt tilskip- un Evrópusambandsins frá 1979 og viðbótartilskipunum frá 1992, sé öll- um framleiðendum innan Evrópu- sambandsins skylt að gefa upplýs- ingar um rafmagnsnotkun, hávaða tækjanna og fleira. Tækin sem um ræðir eru t.d. frystikistur, sjóvarps- tæki, þvottavélar og öll önnur heimil- istæki. Hún segir að þrátt fyrir að engar reglur hafi verið í gildi um þessar merkingar hér þá sé mikið flutt inn af heimilistækjum hingað frá löndum Evrópusambandsins, þannig að þess- ar upplýsingar hafi verið á stórum hluta þeirra tækja sem hingað eru flutt. Þórunn segist búast við því að lagafrumvarpið verði afgreitt á þessu þingi og taki þá gildi 1. júlí. Opplifða (Kvintýri í Verð aðeins frá kr. 99.800 Brottför: 23. mars 3 vikur Rio de janeiro Þessi frægasta baðströnd heimsins hefur líklega meira aðdráttarafl en nokkur annar staður í Suður Ameríku. Hér er búið í hjarta Copacabana strandarinnar við frábæran aðbúnað og spennandi ferðir í boði: Sykurtoppurinn með útsýni yfir alla Ríó, Corcovado, einkenni Ríó með Kristsstyttunni frægu og stórkostleg danssýning og kvöldverður þar sem hin fræga samba er dönsuð á ógleymanlegan hátt. Valmöguleikar Viðbótargjald fyrir Rio de Janeiro, kr. 14.900,- 5 kynnisferðir í Brasilíu með Islenskri fararstjórn aðeins Kr. 13.900,- Innifalið í verðí Flug, ferðir til og frá flugvöllum erlendis, gisting á 4 stjörnu hótelum I Brasilíu, smáhýsum á Kanarí, morgunmatur I Brasillu og ísjensk ferarstjórn allan timann. Flugvallarskattar kr. 4.860 a/r europa Austurstræti Salvodor d« Bahia Fyrrum höfuðborg Brasilíu þar sem brasilísk áhrif eru hvað sterkust og afrískir siðir tíðkast ennþá. Hér er maturinn kryddaðri, dansinn MuttD«o>bAHi heitarj Qg tónlistin dýpri en annars staðar [ Brasiliu og stórkostlegt veður allan ársins hring. Eftirsóttasti ferðamannastaður Brasilíu í dag, enda blanda af heillandi menningu og einstökum ströndum. Ferðatilhögun Beint flug til Kanarfeyja og áfram til Brasilíu. 15 dagar I Brasilíu, i Salvador de Bahia. Valkostur 2 er að vera viku í Salvador og 8 daga í Rio de Janeiro. Aukagjald fýrir Rio er aðeins kr. 14.900,- 17,2. hæð • Sími 624600 TURAUIA Dæmi um verð HERRADEILD Skyrtur frá kr. 2.500,- Rúskinnsvesti, margir litir kr. 2.900,- Buxur frá kr. 3.900,- Bindi frá kr. 990,- Slaufur frá kr. 590,- Ullarjakkar vlnrauðir, grænir, bláir frá kr. 6.900.- Skór frá kr. 3.900,- Sérsaumum Vönduð vinnubrögð - gott verð (Allar breytingar innifaldar í verði) 5% staðgneiðsluafsláttur. r i miklu úrvali Dæmi um verð DÖMUDEILD Stuttir, útvíðir kjólar frá kr. 4.900,- Stuttir, köflóttir kjólar frá kr. 3.900,- Ljósir, stuttir kjólar kr. 5.900,- Svartir/hvítir kjólar kr. 7.900,- Rauðir velúrkjólar kr. 5.500,- Há stígvél brún/svört kr. 7.900,- Ljósir skór frá kr. 3.400,- Háhælaðir skór frá kr. 3.900,- Hálsfestar - heklaðar húfur - krossar Gott verð - mikið úrval Laugavegi sími 17440 Kringlunni slmi 689017

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.