Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 47 11. mars verður síðasti dagur sem við tökum á móti notuðum skóm, í söfnuninni „Látum skóna ganga afturk / I verslunum okkar STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN SÍMI 18519 Ioppskórinn VEniJSUNDI V/INGÓLfSTORG SÍMh 21212 STEINAR WAAGE ^ SKÓVERSLUN SÍMI 689212 Við viljum þakka öllum þeim, sem stutt hafa þetta málefni með því að koma með skó til okkar. Nú þegar höfum við sent tvo gáma með um 30.000 pör til Chile og um 5.000 pör til Grænhöfðaeyja með fiskiskipinu Islandica og erum að fylla þriðja gáminn. Það má því láta nærri að um 50.000 pör verði send til bágstaddra. Sérstakar þakkir fá eftirtaldir aðilar, sem hafa aðstoðað eða stutt málefnið á einhvern hátt: Flutningafyrirtækir Jónar hf. Samskip Plastprent Sem er útgáfan MagnúsIngiIngason Kaupfélag Eyfirðinga AKO-POB . Heiðar Sigurðsson Gámaþjónusta Vestfjarða Isafjarðarbær ísafjarðarleið Ásamt fjölda leikskóla, kirkna og félagasamtaka sem hafa safnað. Fermingar Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 13. mars nk.; fylgir blaðauki sem heitir Fermingar. I þessum blaðauka verður fjallað um flest það sem viðkemur fermingunni: Uppskriftir og aðferðir við skreytingar á fermingartertum, auk uppskrifta og tillagna að hlaðborðum með köldum mat, heitum réttum og bakstri, að vanda unnið að fagfólki. Þá verður fjallað um hina ýmsu möguleika . sem eru í boði fyrir þá sem vilja kaupa veisluföngin að, hvort heldur er fyrir tertuveislur eða matarveislur. Fermingarfatnaði verður gerð góð skil í máli og myndum, sem og hárgreiðslu og tilheyrandi og fjallað um fermingargjafir og óskir ungmenna í þeim efnum. Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka er bent á að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 7. mars. Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar í síma 69 1111 eða símbréfi 69 1110. - kjarni málsins! eftir Elinti Pálmadóttur Fjölskyldan Ar fjölskyldunnar! Ræður og ráðstefnur, allir tali um fjölskylduna. Er þá bara ein fjöl- skylda?i Ég hefi verið að svipast um eftir þessari fjölskyldu. Ékki er auðvelt að koma auga á hana í máli viturs fólks sem talar um stöðu og úrræði af ýmsu tagi fyrir þessa fjölskyldu. Oft sýn- ast þetta vera margar fjölskyld- ur, sín af hveiju tagi. Sameinuðu þjóðirnar leggja áherslu á að fjölskyldur séu með ýmsum hætti og að Ár fjölskyldunnar höfði því til allra íjöl- skyldna. Eins og til stóð hef- ur hér verið skipuð opinber nefnd með þrem tugum fulltrúa fé- lagasamtaka og opinberra stofnana. Þar bar ég því nið- ur eftir skil- greiningu á ís- lensku fjöl- skyldunni sem verið er að meta og spá í til frambúðar í íslensku sam- félagi. Landsnefndin ætlar að hafa til hliðsjónar við störf sín: „Fjölskyldan er hópur einstakl- inga sem, á sameiginlegt heim- ili, þar sem þeir deila tómstund- um, hvíld, tilfinningum, efna- hag, ábyrgð og verkefnum. Meðlimir eru oftast fullorðnar manneskjur af báðum kynjum eða einstaklingar, ásamt bami eða börnum (þeirra). Þau eru skuldbundin hvort öðru í sið- ferðilegri, gagnkvæmri holl- ustu.“ Ekki verður séð af þessu hvort börn verða að vera á heim- ili til þess að einstaklingurinn geti talist eiga fjölskyldu. Held- ur ekki verður af fyrirlestrum og ræðum séð að þessi skilgrein- ing sé endileg notuð. Fjölskyldan hefur breyst í áranna rás. Þama er um merki- lega breytingu á merkingu orðs og túlkun að ræða. Upphaflega var fjölskylda hin mörgu skyldu- verk sem unnin voru á bænum og færðist svo yfir á þann hóp sem vann þessi verk. Síðan smá- þregdist merkingin, enda fækk- aði heimilisfólki, og fór að ná yfir þennan þrönga ættmenna- hóp, foreldra, börn og afa og ömmu, eins og margir nota það ennþá. Ef flett er upp í gömlu Blöndals orðabók stendur: Fjöl- skylda 1. (mikill barnaflöldi) talrig Familie, stor barneflok og 2. Familie, með dæmi: í húsinu býr ein fjölskylda. Sem sagt annað hvort barnmörg fjöl- skylda eða fólkið sem býr á einu heimili. Lítum á nýrri merking- ar. í orðabók Árna Böðvarsson- ar nær orðið fjölskylda yfir for- eldra og börn þeirra, húsráðend- ur og afkomendur þeirra, syst- kyni og skyldulið. Þar eru þá innifalin í fjölskyldunni mágkon- ur og mágar og börn þeirra og systkynabörn. Allt þetta fólk er líka með þegar talað er um fjöl- skylduboð. Þá er boðið nánustu frænkum og frændum, ekki satt? Nú var flett upp í íslenskri samheitabók: Fjölskylda, fólk, heimafólk, hjón, sifjalið, skyldul- ið, stendur þar. Víkkar enn merkingin. Ekki virðist fjöl- skyldan hjá ræðumönnum á há- tíðastundum á Ári fjölskyldunn- ar alltaf ríma almennilega við það. Samtal og marktæk hug- myndaskipti geta varla orðið þegar lögð er svo mismunandi merking í lykilorðið. Mér sýnist „fagfólkið" að minnsta kosti nota orðið fjölskylda í þrengstri merkingu. Sé oft aðeins að tala um foreldra eða foreldri með lít- il börn. Sýnist hafa verið að saxa á fjölskylduna um nokkurt skeið og skipta henni niður í æ smærri brot. Þá vaknar spurningin: Er það þetta sem fólkið í landinu vill raunverulega? Og þá umfram allt: Er það þetta ‘sem al- menningur tel- ur börnum landsins fyrir bestu, að eiga sem fámenn- asta fjöl- skyldu? Sem fæsta að? í áratugi hefi ég átt við- töl við fólkið í landinu og fjölmarga sem búa erlendis. Þegar þessir einstaklingar eru að segja sinni, hvað hefur mér frá ævi haft mest áhrif á þá og líf þeirra, falla makalaust oft orð á þessa leið: Ég var nú svo heppin að amma mín var á heimilinu þegar ég var að alast upp. Báðir afar mínir og ömmur. Flestir segja að þeir hafí fullorðnir áttað sig á hversu mikilvægt það hafði verið þeim. Þeir sem búa erlend- is segja nær alltaf að þeir sakni mest nábýlisins við „fjölskyldu sína“, þótt þeir eigi sinn maka og börn á staðnum. Það nægir greinilega ekki sem fjölskylda. Sumir segja að krakkarnir þeirra sæki svo til íslands, því þeir eigi enga fjölskyldu þarna. Og margir láta orð falla þegar eitthvað kemur fyrir þá á lífs- leiðinni, að þeir hafi verið svo heppnir að eiga stóra fjölskyldu. Hún er bakhjarlinn. Kristín Gústafsdóttir félags- ráðgjafi í Svíþjóð sagði mér í viðtali að merki sjáist um að unga fólkið í Svíþjóð sé aftur farið að telja ættartengslin skipta máli. Þegar uppgangur- inn var mestur í samfélaginu eða uppreisnirnar um 1960-70 hafi verið tilhneiging til að van- meta fjölskylduna, en nú þegar að kreppir hallist það að stórfjöl- skyldunni. Unga fólkið hallist aftur að fjölskyldulífí umfram kynslóðina sem nú er miðaldra. Og Jón Björnsson sálfræðingur bendir á að ekki sé langt síðan neikvæð grundvallarafstaða til fjölskyldunnar naut vinsælda hér. Er miðaldra kynslóðin ekki einmitt sú sem mest hefur og er að móta félagslegar skoðan- irnar hér á landi? Og lögin? í erindi Jóns kemur einmitt fram að frá því í maí 1991 hafi aldrað- ir foreldrar ekki komið upp- komnum börnum sínum laga- lega neitt við. Og að samkvæmt gildandi lögum um íslensk börn, koma þau öfum sínum og ömm- um lagalega ekki við frekar en, minkum og tófum. Hvaða kúrs er verið að taka á Ári fjölskyld- unnnar? Halda áfram á sömu braut og minnka fjölskylduna svo að einstaklingurinn eigi sem fæsta að? Eða endurmeta svona stefnu? Snúa við?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.