Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 11 það eru samt mörg dæmi um að slíkt sé ekki fyrir hendi.“ Ekkert samband, enginn árangnr í upphafí er reynt að grípa til vægari aðgerða í samráði við heimil- in. Beri það ekki árangur, fela barna- verndaiyfirvöld gjarnan Unglinga- heimili ríksins að taka mál til rann- sóknar og veita unglingum meðferð og vist. Sú meðferð gagnast mörgum en ekki þeim sem hér er um að ræða: „Ferill þessara stráka hér hefur yfír- leitt verið svipaður. Þeir koma við á flestum eða öllum deildum unglinga- heimilisins en það næst ekki utan um málið af því að það næst ekki samvinna eða nokkuð samband við þá sem byggjandi er á. Þeir nota öll tækifæri til þess að stijúka eða kom- ast í burtu, það er eitt úrræðið reynt eftir annað þangað til þeir sem eru að reyna að vinna að þessu gefast hreinlega upp á þeim, þreytast og fyllast vonleysi. Þannig hefur tíminn liðið þangað til þeir verða 16 ára og sjálfráða. Þá er réttarkerfið tekið við þeim,“ segir Áskell Örn Kárason, forstjóri Unglingaheimilis ríkisins. Stóra-Gröf Um það leyti sem sex síbrotaungl- ingar, 14-17 ára, brutust inn í sum- arbústaði við Meðalfellsvatn og lögðu þá í rúst fyrir réttu ári upphófst mik- il umræða um nauðsyn þess að bæta úr bráðum skorti á stofnun sem veitti þessum hópi meðferð og framhaldi af því tók til starfa í fyrrasumar lok- uð deild fyrir unglinga undir 16 ára aldri á Stóru-Gröf í Skagafirði. Fram að því hafði sterkasta þvingunarúr- ræði við meðferðina verið 14 daga skammtímavistun á lokaðri deild í Reykjavík og í erfiðustu tilfellum hef- ur það ekki dugað til að fá þennan erfiðasta hóp til að undirgangast meðferð og vinna í sínum málum. Pjórir unglingar hafa verið á Stóru-Gröf. Þeir eru nú að verða 16 ára og þar með að vaxa upp úr ramma starfseminnar. Deildin var opnuð í tilraunaskyni í eitt ár og nú hefur verið tekin ákvörðun um að heimilinu á Stóru-Gröf verði lokað í ár og annarra leiða leitað til að sinna þörfum þessa hóps í framtíðinni. Þeir viðmælenda Morgunblaðsins sem til þekkja eru sammála um að mikill árangur hafi náðst í starfinu á Stóru-Gröf og að sögn Áskels Am- ar Kárasonar er talið að tekist hafi að fá unglingana til að taka á sínum málum og af þeirri braut sem þeir voru á og verulegar líkur taldar á að a.m.k. nokkrir þeirra muni spjara sig í skóla eða vinnu eftir meðferðina. „Það var skyndiákvörðun til að leysa mjög bráðan vanda að stofna Stóru-Gröf og það var í upphafi ekki reiknað með að halda starfseminni úti nema í eitt ár og nota tímann til að finna aðra lausn, en það stendur fyrir dyrum endurskoðun á uppbygg- ingu Unglingaheimilis ríkisins og öllu starfi hvað varðar vernd barna og ungmenna," sagði Áskell. Hann sagði að í þeim drögum sem liggja fyrir væri gert ráð fyrir að á þessum málum yrði tekið með lokaðri skammtímadeild sem hefur fjöl- breyttari möguleika til meðferðar, en kvaðst þó hafa af því vissar áhyggjur að það úrræði yrði ekki nægilegt og að niðurstaðan yrði sú að deild á borð við Stóru-Gröf yrði nauðsynleg. Lágmarksbrottfall Sá árangur sem náðst hefur á Stóru-Gröf þykir þó í öllu falli til marks um að umtalsverðum árangri megi ná i meðferð þessara unglinga við réttar aðstæður og þótt óraun- hæft sé talið að hægt verði að forða öllum frá síbrotum og þeim lifnaði sem þeim fylgir, eigi að vera hægt að halda fjölda þeirra sem þá leið fara í lágmarki. „Það er ljóst að það verða alltaf einhveijir sem rekast verr í hóp en aðrir og alltaf einhveij- ir utangarðsmenn en sagan sýnir að við getum haldið fjölda þeirra í lág- marki og ég held að — ef þjóðfélag- ið hefur þá stefnu — það sé hægt að bregðast við vanda næstum því allra einstaklinga og hjálpa þeim til betra lífs,“ segir Áskel! Örn Kárason. „Að mörgu leyti má segja að of seint sé í rassinn gripið þegar staðan er orðin þessi,“ segir Helgi Gunn- laugsson. „Þá erum við komin með skemmda einstaklinga sem eru búnir að fara á mis við margt í lífinu á þessum viðkvæmu mótunarárum og það er mjög erfitt að koma þeim í eðlilegt samhengi aftur en það þarf út af fyrir sig ekki að vera of seint ef tekið er á málunum. Það gengur hins vegar ekki að þeim sé hleypt út í sama umhverfi og áður eftir að hafa afplánað einhveija varðahalds- vist. Þau þurfa að sjá að það sé raun- hæfur möguleika á að vinna sig út úr þessu, ákveðin tækifæri sem bjóð- ist en ekki bara hefðbundin fanga- vist þar sem þau koma út með ekk- ert í höndunum til að takast á við venjulegt líf. Ef bara er farin þessi venjulega réttarfarsleið þá er ég hræddur um að þau fari í sama mynstrið, bitrari og fremji harðsvír- aðri brot.“ Eins og fyrr var vikið er nú þegar unnið að málefnum unglinga á glap- stigum með einum eða öðrum hætti á fjöldamörgum vígstöðvum í ýmsum stofnunum sem heyra gjarnan hver undir sitt ráðuneyti og vinna út frá ólíkum forsendum. Um er að ræða lögreglu, réttar- og viðurlagakerfi, unglingaheimili, félagsmálayfírvöld sveitarfélaga, og skólastjómendur. „Það er mikið unnið og það er margt vel gert, en það vantar að gera vinnslu þessa kerfís markvissari, samhentari og skilvirkari ef það á að nýtast þeim hópi unglinga sem eru mikilvirkastir í afbrotum og óreglu,“ segir Ómar Smári Ármanns- son, aðstoðaryfírlögregluþjónn. Skortur á samvinnu er blettur „Ég held að það megi segja að það sé mjög mikill skortur á sam- vinnu. Þrátt fyrir að allir séu sam- mála um nauðsyn hennar þá reynist hún erfið í framkvæmd. Það er mik- ið af smákóngum og það er ávallt mikil óvissa um hver eigi að bera ábyrgð, hver eigi að taka forystu og þetta eru árekstrar sem verða aldrei leystir nema með ákveðinni stýringu ofanfrá. Þetta er töluverður blettur á þessu máli öllu. Þrátt fyrir að ég held að hver og einn geti vitnað um eigin góða vilja þá er samvinnan mjög erfíð þegar að útfærslu kem- ur,“ segir Áskell Örn Kárason og kallar eftir forystu að ofan í ríkis- kerfínu eigi að takast að samhæfa vinnubrögð þannig að kerfið vinni í takt að sama takmarki. Helgi Gunn- laugsson talar einnig um þörf á auk- inni samvinnu og tekur undir að í réttarfarslegum og lagalegum áherslum réttarkerfísins hafi úrræði ekki tekið nauðsynlegt mið af félags- legum bakgrunni. Eins og fyrr var getið er sér- Það er taliö einsdæmi að 16 ára piltur haf i verið svo afkastamik- ill á stuttum afbrota- ferli en auk dómanna sem hann hefur hlotið á hann óafgreidd mál hjá saksóknaraemb- ættinu og RLR. Sá árangur sem náðst hef ur á Stóru-Gröf þykir þó í öllu falli til marks um að umtals- verðum árangri megi ná í meöferð þessara unglinga við réttar aðstæður „Ef bara er farin þessi venjulega réttarfars- leið þá er ég hræddur um að þau fari í sama mynstrið, bitrari og fremji harðsvíraðri brot." hæfðri meðferðarvinnu hætt að kalla þegar unglingur nær 16 ára aldri og verður sjálfráða og frá 15 ára aldri fara árekstrar unglinganna við regl- ur samfélagsins að fara í gegnum réttarkerfið, þar sem fyrst er oftast — en nú í minni mæli en áður, að sögn Guðjóns Magnússonar hjá emb- ætti ríkissaksóknara — beitt ákæru- frestunum og síðar skiiorðsdómum áður en dómstólar beita óskilorðs- bundnum dómum sem hafa í för með sér refsivist í fangelsi. Þess eru fá dæmi að maður sem farið hefur þá braut sem að framan hefur verið rakin hafí snúið af leið eftir fyrstu afplánun og eins og fram er komið búast viðmælendur Morgunblaðsins frekar við því að refsivist í fangelsi á borð við Litla-Hraun geri ekki ann- að við slíkan ungling en að forherða hann enn frekar. Brýnast að taka á málum 16-18 ára Margir viðmælenda Morgunblaðs- ins telja að það sé ekki síst í málum þess hóps, 16-18/20 ára, sem er nýkominn til kasta réttarkerfísins, sem gera þurfu verulegt átak, fá fram hraðari afgreiðslu mála og eiga völ á úrræðum öðrum en hreinni fangelsisvist. Slík leið gæti kallað á fjárfestingar og nokkuð kostnaðar- saman rekstur en valkosturinn er ef til vill ekki annar en sá að horfa upp á afbrotaferil þar sem tugir sak- lausra eiga eftir að verða fyrir eigna- eða heilsutjóni að ógleymdum kostn- aði við dómsmál og áralanga fangels- isvist í framtíðinni. Fáum kostnaðinn í bakið „Ég held að þung fangelsisrefsing geti gert illt verra þótt manni finnist það ábyrgðarlaust af hálfu samfé- lagsins að gefa þeim þessi tækifæri aftur og aftur án þess að reyna að gera eitthvað í viðbót, koma þeim inn í eitthvað félagslegt samhengi," seg- ir Helgi Gunnlaugsson, sem segir að síbrot þessara unglinga, sem vænt- anlega færist í vöxt verði þeim ekki snúið af þeirri braut sem þeir eru á, muni hafa í för með sér margvís- legan kostnað fyrir samfélagið. „Það er spurning hvort við viljum veita þennan kostnað i að laga skemmdirn- ar eða í það að fyrirbyggja það að skemmdirnar verði. Með einum eða öðrum hætti fáum við kostnaðinn í bakið á okkur,“ segir Helgi. Hann leggur áherslu á að viðbrögð við af- brotum unglinga þurfi að taka mið af félagslegum bakgrunni þeirra sem oftast sé líklega í rúst hvað varði fjölskyldu, nám og starf. „Það má til dæmis ýmislegt bæta í því hvernig réttarkerfið tekur á þessu. Þau fá sífelldu viðvaranir og lítil viðbrögð og seinvirk, þau eru tekin og síðan sleppt og síðan gerist ekki meira í mánuði eða ár. Það þarf að taka á þessu með skjótum hætti og skjótri málsafgreiðslu og tengja saman þessi réttarfarsúrræði sem felast í því að menn taki afleið- ingum gerða sinna en líka að tengja það við félagleg meðferðarúrræði." Hærri sjálfræðisaldur ekki lausn „Það er mjög útbreitt í félagsmála- geiranum að sjálfræðisaldur ætti að hækka í 18 ár en ég efast um að í þessum málum leysi það neitt. Það er ekkert að því að dæma 16 ára unglinga og beita þá viðurlögum en ég held að dómskerfíð geti til dæmis unnið betur í þessum málum en gert er og hafí möguleika sem ekki eru til staðar í barnaverndarkerfinu. Kerfíð virðist hins vegar ekki virka nógu hratt og vel og það þyrfti að vera hægt að dæma þau í meðferð þannig að þau hafí um það að velja að fara í fangelsi eða að fara í ganga í gegnum meðferð þar sem það hefði einhvern ávinning í för með sér að ná árangri. Umgjörðin þyrfti að vera ákveðin frelsissvipting af því að þess- ir einstaklingar hafa ekki sjálfstjórn til að vera i opnu umhverfí og það þarf að vera vakandi fyrir að taka á áhrifum vímuefnaneyslu og leggja áherslu á samvinnu við fjölskyldu og ættmenni og hjálpa viðkomandi að læra aðferðir til að lifa lífinu á ann- an hátt þar á meðal með menntunar- möguleikum. Þessir krakkar líða fyr- ir menntunarskort og þjálfunarleysi og þurfa á sálfræðilegri aðstoð að halda til að fá innsæi í sín mál, skilja sig sjálf og læra önnur viðbrögð en þau hafa tamið sér,“ segir Áskell Órn Kárason og segist telja að sé vilji stjórnvalda til staðar telji hann að til séu stofnanir sem hefðu for- sendur til að sinna þessum þætti og nefndi í því sambandi fangelsismála- stofnun og Unglingaheimili ríkisins. í máli viðmælenda Morgunblaðsins kom fram það sameiginlega mat að taka þyrfti með markvissum hætti á málefnum síbrotaunglinga og nokkrir nefndu að árangurinn sem náðst hefði á reynslutíma Stóru-Grafar gæfí til- efni til bjartýni á að slíkt átak gæti skilað vænlegum árangri. Nefnt var að fyrsta skrefíð væri að láta taka út hið raunverulega ástand og hinn ráunverulega vanda, ekki af pólitískri nefnd í leit að skyndilausn á borð við nýjar stofnanir, heldur af fólki sem hefði faglega yfírsýn og væri" í leit að framtíðarvinnubrögðum og sam- hæfíngu kerfísins alls. Ekki eru þó allir jafnbjartsýnir á að slíkar úttektir leiði til árangurs jafnvel þótt til þeirra sé vandað. „Mér sýnist að svona úttektir skili sér ekki allt of vel þegar á hólminn er komið. Þeir sem valdið hafa þurfa að hafa vilja til að fylgja þeim eft- ir,“ sagði Áskell Öm Kárason og sagði að víðar en á íslandi hefði komið í ljós að það væri ekki talið eftirsóknarvert pólitískt að leggja umtalsverðan kostnað á skattgreið- endur til að vinna að málum svo fámenns hóps sem ætti sér jafn fáa talsmenn og raun ber vitni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.