Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 6
6 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 • • # Góður árangur Gunnars á Stóru-Okrum í mjókurframleiðslu „Bjartsýnn og vil stunda búskap af því að ég hef gaman af því“ GUNNAR Sigurðsson er bóndi á Stóru- Ökrum í Blönduhlið í Skagafírði og hefur vakið athygli fyrir mjög góðan árangur í mjólkurframleiðslu. Bú hans var með mestu afurðir að meðaltali eftir hverja kú á síð- asta ári, 6.340 kg. Hann hefur blandaðan búskap, sitt lítið af hverju, eins og hann segir sjálfur, tuttugu básar í fjósinu, dálítið af kindum og svona nokkur hross, og seg- ist að svo komnu máli ekki kæra sig um stærra og umfangsmeira bú. Gunnar er uppalinn á Stóru-Ökrum, en tók formlega við búi af föður sínum árið 1990, — „auðvitað hef ég verið við þetta starf alla tíð, frá því að ég man fyrst eftir mér, en formlega tók ég við búinu þá“. „Þetta er vaxandi rekstur, búið var lítið, þegar ég tók við því, en ég hef smátt og smátt verið að auka fullvirðisréttinn á jörðinni, og koma umfanginu í það horf, sem ég vil hafa það í. Núna er ég kominn á lygnan sjó, þetta er eining sem ég ræð vel við, og ég lifi góðu lífi af þessum búskap, en auðvitað veit ég að ég gæti haft það enn betra ef ég stækkaði meira við mig, en ég er sæmilega jarðbundinn og vil helst sjá fyrir endann á því sem ég er að gera og þess vegna held ég að ég væri ekkert betur kominn með stærra og erfiðara bú og skuldabagga á bakinu. Menn verða að hafa báða fætur á jörðinni og reyna að hugsa rökrétt, því að ef menn eiga jörð, þá eru þeir með fasteign í höndunum sem nýta má á svo ótal marga vegu og mér finnst allt of lítið um það að menn setjist nið- ur og skoði blákalt hvaða möguleika jörðin þeirra býður upp á. Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Bóndinn í fjósinu GUNNAR Sigurðsson í fjósinu á Stóru Ökrum, en þar eru 20 básar. Ég er við búskap, af því að ég hef gaman af þessu og ég fer mínar eigin leiðir, en ég get hvorki kennt öðrum hvernig á að búa, né heldur hleyp ég eftir öllu því sem sagt er um það hvernig búskapur verði best rekinn. Ég vil hafa gott bú, ég geri vel við kýmar mínar og þær hafa líka skilað mér því til baka, ég endurnýja stofninn líka tiltölulega hratt, kem inn með þetta sex til sjö gripi árlega og þann- ig get ég fengið það besta út úr hverri skepnu. Kvótakerfið þrengir að vísu að bændum þessa stundina, en ég er þeirrar skoðunar að þegar upp er staðið verði þeir eftir sem ná betri árangri, það komi fram meiri vöruvönd- un, bæði í framleiðslu mjólkur, og ekki síður í kjötframleiðslunni. Hins vegar er það ómótmælanlegt að til dæmis sláturkostnaður er allt of hár, það eru gerðar miklar kröfur til þeirra sem annast slátr- unina og er ekkert nema gott eitt um það að segja. En það hlýtur að koma að því að bænd- ur sjálfir verða að taka þau mál í sínar hendur og fylgja vörunni allt til neytandans, ef þeir sem þau mál annast núna eru ekki fáanlegir til að taka á málinu með bændum, meðan erfíð- leikamir steðja að. Þessir aðilar verða að vinna saman, þetta er nú einu sinni eitt og sama framleiðsluferlið, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr og þar sem ég er bjartsýnn maður þá á ég von á því að sá tími komi áður en allt óf langt líð- ur að bændur fái gott verð fyrir góða vöru og geti jafnvel ekki annað eftirspurn markaðar- ins,“ sagði Gunnar Sigurðsson bóndi á Stóru- Ökrum að lokum. Jöt> Framkvæmdir hafnar við lj ósleiðarastrenginn CANTAT-3 Sæsímastrengurinn til Vest- mannaeyja eftir 1-2 mánuði Dómsmálaráðherra Ekkert að vanbúnaði varðandi þyrlukaup ÞORSTEINN Pálsson, dómsmála- ráðherra, telur að tafír á samning- um um þyrlukaup, með tilvísun til frekari viðræðna við bandarísk stjórnvöld, séu ekki gildur kostur, m.a. vegna þess að langur tími muni líða þar til niðurstaða sé fengin um það með hverjum hætti Islendingar geti komið inn í rekst- ur þyrlusveitar á Keflavíkurflug- velli ef af yrði, en samið hefði verið um óbreytt ástand til 1. jan- úar 1996. Ekkert sé að vanbúnaði að framkvæma ályktum Alþingis að gera samning um kaup á full- kominni björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna og lyktir þessa máls séu loks í sjónmáli. Þetta kom fram í ræðu ráðherra við setningu sýningarinnar Björgun ’94 á fóstudag, en sýningin er haldin um helgina. Þorsteinn sagði að eðli- legt væri að undirbúningur ákvörð- unar um svo stóra fjárfestingu sem þyrlukaup tæki einhvern tíma. Nauð- synlegt hafí verið að gera sér grein fyrir því hver væri líkleg þróun í flug- rekstri á vegum Landhelgisgæslunn- ar, en niðurstaðan hafi verið sú að þörf á þyrlukaupum hafi verið ótví- ræð, þrátt fyrir að mönnum hafí verið ljósir möguleikar á hugsanlegu framtíðarsamstarfi við börgunarsveit vamarliðsins. „Nú liggur fyrir að valkostir eru fyrir hendi sem uppfylla þær kröfur sem við íslendingar höfum viljað gera til þeirrar björgunarþyrlu sem keypt yrði til Landhelgisgæslunnar. Því er ekkert að vanbúnaði að fram- kvæma ályktun Alþingis um málið og verður að telja að það sé það sem liggur fyrir stjórnvöldum að gera, nema því aðeins að Alþingi breyti ákvörðun sinni. Ég mun ekki leggja það til,“ sagði Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra. FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar við lagningu ljósleiðarastrengsins CANTAT-3 og er stefnt að því að hann verði tekinn í notkun þann 15. póvember nk. Strengurinn mun liggja frá Kanada til Bretlands, Danmerkur og Þýskalands með greinar til íslands og Færeyja. Þor- varður Jónsson, framkvæmdastjóri fjarskiptasviðs Pósts og sima, seg- ir að þessi sæstrengur bæti nýög öll fjarskipti. Þá eigi Póstur og sími hlut í strengnum, en þurfi ekki að leigja aðstöðuna, eins og nú sé raunin með gervihnattasamband. Kostnaður Pósts og sima vegna þessa nemur 1,8 milljarði króna. „Lagning sæsímans er hafin beggja vegna Atlantshafsins og eru mörg skip notuð við lögnina,“ sagði Þorvarður. „Strengurinn mun liggja um 80 km suður af Vestmannaeyjum og þaðan verður lögð grein til Éyja. Vinna við að taka strenginn upp í Klaufinni í Eyjum ætti að hefjast eftir 1-2 mánuði. Þar er nú verið að ganga frá kapalhúsi, auk þess sem símstöðin þar hefur verið endur- bætt.“ Þorvarður segir að nú fari fjar- skipti íslendinga fram um gervi- hnetti, þar sem Póstur og sími verði að leigja rásir. „Gervihnettirnir eru með þeim annmörkum, að þeir eru í tæplega 40 þúsund kílómetra hæð. Tal er um 0,6 sekúndur að berast upp í hnöttinn og aftur niður. Þetta skapar bergmál, sem reynt er að koma í veg fyrir með bergmálslok- um. Þó kannast flestir við heyra slíkt bergmál. Þessu er ekki til að dreifa með sæsímann, enda er lengd strengsins aðeins um tíundi hluti af íjarlægðinni í gervihnettina. Við ætlum sæsímanum að taka við 75% fjarskipta en gervihnettir sjá áfram um 25%, auk þess sem þeir verða til vara.“ Mikil flutningsgeta í sæstrengnum eru 3 pör af ljós- Útvegsbændafélag Vestmannaeyja Otækt að aðstoða að- eins einn landshluta STJÓRN Útvegsbændafélags Vestmannaeyja telur að sú ákvörðun að aðstoða aðeins einn landshluta í formi víkjandi lána sé gjörsam- lega ótæk og eitt verði yfír alla að ganga sem eiga sitt undir þorsk- veiðum og hafa þurft að þola árlegan niðurskurð aflaheimilda. Þetta_ kemur fram í ályktun sem stjórn Útvegsbændafélagsins sam- þykkti 4. mars vegna fyrirhugaðra aðgerða stjórnvalda gagnvart vanda Vestfírðinga. í ályktuninni er hins vegar lýst ánægju yfír því að ráðamenn þjóðarinnar hafí nú skynjað hve geigvænleg rekstrar- og skuldastaða sjávarútvegsins sé orðin og að nauðsyn beri til að grípa til aðgerða í því skyni. leiðurum, en eitt par þarf fyrir hvert tvíátta samband. Flutningsgetan er 2,5 milljarðar bita á sekúndu, sem nægir til að senda samtímis á 30 þúsund tölvurásum á hveiju pari, eða í heild 90 þúsund tölvurásum í einu. Kostnaður Pósts og síma við þátttökuna nemur um 24 milljónum dollara, eða hátt í 1,8 milljarð króna, en heildarkostnaður við strenginn er nú áætlaður 406,5 milljónir doll- ara. Strengurinn er í eigu 24 síma- fyrirtækja beggja vegna Atlants- hafs. Póstur og sími tóku lán í Nor- ræna fjárfestingarbankanum til að fjármagna framkvæmdina. -»■ ♦ » Poppmessa Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar er haldinn í dag, sunnudag, og í kirkjum landsins er unga fólkið áberandi í starfi dagsins. í Garðasókn verður efnt til poppmessu í safnaðarheimil- inu Kirkjuhvoli í Garðabæ klukkan 20.30 í kvöld. Unglingahljómsveit sér um lifandi tónlist, Andri Heide flytur hugvekju, séra Bjami Þór Bjarnason stjómar athöfninni og boðið verður upp á veitingar. Ami Johnsen um aðgerðir vegna vandans á Vestfjörðum • • Onnur fyrirtæki eigi aðgang að sömu leiðum ÁRNI Johnsen, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, gerir fyrirvara við tillögudrög ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna vanda sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum. Árni segist skilja vanda Vestfirð- inga en segir að kalla eigi hlutina réttum nöfnum. Það þýði ekki bara að heimta meiri kvóta, menn verði líka að læra að bjarga sér sjálfir. Hann sagði að fyrirtæki víða um land s.s. á Norðurlandi og Austfjörðum, í Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn byggju við nákvæmlega sama vanda og menn væru að glíma við á Vestfjörðum. Kannski væri vandinn minnstur á Austfjörðum og Austfirðingar hefðu líklega hegðað sér skyn- samlegast en loðnan hjálpaði bara sumum. Af hverju ættu þá eingöngu vestfirsk fyrirtæki að fá fyrirgreiðslu sem aðrir fengju ekki, segir hann. „Þorskskerðingin er að mínu mati ekki nema hluti af vanda Vestfirðinga og ég tel rök fyrir því að grípa til aðgerða til að styrkja þá, en ef á að færa þangað fjármagn, verður það að vera á réttum forsendum. Vandinn stafar ekki eingöngu af fiskveiði- stjómuninni, heldur eru þeir komnir í vanda gf ýmsum öðrum ástæðum, sem eru meðal annars heimatilbúnar. Véstfirðingar höfðu meiri þorskkvóta en aðrir en hvað er orðið af því? Ásgeir á Guggunni stendur vel þótt hafi komið til skerðingar en hvað hafa hinir gert? Hafa menn ekki ver- ið að bjarga sér?“ sagði Árni. „Það er ekki talað um það núna að þegar aukinn var þorskkvóti til Vestfirðinga og annarra þá -fengu Sunnlendingar aukinn ýsukvóta, sem menn vissu að myndi aldrei veiðast og hefur verið kallaður pappírskvóti. Það er eins og menn vilji ekki tala um þetta. Fiskveiðistjórnunin er bara hluti af þessu. Hluti af þessu er líka gamalt SÍS-rugl, uppsafnaður vandi hjá fyrirtækjum og hluti vandai liggur í því, að Vestfírðingar ha kannski ekki reynt að bjarga sér annan hátt í eins miklum mæli ( þeir hefðu átt að gera. Þeir hafa dæmis lítið reynt að fá Rússafísk að skapa atvinnu. Það er því hæ að segja, að það hafí ekki verið sta ið vel að málum í heildina tekið i það þýðir ekki bara að heimta me kvóta," sagði Ami. „Ég þekki til manna í mínu kjr dæmi sem hafa verið kófsveittir ( með í maganum í tvö ár við að bjarj sér og koma hlutunuin á hreint m því að hagræða, reyna nýjar leii og gera allt sem í þeirra valdi sten ur til að fínna hlutunum farveg. Þ fóru engir bónuspeningar til Ve: mannaeyja Jiegar fyrirtækin samei uðust þar. Eg skil vel vanda Vestfíi inga en það þarf bara að heita rétti; nöfnum og aðrir, utan Vestfjarc sem eiga við sama vanda að glín þurfa að hafa aðgang að sömu le: um,“ sagði Ámi að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.