Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.03.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 19 Stúlkar kikna undan krötunum „Það eru ekki nema tíu ár síðan þolfimi var talin kerlingaíþrótt og ég fékk að heyra það. í dag stunda hátt í tíu þúsund manns þolfimi og mikill fjöldi karlmanna, þannig að það hefur orðið breyting á viðhorfi. Hvað ástundun íþrótta varðar eig- um við langt í land með að ná öðr- um Norðurlandaþjóðum, það þarf ekki annað en að skoða áhuga Norðmanna á Ólympíuleikunum, ég sæi ekki tugþúsundir íslendinga labba 5-6 km til að horfa á skíða- keppni. En fólk er samt farið að hafa meiri áhuga á heilsurækt, enda á þetta að vera hluti af lífsmunstr- inu, ekki kvöð. Eitt sem ég hef orðið var við í starfi með unga fólk- inu er, að það er búið að búa til ákveðnar þarfir í þjóðfélaginu. Allir eiga að vera svona eða hinsegin í laginu og líta út eins og fegurðar- gúru. Stúlkur kikna undan kröfun- um þegar þær komast á kynþroska- aldurinn og fram eftir öllum aldri. Það er ótrúlegur fjöldi stúlkna sem fær megrunarsjúkdóma, allir vilja vera mjóir og allskyns töfraformúl- ur eru auglýstar, í stað þess að fólki sé hjálpað með reglulegum æfíngum og mataræði. Það þarf að byija slíkt starf strax á skólaaldri. Það væri hægt að sporna viö mörgum vandamálum unglinga með skipulegu íþrótta- starfi í gegnum skólana. Þetta er lítið land og stóru samtökin, HSÍ, KSÍ og öll sérsambönd í íþróttum ættu að reyna að taka höndum sam- an til aðstoðar og uppbyggingar. Skólakrakkar sitja á rassinum allan daginn, sífellt að taka við nýjum og oft flóknum upplýsingum, það þarf að létta þeim lífið. Svo finnst mér alltof algengt að sigur skipti öllu máli í kappleikjum hjá íþrótta- liðum, menn blómstra á mismun- andi aldri og ef þeir eru alltaf á varamannabekk missa þeir trúna á sjálfum sér og hætta. Það eiga all- ir að fá tækifæri, jafnvel þó það kosti sigur. Ungt fólk þarf líka að læra að tapa, það undirbýr það bara betur fyrir átök í lífínu. Krakkar fá að mínu mati alltof mikið upp í hendurnar í dag og þjóðfélagið er svo uppskrúfað að foreldrar hafa ekki tíma til að sinna krökkum almennilega. Krakkar eru keyrðir í skólann og liggja svo oft og tíðum yfir myndböndum þegar heim er komið. Aður fyrr hringdu krakkar einungis heim í neyðartil- felli til að láta sækja sig, í dag ligg- ur við að það sé neyðartilfelli ef unglingur þarf að labba heim. Það lætur allavega nærri. Það má margt gera með unga fólkinu, svo það leiðist ekki niður í miðbæ um helg- ar, verði svo ölvað til að fá athygli og útrás tilfinninganna. Ábyrgð á uppeldi er sífellt meira að færast inn í skólana, en með sífellt meiri niðurskurði er vafasamt að þeir geti mætt slíkum kröfum. í ofaná- lag eru kennsla og fóstrustörf með vanmetnustu störfum landsins," sagði Magnús og setti á sig upp- þvottahanskana eftir þessa um- ræðu. „Ég vaska nú bara upp af því að ég er í viðtali. Yfírleitt gerir unnusta mín, Ragnheiður Melsteð, Helstu keppinautar Magnúsar voru ítalinn Napoleone og Ungverjlnn Kortavelessy. Carmen Valderas varð Evrópu- melstarl kvenna og er hér meó Magnúsl. FAGNAÐ EINS OG POPPSTJÖRNU Sigur Magnúsar Scheving í Búdapest var mik- ið afrek, þar sem keppt var gegn öllum helstu íþróttaþjóðum Evrópu. Vinsældir þolfími hafa aukist gífurlega síðustu ár um allan heim óg þjóðir sem hafa verið framarlega í fímleikum renna nú hýru auga til þessar- ar íþróttar, sem er einföld í framkvæmd og hefur jafn- framt mikið skemmtanagildi. „Það er mun erfiðara að keppa í þolfími en sýnist á sviði. Það þarf að þjappa mörg- um erfiðum skylduæfingum saman í tveggja mfnútna rút- ínu, sem er sýnd á afmörkuðu sviði,“ sagði Magnús. „Það er kannski tiltölulega létt fyrir mann í sæmilegri þjálfun að framkvæma fímm spíkat- stökk, þijár armbeygjur á ann- arri hendi og fara í splitt ef hann hefur nógan tíma. En þegar þú þarft kannski að raða þessum atriðum saman í eina heild í takt við tónlist og þess- ar æfingar eru sextán sek- úndna hluti af tveggja mínútna rútínu þá vandast málið. Svo þarftu að gera ailar þessar æfíngar með bros á vör fyrir fram- an jiaukfrán augu dóniaranna." Á Evrópumeistaramótinu vann Magnús hug áhorfenda með h'flegri framkomu á sviðinu, auk þess að sýna kraftmiklar æfíngar og stökk, þá leyndist húmor í nokkrum þeirra. Ungversku áhorfendurnir sem ekki eru vanir miklum skemmtunum hylltu kappann íslenska eins og um poppstjömu væri að ræða, þegar hann hafði lokið æfingum sínum. Hann lét það ekki á sig fá þó að hann brákaðist á fíngri í byijun æfíng- anna, þegar gömul meiðsl tóku sig upp, ákvað að bíta á jaxlinn og gleyma sársaukanum, kannskj vanur að slá á puttana sem smiður. Hann var einn af fyrstu keppendum til að-sýna og árangur hans hefur örugglega hrist upp í taugakerfi helstu andstæðinga hans, heildar- stigagjöfin var 8,22 stig. Hann fékk m.a. 9,00 frá einum dómara fyrir listræna útfærslu, sem er mjög góður árangur. Aðrir keppendur náðu sér ekki jafn vel á strik, einn af helstu keppinaut- unum gerði sig sekan um tæknileg mistök, sem kostuðu hann refsingu og sá sem kom honum næstur var ítalinn Napoleone, sem fékk 7,56 stig. Ungveijinn Kortavelessy náði síðan þriðja sæti, en þjóðir sem áður töldust til austantjalds- þjóða eru að koma sterkar inn. Allir þekkja getu þessara þjóða í fimleikum og fyrrum fim- leikameistarar líta þessa íþrótt hýru auga ásamt ungu fólki sem er að vinna þolfiminni sess í Evrópu. Andstæðingar Magnúsar í Evrópumeistara- mótinu munu margir hveijir mæta honum í Tókýó í Japan, þar sem heimsmeistaramótið er haldið af Suzuki-bílaverksmiðjunum. Keppendur frá Brasilíu, Argentínu og Jap- an munu verða mjög sterkir, m.a. mun heimsmeistarinn í fyrra, Japaninn Kenjiro, mæta til leiks. „Það er kominn smá efi í mig núna varðandi gullið á heimsmeistaramótinu, það er heldur ekki gott að vera mjög sigurviss. Brasilía og Argentína eru að koma með nýtt blóð í þessa íþrótt, eru þjóðir sem þekkja taktfastar hreyfíngar hvað best, fólk er fætt með danssporin á hreinu. Ég kem hinsvegar úr annarri átt og nota kraftinn frekar en ótrúlega lipurð, sem virðist hafa fallið dómurum til þessa vel í geð. En þetta verður harð- ur slagur,“ sagði Magnús. „Ég held að það að ég sýni rútínuna á skemmtunum hér- lendis. fram að keppni muni slípa mig til, ég held að það að fara til æfinga á Spáni muni þjálpa mikið. Samt finnst mér gott að hafa mikið fyrir stafni rétt fyrir keppni, þá nær maður ekki að bvggja upp spennu með einhveij- um hugsunum. I Búdapest var ég í raun hepp- inn að gleyma keppnisgallanum á hótelinu og átta mig á því stuttu áður en ég átti að fara á svið. Ég þurfti að hlaupa í tuttugu mínútur eft- ir gallanum og náði aftur í höllina í tæka tíð. Þetta hreinsaði hugann mátulega. Ég var því tiltölulega afslappaður þegar ég gekk á svið og lagðist í gólfið, en rútínan byijar á því að ég iigg sofandi. Svo sprett ég á fætur. Þegar ég var risinn upp, þá fékk ég á tilfinninguna að ég hefði allt mitt á hreinu. Það gekk eftir, en það var mikil spenna að bíða eftir úrslitunum og sjá hvað helstu andstæðingarnir gerðu. Nú þarf bara að stilla strengina fyrir næsta titil og þó ég hafí ekki sama aðbúnað og aðrir topp keppendur, þá er ég mátulega bjartsýnn." Magnús hefur notið stuðnings Russell At- hletic, Aquarius orkudrykkjaframleiðandans og Toyota síðastliðna mánuði, til að geta betur helgað sig íþróttinni. í Evrópumeistaramótið styrktu hann einnig Eurocard, Tékkkristall og Reykjavíkurborg. „Ég mun æfa grimmt, en fínnst samt alltaf nauðsynlegt að grípa í hamar- inn. Ég hef alltaf unnið í akkorði og það er erf- itt að slá af, jafnvel þó maður sé að fara í erfíð- ari keppni aíð nokkrum vikum liðnum. Það verð- ur fróðlegt að sjá hvaða árangur næst og hvert maður stefnir eftir keppnina. Það myndast þó varla tómarúm þjá mér, það væri þá eitthvað nýtt,“ sagði Magnús. íslensku keppendurnir ( Evrópu- mótinu, Unnur Pálmarsdóttlr og Magnús Schevlng, é svlSlnu. flest á heimilinu, ég er alltaf ein- hvers staðar að vinna eða kenna. Hún styður mikið við bakið á mér. Annars er hún að skipuleggja stóra hársýningu á Hótel íslandi á sunnu- daginn, hefur því líka nóg að gera þessa dagana.“ irangur án lylja Magnús er sífellt á ferðinni, bæði virka daga og um helgar við störf. Honum gefst því lítill tími til tóm- stunda, allra síst núna í miðjum undirbúningi fyrir heimsmeistara- mótið. „Mig langar virkilega til að setjast niður og mála, á striga. Ég gerði þetta þegar ég var yngri, en hef ekki tíma til slíks núna, þolfím- in á mig allan,“ sagði Magnús. „Ég er að fara að vinna í nýrri líkams- ræktarstöð, sem heitir Gallerí Sport, ásamt íslandsmeisturunum í paraflokki, Önnu og Karli Sigurðar- börnum, sem er spennandi mál. Þessi stöð verður opnuð á næstunni í Reykjavík og verður vinaleg. Ég verð samt að taka mér frí frá kennslu í byijun apríl, þar sem ég fer til Spánar að æfa. Þar mun spánski þjálfarinn Marosa aðstoða mig, en hún hefur m.a. hjálpað heimsmeisturum í paraflokki og kvennaflokki að ná settu marki. Vonandi tekst henni að fínpússa hlutina með mér. Keppni í þolfimi hefur þróast hratt og það þýðir ekki að taka sér langt hlé, þá miss- ir maður af lestinni. Ég er ánægður að hafa náð mínum árangri upp á eigin spýtur, með góðu mataræði og æfíngum. Ég hef aldrei skilið menn sem vilja nota ólögleg lyf eða stera til að ná settu marki, það á ekki að þurfa ef menn stunda íþrótt sína af samviskusemi. Ég ólst upp með íþróttum, þar sem faðir minn var þjálfari í Borgarnesi. Þar hefur allt- af verið mikið íþróttalíf. í þeirri íþrótt sem ég stunda tel ég stóran þátt vera sálrænu hliðina, að vera í andlegu jafnvægi og sjálfsörugg- ur. Ég er þó engan veginn sjálfum- glaður eða sigurviss, þó sumir haldi það kannski. Ég segi bara það sem ég meina hveiju sinni. Ég get skolf- ið eins og hrísla af taugaspennu, eins og hver annar keppnismaður." Margir tiungraðir í helmsmeistaratitil „í raun finnst mér ekkert leiðin- legt í lífínu og ég vildi óska þess að fleiri gætu horft þannig til tilvist- arinnar. Það geta ekki allir átt rán- dýrabíla og flott einbýlishús, enda er það ekki það sem skiptir máli, heldur að fólk virði sjálft sig og hvert annað. Það hjálpar okkur ís- lendingum ekki hve fréttir fjölmiðla eru oft neikvæðar, en menn verða líka að finna það jákvæða upp á eigin spýtur. Það getur tekið mörg ár eða tugi ára fyrir fólk að ná þeim þroska. Þá held ég að íþróttir hjálpi verulega upp á sakimar, hvort sem fólk vinnur eða tapar í keppni. Sjálfur stefni ég á heims- meistaratitilinn og þó að hann náist kannski ekki, get ég vonandi sýnt mitt allra besta. Það em margir hungraðir í þennan titil og það er enginn heimsendir þó hann falli mér ekki í skaut. Maður getur allt sem maður vill, það þarf bara trúna á það,“ sagði Magnús. Ætlarðu að missa af þessum einstöku möguleikum? & Við drögum 10. mars. ® / / / HASKOLA ISLANDS vænlegast til vinnings

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.