Morgunblaðið - 06.03.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994
21
Kjartan Lárusson forstjóri Ferðaskrif-
stofu íslands hefur haft góða yfirsýn
yf ir ferðaþjónustu hér á landi um ára-
bil. Hann ræðir hér um nútíð, þátíð
og framtíð í greininni
18.809
Gistmætur á
Edduhótelunum
júní til ágúst '93
Hvaðan komu gestirnir?
af sömu ástæðum. Segja má að
síðustu árin hafi staðið hér yfir
útsala á gjaldeyri, enda er með
ólíkindum hvað flutt hefur verið inn
og hvað íslendingar hafa getað
lejrft sér á veraldlega sviðinu.
En þrátt fyrir allt eru ljósir
punktar. Ýmsir aðilar hafa bryddað
upp á ágætum viðbótum við ferða-
þjónustuna, þáttum sem lengja
ferðamannatímabilið, nýta betur
haust, vetur og vor. Við getum
nefnt ferðir á jökla og ýmsar ferð-
ir á sérútbúnum tækjum, sjó-
stangaveiði, hvalaskoðun og hesta-
ferðir. Samhliða þessu tekur ýmiss
konar sérhæfð þjónusta kipp og
hvað styður annað. Gisti- og veit-
ingastaðiF stórir sem smáir hafa
bætt sig mjög í gæðum undanfarin
ár sem og samgöngutæki í lofti, á
landi og láði. Aukin samkeppni
hefur vissulega komið þarna við
sögu þó svo að áhrif hennar séu
stundum ofmetin og einnig getur
samkeppni gengið of langt. Þetta
sýnir viðleitni íslendinga og undir-
strikar enn frekar þörfína á því
að breyta týrunni í skært ljós.
Gengisskráning má ekki lengur
vera tæki fyrir aðeins eina atvinnu-
grein. Það á að mæla raungengi
hverju sinni. Það er ljóst að slíkt
gæti komið sér illa fyrir sjávar-
útveginn og.til yrði að koma önnur
aðstoð í formi opinberra styrkja.
En ferðaþjónustan myndi taka
kipp. Með því að skrá gengið rétt
munu atvinnuvegir almennt þrífast
betur.“
— Þú ert að tala um fjöregg
þjóðarinnar, Kjartan...
„Ekki ætla ég að draga úr mikil-
vægi sjávarútvegsins, en minni enn
og aftur á að það kemur fleira til.
Ef einhver atvinnugrein er í vanda
í dag réttlætir það ekki björgun
hennar að skaða aðrar. Nú er mik-
ið atvinnuleysi og ferðaþjónustan
er afar mannfrek. Ef hún fær tæki-
færi til að vaxa og dafna munu
margir fá atvinnu fyrir hennar til-
stilli. Ég hef stundum sagt að
ferðaþjónustan sé hið vænlegasta
hagstjómartæki með tilliti til at-
vinnutækifæra og byggðastefnu.
Yfir 90 prósent af þeim útlending-
um sem hingað koma gera svo
vegna landslagsins, þessarar
óvenjulegu náttúm. Viðskiptavin-
urinn fer því aldrei burt með vör-
una, heldur nýtur hennar á staðn-
um án þess að á gæði hennar og
magn gangi. Framleiðslu- og pökk-
unarkostnaður er því í algeru lág-
marki. Það eina sem þarf að gera
er að- búa vel að gestunum, þá
verða þeir ánægðir og koma ef til
vill aftur.“
— En hvað með ríkisafskipti af
greininni?
„Þau hafa lengi verið fullmikil
að mínu mati og hvort að þau eru
nú á réttri leið er íhugunarefni."
Hótel Edda
— Vendum okkar kvæði í kross.
Ferðaskrifstofa íslands hefur eink-
um staðið fyrir innflutningi á er-
lendum ferðalöngum og ferðum
innlendra innanlands. Fyrirtækið
rekur m.a. Eddu-hótelin, ekki satt?
„Jú, það er rétt og hótelin eru
17 talsins um land allt. Öll utan
eitt eru hins vegar sumarhótel.
Aðeins á Kirkjubæjarklaustri er
reksturinn allt árið. Þau mega heita
einn af hornsteinum FÍ og þegar
þau voru tekin í notkun fyrir 30
árum réðu þau úrslitum um ferða-
lög innanlands. Þetta era ríkis- og
sveitaskólar sem ella hefðu staðið
auðir á sumrum. Fyrir 15 árum
hófst nýtt tímabil, er markvisst var
byrjað að endurbyggja húsin innan
frá, bæta við þau nútímaþægindum
sem kröfur eru gerðar um nú til
dags. Annað tímabil í sögu þessara
hótela hófst svo fyrir um 8 áram,
er byijað var að byggja viðbótar-
herbergi með öllu, eins og sagt er.
Slíkt er komið í gagnið á Stóru-
Tjörnum og á Klaustri og víðar.
Þetta er dæmigerð þróunarsaga.
Annars er starfsemi FÍ fjölþætt-
ari en hótelrekstur. Einn þáttur er
móttaka erlendra ferðamanna,
bæði hópa og einstaklinga, annar
þáttur er ráðstefnuhald, en við
stöndum fyrir 25 til 35 stærri fund-
um og ráðstefnum á hveiju ári.
Þriðji þátturinn er utanlandsferðir,
farseðlasala og skipulagning kynn-
ingar- og menningarferða og ferða
aðila úr viðskiptalífinu á ráðstefnur
og sýningar. I þessu er starfsemin
fólgin og verður væntanlega áfram
á líkum nótum,“ segir Kjartan.
Vandi fylgir vegsemd hverri...
— Nú bar hátt í fréttum á
dögunum samningur Flugleiða,
samgönguráðuneytisins og Fram-
leiðnisjóðs að slá saman í 100 millj-
ón króna púkk til að auka við land-
kynningu erlendis. Hvað myndir
þú gera til að markaðssetja Island
ef þér væru réttar hundrað milljón-
ir á ári í 5 ár?
„Fyrst vil ég segja, að Flugleiðir
áttu þar góðan leik og margt sem
Flugleiðir eru að gera og hafa gert
er sannarlega af hinu góða. En
Flugleiðir era óumdeilanlega móð-
urskipið í ferðaþjónustunni og því
fylgir mikil ábyrgð að leiða alla
starfsemina. Það er mín persónu-
lega skoðun að stærsta vandamál
Flugleiða í dag sé ekki, eins og svo
margir álíta, miklar skuldir vegna
endurnýjunar flugflotans og harðn-
andi samkeppni erlendis, heldur
skortur á samkeppni heima fyrir.
Það hefur sýnt sig síðustu 20 til
25 árin, að í hvert skipti sem fyrir-
tækið hefur fengið samkeppni hef-
ur það eflt þjónustu sína og getu.
Þá tel ég að Flugleiðir eigi að ein-
beita sér að því að vera flugfélag.
Tími „altmúligmannsins" er liðinn
og aukin sérhæfing blasir við. Ef
ferðaþjónustan á að standast kröf-
ur komandi ára verður að sérhæfa
greinina betur.
Nú, en spurningin var hvað ég
myndi gera við hundrað milljónir.
Því er til að svara að ég myndi
kaupa íslandsferðir inn í bæklinga
allra þeirra stóra og meðalstóru
ferðaþjónustufyrirtækja sem selja
ferðir til norðlægra landa, en hafa
einhverra hluta vegna ekki tekið
ísland með. Það er fljótvirkasta
leiðin til söluaukningar þó það sé
skilyrt að því yrði fylgt fast eftir
af starfsgreininni. Ég myndi ekki
bijóta landið upp í einstaka mögu-
leika, heldur selja landið sem það
náttúraundur sem það er. Hesta-
ferðir væru alls ekki eins vinsælar
ef ekki væri þetta umhverfi.
Gönguferðir, jeppaferðir og allt
það. Það er landið sem gefur því
gildi. Helstu markaðssvæðin sem
ég myndi einbeita mér að era Mið-
og Suður-Evrópa, austurströnd
Bandaríkjanna og helstu markaðs-
svæðin í Asíu, svo sem Japan, Sin-
gapúr, Hong Kong, Taiwan og
Suður Kórea.
Þá myndi ég einnig vetja tals-
verðu fé til að stuðla að umhverfis-
vænni ímynd landsins. ísland hefur
mjög sterka stöðu gagnvart þeim
vaxandi þankagangi að áfanga-
staðir skuli vera umhverfisvænir.
En við verðum að vera á varðbergi
og gæta þess að missa ekki fót-
anna á því sviði. Þá á ég ekki ein-
ungis við ímyndina, heldur einnig
áþreifanlegri hluti eins og mengun-
armál, sem þarfnast athygli og
úrlausnar. Það er sannfæring mín
að umhverfisvænt ísland sé væn-
legasta framtíð okkar sem búum
hér og þeirra sem vilja sækja okk-
ur heim.“
HOTELIÐ
9 SMÁ HJEM
Vika í Kaupmannahöfn með eigin
baðherbergi og salerni, sjón-
varpi, bar, ísskáp og morgun-
mat, sameiginlegu nýtísku eld-
húsi og þvottahúsi. Allt innréttað
í fallegum byggingum.
Njóttu lúxus-gistingar á lágu verði
við 0sterport st. Við byggjum á því
að leigja út herbergi til lengri tíma.
Skrifstofan er opin daglega kl. 9-17.
Verð fyrir herbergi:
Eins manns.....1.764 dkr. á viku.
Eins manns......325 dkr. á dag.
Tveggja manna..2.415 dkr. á viku.
Tveggja manna....445 dkr. á dag.
Morgunmatur er innifalinn í verðinu.
Hótel-íbúðir með sóreldhúsi,
baðherbergi og salerni og að-
gang að þvottahúsi.
Eins herbergis íbúð, sem rúmar
einn, 1.764 dkr. á viku.
Eins herbergis íbúð, sem rúmar
tvo, 2.415 dkr. á viku.
Tveggja herbergja íbúð.
Verð á viku........3.164 dkr.
Tveggja herbergja ibúð.
Hótel-íbúð sem rúmar fjóra.
Verð á viku.............3.990 dkr.
Morgunmatur er ekki innifalinn.
[ okkar rekstri:
Tagensvej 43, Thorsgade
99-103, 2200 Kebenhavn N.
2 herbergja hótel-íbúöir sem
rúma þrjá.
Með sturtuklefa...2.198 dkr.
3 herbergja.............3.990 dkr.
Sendum gjarnan
upplýsingabaekling.
HOTEL 9 SMÁ HJEM,
Classensgade 40,
DK-2100 Kebenhavn O.
Sími: (90 45)35 2616 47
Fax: (9045) 35 4317 84