Morgunblaðið - 06.03.1994, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.03.1994, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 KVIKMYNDIR/SAMBÍÓIN frumsýna á næstu dögum bandarísku kvikmyndina Leikur hlæjandi láns, The Joy Luck Club, sem gerð er eftir metsölubók Amy Tan, sem komið hefur út á íslensku. I myndinni er sögð saga ijögurra mæðgna sem eiga það sammerkt, að mæðurn- ar eru fæddar og uppaldar í Kína en hafa flust til Bandaríkjanna þar sem dætumar eru fæddar. Tilfímiingar og táraflóð 1 lífí mæðgna SÉRHVER móðir þráir væntumþykju dóttur sinnar og að ryðja úr vegi þeim hindrunum sem koma í veg fyr- ir skilning þeirra hvor á annarri. A sama hátt má segja að sérhverja dóttur dreymi um að öðlast ástríki og viðurkenningu móður sinnar og að finna þau tengsl á milli þeirra sem nauðsynlegt sé að varðveita. I kvik- myndinni Leikur hlæjandi láns er sögð saga fjögurra sérstæðra kvenna sem lifa viðburðaríku lífi sem bæði ást og harmur setja mark sitt á, en vonir og draumar sem þær hafa um framtíð dætra sinna halda þeim öðru fremur gangandi. Sagan hefst þegar June (Ming- Na Wen) er boðið að nýlátinni móður sinni, Suyuan (Kieu Chinh), að gerast félagi í matar- og spilaklúbbn- um hennar sem mæðurnar stofnuðu eftir að þær komu til Bandaríkjanna. Þegar lífsferill „frænkanna" þriggja í klúbbnum, Lindo (Tsai Chin), An Mei (Lisa Lu) og Ying Ying (France Nuyen), verður June smátt og smátt ljós, birtist henni sambland þeirra ógnvekjandi atburða og aðstæðna sem hafa sett mark sitt á líf þeirra og hinna ástfólgnu dætra þeirra. Amy Tan, höfundur skáldsögunnar Leikur hlæjandi láns, sem komið hefur út í ístenskri þýðingu, er fædd í Bandaríkjunum árið 1952, ekki löngu eftir að foreldrar hennar fluttust þangað frá Kína. Sextán ára gömul fluttist hún með móð- ur sinni og bróður til Evrópu, og lauk hún menntaskóla- námi í SvisS. Þegar hún hafði snúið aftur til Bandaríkjanna lauk hún háskólanámi í ensku og málvísindum, og áður en hún snéri sér að skáldsagnagerð vann hún sem talmálsráðgjafi við verk- efni sem ætluð voni þroska- heftum börnum. Árið 1983 varð hún svo sjálfstætfc starf- andi textahöfundur fyrir ýmis stórfyrirtæki og 1985 tók hún þátt í námskeiði í skapandi skrifum, og á því skrifaði hún smásöguna Reglur leiksins, sem síðar varð hluti af skáldsögunni Leikur hlæjandi láns. Leikur hlæjandi láns er fyrsta skáldsaga Amy Tan, en hún kom út árið 1989 og vakti þegar mikla athygli. Gagnrýnendur kepptust við að hlaða hana lofi, en sagan þótti þeim ákaflega vel skrif- uð og skemmtilega vandaður og sannur óður til uppruna höfundarins, og um samband mæðgna á öllum tímum og hvar sem er í veröldinni. Á síðustu árum hefur vaxtar- broddurinn í bandarískri skáldsagnagerð birst hvað helst í skrifum höíunda úr minnihlutahópum í samfé- laginu, enda ekki óeðlilegt að mikil geijun eigi sér stað á mótum tveggja menning- arstrauma. Amy Tan tilheyr- ir þessum hópi og segist hafa verið að reyna að átta sig á uppruna foreldra sinna og skilja sögurnar sem hún heyrði í æsku. Saga hennar var á metsölulistum mánuð- um saman og hefur hún ver- ið þýdd á rúmlega 20 tungu- erlenda myndin við úthlutun bresku kvikmyndaverðlaun- anna. Árið 1987 leikstýrði Wang svo þriðju kvikmynd sinni, en það var Slamdance, sem Tvær kynslóðir FLÓKIN saga tveggja kynslóða kínverskra kvenna og bandarískra dætra þeirra er sögð í myndinni Leikur hlæjandi láns. mál. Næsta skáldsaga Amy Tan, The Kitchen’s God’s Wife, kom svo út árið 1991, og komst hún fljótlega í fyrsta sæti á metsölulista New York Times, en um þessar mundir er hún að vinna að þriðju skáldsögu sinni. Með kvikmyndaáhugann í blóðinu Leikstjóri myndarinnar Leikur hlæjandi láns heitir Wayne Wang og er hann fæddur í Hong Kong. Hann var skírður í höfuðið á leik- aranum John Wayne, en fað- ir Wangs, sem var ensku- mælandi verkfræðingur og kaupsýslumaður, var heill- aður af kvikmyndum úr villta vestrinu. Móðir Wangs var listmálari og hvatti hún son sinn til að leggja stund á list- nám, og fór hann til Kalifor- níu þar sem hann lauk námi í listmálun og síðar meistara- námi í kvikmynda- og sjón- varpsfræðum. Að fengnu prófskírteininu hélt Wang aftur til Hong Kong þar sem hann starfaði við kvikmyndagerð, en þegar hann fékk sköpunarþrá sinni ekki fullnægt sem hann vildi, hélt hann á ný til Kaliforníu og settist að í Kínahverfi San Francisco. Hann sökkti sér ofan í sérvandamál innflytj- enda og var virkur í félags- málastörfum í hverfi sínu, og af því leiddi 16 mm mynd hans Chan is Missing, sem sló í gegn 1982 bæði hjá áhorfendum og gagnrýnend- um. Önnur mynd hans, Dim Sum, var frumsýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes árið 1984, en segja má að hún hafi verið einskonar forleikur að Leik hlæjandi láns, því hún fjallar um tengslin á milli kínverskrar móður og dóttur hennar sem fædd er í Bandaríkjunum. Myndin var svo tilnefnd sem besta Á flótta EFTIR að hafa neyðst til að skilja eftir kornungar dætur sínar á flótta undan Japönum flyst Suyuan (Kieu Chinh) frá ættlandi sínu Kína til Bandaríkjanna, en þar dreymir hana stöðugt um að endurheimta dætur sínar. Ást og grimmlyndi MEÐAL sagnanna í myndinni Leikur hlæjandi láns er örlagasaga Ying Ying (Yu Fei Hong), sem giftist hinum grimmlynda Lin Xiao (Russel Wong), en hún fórnar honum öllu. Tom Hulce, Mary Elizabeth Mastrantonio og Harry Dean Stanton léku aðalhlutverkin í, og var hún sýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes. í kjölfarið fylgdi svo Eat a Bowl of Tea, sem frumsýnd var 1989 og einnig var sýnd á Cannes, en það var einmitt þá sem hann las skáldsögu Amy Tan og áhugi hans kviknaði á aðgera kvikmynd eftir henni. Arið 1990 hélt Wang til Hong Kong þar sem hann gerði myndina Life is Cheap ... But Toilet Paper is Expensive, en henni var í fyrstu ætlað að vera einskon- ar fræðslumynd, en endaði sem tilraunamynd þar sem blandað var saman mismun- andi stíltækni. Flókin saga að kvikmynda Eftir að- hafa lesið bókina í Cannes var Wang staðráð- inn í að hitta Amy Tan og bera undir hana hugmyndir varðandi kvikmyndun sög- unnar. Amy var í fyrstu frá- hverf því að gerð yrði kvik- mynd eftir sögu hennar, en samþykkti þó að ræða málið við Wang þar sem hún var vel kunnug kvikmyndum hans og því orðspori sem af honum fór. „Ég hafði áhyggjur af því að ef myndin yrði ekki gerð á réttan hátt, Leikstjórinn WAYNE Wang, leikstjóri kvikmyndarinnar Léikur hlæjandi láns. myndi ég bera ábyrgð á því hvemig persónumar yrðu túlkaðar og þá sérstaklega gagnvart samfélagi Asíu- Ameríkana. En eftir að hafa hitt Wang var ég sannfærð um, að hann ætti að vera leikstjórinn ef kvikmynd yrði gerð eftir sögunni,“ segir Amy Tan. Wang hreifst meðal ann- ars af sögunni vegna þess að hún var raunsæisleg og dró ekki upp stereótýpur af Asíufólki. Hann var á þeirri skoðun að sagan byggi ekki einungis yfir þeim eiginleika að vera efni í góða kvik- mynd, heldur gæti verkefnið jafnframt orðið bandarískum leikurum af Asíukyni til framdráttar og einnig öðm'm sem starfa að kvikmynda- gerð. Það var því meira í húfi í hans augum en einung- is það að gera kvikmynd. Það var hins vegar strax ljóst að vegna byggingar sögunnar, sem í raun er 16 sögur sem fléttaðar em saman á snilld- arlegan hátt, yrði mjög vandasamt að koma sögunni á hvíta tjaldið, en þrátt fyrir að allir væru sammála um að hún væri mögnuð skáld- saga héldu margir aðLÓmögu- legt væri að gera eftir henni kvikmynd. - Allir til í tuskið Það barst Óskarsverð- launahafanum og handrits- höfundinum Ronald Bass, sem gerði handritið að Rain Man, fljótlega til eyma að til stæði að gera kvikmynd eftir sögu Amy Tan og þau Wang hefðu augastað á hon- um til að gera handritið að myndinni. Hann var ekki lengi að ánetjast verkefninu, en gerði það að skilyrði fyrir þátttöku sinni, að allar 16 sögurnar yrðu sagðar í myndinni og að Amy Tan myndi sjálf vinna að hand- ritsgerðinni með honum, en með því vildi hann tryggja sig fyrir því að verða trúr sögu hennar. Eftir nokkra umhugsun samþykkti hún að slá til og samstarf þeirra hófst. Þau hófu svo fljótlega samningaviðræður við Ósk- arsverðlaunahafann Oiiver Stone og félaga hans Janet Yang um að fjármagna myndina, og þrátt fyrir að þau teldu að mörg ljón ýrðu í veginum fyrir því að hægt yrði að gera vinsæla kvik- mynd eftir sögunni, ákváðu þau að taka verkefnið að sér. Sjálfur segir Oliver Stone að hann hafi strax séð að þetta væri einstakt verk- efni og vissulega þess virði að koma því á framfæri. Að lokum fann svo kvik- myndagerðarfólkið sálufé- laga í Jeffrey Katzenberg hjá Walt Disney Studios, sem bauð þeim fullt sjálfsforræði við gerð myndarinnar, og þegar Amy Tan og Bass höfðu lokið við gerð handrits- ins komst framleiðandinn Patrick Markey yfir handrit- ið og sá samstundis að þar var um meistaraverk að ræða og tók hann framleiðslu myndarinnar að sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.