Morgunblaðið - 06.03.1994, Side 29

Morgunblaðið - 06.03.1994, Side 29
stunda hugsa ég með þakklæti, þær leystu úr ýmsum flækjum. Helgi Már var mér skemmtilegur félagi sem ég hafði mjög gaman af að umgangast og því er margs að minnast. Að þeim minningum er gott að búa núna á erfiðum dög- um. Það er erfitt að kveðja kæran vin. Hafsjór af góðum minningum gefur þó mikið. Eg er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast ein- stökum manni. Fjölskylda Helga Más, unnustu og vinum votta ég mína dýpstu samúð._ Asta Björk Björnsdóttir. Vorið 1992 auglýsti ég eftir meðleigjanda í stórt hús sem við mæðginin höfðum flust inn í. Og viti menn að það leið ekki langur tími þar til einn af fáum karlmönn- um í KHÍ stoppaði mig á ganginum og spurði hvort ég væri þessi Rósa og sýndi mér auglýsinguna. Þetta var upphafið að sambýli okkar Helga Más, tímabili sem einkennd- ist af lífsgleði og breytingum. Það er ekki hægt að segja annað en Helgi hafi sett svip sinn á tilveru okkar Gunnars. Rauður kollurinn á honum var alltaf þar sem eitthvað merkilegt var að gerast í lífi okkar. Þó að sambýlið hafi stundum verið fjölmennt og ekki mikill tími þá var alltaf nægur tími til umræðna og bollalegginga um óskyldustu hluti. Við eldhúsborðið urðu umræðurnar oft heitar svo að á stundum rauk úr þeim en þeirra var notið engu að síður. Þú kunnir að njóta og nýta stundir þínar, Helgi, og kennd- ir mér margt í þeim efnum. Það er ekki auðvelt að kveðja mann sem með návist sinni og per- sónu breytti lífi mínu, sáði fræi vin- semdar í hjarta mitt og fyllti tilver- una af rauðhærðu lífi. Eg get að- eins kvatt á einn hátt. Vinur Vinur... Fregn frysti hjarta mitt. Vinur... ljós blámans er kulnað. Vinur... Farinn, hólpinn, umvafinn hlýjum örmum móður sem huggar harmi gegn við hlýjan barm. 'Vinur... Rauð og svört, skipulögð paradís, tekur á móti þér Vinur... Líf þitt gaf margt. Öðru lífi tíma, vinum hug og hönd hvatningu, lof og hrós. Vinur... Lof mér að kveðja, tárin segja ekki allt því innra hvíla myndir af lífi og orðum, sem enginn fær endurgoldið. Vinur... það er ánægja mín að hafa átt með þér stundir sem geym- ast í hjarta mínu það sem eftir lifir tímans. Ég þakka þér ... vinur... Þín Rósa. Er sú sorgarfrétt barst okkur að Helgi Már væri dáinn, urðum við harmi slegin. Eitt er víst að hans verður sárt saknað, hann var góður vinur og félagi, og langar okkur að minnast hans með örfáum orð- um. Efst í huga okkar eru allar þær samverustundir sem við áttum með Steinunni og Helga. Margar minn- ingar koma upp í hugann. Helga gat dottið svo margt sniðugt í hug. Okkur er minnisstætt er við vorum eitt sinn stödd á matsölustað hér í bæ og leiddist eitthvað biðin eftir matnum. Þá datt Helga það í hug að kanna hvort spil væru á staðn- um. Ekki var hægt að fá spil þarna og var þá bara farið út í sjoppu og keyptur spilastokkur. Þetta vakti MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 29 mikla kátínu og var Helga líkt. Við fjögur gátum alltaf skemmt okkur vel saman. Oft var farið sam- an í útilegur, í sumarbústað eða bara grillað saman heima. Þó að sambandið á milli okkar og Helga hafi verið orðið lítið síðastliðið ár, var alltaf gaman að hitta hann og var þá haft á orði að gaman væri nú að fara einhveija ferðina fjögur saman aftur og rifja upp gamla tíma. Og nú, þegar Helgi er fallinn frá, verðum við að láta minninguna eina nægja og kveðja þennan góða vin með kærri þökk fyrir allt. Guð blessi minningu hans. Okkar dýpstu samúð vottum við föður, syni, systkinum og öðrum aðstandendum. Guðný og Frosti. í hverfulum heimi gerast hlutirn- ir hratt og í dag kveðjum við skóla- bróður okkar og góðan kunningja, Helga Má Jónsson, hinstu kveðju. A stundum sem þessari vakna margar spurningar um lífið og hlut- verk okkar hér á jörðu og hvað bíði handan við dyr dauðans. Þegar við horfum til baka ber hæSt í minningunni óvenjulega af- stöðu Helga Más til ýmissa mála. Hann var maður með skoðanir, skoðanir sem reyndar féllu oft í misjafnan jarðveg. Hann lét þær í ljós við hvern sem vildi og átti til að hrista upp í hugarheimi skóla- systkina svo og annarra og fékk fólk til að sjá hlutina í öðru ljósi en gengur og gerist. Helgi Már var áberandi í félags- starfi skólans og lét sig sjaldnast vanta ef til stóð að gera sér glaðan dag. Hann lýsti gjarnan furðu sinni á áhugaleysi fólks gagnvart því sem gefur lífinu gildi og virtist alltaf tilbúinn að taka sér frí frá daglegu amstri. Við kveðjum Helga Má með sorg í hjarta en gleðjumst þó yfir því að hafa átt þess kost að kynnast svo margbrotnum persónuleika sem hann var. Okkur finnst vel við hæfi að ljúka þessari stuttu kveðju með ljóði sem Helgi Már orti og heitir Værð, um leið og við vottum ástvinum hans okkar dýpstu samúð: Þetta eða hitt er sagt um hina allir hugsa bara um sitt á meðal sinna vina Betra þætti mér að sjá á eftir hinum því að mega gefa þér og öðrum vinum veitir mér værð...! Klara og Steindóra. Kveðja frá vinkonu Þakka þér, Helgi Már, þann tíma sem við áttum saman, ég græt yfir því sem var gleði mín með þér. Þér mun ég aldrei gleyma. Ég votta aðstandendum Helga Más, unnustu og vinum mína dýpstu samúð. Minningin um góðan vin lifir. Gyða Guðmundsdóttir. Okkar ástkæri vinur er horfinn. Við hjónin vorum saman komin hinn 19. febrúar sl. á heimili föður Helga ásamt Helga sjálfum, öllum systkinum hans og mökum þeirra. í endurminningunni verður þessi bjarta samverustund að dýrmætri kveðjustund þar sem Helgi kvaddi á sinn ljúfa hátt. Ekkert skyggði á og Helgi spjallaði kátur og bjart- sýnn um þau verkefni sem biðu hans. Hann stefndi að því að ljúka námi í Kennaraháskólanum í vor og hlakkaði til að takast á við störf að því loknu. Þessi fallegi systkinahópur sem faðir þeirra er svo stoltur af er okkur hjónunum svo kær af mörg- um ástæðum. Örfáum dögum síðar er Helgi allur. Skyndilega, óvænt, er þessi fallegi ungi maður hrifínn burt. Fregnin er slíkt reiðarslag að því verður ekki með orðum lýst. Helgi var sonur Helgu Finnsdótt- ur frá Eskiholti í Borgarfírði og Jóns Más Þorvaldssonar sem ættað- ur er úr Hafnarfirði. Helgi missti móður sína 1978, þá aðeins 16 ára. Sár harmur var kveðinn að systkin- unum fimm og föður þeirra. Hélga var æskuvinkona okkar og því fannst okkur við eiga hlutdeild í lífi hver annars. Vináttan við böm- in hennar og maka, Jón Má, var okkur framhald og staðfesting á djúpri væntumþykju til hennar, þannig að þegar hún féll frá langt fyrir aldur fram urðu böndin sem tengdu okkur þessum yndislega hópi ofin minningunni um okkar kæru vinkonu. Það er ekki auðvelt að lýsa mann- kostum Helga. Öllum sem til hans þekktu þótti vænt um þennan góða dreng. Hann var glæsilegur, glað- sinna og reglusamur, en hann var líka mjög hugsandi og leitandi á afar látlausan og hógværan hátt. Þannig leitaðist hann við að fága hugsun sína í form ljóðsins þar sem tærleikinn og einlægnin var tak- markið sem stefnt var að. Þau orð, tærleikinn og einlægnin, koma upp í hugann núna, óijúfan- lega tengd mynd þessa ljúfa drengs. Af hveiju fékk hann ekki að lifa lengur? Svarið geymir almættið eitt, en einhvern veginn trúum við því að það svar gæti sætt okkur við þennan sára missi. Og jafnvel mitt í dauða sínum minnir Helgi okkur á hrífandi hátt á göfuglyndi sitt og manngæsku. Hann hafði sjálfur látið þá ósk í ljós að ef dauðinn myndi heimta Sjá næstu síðu. t Dóttir okkar, móðir og systir, GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR, Fannarfelli 10, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. mars kl. 13.30. Helga Gísladóttír, Magnús Sveinsson, Sigríður Amanda, Katrín Dögg, Sigurjón Magnússon, Cecilia Magnúsdóttir, Brynjar Mikaelsson, íris Magnúsdóttir, Rafael Mikaelsson, Sveinn Snorri Magnússon. t Ástkær fósturfaðir okkar, HJÁLMAR JÓN GUÐJÓNSSON, Lönguhlíð 3, Reykjavík, áðurtil heimilis í Háagerði 11, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 8. mars kl. 13.30. Elisabet Jónsson, Eyþór Stefánsson, Margrét Guðnadóttir. t Elskulegur sonur minn, faðir, bróðir, mágur og unnusti, HELGI MÁR JÓNSSON, sem lést 28. febrúar, verður jarðsung- inn frá Hallgrímskirkju í Reykjavík mánu- daginn 7. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu heiðra minningu hans, er bent á bankabók nr. 0532-18-480169 í eigu Sindra Hrafns Helgasonar 3 ára. Jón Már Þorvaldsson, Sindri Hrafn Helgason, Finnur Logi Jóhannsson, Oddný Halla Haraldsdóttir, Þorvaldur Ingi Jónsson, Dis Kolbeinsdóttir, Jóhanna Marín Jónsdóttir, Aurelio Ferro, Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, Benedikt Oddsson, Hanna Guðbjörg Birgisdóttir. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES FR. SIGURÐSSON húsasmiður, Löngumýri 57, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 7. mars kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hlífarsjóð S.Í.B.S. Hafsteinn Jóhannesson, Magnea Magnúsdóttir, Kristinn Jóhannesson, Áslaug Erla Guðnadóttir, Sigurður H. Jóhannesson, Brynja Guðmundsdóttir, Haukur Jóhannesson, Eygló Björk Kristinsdóttir og barnabörn. Útför t KATRÍNAR ÓLAFSDÓTTUR, Laufásvegi 45, verður gerð frá Dómkirkjunni 8. mars kl. 13.30. Guðni Guðmundssgn, Guðmundur H. Guðnason, Lilja I. Jónatansdóttir, Guðrún Guðnadóttir, Ólafur B. Guðnason, Hildur N. Guðnadóttir, Anna S. Guðnadóttir, Sveinn G. Guðnason, Sigurður S. Guðnason, og barnabörn. Jóhann S. Hauksson, Anna G. Sigurðardóttir, Friðrik Jóhannsson, Gylfi Dýrmundsson, Erna Jensen, Margrét Gestsdóttir t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS S. HARALDSSON áðurtil heimilis á Álfaskeiði 27, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar- kirkju þriöjudaginn 8. mars kl. 15.00. Sigríður Magnúsdóttir, Sveinbjörn Guðbjarnason, Haraldur Magnússon, Margrét Pálsdóttir, Gunnar Magnússon, Guðbjörg Magnúsdóttir, Sveinn Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS JÓNSSON frá Hvammi, Höfnum, Suðurgötu 12, Keflavík, sem lést 28. febrúar í Sjúkrahúsi Kefla- vfkur, verður jarðsunginn frá Keflavíkur- kirkju þriðjudaginn 8. mars kl. 14.00. Helga Jónsdóttir, Sigriður Magnúsdóttir, Jóhannes Guðmundsson, Hilmar Magnússon, Jórunn Garðarsdóttir, Sigurbjörg Magnúsdóttir, Guðmundur Hjörleifsson, barnabörn og barnabarabarn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, MÓSES AÐALSTEINSSON verkfræðingur, verður jarðsunginn frá Breiðholtskirkju þriðjudaginn 8. mars kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Minningarsjóð Breið- holtskirkju, sími 71718, eða Námssjóð hjúkrunarfræðinga hjá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, sími 687575. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ragnheiður Mósesdóttir, Matthew James Driscoll, Kári og Katrin Þórdís Driscoll.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.