Morgunblaðið - 06.03.1994, Side 42

Morgunblaðið - 06.03.1994, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 Bíómynd um Smillu; Heeg (til hægri) ræðir við Bille August. eftir Arnald Indriðason FÁIR ef nokkrir norrænir rithöfundar hafa vakið eins mikla athygli um heiminn í seinni tíð og danski rithöfundur- inn Peter Hoeg með spennusögu sinni Lesið í snjóinn eða „Fröken Smillas fornemmelse for sne“. Bókin hefur verið þýdd á fjölda tungumála og kom m.a. út í Bandaríkjunum sl. haust og hlaut afbragðsgóðadóma.„Lesið í snjóinn er engri spennusögu lík,“ sagði í bókadómi vikuritsins „News- week“, og þar stóð að skáldsagan væri svo ánægjuleg lesn- ing að furðu sætti að höfundurinn skyldi aldrei hafa skrif- að spennusögu áður. Skrifað í snjóinn; Peter H»eg. Hoeg vissi ekki til þess sjálfur að hann hefði skrifað trylli fyrr en fólk fór að segja honum það. „Það eina sem ég vissi var að ég var að skrifa um ráðgátu,“ er haft eftir honum. Lesið í snjóinn, sem kemur út hjá Máli og menningu í þessum mánuði í þýðingu Eyglóar Guðmundsdótt- ur, segir frá Smillu Qaavigaaq Jaspersen, hálfgrænlenskri og hálfdanskri 37 ára gam- alli konu sem kallar sig „pappírsgrænlend- ing“ og er jökla- og stærðfræðingur. Engin er henni fremri í að kanna jökla og lesa í snjóinn og sá hæfileiki kemur að góðum notum þegar lítill sex ára grænlenskur 'drengur, sem býr í sama stigagangi og hún í Kaupmannahöfn, fellur ofan af þaki pakk- húss og deyr. Lögreglan er þess fullviss að drengurinn hefur dottið ofan af þakinu — fótspor hans í snjónum sýna það. En Smilla þekkir snjó- inn. Hún veit að drengurinn var lofthrædd- ur og hún getur lesið úr sporum hans í snjónum; þau voru stigin of hratt, í ótta en ekki leik. Einhver var á eftir honum. Lögreglan neitar að rannsaka málið frekar svo Smilla, ásamt hæglátum vélvirkja í blokkinni, tekur það í sínar hendur. Þau jrnða. saman brotum gátunnar sem gerð eru úr dauða, græðgi og svikum og fyrr en varir er Smilla komin um borð í rannsóknar- skip á leið til Grænlands þar sem hún fínn- ur svarið við gátunni og óvænt endalok. Öllum sem skrifað hafa um Lesið í snjó- inn ber saman um að aðalpersónan, Smilla, sé einstök í sinni röð og einhver skemmtileg- asta kvenpersóna sem skálduð hefur verið í langan tíma. Móðir hennar var grænlensk- ur veiðimaður sem dró bráðina heim í búið eins og hver annar karlmaður. Faðir henn- ar var danskur læknir sem fluttist til Græn- lands til að vinna við rannsóknir en hvarf þaðan aftur þegar Smilla var þriggja ára. Fjórum árum síðar var hún nauðbeygð til að flytja til hans þegar móðir hennar lést og sem hálfur Grænlendingur hefur henni alltaf liðið eins og utan- garðsmanni f Dan- mörku. Snjór eru hennar ær og kýr, hún þekkir ís og snjó eins og per- sónur Johns le Carré þekkja dul- málslykla og tíma- sprengjur, eins og einn gagnrýnand- inn komst að orði. Engin er betri en hún að lesa í snjóinn. Hún hatar eldamennsku, hefur ánægju af fötum og hélt daglega uppá sjálfstæði sitt þar til lítill, óhijálegur drengur flutti í blokkina hennar og vingað- ist við hana. Og dó. Peter Heeg er 36 ára gamall Dani og ævintýramaður. Hann hefur magisterspróf í bókmenntum en áður en hann settist nið- ur við skriftir tók hann sér margt fyrir hendur; dans og leiklist, fjallgöngur, skylm- ingar og siglingar. Hann gerir mikið af því að flakka um heiminn en býr í Kaupmanna- höfn ásamt kenískri konu sinni og barni. Engan hefur hann síma og hann segist láta sér nægja að skila af sér tveimur síðum á dag, handskrifuðum. „Fyrir tíum árum var ég ekki jafnhæglátur og ég er nú,“ er haft eftir honum. „Eg vissi allan tímann þegar ég byijaði á einhveiju nýju að það væri aðeins tímabundið og brátt tæki eitthvað annað við. Þá tilfínningu hef ég ekki leng- ur. Eitt af því sem fylgdi skrifunum var friðsemd." Danski leikstjór- inn Bille August (Pelli sigursæli, Hús andanna) ætlar að kvikmynda Lesið í snjóinn og það verður hans fyrsta spennumynd rétt eins og sagan er fyrsta spennusaga Hoegs, sem áður hefur aðeins sent frá sér eina skáldsögu og eitt smásagnasafn. Hoeg hefur verið líkt við fjöldann allan af rithöfundum og jafn- vel leikstjórum ævintýramynda eins og Ste- ven Spielberg. Aðrir segja að hann sé sam- bland af Jules Verne og áðumefndum John le Carré. Smillu sjálfri hefur verið lýst sem einhverskonar sambland af Mata Hari og Indiana Jones. En hvaðan er bók Hoegs um Smillu sprottin? „Sagan kom til mín í draumi,“ segir höfundurinn, „og ég verð að taka það fram að þetta er í fyrsta sinn sem ég fer Danski rithöfundurinn Peter Hoeg vekur heimsathygli fyrir spennusögu um grænlenskætt- aða konu sem ber sérstakt skynbragð á snjó eftir draumi. Mig dreymdi Grænland, að ég yrði að skrifa spennusögu þar sem Græn- land væri þungamiðjan. Þangað hafði ég aldrei komið og ég þekkti engan Grænlend- ing og ég vissi yfir höfuð ósköp lítið um þessa víðáttumiklu ísálfu. En ég ferðaðist þangað og smám saman komst mynd á söguna." Hann segir frá upplifun sinni og hrifningu á sérstæðri menningu Grænlend- inga og að eitt höfuðmarkmið sitt hafi ver- ið að lýsa því sem gerðist þegar fólk frá fjarlægri menningu tekur að kljást við ann- an og óþekktan menningarheim. Hvernig fer Grænlendingur að því að taka upp nýja lifnaðarhætti til dæmis í Kaupmannahöfn án þess að kasta sinni gömlu menningu fyrir róða? En af hveiju er aðalpersóna sögunnar kona? „Allir karlmenn hafa í sér konu sagði Jung einu sinni. Á sinn hátt hefur bókin verið leið mín að konunni í sjálfum mér.“ Og annarstaðar segir Heeg að of algengt sé að líta á samband kynjanna sem vanda- mál. Fyrir honum sé það heillandi ráðgáta sem engin lausn fáist á. Bókin hafi verið nokkurskonar leikur. Hann hafi leikið sér að því að vera kona. „Það kvenlega er rík- ur þáttur í mér. Við erum nefnilega ekki bara eitt kyn. Ég er fyrst og fremst karl- maður en um leið náskyldur því kvenlega. Munurinn á kynjunum er einhver sterkasta orkuuppspretta sem ég veit um. Og þráin eftir því kvenlega er eitt af því sem einkenn- ir alla karlmenn.“ Eitt af því sem lesendur bókarinnar reka sig á er óskaplegt flæði af vísindalegum fróðleik og reyndar fróðleik um allt á milli himins og jarðar, sem fléttaður er inní spennusöguna. Því hefur einhver nefnt Hoeg í sömu andrá og ítalska rithöfundinn Umberto Eco. Hoeg virðist hafa kunnáttu á flestum sviðum.„Það er í rauninni bók- menntalegur galdur. Þetta er spurning um að skapa trúverðugan heim. Og þegar allt kemur til alls hef ég lifað hálft mannslíf. Ég hef lesið og fengist við margt og ég hef lært að afla mér upplýsinga. Þegar ég skrifaði um Smillu sat ég löngum á háskóla- bókasafninu í Kaupmannahöfn og las mér til um Grænland og skip og ís. Ég hef skrif- að til sérfræðinga í réttarlæknisfræði og jöklafræðinga og þar að auki hef ég kynnst mörgum Grænlendingum sem hafa sagt mér margt og mikið.“ Hoeg segist hafa heillast af gátum þegar hann skrifaði sína aðra bók, smásagnasafn- ið„Fortællinger om natten“. „Þá fékkst ég í fyrsta skipti við gátur og þær kveiktu áhuga minn. Mér þykir gaman að þeim og gaman að búa þær til. En gátan er aðeins tæki, drifkraftur, sem heldur áhuganum vakandi. Maður vill alltaf fá að vita hver gerði það...“ Hann segist hafa byijað að skrifa í örvinglun eða sorg „en þegar ég lít til baka yfir líf mitt hef ég alltaf verið að fást við sögur og áður en ég lærði að skrifa teiknaði ég. En svo kemur dagurinn sem skilur á milli þess að skrifa ljóð eða stuttar sögur og senda vinum sínum og þess að þú segir: Nú sit ég við hvern dag og vinn við stóra skáldsögu! Þaðan í frá vissi ég að ég var rithöfundur." Hoeg segir að sínar mestu bókmenntalegu uppgötvanir hafi orðið til við lestur bóka sem þykja ómerkilegar; Tarsanbóka og Flemmingbók- anna, en hann nefnir líka hasarblöð og léleg- ar bíómyndir sem áhrifavalda. Þegar Hoeg var spurður á sínum tíma út í vinsældirnar sem hann hefur notið með bók sinni, en þá hafði hún aðeins komið út í Danmörku, sagði hann: „Ég er í rauninni aldrei alveg ánægður með það sem ég skrifa. Kannski finnst mér í lagi með nokkr- ar síður í bókinni eða mér finnast samtöl hafa heppnast, en aldrei verkið í heild. Ég er mjög ánægður með að búa í Danmörku, finnst gott að hér er allt svo smátt í snið- um. Hér heima eru vinsældirnar ákveðnar eftir smæð markaðarins. Það þýðir að nokk- ur þúsund kaupa bækurnar mínar og það þýðir að ég get lifað sæmilega af skrifum mínum og gert eina bók í viðbót. Annað langar mig ekki að gera.“ Þessi litli heimur Heegs hefur opnast svo um munar með bókinni um Smillu. Hann er ekki lengur aðeins þekktur í Danmörku heldur um allan heim og bók hans selst ekki í þúsundum heldur hundruðum þús- unda og sjálfsagt milljónum þegar fram í sækir. Ef það er eitthvað sem Hoeg hefur sýnt fram á þá er það að ekkert er til sem heitir lítill markaður lengur ef þú ert með rétta efniviðinn í höndunum. Við þekkjum þetta best af velgengni Bjarkar Guðmunds- dóttur. Hoeg skrifar ekki lengur fyrir nokk- ur þúsund í Danmörku. Ekki þegar heimur- inn fylgir sporum hans í snjónum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.