Morgunblaðið - 06.03.1994, Síða 48

Morgunblaðið - 06.03.1994, Síða 48
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands I Bankl allra landsmanna FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Trillukarlar fimdu eitur- efnagám í Héraðsflóa TVEIR trillusjómenn á Hafbjörgu NS frá Borgarfirði eystra fundu á föstudag tóman eiturefnagám á floti norðaustur af Ósafles í Hér- aðsflóa og drógu hann til Borgar- fjarðar. Reyndist þetta vera einn af þremur eiturefnagámum sem fóru í sjóinn af flutningaskipi í fyrra. Fyrsta gáminn fann Drang- ey VE á Kötlugrunni i lok nóvem- ber en ekkert hefur sést til þess þriðja. Gámurinn er nú í fjörunni við bryggjuna í Borgarfirði. „Við sáum þetta nokkuð langt til,“ segir Eiríkur Gunnþórsson, eigandi Hafbjargar. Eiríkur var ásamt Ólafi Aðalsteinssyni að hákarlaveiðum í ~ góðu og björtu veðri á svæðinu þeg- ar þeir sáu gáminn um hádegi á föstudag. Gámurinn er 20 fet, eða tæpir sjö metrar, en Hafbjörgin er 6 tonn og tæpir tíu metrár að lengd. Hefur vakið athygli eystra Eiríkur segir að þeir hafí siglt að gámnum, fest í hann línu og dregið hann að landi. Ekki hafí verið erfítt að sigla með hann til lands, þeir Ólafur hafi að vísu verið nokkuð lengi á leiðinni. Gámurinn var síðan dreg- -—inn á land í fjörunni við höfnina þar sem hann er nú. Gámurinn hefur vakið talsverða athygli heimamanna og margir þeirra lagt leið sína niður á höfn til að skoða, segir Eiríkur. Gámurinn er tómur og hefur eigandi hans sagt að gámarnir þrír sem fóru í sjóinn hafi verið það. Hjá Landhelgisgæslunni fengust þær upplýsingar að skipið sem missti gámana í sjóinn hafi verið á siglingu langt suður í höfum. Gámurinn verður sóttur til Borg- arfjarðar og farið með hann til Reykjavíkur. Fyrri gámurinn sem fannst var sendur til rétts eiganda sem greiddi allan kostnað sem hlaust af fundi hans hér við land. Morgunblaðið/RAX Einn á ferð við Dyrhólaey Sól óð í skýjum þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var á ferð um Suðurland í vikunni. Þungbúin skýin, drangarnir við Dyrhólaey og aldan sem brotnar ljá einmana göngu mannverunnar dýpri merkingu. A Horfur á mikilli aukningu ferðamanna til Islands í apríl og maí Bókanir frá Kaupmannahöfn eru 60-80% fleiri en í fyrra Rafmagnstruflanir í Landssímahúsinu Hvorki sólbekkir né draugagangur taldir orsakavaldar „VIÐ vonumst til að hafa komist fyrir þessar rafmagnstruflanir, en skýringar sem nefndar hafa verið á þeim hafa verið með ýmsu móti og sumar undarlegar. Það er a.m.k. ekkert sem renn- ir stoðum undir þann grun sem sumir hafa alið með sér að sól- bekkir í Miðbæjarmarkaðnum hafi valdið símatruflunum eða þá að draugagangi hafi verið um að kenna,“ sagði Þorvarður Jóns- son, framkvæmdastjóri fjarskiptasviðs Pósts og síma, í viðtali við Morgunblaðið. HORFUR eru á mikilli aukningu í komu erlendra ferðamanna til íslands í mánuðunum apríl og maí samanborið við seinustu ár. Hrönn Greipsdóttir, sölusljóri í innanlandsdeild Úrvals-Utsýnar, segir að óvanalega margir ferðamenn komi hingað til lands á vegum ferða- skrifstofunnar frá Belgíu og Hollandi í vor en þaðan koma stórir hópar til ráðstefnuhalds. Éinnig er n\jög mikil aukning í helgarferð- um hópa frá Skandinavíu að hennar sögn. Bókunum í flugi frá Kaupmannahöfn hefur fjölgað um 60-80% í apríl og maí miðað við seinasta ár, að sögn Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa Flugleiða. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu urðu símanúmer, sem tengd voru við stöðina í Landssíma- húsinu, sambandslaus um tíma dagana 14. og 15: febrúar. „Við könnuðum málið vel í samvinnu við Rafmagnsveitu Reykjavíkur. í Landssímahúsinu er spennustöð, .þar sem einnig er rafmagnsþræð- r ing fyrir Miðbæjarmarkaðinn, sem er næsta hús. Til að tryggja öryggi símans betur flutti Rafmagnsveit- an þræðinguna fyrir Miðbæjar- markaðinn yfir í aðra spennustöð, svo nú höfum við stöð sem fæðir eingöngu Landssímahúsið. Eftir þessar breytingar verðum við að bíða og sjá hvað setur, en við von- um að við höfum komist fyrir þess- ar truflanir." Ýmsar skýringar Þorvarður sagði að menn hefðu engan rökstuddan grun um að eitt- hvað í húsi Miðbæjarmarkaðarins hefði valdið truflununum, en þeirri skýringu hafði verið varpað fram að sólbekkir í húsinu hefðu þessi truflandi áhrif. „Menn hafa komið með alls konar skýringar og sumar yfirnáttúrulegar. Draugagangur úr gömlum kirkjugarði var ein skýr- ingin, en við vonum að með þessum breytingum höfum við komist end- anlega fyrir þessar truflanir," sagði Þorvarður Jónsson. Hrönn segir að helstu skýring- arnar á þessari fjölgun ferðamanna virðist vera að fargjöld hafi lækkað til íslands, „og svo er kynningin á undanfömum árum sem betur fer farin að skila sér,“ segir hún. Einar sagði að einnig væri mjög gott útlit í ferðum frá Noregi en þar er 60% aukning bókana í apríl og rúmlega 25% í maí. í Stokkhólmi er aukningin um 10% í hveijum mánuði miðað við seinasta ár og í Þýskalandi, Spáni og Sviss er ná- lægt 10% aukning bókana hjá Flug- leiðum samanborið við sömu mán- uði 1993. Gæti orðið metsumar í ferðaþj'ónustu „Það þarf að fylgja þessu mjög vel eftir. Við erum í samkeppni um ferðamenn við norðlæga staði og írland og það þarf töluverða vinnu til að halda þessu en horfurnar núna eru góðar og menn vona að ef þessu verður fylgt eftir með sterku markaðsstarfi eigi að nást metsumar hér í ferðaþjónustu," segir Einar. „Við sjáum aukningu frá Noregi og Svíþjóð. Þetta er mjög mikið fyrirtækjahópar, þar sem fyrirtæki bjóða starfsfólki sínu í helgarferðir til Reykjavíkur og svo er einnig um að ræða starfsmannafélög og alls Eiríkur sagði að eftir síðasta útboð spariskírteina hefði verið þrýstingur á vextina upp á við. Þá hefði verið greinilegt að menn trúðu því ekki lengur að ve’xtir færu lækkandi, en hann teldi að konar aðra hópa sem koma hingað á föstudegi og fara á sunnudegi," sagði hún. Hrönn sagði að áhersla hefði verið lögð á að kynna viðskiptaaðil- um erlendis möguleika á ferðum til íslands utan háannatímans. Það virtist nú vera að skila árangri því margir stórir hópar ferðamanna væru væntanlegir, sem væri mjög ánægjulegt því þessir ferðamenn skildu mest eftir sig á íslandi. það hefði nú jafnað sig. Aðspurður hvort bankinn myndi halda áfram kaupum á húsbréfum sagði hann að ekkert væri gefið upp um það, það væri rætt og ákveðið frá degi til dags. Húsbréf keypt fyrir milljarð SEÐLABANKI íslands hefur keypt húsbréf fyrir um einn milljarð króna frá því að bankinn hóf viðskipti með húsbréf um miðjan janúar síðastliðinn, en á sama tíma hefur hann selt sáralítið af húsbréfum. Eiríkur Guðnason, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, segir að eftir síðasta útboð spariskírteina hafi verið þrýstingur á vextina upp á við, en það hafi nú jafnað sig og vextir spariskír- teina séu nú í jafnvægi í kringum 5% og ávöxtun húsbréfa í kring- um 5,20%.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.