Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 1

Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 61. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Kvótadeilan við Norðmenn rædd í dag Spánverjar vilja ekki „pappírsfisk“ Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. SPÆNSK stjórnvöld kröfðust þess í gær, að Norðmenn gæfu meira eftir í deilunni um kvóta spænskra skipa í norskri lögsögu, að öðrum kosti myndu Spánverjar ekki samþykkja aðild Noregs að Evrópusam- bandinu, ESB. Norski sjávarútvegsráðherrann ítrekaði hins vegar, að ekki væri um meiri fisk að semja. Þótt þarna virðist mætast stál- in stinn, kváðust samningamenn beggja ríkjanna vera bjartsýnir á, að málið yrði leyst á fundinum í Brussel í dag. ísraelsstjórn og PLO Friðarvið- ræður á ný? Jerúsalem. Reuter. TALSMENN ísraelsstjórnar sögðu í gær að stutt væri í að aftur hæfust viðræður við Frels- issamtök Palestínu, PLO, um tak- markaða sjálfstjórn á hernumdu svæðunum. Viðræðurnar hafa leg- ið niðri frá því að gyðingur myrti tugi Palestínumanna í Hebron fyr- ir þrem vikum en á sunnudag hittu fulltrúar Israela Yasser Arafat, leiðtoga PLO, í bækistöðvum hans í Túnis. ísraelsstjórn kom til móts við kröf- ur PLO á sunnudag og bannaði Kach og Kahane, tvenn öfgasamtök sem eru öflug meðal landnema úr röðum gyðinga er ekki vilja sætta sig við að Palestínumenn fái sjálfsstjórn. Sendimenn Bandaríkjamanna og Norðmanna, sem gegnt hafa hlut- verki sáttasemjara í deilum ísraela og PLO, eru í Túnis og reyna að finna málamiðlun. PLO krefst þess m.a. að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmi Hebron-morðin og alþjóð- legt gæslulið verði sent til hernumdu svæðanna til að gæta öryggis Palest- ínumanna. Carlos Westendorp, Evrópumála- ráðherra Spánar, sagði í gær, að Norðmenn hefðu vissulega hliðrað nokkuð til en það væri samt ekki nóg. Þeir yrðu að ganga lengra og hann kvaðst hafa ástæðu til að ætla, að þeir gerðu það. í spænska blaðinu Diario 16 sagði í gær, að Spánverjar myndu ekki sætta sig við einhvern „pappírsfisk", heldur yrði að koma skýrt fram hve mikinn kvóta þeir fengju og hvenær. Þá halda þeir stíft fram afstöðu sinni um, að þeir hafi sögulegan rétt tii veiða við Noreg. Engar þreifingar milli landanna Jan Henry T. Olsen, sjávarút- vegsráðherra Noregs, ítrekaði í gær, að Spánveijum yrði ekki boð- inn meiri kvóti og hann sagði, að engar þreifingar hefðu átt sér stað milli Norðmanna og Spánverja að undanskildum viðræðum um mark- aðsaðganginn. Hann vildi þó ekkert segja um árangurinn af þeim. „Ég hef það á tilfinningunni, að þetta verði erfitt. Evrópusambands- ríkin vilja, að við gerumst aðilar en það á eftir að koma í ljós hvort þau vilja viðurkenna sérstöðu okkar Norðmanna að ýmsu leyti,“ sagði Olsen en mikilvægasta krafan í því efni er, að Norðmenn fái full yfirráð yfir veiðunum fyrir norðan 62. breiddargráðu. Serbar óttast einangrun STJÓRNVÖLD í Króatíu höfnuðu í gær hugmyndum um einhvers konar sambandsríki allra fyrrverandi ríkja Júgó- slavíu en Króatar og múslimar hafa gengið frá drögum að stjórnarskrá fyrir sambandsríki Króatíu og þeirra hluta Bosníu, sem Króatar og múslimar ráða. Talsmenn Serba segja, að Vítalíj Tsjúrkín, sérstakur sendimaður Rússlands- stjórnar, hafi lagt til, að komið verði á tengslum milli allra sambandsríkjanna fyrrverandi en ýmsir fréttaskýrendur telja, að það, sem vaki fyrir Serbum, sé fyrst og fremst að eyðileggja samstöðu Króata og múslima. Óttist þeir, að með henni muni þeir einangrast enn meir. Myndin er frá Mostar í Bosníu af ungum dreng við götuvígi en Króatar og múslimar börðust áður hart um yfirráð yfir borginni. Engin togaraútgerð í Færeyjum um simi --------------- Austurríki Haider hrós- aði sigri Vín. Reuter. MIKIL fylgisaukning hægrisinn- aðra þjóðernissinna í kosningun- um, sem fram fóru á sunnudag í þremur af níu fylkjum Austur- ríkis, hefur vakið verulegar áhyggjur sljórnvalda, einkum annars stjórnarflokksins, jafnað- armanna, sem hafa ekki beðið meiri ósigur síðan 1918. Stjórnmálamenn og fjölmiðlar í Austurríki eru sammála um, að úrslitin séu mikið áfall fyrir jafnað- armenn og leiðtoga þeirra, Franz Vranitzky kanslara, en mestan ósigur biðu þeir í fylkinu Kárnten þar sem fylgið minnkaði um 8,6%. Þar vann hins vegar Frelsisflokkur Jörgs Haiders mikinn sigur og fékk 33,3% atkvæða, fjórum prósentu- stigum minna en jafnaðarmenn. Haider, sem var neyddur til að segja af sér sem ríkisstjóri í Kárnt- en 1991 fyrir að lofa atvinnustefnu Adolfs Hitlérs, fagnaði mjög sigrin- um og kvaðst mundu keppa eftir embættinu á ný. Reuter Iðnríkjafundur um atvinnuleysi BILL Clinton Bandaríkjaforseti ræðir við börn sem fögnuðu honum í Detroit er hann kom þangað í gær til að setja tveggja daga ráðstefnu ráðherra og annarra embættismanna frá sjö helstu iðnríkjum heims, G-7, um atvinnuleysisvandann. Niðurstöðurnar á síðan að nota á vænt- anlegum fundi leiðtoga ríkjanna í Napólí í júlí. Alls eru um 30 milljón- ir manna án vinnu í ríkjunum sjö. Clinton hrósaði mjög átaki í starfs- þjálfun sem gert hefur verið í Detroit en talið er að rætt verði um ýmsar samræmdar aðgerðir, s.s. vaxtalækkun í Evrópuríkjum, aukna innanlandsneyslu í Japan og fleira sem hleypt getur krafti í efnahagslífið. Sjá frétt, á bls. 23. Landsstjórnin hafnaði kröfum togara- manna um breytingu á kvótalögunum Þórshöfn. Frá Grækaris Djurhuus Magnussen, fréttaritara Morg'unblaðsins. ÞAÐ er nú Ijóst að færeyski togaraflotinn verður allur bundinn við bryggju um ófyrirsjáanlegan tíma. Fundur sem haldinn var í gær með Thomas Arabo, sjávarútvegsráðherra Færeyja, og fulltrú- um ýmissa hagsmunafélaga í sjávarútvegi, togarafélagsins, vél- sljórafélagsins, skipstjórafélagsins og fleiri, bar engan árangur og virðist engin lausn vera í sjónmáli. Formaður færeyska togarafé- lagsins sagði eftir fundinn að Arabo sjávarútvegsráðherra og þar með landsstjórnin hefði aftek- ið með öllu að koma nokkuð til móts við kröfur togara,útgerðar- innar og því væri alveg ljóst að togarar yrðu ekki gerðir út frá Færeyjum á næstunni. Sagði hann að raunar þyrfti ekki að taka neina sérstaka ákvörðun um það, eins og kvótalög landsstjórnarinnar væru úr garði gerð, væri enginn grundvöllur fyrir útgerðinni. Togarar bundnir við bryggju. Aðeins togararnir stöðvast Fram kom hjá fulltrúum útgerð- ar og sjómanna í gær að ekki hefði verið rætt um að útgerðir og sjómenn á öðrum skipum en togurunum færu að dæmi togara- manna og hættu veiðum. Ellintur Abrahamsen, formaður skipstjóra- félagsins, kvaðst skilja vel í hve óviðunandi aðstöðu togáraflotinn væri kominn, en hann sagðist ekki geta mælt með sams konar að- gerðum í sínu félagi. Á fundinum í gær var engan bilbug að finna á Thomas Arabo sjávarútvegsráðherra og eina til- laga hans var að togaramenn héldu til veiða. Sagði hann að í ágúst hæfist nýtt fiskveiðiár og þá yrði hugsanlega hægt að endur- skoða kvótann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.