Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 Erlendir listamenn leiðbeina unglingnm í Ólafsfirði Morgunblaðið/Sigurður Björnsson Árshátíð Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar var hin glæsilegasta en m.a. var gamla þjóðsagan af Málmey- jarkonunni og Múlatröllunum sett á svið. Málmeyjarkonan og Múlatröllin sett á svið Ólafsfirði. DAGANA 7. til 11. mars var hefðbundið skólastarf leyst upp í Gagnfræðaskólanum í ólafsfirði, en í staðinn var svokölluð þema- vika sem lauk með árshátíð skólans sl. föstudagkvöld. Af þessu tilefni komu til Ólafsfjarðar þrír norrænir listamenn sem eru hér á landi á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta eru dönsk hjón, Preben Friis leikstjóri og kona hans Mari- anne Knorr tónlistarmaður og með þeim er finnskur leikmynda- hönnuður, Kaj Puumalainem. Að- stoðuðu þau kennara skólans og leiðbeindu á þemavikunni og af- raksturinn varð glæsileg árshátíð skólans þar sem unglingarnir settu m.a. á svið þjóðsöguna um Málmeyjarkonuna sem Múlatröll- in námu á brott og einnig söguna um Aladín og töfralampann. Þjóðsaga í nútímabúningi Sýningin var í félagsheimilinu Tjarnarborg og var aðalsal húss- ins gjörbreytt, m.a. var leikið á þremur leiksviðum og í salnum sjálfum. Nemendum skólans hafði verið skipt í hópa. Tónlistarhópur samdi tónlist og undirbjó flutning. Annar hópur samdi texta fyrir leikverkin og önnur atriði og enn annar sá um leikmyndir og breytti félagsheimilinu þannig að það hentaði. Danshópur var einnig að störfum og fleiri hópar. Allir nem- endurnir tóku þannig beinan þátt í vinnunni og fluttu frumsamið efnið á sýningunni sem var glæsi- leg. Gamla þjóðsagan var sett í frjálslegan nútímalegan búning og krydduð bæði gamni, alvöru og skemmtilegum tónlistaratrið- um. Aladín var einnig afgreiddur á spaugsaman hátt. Ungur maður, Helgi Jónsson, tók við skólastjórn í Gagnfræða- skóla Ólafsfjarðar sl. haust. Hann sagði í samtali við fréttaritara að boð um heimsókn erlendu lista- mannanna hefði komið sl. haust og væri liður í verkefni sem unn- ið væri á vegum Norrænu ráð- herranefndarinnar og nefndist Et levende Norden. Sagði Helgi að þemavikan hefði verið mjög erfið og mikið að géra bæði fyrir nem- endur og kennara en að sama skapi hafi þetta verið mjög ánægjulegur tími. SB Veiðarfæragerð Útgerðarfélags Akureyringa Mikil vinna með meiri togaraeign MIKIL vinna hefur verið í veiðar- færagerð Utgerðarfélags Akur- eyringa og hefur þjónustan aukist jafnt og þétt. „Það hefur verið mikið að gera héma síðustu þrjú árin, má segja, og helst í hendur við aukna togara- eign Akureyringa,“ sagði Hermann Guðmundsson netagerðarmeistari og verkstjóri Veiðarfæragerðar UA. Hann sagði, að á síðustu árum hefðu mörg skip bæst við flota Akur- eyringa, „og það er auðvitað mjög gott, þetta er það eina sem hefur gengið vel og kemur sér ágætlega fyrir okkur, það er mikið að gera.“ Netaverkstæði og veiðarfæralager voru sameinuð um síðustu áramót undir nafni veiðarfæragerðar UA og þar starfa nú 10 manns. Auk þess að sjá um togaraflota ÚA hefur veið- arfæragerðin einnig á sinni könnu öll fiskitroll fyrir Samheija á Akur- eyri auk fleiri útgerða, þá eru fram- leiddar þar bobbingalengjur fyrir troll eða „rockhooper" og loks má nefna að mikið annríki hefur verið að undanfömu við svokölluð tvíbur- atroll, eða tveggja báta troll, en Kominn í land GUÐMUNDUR Ólafsson var að selja merki í styrktarlínu á trolli í gær. starfsmenn veiðarfæragerðarinnar voru þeir fyrstu til að setja upp þann- ig troll. Morgunblaðiö/Rúnar Þór Mikil vinna GUÐMUNDUR Pétursson, Valur Sigurðsson og Sigurður Sigfússon að störfum í veiðarfæragerð Utgerðarfélags Akureyringa, en mikið hefur verið að gera þar með aukinni togaraeign Akureyringa. Tii sölu á Akureyri Stórglæsilegt einbýlishús við Hrafnabjörg ó einum besta stað í bænum. Fróbært útsýni. Húseignin er 2 hæðir + útsýnisstofa (3. hæð). Stærð ca 300 m2. Stór og ræktaður garður. Upplýsingar gefur Fasteigna- og skipasala Noróurlands í síma 96-1 1500. Kennarar á málþingi um kjaramál Breyting’ á vinnutíma kemur til greina en ekki lengra skólaár KENNARAR, sem sóttu málþing um kjaramál sem Bandalag kennara á Norðurlandi eystra, BKNE, hélt í Þelamerkurskóla sl. laugardag, voru flestir sammála um að til greina komi að breyta vinnutíma kenn- ara á þann hátt að viðverustundir þeirra í skólanum utan kennslu- stunda verði auknar. Ekki þótti kennurum heppilegt að lengja skólaár- ið frá því sem nú er. Á málþinginu röktu Svanhildur Kaaber formaður Kennarasambands íslands og Ámi Þór Sigurðsson fé- lagsmálafulltrúi Kennarasambands- ins þróun kjaramála síðastliðin ár og einnig ræddu þau um vinnutíma kennara og flutning grunnskólans yfir til sveitarfélaganna. Að ioknum framsöguerindum ræddu kennarar í hópum um þessi atriði og að sögn JÓHANNA Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra verður aðal- ræðumaður á kirkjukvöldi í Ak- ureyrarkirkju í kvöld, þriðju- dagskvöldið 15. mars. Þetta er síðasti liðurinn í kirkjuviku sem staðið hefur yfir að undanförnu. Á kirkjukvöldinu, sem hefst kl. 20.30 f kvöld, leikui* Málmblásara- Iðunnar Antonsdóttur formanns BKNE virtust allir á einu máli um mikilvægi þess að grunnlaun kenn- ara verði hækkuð. Vinnuaðstaða bætt Iðunn sagði að það hefði verið samdóma álit kennara að til greina kæmi að breyta vinnutíma kennara þannig að viðvera utan skólatíma kvintett úr Tónlistarskólanum á Akureyri nokkur lög. Michael Jón Clarke, barítón, syngur negrasálma og einnig verður almennur söngur undir stjórn organistans, Björns Steinars Sólbergssonar. Flutt verða ávörp 'og kirkjukvöldinu lýkur með því að Æskulýðsfélag Akureyrar- kirkju sýnir helgileik og annast helgistund. ii yrði aukin frá því sem er, nú er þriggja klukkustunda viðvera í skól- anum utan kennslustunda bundin í samningum. „Fólk var á því að gott væri að binda fleiri viðverustundir, en þó ekki að fullu þannig að kennur- um gæfist áfram kostur á að vinna hluta vinnunnar heima," sagði Iðunn, en benti á, að samhliða þessu yrði að bæta vinnuaðstöðu, sérstaklega í eldri skólunum þar sem gert væri út á að kennarar ynnu heima hjá sér að hluta og einnig þyrfti launahækk- un að fylgja þessum breytingum. Þá var það mál manna á þinginu, að halda ætti skólaárinu óbreyttu og lenging þess væri ekki æskileg. Eftir langan, dimman vetur væri bamanna vegna ekki rétt að halda þeim í skól- anum yfir sumarmánuðina. ♦ ♦ ♦------- ■ KYRRDARSTUND verður í Glerárkirkju á morgun, miðviku- daginn 16. mars, frá kl. 12-13. Orgelleikur, helgistund, altaris- sakramenti, fyrirbænir. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Allir velkomnir. Þátttakendum í bænastundum kvenna er beint í föstumessur í Akureyrarkirkju á föstunni. Kirkjuviku ad ljúka /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.