Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
Ferðaþjónusta
Utlit fyrir 10% fjölgun
erlendra ráðstefnugesta
Ger er ráð fyrir að 15-20 þúsund útlendingar komi hingað til að sækja
fundi og ráðstefnur í ár
RAUNHÆFT er að gera ráð fyrir að útlendingurn sem sækja hingað
fundi og ráðstefnur muni fjölga um a.m.k. 10% á þessu ári, að sögn
Ársæls Harðarsonar, framkvæmdastjóra Ráðstefnuskrifstofu Islands.
Hann segir að enn sé of snemmt að spá fyrir um horfur á árinu 1995
en margt bendi til áframhaldandi aukningar. „Mér sýnist að 15-20
þúsund manns komi hingað á þessu ári í tengslum við fundi ojg ráð-
stefnur að meðtöldum þeim sem koma í hvataferðir," sagði Arsæll.
Upplýsingar liggja ekki fyrir um tekjur af þessum ferðamönnum en
fyrir liggur að þeir dvelja hér að jafnaði i 6 daga og eyða mun meira
fé en aðrir ferðamenn, t.d. á veitingastöðum, í verslunum og í leigu-
bíla, svo eitthvað sé nefnt.
árið 1997, Evrópumót í fimleikum
árið 1997 og Evrópumót í knatt-
spymu fyrir leikmenn undir 18 ára
aldri. Þá er fyrirhugað að halda hér
fundi Evrópusambands fímleika og
Óiympíunefnda Evrópulanda. Þessi
bylgja mun skila sér hingað á næstu
fimm árum. Tækifærin eru víða en
það þarf að sækja viðskiptin og mér
sýnist að það sé að verða hugarfars-
breyting í þessu efni,“ sagði Ársæll.
Stærstu hluthafar Olíuverslunar íslands
1. Sundhf.
2. TexacoA/S
3. Sjóvá-Almennar hf.
4. Lífeyrissj. verslunarmanna
5. Trygging hf.
6. Ufeyrissj. Austurlands
7. Draupnissjóðurinn hf.
8. ís gnski hlntahréfsjnflijinn
9. S; meinaði lífeyrissjóð rinn
10. H Jtabréfasj iðurinn hf
11. Lf eyrissjóði r lækna
12. Lí eyrissj.Uagsbr. og I rams
13. Ljfeyrissjóður flugvirkja
þús. kr.
304.825
'93
'92
12,99%
1,80%
'93 ■ 2.40%
01,45%
1,49%
1,49%
1,00%
| 0,49%
93 10,85%
'92 10,76%
10,83%
oi j&r
'93 |0 5%
'92 | 0 18%
'93 10 '5%
9210 '5%
'93 10,73%
92 | 0,00%
|2%
|0%
3.000 '93 10,45%
14. Sjúkrasj. verkstjóraféfags ísl. 2.700 '9310,40%
'92 |0,40%
45,50%
25,37% 46,50%
25,37% \
Heildarhlutafé
670 millj. kr.
15. Ingvi Jón Einarsson, Akureyrí 2.456 '931o,37% H!uttJaíar
1 '92 | o,46% Hluthafar 1992: 584
Ráðstefnuskrifstofa íslands, sem
stofnuð var árið 1992, hefur það hlut-
verk að markaðssetja Island sem ráð-
stefnu- og fundaland. Í samantekt
skrifstofunnar um helstu ráðstefnur
og fundi á þessu ári ber mikið á fjöl-
mennum læknaþingum. Þá verður
haldið hér fjölmennt þing lyfjafræð-
inga í sumar, svo eitthvað sé nefnt.
„Það verður að mínu viti mikil aukn-
ing í vor og langt fram á haust þann-
ig að mér sýnist vera mikill gangur
í því að laða hingað fundi og ráðstefn-
ur,“ segir Ársæll. „Það má reikna
með að það verði a.m.k. 10% aukning
á árinu. Síðan verður fróðlegt að sjá
hvað gerist þegar ísland tekur for-
ystu í Norðurlandaráði og hvort
stjórnvöld ganga fram í þvl að fá sinn
skerf af fundum eins og nágranna-
þjóðimar. Þessar ráðstefnur eru ekki
lengur sjálfgefnar og það þarf að
beijast fyrir því að fá þær hingað.
Ég er ekki viss um að það dragi svo
mikið úr norrænum fundum þó hin
Norðurlöndin gangi í Evrópusam-
bandið heldur muni fundarefnin
breytast."
Ársæll segir að árangur marg-
þættra markaðsaðgerða Flugleiða og
Ferðamálaráðs á undanförnum árum
sé nú að skila sér t.d. í Bretlandi.
„Við tókum þátt í sýningu í Bretlandi
í febrúar og urðum þá vör við að
áhuginn á íslandi var feiknalega mik-
ill. Eg hef á tilfinningunni að margt
sé í deiglunni og margt eigi eftir að
koma í ljós á næstu misserum.
íþróttahreyfingin hefur varpað frá sér
allri minnimáttarkennd og reynir af
krafti að ná í þá viðburði sem hún
telur sig þurfa að fá hingað. Á næstu
þremur árum verða hér stórviðburðir
hver á fætur öðrum. Þetta er m.a.
Heimsmeistaramótið í handknattleik
árið 1995, Ólympíuleikar smáþjóða
Morgunverðarfundur
miðvikudaginn 16. mars 1994
i Átthagasal, Hótels Sögu kl. 08.00 - 09.30
ER ÍSLAND AD
EINANGRAST ?
Viðskiptaumhverfi íslands tekur örum breytingum
og mörgum sýnist að íslensk stjórnvöld hafi ekki
lagt næga óherslu ó að vega og meta þó ýmsu kosti
sem í boði eru eða kynnu að verða í boði,
svo sem ES, NAFTA....
Aðrir halda því fram að besti kosturinn sé að fara
enn hægar í sakirnar - "virkið í hafinu" geti spjarað
sig utan allra stórbandalaga ...
F-ummælendur:
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráSherra
og Bjöm Bjarnason, alþingismaður.
Einnig við pallborð:
Björn Arnórsson, hagfræðingur BSRB
Jón Asbergsson, framkvæmdastióri Utflutningsráðs
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ.
Fundurinn er opinn, fundargjald m. morgunverði kr. 1.000
Afsláttarverð fyrir námsmannahópa.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrirfram í síma 676666
(svarað kl. 08-16 daglega).
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
Olíufélög
Hagnaður Olís ífyrra
varð 92 milljónir
Reksturinn viðunandi miðað við ástandið í þjóðfélaginu
HAGNAÐUR Olíuverslunar íslands hf. á síðasta ári var 91,2 millj-
ónir króna samkvæmt ársreikningi sem lagður verður fram á
aðalfundi félagsins nk. föstudag. Hagnaður árið 1992 nam 60,5
miltjónum króna og að sögn forsvarsmanna OIís var reksturinn
viðunandi á síðasta ári miðað við efnahagsástand í landinu.
Rekstrartekjur Olís voru á síð- var gjaldfærslan því 106,6 milljón-
asta ári 5.829 milljónir samanbor-
ið við 5.267 milljónir árið áður.
Um er að ræða 11% aukningu.
Rekstrargjöld voru 5.631 milljón
á móti 5.141 milljón árið 1992 og
rekstrarhagnaður hækkaði því um
72 milljónir úr 126 í 198 milljónir.
Eigið fé Olís í árslok 1993 var
1.814 milljónir króna og jókst um
123 milljónir á árinu. Heildareign-
ir voru 4.134 milljónir og eiginfjár-
hlutfall jókst úr 42,5% í 44%. Arð-
semi eigin fjár var 5,4%. Þá hækk-
aði veltufjárhlutfal! á árinu úr 1,13
í 1,38.
Gjaldfærsla vegna niðurfærslu
á útistandandi og töpuðum kröfum
nam 100,6 milljónum og gjald-
færsla vegna lækkunar á bók-
færðu verði hlutafjár í öðrum fé-
lögum nam 6 milljónum. Samtals
ir en á síðasta ári nam samsvar-
andi gjaldfærsla 67,5 milljónum
króna. I skýringum með ársreikn-
ingi kemur fram að í árslok 1993
voru verðbréf og skammtímakröf-
ur færðar niður um 75 milljónir
króna og bókfært verð hlutabréfa
í öðrum félögum um 18 milljónir.
Verðbréfaþing
Ávöxtun ríkisvíxla
lækkar um 0,53%
Nafnvextir 3ja mánaða víxla orðnir lægri en
í nokkrum nálægum ríkjum
SEÐLABANKINN hefur að undanförnu lækkað ávöxtun enn frek-
ar á ríkisvíxlum og ríkisbréfum í tilboðum sínum á Verðbréfa-
þingi. Hefur ávöxtun þriggja mánaða víxla lækkað um 0,53% frá
því á föstudag fyrir rúmri viku og er nú 4,38%. Með þessu er
bankinn að reyna að nálgast raunvaxtastig í öðrum löndum sem
ennþá er talið hærra en hér á landi.
ísland sem ráðstefnu-
og fundaland
Erum við að nýta tækifærin?
Þýðing funda, ráðstefna, hátíða og
stórviðburða fyrir ísland.
Erindi á morgunverðarfundi flytur Ársæll Harðarson,
framkvæmdastjóri Ráðstefnuskrifstofu íslands.
í erindinu verður m.a. fjallað um hvernig ísland stend-
ur samkeppnislega miðað við önnur lönd. Hvaða
ávinningur getur verið af slíkum viðburðum. Hver
eru hugsanleg vandkvæði og hvert stefnir í nánustu
framtíð.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. mars
nk. kl. 8.00-9.30 á Holiday Inn.
Félagar og aðrir áhugamenn um efnið eru hvattir til
að mæta.
OPINN FUNDUR, GESTIR VELKOMNIR.
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
Eiríkur Guðnason, aðstoðar-
seðlabankastjóri, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að nafnvextir
af þriggja mánaða víxlum hér á
landi væru nú komnir niður fyrir
nafnvexti í nokkrum nálægum
löndum. Verðbólgan væri hins
vegar lítil sem engin hér en 2-3%
eða meiri í löndunum sem Islend-
ingar bæru sig saman við.
I máli Eiríks kom fram að vext-
ir af þriggja mánaða víxlum eru
nú 3,59% í Bandaríkjunum, 5,06%
í Bretlandi, 2,12% í Japan, 5,75%
í Þýskalandi, 5,65% í Danmörku,
7,01% í Svíþjóð, 4,65% í Finnlandi
og 5,2% í Noregi.
Auk lækkana í tilboðum sínum
í óverðtryggð skuldabréf á Verð-
bréfaþingi hefur Seðlabankinn
lækkað önnur vaxtakjör gagnvart
bönkum og sparisjóðum. Vextir
innstæðubréfa lækkuðu frá og
með 11. mars um 0,25 prósentu-
stig og ávöxtun í verðbréfakaup-
um gegn endurkaupasamningi
lækkaði um 0,1-0,25 prósentu-
stig.
Þú svalar lestrarþiírf dagsins
ásKhim Moggans!