Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 11 íslensk grafík 25 ára Myndlist Eiríkur Þorláksson í eina tíð var haldið uppi sterkri skiptingu innan listarinnar, þar sem vinna í einn miðil og jafnvel einu viðfangsefni var talin öðrum æðri; þannig var frá fornu fari til al- mennt viðurkennd niðurröðun yfir mikilvægi listgreina. Grafíkin var neðarlega í þeirri röð, og þar kom fyrir ekki að ýmis stórmenni lista- sögunnar unnu óumdeild meistara- verk í þessum miðli, og nægir þar að nefna verk Rembrandts og Goya á þessu sviði. Nú á tímum er Hon- oré Daumier talinn einn af risum myndlistarinnar á 19. öld, þó sam- tímamenn hans hafí flestir litið á hann fyrst og fremst sem skapara grínmynda, en hann vann mörg sín þekktustu verk í steinþrykk. Veggir á milli listmiðla hafa hrunið á þessari öld, og grafíkin hefur komið sterk til leiks sem at- hyglisverð listgrein. Saga grafík- listar hér á landi er að umtalsverðu leyti samtvinnuð sögu þess félags, sem nú heldur sýningu í Norræna húsinu í tilefni tuttugu og fímm ára afmælis síns. Fyrst var félag með þessu nafni stofnað fyrir íjörutíu árum af nokkrum brautryðjendum þessarar listgreinar hér á landi, en það lifði ekki; nýtt félag var stofnað 1969, og það hefur eflst og dafnað alla tíð síðan. fslensk grafík hefur í gegnum tíðina haldið fjölmargar merkar sýningar, og er skemmst að minn- ast tuttugu ára afmælissýningar- innar 1989, og þátttöku félags- manna í norrænum grafíkþríæring- um. Nú er félagið að koma á lagg- imar öflugu grafíkverkstæði á Tryggvagötu 15, og á sú aðstaða sem þar verður til eflaust eftir að verða grafíklistinni mikil lyftistöng. Loks má nefna að í tengslum við þessa afmælissýningu er fýrirhugað að stofna félag sem ber heitið Graf- íkvinir, þar sem listunnendum gefst tækifæri til að efla tengsl sín við listafólkið og njóta nokkurra hlunn- inda varðandi kaup á grafíklista- verkum. Að þessu sinni eiga alls þrjátíu og einn félagsmaður verk á sýning- unni, og eru flest verkin unnin á síðustu tveimur árum. Hlutur kvenna er athyglisverður í þessari erfíðu listgrein, en listakonur eru í miklum meirihluta meðal sýnenda. Verkin á veggjum Norræna hússins spanna helstu svið grafíklistarinn- ar; þarna er að finna einþrykk, dúkristur, tréristur, sáldþrykk, verk unnin með messotintu, þurrnál og akvatintu, auk steinþrykks og collo- graph, svo hin fjölbreytta tækni sem stendur að baki þessum lista- verkum sé nefnd að nokkru. Nokkrar forsvarskonur félagsins sýningarinnar. Islensk grafík við uppsetningu Á stórum sýningum vill stundum brenna við að persónulegur stíll ein- stakra listamanna víki fyrir óskil- greindum heildarsvip, en svo er ekki hér. Það er styrkur sýningar- innar hversu vel tekst að varðveita einkenni hvers listamanns, og láta smá og stór verk af ólíkum toga vinna saman í heildinni; sýningar- nefnd hefur unnið starf sitt vel, bæði hvað varðar val verka og upp- hengingu þeirra. Einstök verk verða þó alltaf til að draga athyglina að sér, og hér verða það ekki síður andstæðumar, sem fanga hugann. Mannskepnan er þunglamaleg og jafnvel spaugi- leg í ætingum Karólínu Lámsdótt- ur, en létt og leikandi í ætingum Eddu Jónsdóttur; form landsins virka fínleg og niðurnjörvuð í messotintu Ríkharðs Valtingojer, en bijótast síðan fram í sterkum litum og flötum Ingbergs Magnús- sonar; kyrrðin og hreinleikin ræður ríkjum í sáldþrykki Jóns Reykdal, en krafturinn og flæðið í einþrykkj- um Valgerðar Hauksdóttur. Það er öllu meiri friður yfír innri salnum, en þar er einnig að fínna mörg athyglisverð verk. Hafdís Ólafsdóttir hefur náð góðum tökum á þeirri hrynjandi, sem hæfír mynd- efni hennar; það er einnig ryþmísk endurtekning í þeirri mynsturgerð, sem kemur út úr verkum Sigrid Valtingojer. Lísa K. Guðjónsdóttir hefur lagt mikla rækt við hina tæm fjallasýn, sem einkennir hennar myndir, og það er mikil kímni í verkum Sigrúnar Eldjárn og Grétu Mjallar Bjamadóttur, jafnólík og þau em við fyrstu sýn. Bragi Ásgeirsson er heiðursfélagi í íslenskri Grafík, og hann sýnir DAG BOK BREIÐHOLTSKIRKJA: Starf 10-12 ára barna (TTT) í dag kl. 16.30. Bænaguðs- þjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Fyrirbænum má koma til sóknarprests í viðtalstíma. KÁRSNESSÓKN: Samvera æskulýðsfélagsins í kvöld kl. 20-22 í safnaðarheimilinu Borgum. FELLA- og Hólakirkja: For- eldramorgunn miðvikudag kl. 10. HJALLAKIRKJA: Mömmu- morgnar á miðvikudögum frá kl. 10-12. KEFLAVÍKURKIRKJA: Foreldramorgnar kl. 10-12 og umræða um safnaðareflingu kl. 18-19.30 í Kirkjulundi á miðvikudögum. Kyrrðar- og bænastundir eru í kirkjunni á fímmtudögum kl. 17.30. LANDAKIRKJA, Vest- mannaeyjum: Fyrirlestur í umsjá sr. Braga Skúlasonar fyrir grunnskólakennara og starfsmenn grunnskóla um sorg barna í bókasafni Ham- arsskóla kl. 16-18.30. Kl. 20-22.30 mun sr. Bragi halda sama fyrirlestur í safnaðar- heimili fyrir fóstrur, starfs- fólk dagvistarstofnana og dagmæður. KFUM, KFUK, KSH: Sam- komur verða í Kristniboðs- salnum, Háaleitisbraut 58-60, kl. 20 hvert kvöld vikunnar frá þriðjudegi til sunnudags. hér tvö steinþrykk, sem hann hefur unnið á einfaldan en sterkan hátt út frá ljóðum Matthíasar Johannes- sen. Á ganginum er m.a. einnig að fínna verk eftir Guðbjörgu Ringsted, þar sem einföld ímyndin og hreinir litir ná vel saman, svo og hraunmyndir Tryggva Ámason- ar, þar sem listamaðurinn beitir nýstárlegri tækni til að ná fram mikilli snjóbirtu og mýkt mosans í vetrarhjúp. Á þessari sýningu er boðið upp á gott yfírlit yfír stöðu grafíklistar- innar á íslandi í dag, og þá grósku og fjölbreytni sem þar er að fínna. Ólíkir listamenn sýna fjölskrúðug verk með vinnuaðferðum, sem spanna allt frá erfiðustu stein- þrykkjum til viðkvæmustu ætingar og nýjustu tækni, og tekst alls stað- ar að leiða fram þá persónulega og ríkulegu myndsýn, sem hefur átt mestan þátt í að efla veg grafíklist- ar meðal landsmanna. Félagssýning íslenskrar Grafíkur í Norræna húsinu í Vatnsmýrinni stendur til sunnudagsins 20. mars og er rétt að hvetja listunnendur til að líta inn. Morgunblaðið 27. febrúar 1994 Þessi frétt færði okkur í raun ekki nein ný sannindi enda staðfesting á því sem við vissum fyrir. Morgunblaðið er þarna að vísa til könnunar breska dagblaðsins European á gæðum og áreiðanleika bíla. Honda lenti í efsta sæti en aðeins fjórir af hverjum hundrað bílum biluðu. Bílar næsta samkeppnisaðila biluðu fimmfalt meira. (HJ Vatnagörðum - Sími 689900 -klikkar ekki SIEMENS NÝ ÞVOTTAVÉL Á NÝJU VERÐI! • 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott, mislitan þvott, straufrítt og ull • Vinduhraði 500 - 800 sn./mín. • Tekur mest 4,5 kg • Sparnaðarhnappur (1/2) • Hagkvæmnihnappur (e) • Skolstöðvunarhnappur • Sérstakt ullarkerfi • íslenskir leiðarvísar Og verðið er ótrúlega gott. Siemens þvottavél á aðeins kr. 59.430 stgr. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur Skipavík Búðardalur Ásubúö ísafjörður Póllinn Hvammstangi: Skjanni Blönduós: Hjörleifur Júlíusson Sauðárkrókur Rafsjá Siglufiörður Torgið Akureyrí: Ljósgjafinn Húsavík: öryggi Þórshöfn: Norðurraf Neskaupstaður Rafalda eyðarfjörður lafvélavei o Cú Rafvélaverkst. Áma E. Egilsstaðir. Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Höfn í Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar Tréverk Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkinn Garður Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavík: Ljósboginn Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði Viljir þú endingu og gæði velur þú SIEMEIUS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.