Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 32

Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 Hvar hefur flug-- vallarstjórám verið? Athugasemdir vegna viðtals við Pétur Guðmundsson flug- vallarstjóra á Keflavíkurflugvelli í Morgunblaðinu 3. mars eftirLoga Úlfarsson Mikil voru vonbrigði mín er ég las viðtal við Pétur Guðmundsson flugvallarstjóra á Keflavíkurflug- velli í Mbl. 3. mars sl. Ástæðan er fyrst og fremst sú að í viðtal- inu gætir mikils misskilnings og flugvallarstjórinn lætur hafa eftir sér ýmislegt sem beinlínis er rangt eða mjög villandi. Eg hef undanfarin ár fylgst náið með framvindu mála á flugvellinum vegna starfa minna hjá Islenskum markaði hf., sem rekur verslun í flugstöðinni og hefur gert frá árinu 1970. Ég mun hér minnast á helstu atriðin í viðtalinu sem ég vil gera athugasemdir við. Pétur Guðmundsson segir að milli 700 og 800 þúsund farþegar fari ■ árlega um flugvöllinn og birtir auk þess línurit máli sínu til stuðnings. Samkvæmt tölum sem flugvallar- stjórinn gefur út mánaðarlega og dreifir, hafa farþegar ekki verið 700.000 síðan 1988, en aðeins árin 1987 og 1988 hafa þeir farið yfir þá tölu. Samkvæmt línuritinu yfir farþegaflutninga sem birtist með viðtalinu eru flögur fyrstu árin í samræmi við áður útgefnar tölur, en þá taka við tölur sem enginn hefur heyrt um né séð áður. Ef tölur . þær sem gefnar hafa verið út undan- farin sex ár eru ekki réttar, verður að gera ráð fyrir því að skýringar fáist fljótlega á því hvers vegna all- ir þeir sem íjalla um umferðina á flugvellinum hafa verið blekktir und- anfarin ár, bæði embættismenn og þeir sem reka viðskipti í flugstöð- inni. Málið er mjög alvarlegt gagn- vart þeim sem reka þar verslanir því mikið af talnaútreikningum þeirra miðast við sölu á hvern far- þega, auk þess sem t.d. Fríhöfnin sendir sínar tölur í alþjóðlegar töflur um þessi efni sem gefnar eru út um allan heim. Ef grunntölurnar eru rangar, þá eru allir þessir útreikn- ingar rangir. Flugvallarstjórinn segir frá því í viðtalinu að hann hafi nú leitað til Hagfræðistofnunar Háskólans til þess að fá skilgreind markmið m_eð markaðssetningu flugvallarins. Ég trúði vart eigin augum þegar ég sá þessi ummæli því hvert barn gæti sagt sér hvert markmiðið ætti að vera, þ.e.a.s. að auka umferð um flugvöllinn. Hann segist með þessu vera að taka ákveðið frumkvæði, en sannleikurinn er hins vegar sá að hann hefur svo lengi verið gagnrýnd- ur fyrir að gera ekki neitt í markaðs- málum að það var ekki veijandi leng- ur að hafast ekkert að. Enda segir hann einkennilegt að menn skyldu ekki hafa tekið þetta „frumkvæði" fyrr. Þá nefnir hann að „markmiðin“ hafi einnig vafist fyrir þeim sem hrópa hæst um lélega markaðsetn- ingu flugvallarins. Þar á hann vafa- laust við nokkra aðstandendur ís- lensks markaðar með Orra Vigfús- son í broddi fylkingar, sem hafa árum saman bent á nauðsyn þess að hafin verði öflug markaðssókn til þess að afla flugvellinum meiri flugumferðar. Það er misskilningur að við höfum gagnrýnt lélega mark- aðssetningu flugvallarins. Við höfum sagt að hún væri engin og tæplega getur það sem ekki er til verið lélegt. Það er hins vegar gleðilegt að nú hefur flugvallarstjórinn komið auga á leið til þess að leysa fjárhagsvanda flugvallarins. Hann hefur látið „fag- menn“ kanna þann möguleika að auka tekjur af verslunarrekstri í flugstöðinni um 200 milljónir með því að hafa þar eina stóra verslun í stað tveggja eins og nú er. Við hjá Islenskum markaði höfum nokkrum sinnum áður heyrt um þessar hugmyndir en þær ganga í aðalatriðum út á að Fríhöfnin fái til umráða húsnæði það sem íslenskur markaður hefur í dag og við það á salan í Fríhöfninni að aukast sem nemur sölu á fermetra í núverandi húsnæði hennar. Til þess að ná þess- um 200 milljónum til viðbótar verður að auka sölu í Flugstöðinni um 35-40% þannig að sala á hvern far- þega hækki um 18-20 USD, en heildarsala í FLE yrði þá u.þ.b. 75-77 USD á hvem farþega. Til samanburðar má geta þess að á Schiphol-flugvelli í Amsterdam er sala á farþega 27,55 USD, í Kaup- mannahöfn er hún 14,24 USD. Fáar flugvallarverslanir ná því að selja hveijum farþega fyrir meira en 50 USD. En af þeim sem tekst þetta eru flugvellirnir í Honolulu og Guam framarlega í flokki. Þetta yrði auk þess að gerast á sama tíma og farþegum á Keflavík- urflugvelli fækkar með hveiju árinu sem líður. Til viðbótar má nefna að Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli gerir aðallega út á innlenda farþega og selur fyrst og fremst erlendar vörur en Islenskur markaður selur mest innlendar vörur til erlendra ferða- manna. Almennt má segja að reikn- að er með því að erlendum ferða- mönnum muni íjölga á komandi árum og þess vegna sé innlendum hagsmunum betur borgið í höndum íslensks markaðar en vörueining seld þar skilar mun meiru í þjóðar- búið en vörur seldar í Fríhöfninni. Vegna þessa ættu umræddir fag- menn flugvallarstjórans, sem að hans sögn eru menn tengdir Ríkis- endurskoðun og fjármálaráðuneyti, að líta betur í kringum sig. Reikn- ingsaðferð þeirra hefði verið kölluð hundalógík í gamla daga en með henni væri hægt að rétta af fjárlaga- hallann með því að finna út sölu pr. fermetra í verslun ÁTVR i Kringl- unni og segja síðan að það borgaði sig að leggja Kringluna undir áfeng- isverslun -af því að salan myndi auk- ast svo mikið við það. Pétur segir einnig í viðtalinu að það sé regla annars staðar að ágóði af verslunarrekstri innan flugstöðva renni til viðkomandi flugvalla og beri uppi rekstur þeirra að verulegu leyti. Þetta er röng fullyrðing svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Hann ætti hins vegar að vita að rekstur flugvalla víðast hvar er borinn uppi af lendingargjöldum og tekjur af verslunarrekstri eru aðeins brot af tekjum flugvallanna. í rekstrar- reikningi Kaupmannahafnarflug- vallar fyrir árið 1991, sem ég hef undir höndum, kemur fram að tekjur af verslunar- og þjónustustarfsemi eru u.þ.b. 35% af heildartekjum flug- vallarins. Sambærileg tala fyrir FLE Logi Úlfarsson „Það er alveg klárt að þeir sem standa í rekstri hefja ekki markaðssókn með því að gefa sér fyrirfram að það hafi ekkert að segja.“ er 93%, en eins og kunnugt er renna 90% af lendingargjöldum flugvallar- ins til annarra verkefna en að reka Keflavíkurflugvöll. Til skýringar þeirri staðhæfingu að víðast hvar standi verslunarrekst- ur undir rekstri flugvalla segir í við- talinu að það hafi verið ástæðan fyrir því að Evrópubandalagið frest- aði því í sjö ár að leggja niður frí- hafnir á flugvöllum aðildarlandanna. Staðreyndin er hins vegar sú að at- vinnuvegurinn var svo stór og arð- vænlegur að ekki þótti veijandi að gera þetta á þeim tíma sem boðað var, enda var þrýstingurinn á emb- ættismenn EB svo mikill að fá dæmi eru um annað eins. Fyrir forsvars- mönnum EB vakti hins vegar sú staðreynd að við það að leggja niður tollfijálsa áfengis- og tóbakssölu í fríhöfnum flyttist stór hluti þeirrar sölu inn í löndin þannig að tekjur ríkjanna myndu frekar aukast en hitt. Á þeim flugvöllum sem ég þekki til er verslunarrekstur yfirleitt í höndum einkaaðila og í mörgum til- fellum reka einkaaðilar flugvellina einnig, en skemmst er að minnast þess að tiltölulega stutt er víðan flugvellinum í Kaupmannahöfn var breytt í hlutafélag sem ríkið ætlar að selja í áföngum á næstu árum. Nú mætti ætla miðað við mál- flutning flugvallarstjórans að að- staðan í FLE sé á svo góðu verði að óhætt sé að hækka leigu fyrir hana til þess að hún gæti skilað meiru til flugstöðvarinnar. Stað- reyndin er hins vegar sú að þetta er hæsta húsaleiga á íslandi og þótt víðar væri leitað og leigan í Kringl- unni t.d. er lág miðað við það sem leigjendur í FLE þurfa að greiða. Verð á aðstöðunni er frá 5.800 kr./m2 á mánuði og dæmi eru um að þeir sem leigja lítið pláss greiði allt að 14.000 kr./m2 á mánuði. Pétur segir í viðtalinu að það lendi enginn á Keflavíkurflugvelli nema hafa af því ákveðinn hag. Þetta er mikið rétt. Ef við berum þetta sam- an við samkeppni á innlendum mark- aði þá má segja með sömu rökum að það sé allra hagur að versla í Bónus því þar er sagt að verðið sé lægst og mest fáist fyrir þær fáu krónur sem fólk ber út býtum. Af hveiju eru þá allar þessar verslanir til, af hveiju Hagkaup, af hveiju Fjarðarkaup, af hveiju klukkubúð- imar? Líklega er það vegna þess að þær bjóða viðskiptavinum sínum eitthvað sem Bónus býður þeim ekki og ýmsir vilja greiða fyrir það sem þeir fá aukalega. Sama gildir fyrir Keflavíkurflugvöll. Þar mætti bjóða þjónustu sem aðrir bjóða ekki. Hvað með skipulagðar stuttar útsýnisferð- ir um nágrenni flugvallarins í sam- vinnu við ferðamálasamtök á Suður- nesjum, hvað með afslátt af lending- argjöldum miðað við ákveðin lág- marksviðskipti og betri greiðsluskil- mála, hvað með samvinnu við aðra flugvelli í Evrópu um pakkatilboð til flugfélaga, hvað með þetta og hvað með hitt? Möguleikarnir eru óteljandi. Það er alveg klárt að þeir sem standa í rekstri hefja ekki markaðs- sókn með því að gefa sér fyrirfram að það hafi ekkert að segja. Miðað við að sú röksemdafærsla gilti hlýtur það að hafa verið afar óheppilegt fyrir Pétur Guðmundsson að Canada 3000 flugfélagið ákvað að lenda hér átta sinnum í viku næsta sumar. Það var þá til aðili sem sá sér hag í því að lenda hér og til viðbótar nota þeir flugvélar sem eru frekar algeng- ar í dag. Af framansögðu má ljóst vera að ég get ekki annað en tekið undir með þeim sem vilja breyta flugvellin- um í hlutafélag og setja honum stjóm manna sem hafa þekkingu og reynslu í viðskiptalífínu. Menn verða að þekkja það sem þeir fjalla um, það er lágmarkskrafa. Höfundur er framkvæmdastjóri íslensks markaðar hf. Aftur sparkað í besta bandamannínn Að byrja friðun hafanna á því að skjóta sig í löppina eftir Magnús H. Skarphéðinsson Þótt ótrúlegt megi virðast hafa flest hagsmunarembingssamtök í sjávarútvegi á landinu með KR-stóð- ið (Kristján Ragnarssonar-liðið) í broddi fylkingar loksins orðið sam- mála um eitt einasta mál. Það var að sparka í langbesta bandamann íslensku fiskveiðiþjóðarinnar á al- þjóðavettvangi, nefnilega Grænfríð- unga. Sex helstu samtök í sjávarútvegi hafa lagt það til við íslensku ríkis- stjómina að hún beiti sér fyrir þvi á alþjóðavettvangi að Grænfriðung- um verði sparkað út úr Alþjóðasigl- ingamálastofnuninni vegna m.a. við- varana þeirra gegn heimsvalda- stefnu okkar í norsku smugunni svo- kölluðu. En þeir grænu hafa haft áheymarfulltrúa í IMO sl. þijú ár. Keyptu áróðursmyndasmið til að sparka líka Þetta em sömu hagsmunaremb- ingssamtökin og fjármagnað hafa hinn svokallaða kvikmyndagerðar- mann (?) Magnús Guðmundsson í gerð áróðursmynda gegn nánast öll- um samtökum á alþjóðavettvangi sem stuðlað viljað hafa að vemdun náttúrunnar og meiri mannúð í garð sumra sjávarspendýra en frumstæð- ari veiðiþjóðir hafa talið sig geta sýnt þessum óhamingjusömu dýrum. Hvalir borða ekki fisk. Á einhvem óskiljanlegan berserkjahátt hefur þessi staðreynd ekki náð eyrum þjóð- arinnar. Magn fiska sem ofan í hva- lina fer er óverulegt og ekki í neinu samræmi við hrakspár hagsmunaað- ila í sjávarútvegi um málið. Nú er mál að linni. Nánast einu og langöflugustu bandamenn ís- lensku fiskveiðiþjóðarinnar eru nátt- úruvemdarsinnar á borð við þá Grænfriðunga, Sea Shepherd, World Wildlife Fund, Friends of the Earth, Earth First og allan hinn aragrúa samtakanna sem beijast fyrir vernd- un náttúru móður jarðar og mannúð- legri framkomu okkar við hin dýrin. „Hvalir borða ekki fisk. A einhvern óskiljanleg- an berserkjahátt hefur þessi staðreynd ekki náð eyrum þjóðarinnar. Magn fiska sem ofan í hvalina fer er óverulegt og ekki í neinu sam- ræmi við hrakspár hagsmunaaðila í sjávar- útvegi um málið.“ Grænfriðungar langbestu bandamenn okkar Á tilverurétti árangurs náttúru- friðunar í höfnunum stendur íslenska veiðimannasamfélagið algerlega í dag, hvað sem síðar kann að verða. Því eru þessar barsmíðar ekki bara ódrengilegar af okkar hálfu, heldur fádæma óskýnsamlegar. Hvað ef Magnús H. Skarphéðinsson okkur yrði nú ágengt (sem litlur lík- ur eru á sem betur fer) í því að drepa þessi samtök? Hvað halda menn að tæki marga áratugi að eyðileggja fiskimiðin hér við land? Þeir væru ekki margir. Engir aðilar í veröldinni hafa bar- ist harðar gegn eiturefnalosun í sjó hvort sem það er við Dounray eða Shellafield eða annars staðar í Evr- ópu og víðar en þessir og aðrir fyrr- nefndir náttúruvinir. Og alls engir hafa barist harðar gegn upprætingu kjarnorkuvopna í höfunum en þessir sömu náttúruvinir og því sannkallað- ir bandamenn íslensks sjávarútvegs í flestum málum. Því ættum við loksins að sjá sóma okkar í að hætta þessum óþokkaskap okkar í garð þessara vina okkar og samheija sem ekki bara hafa bent okkur á að þyrma nú risum hafsins og öðrum sjávarspendýrum sem hafa tilfinningar á borð við okkur, heldur unnið daga og nætur eftir löglegum og hálfólöglegum leiðum í baráttu gegn eiturefnalosun í Atlantshafið, og unnið meira en nokkur annar aðili opinberlega — sem bak við tjöld- in, í að kjarnavopnafría heimshöfin svo bæði fiskimið og önnur heimknni sjávardýra spillist ekki meira en orð- ið er. Miklu síðar verður þorskinum og loðnunni þyrmt Auðvitað koma tímar og ráð og þá leggjum við þennan fiskveiðitort- úr niður eins og siðmenntaðar þjóðir munu gera. En þangað til að því stigi verður náð verðum við að sætta okkur við að myrða þorskinn, loðn- una, síldina og önnur dýr sjávar ís- lensku samfélagi til framfærslu. Og ef þeirri lífsbjörg verður kippt undaii okkur með mengun hafanna eða ofveiði fiskistofnanna áður en aðrir atvinnuvegir hafa tekið við þá verður voðinn vís. Engir standa bet- ur vörð um þau gæði náttúrunnar en grænfriðungar og kollegar þeirra í öðrum samtökum heims. 1 ljósi þess er svona sparktillaga okkur ekki aðeins til verulegs vansa, heldur lík því að byija friðun hafanna okk- ar á því að skjóta okkur í löppina fyrst. Hugum að því smástund lfka. Höfundur er meðlimur í Hvalavinafélagi fslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.