Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 Sinfóníutónleikar _________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Tónleikar Sinfóníuhljómsviet- ar íslands, sl. fimmtudag, voru markverðir fyrir tvennt, því flutt var nýtt íslenskt verk, ARK, eft- ir Ríkharð Örn Pálsson og Áshild- ur Haraldsdóttir flautuleikar lék einleik í konsert eftir Jacques Ibert. Þriðja verkið var svo Scheheerazade eftir Rimiskíj- Korsakov. Hljómsveitarstjóri var Oliver Gilmour. Tónleikarnir hófust á verki eftir Ríkharð Örn Pálsson, sem nefnist ARK og er endurunnið upp úr svítu, sem frumflutt var fyrir fjórum árum. Verkið er iétt og leikandi að gerð en hefði mátt vera betur flutt og var ekki betur séð en að hljómsveitarstjór- Katrín Sigurðardóttir sópran- söngkona og Jónas Ingimundar- son píanóleikari héldu ljóðatón- leika í Gerðubergi sl. laugardag. Tónleikarnir hófust á fjórum lög- um eftir Jórunni Viðar, fyrst með því klassíska lagi við kvæði Hall- dórs Laxness, Unglingurinn í skóginum. Næst komu þijú minna þekkt lög eftir Jórunni, Júnímorgunn, við kvæði Tómasar Guðmundssonar, Mamma ætlar að sofna eftir Davíð Stefánsson og Við Kínafljót, ort af Þorgeiri Sveinbjamarsyni. Túlkun Katrín- ar á lögum Jórunnar var mjög góð, sérstaklega í Mamma ætlar að sofna, bráðfallegu lagi, og Við Kínafljót, sem er fínglettið og elskulegt lag. Fjögur lög, Hjertets Melodier, sem Grieg samdi við ljóð eftir inn ætti á stundum erfítt með að slá taktskiptingarnar i lo- kakaflanum. Verkið skiptist í 1. Mars, einskonar tilbrigði um ís- lenskt þjóðlag, 2. vals, Móðir mín í kví,kví sem Öskubuska á hallar- dansleik, 3. Kertaför, hæggengt harmljóð í logni og 4. Fótafamb, þjóðlegur hrunadans með balk- anskri áferð. Nafngiftir kaflanna benda til þess að höfundur taki sig ekki alvarlega, enda er þetta helst ætlað til skemmtunar, sem léttur leikur og er það í raun en samt ágætlega unnið fyrir strengjasveit og slagverk, sér- staklega valsinn (nr.2), sem var allt of dauflega leikinn og hægi þátturinn (nr.3), en báðir eru lát- laus og fallega hljómandi tónlist. Flautukonsertinn eftir Ibert var frábærlega vel leikinn af Áshildi Haraldsdóttur en hljóm- H.C. Andersen, voru næst á efnisskránni en þeirra frægast er Jeg elsker-Dig og það' söng Katrín mjög fallega. Fimm söngvar, op. 37, eftir Sibelíus voru allir mjög vel fluttir en upp- hafslagið, Den första kyssen, var sérlega vel túlkað og í því síð- asta, sem er söngperlan Flicka kom ifrán sin elsklings möte, blómstraði rödd Katrínar. Þá söng Katrín fjögur ensk lög og það fyrsta, ljúft og einfalt lag, The Eyarly Morning, eftir Graham Peel (1877-1937), flutti Katrin af innileik. Peel nam tón- listarfræði í Oxford og samdi yfir 100 söngverk og mörg við kvæði eftir Housman. Þá komu þrjú lög eftir Sir Charles Hubert Hasting Parry sveitarstjórinn gætti þess ekki sem skyldi, að halda í við hljóm- styrk sveitarinnar. Bestur var leikur Áshildar í hæga þættinum en glæsilegastur í þeim þriðja, enda er sá þáttur sérlega skemmtilega saminn. Tónleikunum lauk með Scheh- eraze, eftir Rimskíj-Korsakov og var þetta glæsilega sýniverk í hljómsveitarrithætti á köflum vel leikið en fyrsti kaflinn var- ein- kennilega ástríðulaus, þar sem andstæðurnar, stef soldánsins, á að vera grimmt en fiðlustef Sche- herazde á að vera gætt fínlegum yndisleik. Þessar andstæður ramma inn kaflana en sögurnar eiga að vera með sterkum and- stæðum og sveiflandi hi-yn, til að afmarka ýmsa þætti atburða- rásarinnar. Að þessu Ieyti var stjórn Olivers Gilmours litlaus og (1848-1918), sem ásamt Stan- ford var lykilmaðurinn í endur- reisn tónmenntar meðal Eng- lendinga. Eftir hann liggja marg- vísleg tónverk en það eru helst kórverk hans sem oftast eru flutt nú til dags. Ekki eru þetta frum- legar tónsmíðar en gera að sumu leyti nokkrar kröfur til flytjenda. Tvö kveðjulög eftir Tosti, Go- od-bye og Chanson de l’Adieu, voru afburða vel sungin af Katr- ínu. Tónleikunum lauk með þremur léttum ítölskum söngv- um, eftir Donaudy og Buzzi- Peccia. Katrín Sigurðardóttir söng á þessum tónleikum af glæsibrag, bæði er varðar túlkun og músík- alska mótun, enda er Katrín vel kunnandi tónlistarkona og beitir sinni fallegu rödd af leikni, hvort sem um var að ræða veikan söng eða þar sem röddin mátti hljóma í fullum styrk. Jónas Ingimundarson var í fyrstu þrír kaflar Scheherazade án skáldlegra tilþrifa, sem er mikilvægt fyrir þetta tónaljóð. Besti kaflinn var sá síðasti en þar átti hljómsveitin oft skemmti- leg tilþrif, sérstakelga blásararn- ir. Mikið er um einsleiksstfófur hér og þar í verkinu en aðallega er það fiðlan (Guðný Guðmunds- dóttir konsermeistari) sem túlkar yndislega Scheherazade en hann vantaði í þessi leikrænt mikil- vægu stefbrot. Talkowsky átti nokkrar fallega leiknar sellóst- rófur, einnig fyrstu menn með tréblásturhljóðfærin og málm- blásarnir voru mjög góðir, sér- staklega í síðasta kaflanum, þar sem Korsakvo leikur sér skemmtilega með ýmis sniðug tilþrif á lúðrana. Fyrir slysni féll eftirfarandi umsögn niður en hefði átt að birt- ast í blaðinu sl. laugardag en þar var fjallað um tónleika Sinfónu- hljómsveitar íslands, sl. fímmtu- dag. Morgunblaðið biður lesendur blaðsins og hlutaðeigandi hér með afsökunar á þessari töf. Katrín Sigurðardóttir. sínu besta formi og lék t.d. mjög vel í Iögunum eftir Grieg og Si- belíus.' Strengja- kvartett Nýr strengjakvartett, Bernard- el-kvartettinn, hélt sína fyrstu tónleika á vegum Kammermúsik- klúbbsins í Bústaðakrikju, sl. sunnudag. Á efnisskránni voru strengjakvartettar eftir Borodin, Janacek og Schubert. í Bernardel- kvartettinum eru Zbigniew Dubik á 1. fiðlu, Gréta Guðnadóttir á 2. fiðlu, Guðmundur Kristmundsson á lágfiðlu og Guðrún Th. Sigurðar- dóttir á selló. Tónleikarnir hófust á strengja- kvartett nr. 2 eftir Borodin, sem hófst á fallegum sellóeinleik (Borodin lék á selló), sem Guðrún flutti sérlega fallega. Þá var ekki síður bragð af einleik hennar í næturljóðinu (3. þætti), sem er frægasti þáttur verksins. Best unna verkið var Strengja- kvartett nr. 1, eftir Janacek, en þar mátti heyra margvísleg tón- brigði mjög kunnáttusamlega út- færð, er gaf tónmáli þessa sér- stæða og að sumra áliti frumleg- asta tónskáldi okkar tíma, sann- færandi lit. Síðasta verkið var d-moll strengjakvartettinn, „Dauðinn og stúlkan“, eftir Schubert. Þetta ægifagra verk var svolítið órólega flutt, t.d. var fyrsti kaflinn einum of hraður, svo að „fraseringar" vildu renna saman og sömuleiðis tilbrigðin yfir „stef dauðans", þar sem dauðatregann vantaði. Tveir síðustu kaflarnir voru mjög vel leiknir. Dubik sýndi frábæran leik og samspil félaganna var einnig gott, enda allt ágætir hljóðfæraleikarar. Leikur Guðrúnar vakti nokkra at- hygli, bæði hvað snertir öiyggi og sérlega þó fyrir fallegan tón. Bern- ardel-kvartettinn fer vel af stað og verður fróðlegt að fylgjast með, vhersu fer um samvinnu fé- laganna en þarna er á ferðinni efniviður til að skapa góðan kvart- ett og sé tekið tillit itl mótun þeirra á kvartett Janacek hefur þegar náðst fram góð samvirkni í leik- mótun og túlkun. Lj óðatónleikar Stemmning á Sweeney Todd hjá Herranótt Blóð í hraðpósti „OKKUR finnst þetta ekkert svo ógeðslegt, húrnorinn er aðalatriðið. Jafnvel íhaldssö- mustu kennarar virðast skemmta sér á Sweeney Todd, þessum blóðugasta gamanleik allra tíma. Við áttum nú ekkert endilega von á góðu frá þeim sumum, Herranótt hefur oftast verið með afskaplega virðuleg verk. En leikritið stendur undir nafni, fyrir frumsýningu urð- um við uppiskroppa með blóð og þurftum að fá meira í hrað- pósti frá útlöndum. Veitti ekki af í morðóða rakarann." Magnús Ragnarsson formaður Herranætur og Ingólfur Bjarni Sigfússon eru ómyrkir í máli, enda ánægði'r með viðtökur enska gam- anleiksins Sweeney Todd, morð- óða rakarans við Hafnargötu. Þeir félagar og 48 áðrir nemendur Menntaskólans i Reykjavík settu rakarann á svið með leikstjóran- um Óskari Jónassyni og nemend- um af öðru ári Myndlista- og handíðaskóla íslands sem út- bjuggu leikmyndina. Davíð Þór Jónsson þýddi og staðfærði leik- gerð Christofers Bond frá 1969. Blóði drifna sögu Sweeney Todd má þó rekja miklu lengra aftur. Hún er talin byggjast á atburðum sem raunverulega áttu sér stað á rakarastofum; í Frakk- landi undir lok 18. aldar og ef til vill í Skotlandi hundrað árum áður. Sweeney var fyrst getið á prenti í bresku vikublaði 1846. Hann varð höfuðpaur vinsællar framhaldssögu og árið eftir var fyrsta leikgerð hennar frumsýnd. Síðan hefur rakarinn blóðþyrsti birst leikhúsgestum oft, einnig í söngleikjum og meira að segja ballett. En skopið var illa fjarri þar til í útgáfu Bonds. í meðförum hans varð hryllingssagan svört kómedía, eða rauð ef út í það er farið. Söngleikurinn um Sweeney hefur í vetur verið sýndur í Royal National Theatre i Lundúnum, en hingað hefur rakarinn ekki komið áður. Magnús kveðst ánægður að Herranótt hafí veðjað á leikrit, ólíkt flestum leikfélögum mennta- skólanna sem séu með söngleiki í vetur. Hann segir að blóðslettur og viðlíka tilþrif virðist ekki fara illa í áhorfendur, enda sé mest lagt upp úr spauginu. Kannski sé unga kynslóðin orðin ýmsu vön úr sjónvarpi og bíó. Svokallaðar splattermyndir virðist í tísku um þessar mundir. „En við sitjum ekki heima og horfum á svoleið- is,“ bætir Ingólfur við, „það er af og frá. Lundúnaþokan heillaði í Sweeney og skuggalegir atburð- ir eru þar settir í skemmtilegt ljós. Húmorinn höfðaði til okkar fyrst og síðast.“ Leikmynd nokkurra mynd- listarnema hefur að sögn félag- anna vakið athygli. Hún er há- reist og með vilja gerð eilítið ótraustleg - til að auka á spenn- una. Áhorfendur sjá inn í hús dómarans, bökugerðarkonunnar og rakarans, frá kjallara upp í ijáfur. Með einföldum breytingum verður vistarvera í húsinu að hæli, krá eða markaðstorgi. „Svo eru alls konar tæknibrellur," segir Ingólfur, „fólk hverfur úr rakara- stólnum niðrum rennu og hafnar í kjallaranum, við erum svolítið aum í leikfími daginn eftir sýn- ingu.“ Grimmileg iðja rakarans verður leigusala hans til framdráttar. Bökusölukonan frú Lovett fer loks að gera það gott og ekki orð um það meir. Hins vegar má að sögn Herranæturmanna gjarnan koma fram að í hléum sýningarinnar eru seldar bökur sem áhorfendur hafa þrátt fyrir allt verið sólgnir í. Fjórar sýningar eru eftir í Tjarnarbíói, í gjöktandi leikmynd við undirleik á gamla fótstigna orgelið úr Dómkirkjunni. Sýnt verður í kvöld og á fímmtudag klukkan 20 og á föstudag og laug- ardag klukkan 23. Þ.Þ. Ráðhús Reykjavíkur Verðlaun fyrir handrit Verðlaunaafhending vegna bestu handrita að stuttmyndum fór nýlega fram í Ráðhúsi Reykja- víkur. Borgarstjórinn í Reykjavík, Markús Örn Antonsson, afhenti tveimur verðlaunahöfum fyrstu og önnur verðlaun fyrir handrit. Fyrstu verðlaun hlaut Anna Th. Rögnvaldsdóttir og önnur verð- laun hlaut Dagur Kári Pétursson. Jafnframt hlaut Anna Th. Rögn- valdsdóttir framleiðslustyrk að upphæð krónur sjö hundrið þús- und til af hefja verkið. Fjöldi handrita barst inn í samkeppnina. Dómnefndina skipuðu: Formaður Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborg- ar, Þórunn Gestsdóttir, Kjartan Ragnarsson leikstjóri og Laufey Guðjónsdóttir fulltrúi hjá Sjónvarp- inu. Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborg- ar auglýsti samkeppnina í lok síð- asta árs. Markmiðið með framtakinu var að stuðla að gerð handrits fyrir stuttmynd og í framhaldi af verð- launaveitingu veita fé til stutt- myndagerðar eftir handritinu. Stuttmyndin á síðan að vera fram- lag Reykjavíkurborgar til Nordisk Forum, norrænu kvennaráðstefn- unnar, sem haldin verður í Turku í Finnlandi í ágúst í sumar. Á Nordisk Forum verður stuttmyndahátíð með- al dagskráratriða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.