Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
15
isskipulagi Þingvalla-, Grafnings-
og Grímsneshreppa. Þar er vissu-
lega um viðkvæmt svæði að ræða
og mikil vinna verið lögð í það á
undanfömum árum að ná sam-
stöðu um stefnu í skipulagsmálum
á svæðinu. Ymsar fullyrðingar
hafa heyrst um ráðstjóm, yfirgang
og annarleg sjónarmið. Samvinnu-
nefndin og ráðgjafar hafa verið
sökuð um óvísindaleg vinnubrögð.
Leggja eigi 5 ára vinnu til hliðar
og byija upp á nýtt.
Ég hef fylgst nokkuð með skipu-
lagsvinnunni og fullyrði að þar
hefur verið unnið af heilindum og
formaður og ráðgjafar lagt á sig
mikið og gott starf til að ná niður-
stöðu í helstu málum sem þar hafa
borið á góma. í samvinnunefndinni
eiga sæti sex fulltrúar sveitarfé-
laganna, sex frá Þingvallanefnd
og formaður skipaður af skipulags-
stjóm ríkisins. Nefndin réði sér
ráðgjafa sem hafa kynnt sér mjög
vel aðstæður á svæðinu og gert
tillögur í framhaldi af því. Sam-
vinnunefndin er að ljúka við gerð
tillögu sem auglýst verður og öllum
sem telja sig hagsmuna hafa að
gæta verður gefínn kostur á því
að gera athugasemdir. Fyrr en
niðurstaða samvinnunefndar ligg-
ur fyrir og farið hefur verið yfir
innsendar athugasemdir að auglýs-
ingu lokinni er ekki hægt að meta
hvert framhaldið verður.
Eins og tillagan lítur út í dag
er gert ráð fyrir að sumarbústöðum
verði fjölgað á tilteknum svæðum
í Grímsnesi og Grafningi. í Þing-
vallahreppi og Grafningshreppi er
ekki gert ráð fyrir fjölgun sum-
arbústaða innan vatnasviðs Þing-
vallavatns, nema þar sém þegar
hefur verið veitt leyfi eða lóðir
leigðar að fengnu samþykki
hreppsnefndar og skipulagsstjóm-
ar ríkisins.
Við Þingvallavatn hafa verið að
undanfömu stofnuð tvö hagsmuna-
félög þ.e. félag landeigenda og fé-
lag sumarbústaðaeigenda. Stofnun
þessara félaga ber að fagna og
raunar hefði þurft að stofna þau
fyrir löngu. Þessi félög þurfa að
kynna sér vel þá tillögu sem sam-
vinnunefndin sendir frá sér og gera
rökstuddar athugasemdir við tillög-
una ef ástæða verður til.
Ég vona að samstaða náist um
svæðisskipulagstillöguna og að gott
samráð verði um framkvæmd
skipulagsins milli sveitarstjóma,
landeigenda, sumarbústaðaeigenda
og annarra hagsmunaaðila.
Höfundur er skipulagsstjóri
ríkisins.
ar lendi í vandræðum með veðurat-
huganir og íslensk tunga sé jafn-
vel í hættu. Einhvern veginn hefur
tekist að gá til veðurs og gera
veðurspár í löndum Evrópu og
Ameríku þrátt fyrir sumartíma.
Einhvern veginn hafa tungumál
þjóða Evrópu og Ameríku líka haft
það af að hádegið hnikaðist til.
Með sumartímanum yrði íslenskan
reyndar auðugri vegna þess að inn
í málið kæmu alls kyns orð sem
lýstu hinni góðu sumarstemmn-
ingu sem myndaðist við ilminn af
blessuðu lambakjötinu á grillum
landsmanna.
Sumartímifyrir hinn
vinnandi íslending
Sumartíminn er hagsmunamál
hins vinnandi íslendings til sjávar
og sveita. Það má ekki láta klukku-
verði sem tregðast við að fylgjast
með tímanum og háskólaprófess-
ora sem ekki vilja láta raska ró
sinni koma í veg fyrir að sam-
skipti við helstu viðskiptaþjóðir
okkar verði auðveldari og að þjóð-
in fái notið góðviðrisdaganna á
sumrin sem þvi miður eru stundum
alltof fáir.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokk í
Norðurlandskjördæmi vestra og
framkvæmdastjóri Verskunarráðs
íslands.
Innfhitningur gældudýrafóðurs
Arlega keypt fyrir
70 milljónir króna
INNFLUTNINGUR á gæludýrafóðri hefur verið vaxandi á sein-
ustu árum og eru árlega flutt inn um 750-800 tonn til landsins.
áætlað er að meðalkaupverð á gæludýrafóðri erlendis á seinasta
ári hafi verið 90-100 kr. kílóið og skv. því sé keypt gæludýrafóð-
ur erlendis fyrir um það bil 70 milljónir króna á hveiju ári.
Þetta kemur fram í svari við-
skiptaráðherra við fyrirspurn Guð-
mundar Hallvarðssonar alþingis-
manns á Alþingi. í svarinu kemur
fram að áætlað er að árle’ga séu
flutt inn rúm 300 tonn af blautum
kattamat, 80 tonn af þurrum
kattamat, rúm 130 tonn af
blautum hundamat, 144 tonn af
þurrum hundamat og tæp 130
tonn af öðru gæludýrafóðri.
Innlend framleiðsla á gæludýra-
fóðri er sögð óveruleg en þó sé
þróunarvinna í gangi.
94029
Excel námskeið
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar
Grensásvsgi 16 • ® 68 80 90
Læknastofa
Hef opnað læknastpfu í Læknamiðstöðinni í
Mjódd, Álfabakka 12.
Símapantanir í síma 683300.
Guðjón Vilbergsson, Dr.Med.,
sérfræðingur í kvensjúkdómum
og fæðingarhjálp.
ÆVINTÝRALEGT ÁSKRIFTARTILBOÐ!
SAFNKIAPPA AD GJÖR
- og tryggðu þér vinsælasta mynda-
sögublað á íslandi á aðeins 225
krónur hvert blað - sent heim til þín.
ns 225 krónur
Ef þú tekur tilboðinu innan 10 daga
færðu vandaða safnmöppu fyrir blöðin
að verðgildi 720 krónur!
HRINGDU STRAX I DAG!
SÍMINN ER (91) 688 300
FVRIR ALLA - KRAKKA, K0NIIR 06 KALLA.
Síöumúla 6, 108 Reykjavík.