Morgunblaðið - 15.03.1994, Síða 25

Morgunblaðið - 15.03.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 25 / / ii FmmiKVOLD wm til 12 ommmm ■ 7 * 'i: * :• *v*- * , “'T*. •«*“ ílfrir .1 u.ti'y .y •*> *'ö 1V;-V^ÍC! BESTI AÐALLEIKARl BESTA HANDRIT BESTi LEIKARIIAUKAHL S7-Æ/fSr/\ BÍÓIÐ ALUR SALIR ERU FYRSTA FLOKKS HASKOLABIO HASKOIABIO SÍMI22140 Sumarvinna skólafólks eftir Einar G. Guðjónsson Það er oft talað um að íslending- ar séu vinnusamir og að fáar þjóðir vinni lengri vinnudag en við. Það hefur líka verið sérstaða á Islandi að skólaárið hér er miklu styttra en annarsstaðar og það hefur gefið skólafólki færi á að vinna við hin ýmsu störf úti í þjóðfélaginu. Þetta hefur veitt þeim innsýn inn í heim hinna fullorðnu, komið þeim í kynni við undirstöðuatvinnugreinamar og gert þau fjárhagslega sjálfstæðari en jafnaldrar þeirra í nágrannalönd- unum eru. Það em allir sammála um að það sé hollt fyrir unglinga að vinna. Það líta margir til baka til sumarvinn- unnar á skólaárunum og em ánægð- ir með að geta sagst hafa unnið hin ýmsu störf. Sumarvinnan býður til- breytingu og hvíld frá náminu og allir hafa mætt áhugasamari til náms að hausti. En nú þegar atvinnuástandið fer síversnandi í þjóðfélaginu og fjöld- inn allur af hæfu fólki fær ekki vinnu þá kemur það auðvitað einnig niður á sumarvinnunni. Hinn al- menni vinnumarkaður hefur tak- markaðan fjölda af störfum og ýmis fyrirtæki loka eða draga sam- an seglin yfir sumarmánuðina frek- ar en að ráða viðbótarfólk. Þetta gæti leitt til þess að stór hluti ungs fólks hafi ekkert fyrir stafni í þriggja mánaða sumarfríi. Það kem- ur einnig niður á heimilunum ef unglingarnir hafa engar tekjur. Síðasta sumar greip Reykjavík- urborg inn í og lagði fram fjármuni til að veita sem flestu skólafólki vinnu og var þar vel að verki stað- ið. En það er ekki nóg að skapa vinnuna, það verður líka að gæta að því að unga fólkinu sé kennt að vinna. Það verður að læra rétt vinnubrögð og það að leggja metnað sinn í að skila vel unnu verki. Nú á tímum er brýnt að styrkja sið- gæðisviðmið á borð við trúmennsku, áreiðanleika og heiðarleika. Það er ekki falleg sjón sem stund- um blasir við á sumrin þegar ýmsir af þeim sem eru ráðnir til að vinna liggja bara og sóla sig eða sitja uppi við vegg stóran hluta dagsins. Slæm vinnubrögð, leti og óstundvísi eru siðir sem ekki á að ala á, allra síst á kostnað skattgreiðenda. Það er stundum sagt sem afsökun að það sé ekki mikið kaup sem þessir ------♦ ♦ ♦------ Námskeið fyr- ir ungt fólk í atvinnuleit ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reylqavíkur og Hitt húsið bjóða ungu, atvinnulausu fólki á aldrin- um 16 til 25 ára upp á tvö þriggja vikna námskeið í Hinu húsinu því að kostnaðarlausu og hefjast nám- skeiðin í dag, þriðjudag. í fréttatilkynningu segir, að nám- skeiðin séu sniðin að þörfum og áhugamálum ungs fólks og vel til þess fallin að auka hæfni þess á vinnumarkaði. Boðið er upp á fastar námsgreinar í kjarna, s.s. íslensku, félagsfræði daglegs lífs, hagnýta stærðfræði, persónuleg viðskipti og einnig verða kynntar námsleiðir og atvinnulíf og félagsleg réttindi á vinnumarkaði. Auk fastra náms- greina í kjarna er boðið upp á valfög og tómstundahópa eftir áhugamálum hvers og eins, t.d. skyndihjálp, tölv- unám, listir og menningu í dag, textagerð, hljóðversvinnu, leiklist, Ijósmyndun, björgunarsveitastörf og hraðlestur. Fyrra námskeiðið verður 5. apríl til 22. apríl, en það síðara 25. apríl til 13. maí og fer kennsla fram á morgnana kl. 9-12 í kjamafögum en síðdegis í tómstundahópum. Inn- ritun fer fram í Hinu húsinu, Braut- arholti 20, dagana 17.-25. mars frá kl. 13-19. Umsóknum má skila í Hinu húsinu og á Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar fyrir 25. mars. krakkar fá, en á móti má segja að þau í upphafi ráða sig upp á þessi kjör og þeirra er ábyrgðin að skila þeirri vinnu sem þau ráða sig í. Nú þegar Reykjavíkurborg hyggst verja miklu fé til átaksverk- efna vegna atvinnuleysis mætti huga að því að ráða fólk af atvinnu- leysisskrá til verkstjórastarfa í sum- arvinnunni næsta sumar. Það hlýtur að vera hagur af því að nýta reynslu og þekkingu þeirra sem eru án vinnu og það er tími til að þjálfa og und- irbúa verðandi verkstjóra. Þeir sem eldri eru ætti betur að geta haft aðhald og raunverulega stjórnun með höndum og meiri þekkingu og reynslu til að kenna vinnubrögð og annað sem til þarf. Ekki er heldur verra fyrir unga fólkið að umgang- ast sér eldra fólk sem vinnufélaga. Það hafa margir foreldrar látið í ljós óánægju sína með litlar kröfur um vinnusemi og slæpingshátt sem stundum viðgengst í unglingavinn- unni. Með því að nýta reynslu og þekkingu þeirra sem eru án atvinnu væri örugglega hægt að auka fjöl- breytnina, bæta vinnubrögðin og um leið gera störfin ánægjulegri og meira mannbætandi. Höfundur er verslunarmaður í Hvitakoti. Einar G. Guðjónsson „Nú á tímum er brýnt að styrkja siðgæðis- viðmið á borð við trú- mennsku, áreiðanleika og heiðarleika.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.