Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
27
„Eg hef sennilega
bjargað lífi hans“
—segir spænskættuð ástkona er sveik forseta
breska herráðsins í hendur fjölmiðlum fyrir fé
London. Reuter.
ÆÐSTI hershöfðingi Bretlands, Sir Peter Harding, forseti herráðsins,
sagði af sér embætti á sunnudag vegna framhjáhalds. Upp komst um
hneykslið er dagblað birti myndir þar sem hann sást kyssa fyrrver-
andi eiginkonu íhaldsmannsins Sir Anthonys Bucks, fyrrum varnar-
málaráðherra og lagði Harding þá fram beiðni um lausn frá störfum.
Konan segir að líf þeirra beggja hafi verið í hættu vegna sambandsins
og hún ekki fundið betri úrræði en að ijóslra upp um það við fjölmiðla.
Umrædd kona, Bienvenida Buck, samband okkar“, sagði hún. „Ég
Nýtt tímarit er komið út
VONIN
Reuter
Sir Peter
Harding.
er 32 ára, spænsk að ætterni. Hers-
höfðinginn er sextugur að aldri,
kvæntur og á fjög-
ur börn. Blaðið
News of the World
skýrði frá framhjá-
haldinu í smáatrið-
um á sunnudag og
sjónvarpsstöðvar
birtu síðan myndir
sem sýndu Hard-
ing kveðja ungu
konuna mjög inni-
lega fyrir utan hót-
el í London. Að
sögn annarra dagblaða lauk tveggja
ára sambandi þeirra fyrir nokkrum
mánuðum en konan tældi Harding
til að hitta sig aftur á hóteli eftir
að News of the World hafði heitið
henni nær tveim milljónum króna
fyrir vikið. Starfsmenn blaðsins tóku
án vitundar Hardings myndir af end-
urfundunum.
Talsmaður Fijálslynda lýðræðis-
flokksins, Menzies Campbell, var
ómyrkur í máli. „Þegar moldviðrið
lægir mun fólk fara að velta því fyr-
ir sér hvers konar manneskja lafði
Buck sé, hún hafí þegið fé fyrir að
grafa undan manni sem hefur unnið
gott starf á opinberum vettvangi
fyrir Bretland", sagði Campbell.
Verkamannaflokkurinn hvatti á
hinn bóginn til þess að gerð yrði
opinber rannsókn til að kanna stað-
hæfingar lafði Buck sem segir Hard-
ing hafa skýrt sér frá ríkisleyndar-
málum. Strangar reglur gilda innan
hersins um framhjáhald og almennt
siðgæði yfirmanna enda mikilvægt
að þeim sé treystandi fyrir leynileg-
um þáttum öryggis- og vamarmála.
Dagblaðið Evening Standard hafði
eftir lafði Buck að uppljóstrun henn-
ar hefði sennilega bjargað lífi hennar
og ástmannsins. „Undanfama 18
mánuði hef ég lifað í ótta um að
rangir aðilar fengju vitneskju um
veit núna að það sem ég gerði var
rangt. Ég veit að þetta bindur enda
á frama hans — en það getur bjarg-
að lífi hans.“
Kvenprestar í biskupakirkjuna
SÉRA Susan Shipp brýtur brauðið í fyrstu guðsþjónustu sinni í Bristol.
Shipp og 31 önnur kona hlutu prestvígslu um helgina, fyrstar kvenna.
Gat séra Shipp ekki varist tárum við athöfnina.
Bonn. Rcutcr.
ÞÝSKI Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) fékk um 44% atkvæða og hrein-
an meirihluta i kosningum í sambandslandinu Neðra-Saxlandi á sunnu-
dag. Undanfarin ár hafa jafnaðarmenn stjórnað Neðra-Saxlandi ásamt
Græningjum en Manfred Schröder, forsætisráðherra Neðra-Saxlands,
segir að nú hyggist flokkurinn stjóma einn þrátt fyrir að Græningjar
hafi einnig bætt við sig fylgi í kosningunum. Kristilegi demókrataflokk-
urinn (CDU), flokkur Helmuts Kohls kanslara, fékk einungis um 36%
eða rúmum 5% minna en í síðustu kosningum. Fijálsi demókrataflokkur-
inn (FDP), samstarfsflokkur CDU í ríkisstjórn, fékk ekki þau 5% at-
kvæða, sem nauðsynleg era til að komast inn á þing sambandslandsins.
„Niðurstaðan gæti ekki verið skýr- Holtsetalandi og er talið að þar verði
ari. Samsteypuflokkamir í Bonn hafa
tapað rúmlega 10% og ég er sann-
færður um að þeir geti ekki lengur
náð meirihluta í næstu þingkosning-
um,“ sagði Gunther Verheugen, leið-
togi SPD á sambandsþinginu í Bonn.
Margir stjórnmálaskýrendur telja þó
enn of snemmt að afskrifa Kohl.
Alls verða nítján kosningar haldn-
ar í Þýskalandi á þessu ári, þar á
meðal þingkosningar í október.
Kosningarnar í Neðra-Saxlandi voru
þær fyrstu og vonast jafnaðarmenn
til að úrslitin þar muni hafa áhrif á
kosningar í öðrum landshlutum. Um
næstu helgi verður kosið í Slésvík-
róðurinn erfiðari fyrir SPD.
Þýskir fjölmiðlar vöruðu í gær
jafnaðarmenn við að vera of sigur-
vissa. Rita Sussmuth, forseti Sam-
bandsþingsins, viðurkenndi í gær að
óánægja með frammistöðu stjórnar
Kohls frá því Þýskaland sameinaðist
árið 1990 hefði átt sinn þátt í niður-
stöðunni.
Samkvæmt skoðanakönnunum er
stuðningur við SPD á landsvísu nú
um 39% en stuðningur við CDU um
33%. FDP og Græningjar eru með
um 8% hvor en PDS, fyrrum austur-
þýski kommúnistaflokkurinn, með
fimm prósent.
Stóru flokkamir tveir fá því um
72% atkvæða samkvæmt þessari
könnun en í kosningunum í Neðra-
Saxlandi fengu þeir um 80%. Er
þetta talið til marks um að þeir séu
að styrkja stöðu sína á kostnað
ýmissa óánægjuflokka jafnt til hægri
sem vinstri.
Margir stjórnmálaskýrendur telja
að enn sé of snemmt að segja til um
hvort að niðurstaðan í Neðra-Sax-
landi eigi eftir að endurspeglast í
þingkosningum. Svo virðist sem
efnahagslíf í Þýskalandi sé loks að
rétta úr kútnum eftir margra ára
erfiðleika og mun Kohl án efa nýta
sér það í kosningabaráttunni. Helsta
hættan fyrir samsteypustjórn hans
virðist vera slæmt gengi samstarfs-
flckksins FDP. Er búist við því að
Jiirgen Möllermann, helsti keppi-
nautur flokksformannsins Klaus
Kinkels utanríkisráðherra, muni
þrýsta á um að FDP lýsi því yfir að
flokkurinn hyggist taka upp sam-
starf við SPD að loknum kosningum.
Mynd af vatnaskrímsli reyndist fölsuð
Sögð gabb aldarinnar
London. Daily Telegraph.
KOMIÐ hefur í ljós að fræg
Ijósmynd sem sögð er hafa
náðst af skrímslinu sem talið
hefur verið halda sig í Loch
Ness vatninu í Skotlandi var
fölsuð. Er nú um það rætt að
hér hafi átt sér stað gabb aldar-
innar.
Á myndinni, sem sögð var tek-
in 19. apríl 1934, teygir skrímslið
hálsinn upp úr djúpum vatnsins.
í tæp 60 ár hefur hún verið talin
ósvikin og á grundvelli hennar
höfðu vísindamenn m.a. talið að
kynjaveran í Loch Ness væri kom-
in af svaneðlum.
Fullyrt er nú að myndin sé föls-
uð og skrímslið heimasmíðað.
Hafi hagleiksmaður sett sæorms-
höfuð á tréháls sem festur var
ofan á leikfangakafbát. Blýlóð
voru sett á bátinn til þess að fá
hann til að vera hæfilega djúpt
undir yfirborðinu. Alls var
„skrímslið" 30 sentimetra hátt og
50 sentimetra langt.
Fimm menn áttu aðild að gerð
ljósmyndarinnar og héldu uppá-
tækinu kyrfilega leyndu. Menn-
irnir létust einn af öðrum en er
sá síðasti þeirra lá banaleguna
sagði hann frá hvernig í pottinn
var búið. Upphafið var það að
blaðið Daily Mail sendi kvik-
myndagerðamanninn Marmaduke
LJÓSMYND sem Robert Wil-
son kvensjúkdómalæknir tók
af Loch Ness skrímslinu árið
1934 er talin fölsuð.
Wetherell í leiðangur til Loch
Ness í þeim tilgangi að fínna
skrímslið sem sögur höfðu verið
sagðar af. Ekki sá hann skrítnslið
en kvaðst hafa fundið „fótspor"
þess við vatnið í desember 1933.
Sérfræðingar breska náttúru-
minjasafnsins fundu út að sporið
hafði verið búið til með fæti af
flóðhesti. Fyrir vikið hæddu
breskir fjölmiðlar Wetherell og
ákvað hann að ná sér niðri á þeim
með gabbinu.
TILKYNNING!
Kæru viöskiptavinir um land allt!
Besta ráðiö til aö þiö finnið lægsta verðið á "original"
Hewlett-Packard prentdufti er aö gera verðsamanburð.
RRENTDUFT
ÁBETRA
— VERDI!
Þegar þig vantar "original" prentduft (toner) í
Hewlett-Packard prentarann þinn haföu
þá samband viö okkur. Viö komum
til móts viö þig í veröi og
þjónustu! Og meira en þaö:
Við kaupum af þér
gömlu prenthylkin!
Njóttu öryggis meö rekstrarvörum frá...
Tæknival
pósth. 352,
210 Gb.
Flytur kristilegar hugvekjur, fróðleik
og umfjöllun um spádóma Biblíunar
m.a. með tilliti til nútímans.
Áskriftarsími 91-651203.
Jafnaðarmenn vinna sigur í kosningum í Neðra-Saxlandi
Stóru flokkamir
styrlda stöðu sína
Lfttu við í verslun Nýberja f
Skaftahlíð 24 og gerðu góð kaup!
Vörutegund
Staðgreiðsluverd
AMBRA tölvur með SVGA/LR
MT 486 DX2-66 4/240 MB
MT 486 DX33 4/240 MB
Sprinta II 486 DX33 4/170 MB
Sprinta II 486 SX25 4/240 MÐ
Sprinta II486 SX25 4/130 MB
Colorado segulbönd
2.4 GB innra + SCSI tengispj.
4 GB innra + SCSI tengispj.
JUMBO DJ-250 MB innra
2-8 GB ytra 3200 SE
Tracker 80-250 MB Paral. Backup
Dlskar
130 MB Maxtor AT HDD
170 MB IDE Ambra
245 Maxtor AT HDD
345 MB Maxtor AT HDD
540 MB Maxtor AT HDD
540 MB Maxtor SCSI HDD
1050 MB SCSI 3,5*
Skannar og fleira
Image Grabber spjald (PC-Video)
Handskanni 256 Gr+Prolmage
Handskanni Uta+hugb. Win&DOS
VGA/PAL Video Expert + drivers
Hljóðkort og fielra
Gravis Analog Joystick
Gravis Analog Pro
Ultrasound hljóðkort
MIDI tengikassi fyrir Uttrasound
PC GamePad
Mlnni
1 MB SIMM 70 ns
2-14 MB minnisspj.f. 855X
4-16 MB minnisspj. f. 70 og 80
4 MB minni f. Sprinta II
4 MB SIMM 70 ns
Modem
Bitfax f. Win 2.05 hugb.
Modem/FAX Hidem 2442P
Zoom Modem/FAX PKT m/hugb.
Mýs
Mús fyrir PS/2
Trackball fyrir PS/2
Hugbunaður
Espolfn ættfræðiforrit
Lotus Ami Pro bók
Lotus Organizer 1.1
Lotus Smartsuite 2.0 Uppfærsla
Lotus Ami Pro uppfærsia í V 3.1
Lotus Improv V 2.0
Stacker V 2.0
Stacker V 1.0 f. Macintosh
OS/2 2.1 f. Win 3.1 UK
OSÆ 2.1 UK
PC DOS 6.1 UK
PC DOS 6.1 UK Uppfærsla
OS/2 Com.cations Man. V 1.1
OS/2 TCP/IP 2.0 Base Kit
OS/2 TCP/IP 2.0 Total Kit
OS/2 C Set++ V 2.1
OS/2 C Set++ First Step V 2.1
OS/2 C/C Set++ First Step Tools
OS/2 SOMobjects Devel. Toolkit
OS/2 DB 2/2 V1 Single User
OS/2 DB 2/2 V1 Client Server
OS12 DDCS/2 1.0
Tengispjöld og tengibúnaður
Bracket fyrir 3.5" diska
Paralell port, einfalt
SCSI fast PC/AT Tengispj. KIT
SCSI VESA Local Bus T.spj. Kit
Transceiver AUI-UTP
Netspjöld
Ether kort BNC+RJ45
Ether kort RJ45
Ether kort Compo 32 B
Ether Combo 16 B
Token Ring AT
Ether Combo 16 B-AT
Ether 10 BT 16 B-MC
Geisladrif
CD-ROM Mitsumi Innra HH.AT
199.900
164.900
144.900
126.900
112.900
124.005
195.074
26.800
172.620
46.379
23.500
27.300
31.500
39.000
89.800
89.900
124.434
36.950
17.620
39.140
29.110
3.700
4.620
16.650
4.960
2.420
4.930
27.700
36.760
19.594
22.954
4.900
17.900
16.900
4.900
11.769
7.600
7.900
16.387
63.971
15.080
17.900
2.190
9.423
6.528
19.132
15.772
5.417
39.869
20.216
63.390
55.902
12.563
12.193
31.105
27.896
179.707
46.836
1.104
2.100
29.900
34.800
13.500
13.800
10.950
34.982
11.694
39.165
18.202
31.577
24.900
NÝHERJI
SKAFTAHLlO 24 - SlMl 69 77 00
Alltaf skrefi á unilan
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
+ heimsending þér að kostnaöarlausu!
Wterkurog
k-J hagkvæmur
auglýsingamióill!