Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 29
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
plurgíMKnlbtóil
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Arvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. I lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Ný forysta í
borgarstjórn
Markús Öm Antonsson, borgarstjórí, ákveður að draga sig í hlé
Nýtt útspil gæti
gert gæfumuninn
MARKUS Orn Antonsson borgarstjóri segir að það hafi valdið sér niikl-
um vonbrigðum að skoðanakannanir að loknu prófkjöri sjálfstæðismanna
fyrir borgarsljórnarkosningar hafi ítrekað bent til þess að Sjálfstæðis-
flokkurinn eigi undir högg að sækja í höfuðborginni. Hann hafi því eft,-
ir vandlega ihugun ákveðið að draga sig í hlé og gefa ekki kost á sér í
framvarðasveit flokksins við kosningarnar í maí. Hann telur að nýtt út-
spil geti gert gæfumuninn og væntir þess að samhentur frambjóðendahóp-
ur undir nýrri forystu geti snúið vörn í sókn og stuðlað að sigri Sjálfstæð-
isflokksins. Þetta kemur fram í bréfi sem Markús Örn sendi kjörnefnd
Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna í vor og hann
greindi frá á blaðamannafundi á Hótel Borg í gær. Markús Örn efndi
til hans ásamt Arna Sigfússyni borgarfulltrúa sem borgarsljórnarflokkur
Sjálfstæðisflokksins samþykkti einróma, eftir tiliögu Markúsar, að yrði
oddviti borgarsljórnarflokksins og nýtt borgarstjóraefni hans á fundi í
gærmorgun. Árni tekur við borgarstjóraembættinu á fundi borgarstjórn-
ar nk. fimmtudag og kjörnefnd kynnir endanlegan framboðslista á full-
trúaráðsfundi í kvöld.
Sú ákvörðun Markúsar Arnar
Antonssonar, borgarstjóra,
að láta af því embætti og draga
sig í hlé sem forystumaður
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur, hefur komið borg-
arbúum og raunar landsmönn-
um öllum í opna skjöldu. Fyrir
nokkrum vikum hlaut Markús
Örn Antonsson afdráttarlausan
stuðning þátttakenda í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík
til þess að leiða Sjálfstæðis-
flokkinn í borgarstjórnarkosn-
ingunum í vor. Sú traustsyfir-
lýsing var .ekki sízt mikilvæg
vegna þess, að Markús Örn
átti ekki sæti í borgarstjórnar-
flokknum, þegar hann var val-
inn til þess að taka við borgar-
stjóraembætti af Davíð Odds-
syni sumarið 1991. Hann átti
hins vegar að baki langt og
farsælt starf fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á vettvangi borgar-
stjómar.
Staða Sjálfstæðisflokksins í
skoðanakönnunum vegna kosn-
ir.ganna í vor hefur hins vegar
valdið sjálfstæðismönnum veru-
legum áhyggjum. Sérstaklega
þó, að vel heppnað prófkjör virt-
ist engu breyta um fylgi flokks-
ins í höfuðborginni. Fráfarandi
borgarstjóri komst að þeirri nið-
urstöðu, að hann gæti bezt
þjónað hagsmunum flokks síns
og borgarbúa með því að reyna
að ijúfa þessa kyrrstöðu í fylgi
sjálfstæðismanna með óvænt-
um leik. Það á eftir að koma í
ljós, hvernig til tekst. Hitt fer
ekki á milli mála, að Markús
Örn Antonsson hefur af óeigin-
girni stigið það skref, sem hann
hefur talið bæði skynsamlegt
og nauðsynlegt í því skyni.
Markús Örn hefur reynzt
farsæll borgarstjóri. Störf hans
hafa einkennzt af þeirri hóf-
semi, sem hæfir krepputímum.
Þegar hann tók við forystu
borgarstjómarflokks sjálfstæð-
ismanna voru þar til staðar viss
vandamál, sem upp komu vegna
vals á eftirmanni Davíðs Odds-
sonar. Markúsi Erni hefur tek-
izt að halda þannig á málum,
að hann skilar sameinuðum og
samhentum flokki til eftir-
manns síns. Samstaða er for-
senda þess, að Sjálfstæðis-
flokknum vegni vel í kosning-
unum í vor.
Árni Sigfússon, sem tekur
við starfi borgarstjóra nk.
fimmtudag, er ungur maður,
sem á að baki umtalsvert starf
bæði í borgarstjórn og innan
Sjálfstæðisflokksins. Hann
hlaut einnig afgerandi stuðning
í prófkjöri sjálfstæðismanna
fyrir nokkrum vikum. Þau úr-
slit leiddu til þess, að hann er
óumdeildur eftirmaður Markús-
ar Arnar við þær aðstæður, sem
nú skapast. Hinn nýi borgar-
stjóri á erfitt verkefni fyrir
höndum að leiða Sjálfstæðis-
flokkinn í komandi kosningum.
Staða Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn er erfið, fyrst og
fremst vegna þess, að ílokkur-
inn hefur axlað þá ábyrgð, sem
fylgir forystu í landsmálum á
einhveijum mestu krepputím-
um, sem yfir þjóðina hafa geng-
ið á þessari öld. Reynslan sýn-
ir, að þegar Sjálfstæðisflokkur-
inn er í forystu landsstjórnar á
erfiðum tímum á flokkurinn
undir högg að sækja í sveitar-
stjórnakosningum. Þess vegna
eiga Árni Sigfússon og félagar
hans á brattann að sækja næstu
vikur og mánuði.' Þess eru hins
vegar fjölmörg dæmi úr stjórn-
málasögu samtímans, að flokk-
ar, sem standa illa í skoðana-
könnunum geta snúið þeirri
stöðu við og ekki síður, að
flokkar, sem standa með pálm-
ann í höndunum í skoðanakönn-
unum geta tapað því fylgi á
ótrúlega skömmum tíma.
Vissulega skiptir máli, hveij-
ir eru í forystu Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórnarkosn-
ingum. En mestu máli skiptir
þó, hver stefna flokksins er og
hvernig henni er fylgt eftir.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
alltaf haft styrk af vinsælum
borgarstjórum í Reykjavík en
kosningar vinnast þó fyrst og
fremst vegna málefna. Sjálf-
stæðisflokkurinn í Reykjavík
hefur alltaf fylgt víðsýnni og
fijálslyndri framfarastefnu í
málefnum höfuðborgarinnar.
Flokkurinn hefur verið í forystu
fyrir þeirri gífurlegu uppbygg-
ingu, sem orðið hefur í Reykja-
vík á nokkrum áratugum. En
þótt framkvæmdir hafi verið
miklar er uppbygging félags-
legrar þjónustu í Reykjavík
undir forystu sjálfstæðismanna
á undanförnum áratugum þó
ekki síður mikilvæg. Fullyrða
má, að enginn stjórnmálaflokk-
ur hefur staðið að uppbyggingu
jafn víðtækrar félagslegrar
þjónustu og Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur haft forystu um í
Reykjavík.
Fyrstu yfirlýsingar hins nýja
forystumanns sjálfstæðis-
manna í Reykjavík benda til
þess að hann muni halda hátt
á lofti þeirri merku hefð, sem
orðið hefur til í þeim efnum
undir forystu fyrirrennara hans
í borgarstjóraembætti. Það ætti
að vera honum gott veganesti
í þeirri erfiðu baráttu, sem
framundan er.
Markús Örn gekk á fund Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins, á
fimmtudag í síðustu viku og greindi
honum frá ákvörðun sinni. Á laugar-
dag hitti hann Áma Sigfússon og
kallaði síðan borgarstjómarflokkinn
saman til fundar kl. 8 í gærmorgun
og gerði tiilögu um Árna sem eftir-
mann sinn.
í bréfi Markúsar til kjörnefndar
segir hann að hann geti ekki hugsað
sér að persónulegir hagsmunir sínir
eða metnaður standi í vegi þess að
kjörnefnd nái að stilla upp eins sigur-
stranglegum lista og verða kann.
Hagsmunir höfuðborgarinnar séu í
húfi og allt annað verði að víkja þeg-
ar sú hætta vofir yfir að stjórn borgar-
innar falli í skaut 5-6 flokka og
flokksbrota á vinstri væng og dagleg
hrossakaup þessara afla um stjórn
borgarinnar verði henni til stórskaða.
„Síst af öllu vil ég sitja sem fastast
og koma í veg fyrir breytingu sem
full ástæða er til að ætla að geti nýst
flokknum vel við þau erfiðu skilyrði
sem nú er við að etja,“ segir í bréfínu.
Þakklátur fyrir stuðning
Árni Sigfússon sagði á fundinum í
gær að ákvörðun Markúsar hefði kom-
ið sér mjög á óvart, sérstaklega vegna
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Lýsir miklum
veikleika
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
þingmaður Kvennalistans, lýsti yfir
í gær að hún hefði ákveðið að taka
8. sætið á sameiginlegum fram-
boðslista minnihlutaflokkanna og
verða borgarstjóraefni listans.
Ingibjörg Sólrún segir að þeir at-
burðir þegar Markús Örn Antons-
son segir af sér borgarstjóraemb-
ætti og víkur úr fyrsta sæti fram-
boðslista sjálfstæðismanna fyrir
Árna Sigfússyni svo skömmu fyrir
kosningar lýsi miklum veikleika hjá
Sjálfstæðisflokknum.
„Ég var, eins og margir aðrir,
búin að heyra að það væri einhver
draugagangur í Sjálfstæðisflokknum
og að þessar vangaveltur hefðu verið
uppi, en það hvarflaði ekki að mér
að þeim fyndist svo að sér þrengt að
þeir myndu stíga svona örvæntingar-
fullt skref,“ segir hún. Ingibjörg Sól-
rún benti á að Markús hefði fengið
um 70% stuðning í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna og hann hafi æ síðan sagt
að hann ætlaði sér að leiða flokkinn
í gegnum kosningamar.
Hún sagði ennfremur að sjálfstæð-
ismenn hefðu greinilega litið svo á,
vegna stöðu flokksins í skoðanakönn-
unum, að þeir hefðu engu að tapa og
allt að vinna og talið að þeir væru í
rauninni búnir að tapa borginni. „Mér,
finnst þetta mjög sérstakt, örvænting-
arfullt útspil hjá þessum risa sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið og
þess að mikil samstaða hefði verið í
borgarstjórnarmeirihlutanum um
störf hans. Hann sagði að sér þætti
vænt um að Markús hefði hvatt sig
til að taka ótrauður við því verkefni
að takast á við fimm ólíka stjórnmála-
flokka sem hyggjast bjóða fram sam-
eiginlega. Hann sagðist jafnframt
vera þakklátur þeim eindregna stuðn-
ingi sem borgarstjórnarflokkurinn
veiti sér nú til forystu.
Markús sagðist engan veginn geta
litið svo á að sér hefði mistekist. Hins
vegar hafi hann litið svo á þegar hann
tók við embættinu árið 1991 við mjög
sérstæðar kringumstæður að þá yrði
hann að vera reiðubúinn að endur-
skoða þá stöðu sína og gefa færi á
eðlilegri endurnýjun. „Ég er með elstu
borgarstjórum af sjálfstæðismönnum
að vera. Það er ein ástæða fyrir því
að ég tók þessi mál upp til skoðunar
með þessum hætti. Það er síður en
svo að ég telji að þessum tíma hafi
verið illa varið eða hann stráður ein-
hveijum mistökum," sagði hann.
Markús Örn sagði að ákveðnir hlut-
ir.lægju að baki í skoðanakönnunum
og þegar niðurstöður væru grandskoð-
aðar með tiiliti til fylgis flokksins
meðal einstakra aldurshópa og ann-
arra slíkra hluta hefði hann metið að
yngri maður ætti auðveldara að skír-
er hann þá greinilega kominn á mikl-
ar brauðfætur," sagði hún.
Ingibjörg Sólrún sagðist telja að
Markús Örn tæki þessa ákvörðun úr
mjög þröngri stöðu. „Það sem veldur
því kannski öðru fremur er að hann
hlýtur að hafa upplifað að hann hefði
ekki þann stuðning meðal borgarfull-
trúanna eða forystu flokksins, sem
þyrfti til að geta verið afgerandi for-
ystumaður í þessum kosningum. Menn
eru ekki forystumenn bara í tómarúmi
heldur vegna þess að þeir hafa þann
stuðning sem til þarf og hann fékk
hann svo sem í prófkjörinu en það
virðist hafa vantað upp á að fiokkur-
inn bakkaði hann nógu vel upp,“ sagði
hún.
Ingibjörg Sólrún sagði ómögulegt
að segja um hvort svona andlitslyft-
ing breytti einhveiju um möguleika
Sjálfstæðisflokksins í kosningunum.
„Árni kemst ekki fram hjá því að
hann hefur verið einn af forystu-
mönnum borgarstjórnarflokksins
þetta kjörtímabil og borgarfulltrúi í
átta ár. Hann getur ekki komið og
látið eins og hann beri enga ábyrgð
á borgarstjórnarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins," segir hún.
Hallarbylting
Ingibjörg Sólrún sagðist hafa ætlað
að tilkynna ákvörðun sína um að hún
tæki að sér að verða borgarstjóraefni
framboðslista minnihlutaflokkanna
næstkomandi laugardag, þegar end-
anlegur listi og málefnasamningur
verður kynntur. „En mér fannst að
vegna þess að þarna væru að gerast
stórpólitísk tíðindi þá væri rétt að láta
allt gerast í einu og fyrst maður væri
valdur að hallarbyltingum í Sjálfstæð-
isflokknum, þá yrði fólk að fá að vita
hvort maður ætlaði að vera með eða
ekki,“ sagði hún.
skota til málefna sem yngri kjósendur
létu sig meira varða, sérstaklega þeir
sem væru að kjósa í fyrsta skipti.
Aðspurður hvort ekki mætti líta svo
á að Markús væri að taka á sig minnk-
andi fylgi við Sjálfstæðisflokkinn og
hvort ekki væri einhver sök hjá þeim
sem sætu eftir sagði Markús Örn að
vafalaust væru margar ástæður fyrir
því að flokkurinn fengi þessa útkomu
í skoðanakönnunum. Það gæti enginn
einn maður axlað byrðar af þeim nið-
urstöðum og tekið það allt á sig. „Ég
geri það heldur ekki þannig. Eg met
það bara kalt og yfirvegað að í þess-
ari stöðu telji ég að hægt sé að nýta
þá möguleika sem skapast með því
að breyta um í forystunni," sagði
Markús Örn.
Framtíðin óráðin
Markús Öm sagði algjörlega óráðið
hvað við tæki hjá sér. Hann sagði að
ýmsir kjörnefndarmanna sem hann
hefði rætt við um ákvörðun sína hefðu
nefnt við hann hvort hann vildi taka
heiðurssæti á listanum og hann gerði
ráð fyrir að hann myndi þiggja það
boð. Hann ætlaði að starfa að undir-
búningi kosninganna eftir því sem best
hann gæti og til hans yrði leitað en
varðandi framtíðarstörf væri allt óráð-
ið. Hann sagðist hafa tekið sér margt
fyrir hendur í lífinu og þar hefðu fjölm-
iðlun og kynningarstörf borið einna
hæst. Hann sagðist fastlega búast við
að hann myndi helga sig störfum af
þvílíku tagi. Hann sagðist eiga inni
sumarfrí og myndi taka sér sinn um-
hugsunartíma. Markús svaraði því
neitandi þegar hann var spurður hvort
staða útvarpsstjóra eða starf á Ríkisút-
varpinu hefði borið á góma í umræðu
um hans framtíðarstörf.
Atvinnu- og fjölskyldumál sett
á oddinn
ÁrniSigfússon segist líta svo á að
með því að styðja sig til forystu í
borgarstjórnarflokknum sé flokkurinn
um leið að gera málin sem hann hefur
Kristín Á. Ólafsdóttir
• •
Orvæntingar-
aðgerð
KRISTÍN Á. Ólafsdóttir borgarfull-
trúi á ekki von á að þessar breyt-
ingar á lista sjálfstæðismanna verði
til þess að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi meirihluta sínum.
„Þetta er örvæntingaraðgerð og í
sjálfu sér hlýtur þetta að vera eins og
köld gusa framan í flokksfólk sjálf-
stæðismanna, sem hélt að það væri
að stýra málum listans í prófkjöri. Mér
finnst mjög lítið gert úr mati flokks-
fólksins. Ef ég væri sjálfstæðismaður
yrði ég dálítið ergileg fyrir að hafa í
upphafi kjörtímabils borgarstjóra sem
ég hefði talið að yrði út kjörtímabilið,
síðan gerðist það að sá borgarstjóri
hverfur og leiðir sjálfur annan til sæt-
is, án þess að flokksfólk sé spurt, og
nú kemur sá sem flokksmenn völdu
og leiðir annan til sætis án þess að
spyrja flokksfólkið," sagði Kristín.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Tekur hags-
muni flokksins
fram yfir eigin
„ÞETTA er ákvörðun Markúsar
Arnar og greinilegt að hann tekur
hagsmuni flokksins fram yfir eig-
in,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
29
Frá fundi Markúsar Arnar Antonssonar og Árna Sigfússonar með fréttamönnum á Hótel Borg í gær.
fbarist fyrir að sínum. Málin, sem hann
muni nú nota tækifærið til að leggja
aukna áherslu á, séu atvinnu- og flöl-
skyldumál. Hann segir mjög brýnt að
fjölga vel launuðum störfum og út-
rýma atvinnuleysi. Lykillinn að því sé
samstaða launþega og atvinnurek-
enda. Þá segir hann mikilvægt að
taka höndum saman við að byggja
upp umhverfi fjölskyldunnar sem verði
meira fræðandi, öruggara og
skemmtiiegra heldur en nú er.
Árni segir mikilvægt að byggja á
reynslu sjálfstæðismanna í eflingu at-
vinnulífs þótt það sé þess eðlis að það
eigi ekki að fara eftir stjórnmálaflokk-
um hver áherslan sé. Hann segir mikil-
vægt að ná sterkri samstöðu á meðal
fulltrúa vinnuveitenda og launaþega
ásamt Reykjavíkurborg og læra af
mistökum annarra þjóða sem ekki hafi
gert nóg af því að skapa samstöðu
meðal aðila vinnumarkaðarins. Hann
segist sannfærður um að hægt sé að
ná upp verulegum styrk og stuðla að
betur launuðum störfum og útrýma
atvinnuleysi. Hann segir að sem betur
fer hafi Markús Om Antonsson fráfar-
andi borgarstjóri unnið þannig að þess-
um málum að auðvelt sé að taka við.
Það sé vissulega mikils vert því engan
tírna megi missa.
Árni segir að fjölskyldumálin séu
þau áhersluefni sem menn þekki sig
betur af en önnur. Hann segir menn
þekkja hugmyndir sínar um átakið við
einsetinn skóla, að byggja upp mynd-
arlega grunnmenntun og ganga fram
í að útrýma biðlistum á leikskólum.
Hann segir að sjálfstæðismenn hafi
lagt fjáirnagn í það en ekki sé nóg
að gert, það þurfi að útrýma biðlistum
með því að útvega næg pláss.
Ekki skilyrði til einkavæðingar
Árni segir að ekki séu aðstæður í
þjóðfélaginu nú til að ræða um einka-
væðingu borgarfyrirtækja. „Ég sé
ekki rökin fyrir því, né hvernig við
ætlum að breyta þjónustufyrirtækjum
borgarinnar, sem hafa enga sam-
keppni, yfir í einkafyrirtæki."
Árni segist hafa litla trú á sam-
stöðu þeirra flokka sem hyggjast
bjóða fram saman í borgarstjórnar-
kosningunum í vor og það hljóti að
vera umhugsunarefni hvernig þeir
ætli að starfa saman. „Það er svo að
í landsmálum er áherslan að færast
yfir til sveitarfélaga; heiibrigðismál,
skólamál, jafnvel lögreglumál. í lands-
málum standa framsóknarmenn og
alþýðuflokksmenn og hnakkrífast,"
sagði Árni. Hann hefur ekki trú á að
það verði öðru vísi í borgarinni.
Á blaðamannafundi á Hótel Borg í
gær voru Markús Örn og Árni Sigfús-
son spurðir hvort þeir neituðu því að
glundroði og sundrung hefði verið und-
anfari þess sem nú væri að gerast og
hvort það mætti ekki rekja til þess að
uppgjör þetta hefði ekki farið fram
þegar Davíð Oddsson hætti sem borg-
arstjóri. Árni Sigfússon varð fyrir svör-
um og sagði hann að það væri engin
launung að þegar Markús Örn var
beðinn um að taka að sér embætti
borgarstjóra hefði það verið gert vegna
þess að ekki náðist samstaða um eftir-
mann Davíðs innan borgarstjómar-
flokksins. Nú væri hins vegar langt
um liðið og borgarfulltrúar flokksins
hefði starfað mjög samhentir síðan.
Aðspurður um hvort tilgangurinn
með mannaskiptunum geti ekki snúist
upp í andhverfu sína og orðið Sjálf-
stæðisflokknum í borgarstjórn til
tjóns, viðurkenndi Árni að hann hefði
velt því fyrir sér. Hann sagðist einfald-
lega vona að svo yrði ekki og sagðist
tilbúinn að leggja sitt af mörkum til
að færa sjálfstæðismönnum sigur.
Árni Sigfússon fæddist 1956 í Vest-
mannaeyjum, næstelstur sex systkina.
Hann lauk stúdentsprófí frá MH 1977,
kennaraprófí frá KHÍ 1981 og mast-
ersprófi í opinberri stjómsýslu frá
University of Tennessee 1986. Árni
var deildarstjóri fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar 1986-1988 og fram-
kvæmdastjóri Stjómunarfélags Islands
frá 1989. Hann hefur verið borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins frá 1986. Á
yfirstandandi kjörtímabili hefur hann
setið í borgarráði, í atvinnumálanefnd
Reykjavíkurborgar og húsnæðisnefnd,
verið formaður stjómar sjúkrastofnana
og skólamálaráðs frá 1991.
Árni er kvæntur Bryndísi Guð-
mundsdóttur talmeinafræðingi og
eiga þau fjögui' börn.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
Sýnir dirfsku
og sigurvilja
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, seg-
ir að ákvörðun Markúsar Arnar Antonssonar um að láta af embætti
borgarstjóra og víkja úr efsta sæti framboðslistans, hafi komið sér mjög
á óvart þegar Markús greindi honum frá henni á fundi þeirra sl. fimmtu-
dag. Davíð segir að Markús hafi ekki verið beittur neinum þrýstingi af
hálfu forystumanna flokksins. „Fyrsta hálftímann af okkar samtali færði
ég fram öll rök gegn þessari ákvörðun og fann henni allt til foráttu,
því hún kom mér mjög á óvart. Ég hlustaði svo á rök hans og hans niður-
stöðu og fannst til um hana og féllst á hana fyrir mitt leyti,“ segir Davíð.
Davíð segir að afstaða Markúsar
sé mjög óvenjuleg. Hann hafi ákveðið
að víkja til hliðar persónulegum hags-
munum, metnaði og persónulegri
stöðu í þágu hagsmuna sem hann
hafi metið meira, við mjög óvenjuleg-
ar aðstæður, þegar Alþýðubandalag,
Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur,
Kvennalisti, Birting og Nýr vettvang-
ur hafi klætt sig með felubúningi, sem
eigi að duga fram yfir kosningar.
„Því miður hefur þessi blekkingarleik-
ur tekist fram til þessa en það er mat
borgarstjóra að þetta kallaði á mjög
ákveðin og hörð viðbrögð. Ný staða
væri komin upp og það ætti að bregð-
ast við henni með nýjum hætti. Ég
held að það hafi verði gert af hans
hálfu af miklum drengskap. I morgun
hlustaði borgarstjórnarflokkurinn á
hans rök og hann átti mikilli vinsemd
að mæta, þakklæti fyrir samstarf og
jafnframt höfðu menn á orði að þetta
væri einstakt hugrekki og fórnarlund
af hans hálfu, að bægja þannig per-
sónulegum hagsmunum til hliðar í
þágu mikilvægs málefnis," sagði Dav-
íð.
Ekki verið að hrekja
Markús á brott
Aðspurður hvort þessi ákvörðun
hefði ekki verið tekin of seint, að aflo-
knu prófkjöri, og myndi skaða flokk-
inn svo skömmu fyrir kosningar, svar-
aði Davíð því neitandi og sagði að um
væri að ræða ákvörðun borgarstjórans
sjálfs, sem nyti stuðnings forystu-
manna flokksins og flokkssystkina.
Því gæti hún ekki orðið til annars en
að styrkja flokkinn. Davíð sagði að
Markús hefði getað tekið þessa
ákvörðun vegna þess mikla stuðnings
sem hann hefði fengið í prófkjörinu.
„Hvorki forysta Sjálfstæðisflokksins,
félagar hans í borgarstjórnarflokkn-
um eða þeir íjölmörgu kjósendur sem
guldu honum atkvæði sitt í prófkjöri
eru að hrekja hann á brott. Hann
hefur stuðning alls þessa fólks. Samt
tekur hann þessa ákvörðun. Það er
styrkur, það er stuðningur. Það má
segja að í prófkjörinu hafi sjálfstæðis-
fólkið verið að þakka Markúsi frábær
störf hans sem borgarstjóra, sem ég
tel að hafi verið mjög vel af hendi
innt. En nú eru menn að fara í kosn-
ingar við sérstakar aðstæður og þá
kjósa menn að gefa þessu framboði
nýjan svip með ungum manni sem
jafnframt hefur getið sér mjög gott
orð á fjölmörgum sviðum í borgarmál-
unum og ég held það sýni bæði dirfsku
af flokksins hálfu, sigurvilja af flokks-
ins hálfu og einstaka ákvörðun af
hálfu borgarstjórans sjálfs," sagði
Davíð.
Gefur byr til sigurs
Aðspurður hvort hann teldi ein-
hverja raunhæfa möguleika fyrir sjálf-
stæðismenn að ætla að vega upp þann
mun sem væri á milli framboðslist-
anna samkvæmt skoðanakönnunum
sagðist Davíð vera viss um að þótt
ekki hefði verið gripið til neinna að-
gerða þá hefði í saxast verulega á
þennan mun í kosningabaráttunni.'
„Og um leið er ég sannfærður um að
þessi ákvörðun, þessi dirfska og frum-
kvæði sem Sjálfstæðisflokkurinn tek-
ur og þessi ungi öflugi, kraftmikli
kjarkmaður sem valinn er í forystu,
þetta eigi allt að geta gefið okkur byr
til þess að fara með sigur af hólrni,"
sagði Davíð Oddsson.
flokksins. Sagði hann að ekki hefði
komið annað til greina en að næsti
maður á lista flokksins tæki við úr
því sem komið væri og að um það
hefði verið algjör samstaða innan
borgarstjórnarflokksins.
Vilhjálmur sagði, að hann virti og
hefði fullan skilning á þessari ákvörð-
un borgarstjóra um að segja af sér.
Ákvörðun sem hann hafi tekið einn
og óstuddur eftir að hafa ráðfært sig
við nokkra menn. Vilhjálmur sagðist
að vísu ekki hafa verið sammála Mark-
úsi en eftir að hafa heyrt hans rök
hafi hann ekki reynt að beita sér gegn
þessari ákvörðun.
Nýtt sóknarfæri
„Mér finnst Markús sýna mikið
pólitískt hugrekki," sagði Vilhjálmur.
„Hann trúir því einarðlega að með því
að hann fari og að annar taki við þá
muni myndast nýtt sóknarfæri. Þetta
er hans eigin ákvörðun og ljóst að
hann var búinn að taka hana þegar
hann ræddi við okkur borgarfulltrú-
ana. Það var ekki verið að leita eftir
áliti okkar. Ákvörðunin hafði verið
tekin. Við því þurfti að bregðast og
það gerðum við með þeim hætti sem
gert var og ég beitti mér fyrir að um
það yrði full samstaðaiið annar mað-
ur á listanum tæki við og það varð
algjör samstaða um það.“
Vilhjálmur sagðist ekki geta fullyrt
um það á þessu stigi hvaða afleiðing-
ar ákvörðun borgarstjóra hefði á stöðu
og fylgi flokksins. „Auðvitað vonar
maður að hægt verði að herða þá
sókn sem hafin er en það verður
tíminn að leiða í ljós. Við munum
reyna að vinna eins vel úr þessu og
hægt er, frambjóðendahópurinn, og
erum við einhuga í því,“ sagði hann.
„Markús hefur skilað mjög góðu verki
á erfiðum tímum. Hann kemur inn
þegar aðstæður í landsmálum eru með
versta móti og svo hefur verið þann
tíma sem hann hefur verið borgar-
stjóri. Auðvitað hefur það haft áhrif
á borgarmálin. Ég tel að hann hafi
markað ákveðin spor ekki síst með
sínu framlagi til atvinnumála og efl-
ingu miðbæjarins. Það er svo langt í
frá að hægt sé að skrifa stöðu flokks-
ins á reikning borgarstjóra. Það eru
fjölmörg önnur atriði sem gera það
að verkum að svo virðist sem flokkur-
inn sé í öldudal eins og er. Ég hef
hins vegar mikla trú á að frambjóð-
endur og stuðningsmenn flokksins í
Reykjavík muni snúa vörn í sókn,“
sagði hann.
Inga Jóna Þórðardóttir
Viðbrögð gefa
vísbendingu
um ringulreið
INGA Jóna Þórðardóttir sem varð
í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins segir að ákvörðun Mark-
úsar Arnar um að segja af sér sem
borgarstjóri muni skapa nýtt svig-
rúm. „Mér finnst viðbrögð vinstra
liðsins gefa vísbendingu um ringul-
reið,“ sagði hún. „Viðbrögð Ingi-
bjargar Sólrúnar benda eindregið
til þess að ákvörðun Markúsar hafi
komið miklu róti á þeirra skipulag
og vinnu.“
Inga Jóna sagði að ákvörðun Mark-
úsar hafi komið henni mjög á óvart.
Ilann meti stöðuna þannig með tilliti
til lélegs gengis hjá Sjálfstæðisflokkn-
um í skoðanakönnunum, að rétt sé
að hann axli þá ábyrgð sem í því felst.
„Með því er hann að sjálfsögðu ekki
að taka það á sig að staðan sé honum
að kenna heldur kýs hann einfaldlega
að bera ábyrgð og stíga til hliðar sem
efsti maður listans og gefa nýju fólki,
sem er í forystu, tækifæri á að nýta
sér það svigrúm sem svona breyting
gefur,“ sagði hún. „Ég virði þessa
ákvörðun hans og tel að hann sé í
raun að sýna pólitískt hugrekki og
kjark með því að taka ákvörðun sem
ekki eru fordæmi fyrir. Þetta hefur
ekki tíðkast í íslenskri pólitík og hann
er vissulega mjög hugaður að stíga
þetta skref.“
Hleypir lífi í kosningabaráttuna
Inga Jóna sagðist hafa átt gott
samstarf með Árna Sigfússyni og að
hún tréysti honum fullkomlega til að
leiða þennan lista. „Ég veit að fram-
bjóðendur munu þjappa sér vel að
baki honum og styðja hann einlæg-
lega,“ sagði hún. „Ég held að þetta
geti hleypt nýju lífi í kosningabarátt-
una og styrkt okkar stöðu.“
Sigrún Magnúsdóttir
Styrkir ekki
stöðu Sjálfstæð-
isflokksins
SIGRÚN Magnúsdóttir borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins segist
ekki geta séð að ákvörðun Markús-
ar Arnar verði til þess að styrkja
stöðu Sjálfstæðisflokksins við borg-
arstjórnarkosningarnar í vor.
„Borgarbúar kyngja ekki svona
hrossakaupum örfáum dögum fyrir
kosningar," sagði hún. „Mér finnst
illa vegið að Markúsi en í þessi
þijú ár sem ég hef fylgst með hef-
ur ekki ríkt eining í borgarmála-
ráðinu. Borgarfulltrúar hafa ekki
stutt við bakið á Markúsi og hann
hefur ekki náð fram mörgum góð-
um málum sem hann kom fram
með. Það er sláturtíð hjá flokknum,
einungis þrír af tíu borgarfulltrú-
um eru eftir á framboðslista flokks-
ins.“
Sigrún telur ákvörðun Markúsar
vera enn eina sönnun fyrir örvæntingu
sjálfstæðismanna í borginni. Þeir leiti
allra leiða og bragða til að ná sér
upp. „Ég hefði haldið að borgarmála-
ráð og borgarstjórnarflokkur Sjálf-
stæðisflokksins mótuðu stefnu flokks-
ins í borgarmálum og síðan væru full-
trúarnir forsvarsmenn þeirrar stefnu
þannig að það ætti ekki að skipta
höfuðmáli hvaða andlit þeir bæru,“
sagði hún.
„Ef Markús vildi ekki leiða listann
næsta kjörtímabiþ hvers vegna hættir
hann núna og Árni tekur við sem
borgarstjóri í 70 daga? Ég sætti mig
ekki fyllilega við að menn geti tekið
slíka ákvörðun að skipa borgarstjóra
í nokkra daga án þess að spuija kóng
eða prest um þá ákvörðun," sagði
Sigrún. „Ég sé enga aðra skýringu
en að það sé til að gera Áma eftir-
minnilegri. Það verði þá búin til stytta
af honum fyrir ráðhúsið.“
Tvö aðskilin mál
Sigrún sagði það sérkennilegt að
Árni, sem væri hæfileikaríkur maður,
skuli láta eins og hann væri fyrst að
koma fram í pólitíkinni í dag. Hún
vissi ekki annað en að hann hafi haft
öll tækifæri til þess að beita sínum
áhrif á stcfnu flokksins í borgarmál-
um. „Ég næ því ekki að menn vakni
einn mánudagsmorgun og sjái að þá
þurfi að taka til,“ sagði hún. „Svo
skil ég ekki þátt Davíðs. Hann velur
Markús, þegar deilan stóð um Árna
og Vilhjálm án þess að niðurstaða
fengist. Maður veltir því fyrir sér hvort
Davíð hafi ekki haft næga dóm-
greind."
Sigurjón Pétursson
„Panik“ ástand
„ÞETTA kemur mér mjög í opna
skjöldu," sagði Siguijón Pétursson
borgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins. Sagði hann að með afsögn
Markúsar sé strikað yfir vilja sjálf-
stæðismanna, sem tóku þátt í próf- '
kjörinu.
„Ég sé ekki betur en að það sé að
myndast „panik“ ástand hjá Sjájf-
stæðisflokknum," sagði Siguijón. „Ég
sé ekki betur en að þeir séu búnir að I
tapa taugum. Mér finnst þetta mjög
sérkennilegt. Það er nýbúið að halda
mikið prófkjör, þar sem Markús Örn
fær yfirgnæfandi kosningu í fyrsta
sæti en svo er strikað yfir þennan
vilja sjálfstæðismanna og hann fer út.
Þetta er óheyrilegt og ég man ekki
eftir neinu sambærilegu."
Siguijón sagðist ekki hafa trú á
að afsögn Markúsar yki á traust
manna á Sjálfstæðisflokknum. „Þetta
er örvæntingarráðstöfun sem ég hef
ekki trú á að komi að nokkru gagni
eins og staðið er að málum,“ sagði
hann. „Árni er settur í verkefni sem
sennilega er vonlaust en það er að
endurheimta það fylgi sem flokkurinn
er búinn að tapa. Eg held ekki að
Markús Örn hafi tapað því fylgi sér-
staklega," sagði hann.