Morgunblaðið - 15.03.1994, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
33
Samtakamáttur neytenda
í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar
eftir Garðar
Guðjónsson
Stundum er látið að því liggja
að hagsmunum neytenda sé betur
borgið en ýmsum öðrum hagsmun-
um vegna þess að við séum jú öll
neytendur. Það er að vísu alveg
hárrétt að við erum öll neytendur.
Hins vegar er það svo að ýmsir
aðrir hagsmunir en hagsmunir
fjöldans vega einatt þyngra þegar
teknar eru ákvarðanir og leikreglur
eru settar, hvort sem er hjá hinu
opinbera eða í viðskiptalífinu. Þeir
sem setja leikreglurnar eru nefni-
lega ekki bara neytendur. Reynslan
sýnir að þeir láta einatt ýmis önnur
sjónarmið en hag neytenda ráða
gerðum sínum.
Á þetta er minnt í tilefni af því
að alþjóðadagur neytendaréttar er
í heiðri hafður víða um heim í dag,
15. mars.
Lágmarkskröfurnar
Samtök og stofnanir sem leitast
við að gæta hagsmuna neytenda
eiga sér sameiginlega vilja- og
stefnuyfirlýsingu sem segja má að
sé grunntónn í starfi þeirra, hvar
sem þau eru niður komin, í austri
eða vestri, norðri eða suðri. Þessi
yfirlýsing felst í átta lágmarkskröf-
„Fjárhagslega reiða
samtökin sig að lang-
mestu leyti á árgjöld
félagsmanna, en aðeins
að mjög litlu leyti á
stuðning stjórnvalda
eða annarra, enda er
það keppikefli neyt-
endasamtaka að vera
engum háð nema fé-
lagsmönnum sínum. Því
er ljóst að vöxtur og
viðgangur samtakanna
er algerlega háður vilja
neytenda.“
um um réttindi til handa neytend-
um; kröfunni um að grunnþörfum
sé fullnægt, kröfum um öryggi,
upplýsingar, val, áheyrn, bætur,
fræðslu og heilbrigt umhverfí.
Kröfunum er misjafnlega tekið;
sums staðar vel, sums staðar mið-
ur. Þær nást hvergi baráttulaust.
Reynslan sýnir að neytendur þurfa
að eiga sér sterkan málsvara.
Neytendasamtökin hafa eftir
mætti reynt að standa undir því,
ásamt ijölmörgum samtökum öðr-
um, að vera málsvari neytenda og
gæta hagsmuna þeirra. Daglega
fást starfsmenn samtakanna við
mál sem tengjast lágmarkskröfun-
um með einum eða öðrum hætti.
Þjónusta við neytendur
Félagsmenn í Neytendasamtök-
unum eru rúmlega tuttugu þúsund
talsins og þau verða því að teljast
býsna fjölmenn. Þó er aðeins um
það bil fjórðungur heimilanna í
landinu innan okkar vébanda. Þijú
af hveijum íjórum heimilum hafa
enn ekki séð ástæðu til að ganga
til liðs við okkur í baráttunni fyrir
bættum hag neytenda.
I'járhagslega reiða samtökin sig
að langmestu leyti á árgjöld félags-
manna, en aðeins að mjög litlu leyti
á stuðning stjórnvalda eða annarra,
enda er það keppikefli neytenda-
samtaka að vera engum háð nema
félagsmönnum sínum. Því er ljóst
að vöxtur og viðgangur samtak-
anna er algerlega háður vilja og
samstöðu neytenda.
Á þessu ári greiðir hver félags-
maður 1.850 krónur. Og hvað fær
maður svo fyrir þessar krónur, er
gjarna spurt. Beinn ávinningur felst
meðal annars í eftirfarandi: aðstoð
við að leysa úr ágreiningsmálum í
viðskiptum og ná fram rétti sínum,
upplýsingar um verð og gæði vöru
og þjónustu, ráðgjöf og leiðbeining-
ar. Áuk þess Neytendablaðið fímm
sinnum á ári, þar sem meðal ann-
ars eru birt markaðsyfirlit og grein-
ar um fjármál heimilanna, heil-
brigði, umhverfísmál, neytenda-
vemd, öryggi barna og fleira.
Hagsmunagæsla
Því fleiri sem sjá ástæðu til að
Opið bréf til Halldórs Blöndal
og annarra ferðamálafrömuða
eftir Filippus
Pétursson
(alias Philippe Patay)
í sjónvarpsviðtali nýlega sagði
Halldór Blöndal samgöngumálaráð-
heira að það væri slæmt að enginn
skipulegði vetrarferðir yfir Kjöl hér-
lendis til dæmis um páskana. Ég sá
þetta viðtal ekki sjálfur en mér var
sagt frá því. Ég sá það ekki vegna
þess að ég var einmitt staddur á
N-Ítalíu í þeim erindum að kynna
ísland að vetrarlagi með skyggnu-
myndakvöldum og fyrirlestmm aðal-
lega í ítalska alpaklúbbnum sem
hefur 300.000 meðlimi.
Samgöngumálaráðuneytið ætti
að vita að það eru til sérhæfðir
menn, á íslandi, þaulvanir fjalla-
mennsku með langa reynslu að
baki. Það væri ekki svo vitlaust að
leita til þeirra og spyija álits og
ráða sérstaklega ef menn hafa í
huga að þróa slíkar ferðir.
Nú eru liðin átján ár síðan ég
byijaði að fara með erlenda ferða-
menn í skíðaleiðangra um hálendið
að vetri til. Síðastliðin tuttugu ár,
hef ég, frá febrúar byijun til apríl-
loka farið með þijá til sex hópa á
skíðum til vikudvalar á Landmanna-
laugasvæðinu og hinn fjölfarna
„laugaveg“ frá Landmannalaugum
til Þórsmerkur.
• Á hveijum vetri fer ég með tíu
manna hóp af vönum fjallamönnum
í tveggja vikna leiðangur á skíðum
yfir landið þvert og endilangt,
Sprengisandsleið, frá Akureyri yfir
til Skóga undir Eyjafjöllum.
Þetta eru fleiri hundruð manns
þegar allt er talið sem hafa komið
með mér í vetrarferðir og þá eru
ekki talin þau mörg þúsund sem
koma í fjallaferðir á sumrin.
En ég er ekki sá eini sem hef
verið í þessu. Á íslandi eru til nokkr-
ir alvöru fjallaleiðsögumenn með
mikla reynslu að baki. Margir byij-
uðu að vinna með mér og hafa með
tímanum orðið atvinnuíjallaleið-
sögumenn samkvæmt alþjóðlegum
mælikvarða.
Ég hef skrifað fjölda blaðagreina
og unnið við gerð heilmargra sjón-
varpsþátta með erlendum sjón-
Filippus Pétursson
„Þetta eru fleiri hundr-
uð manns þegar allt er
talið sem hafa komið
með mér í vetrarferð-
ir.“
varpsstöðvum til þess að róma allt
það sem þetta land hefur uppá að
bjóða, fjöllin, sveitirnar og þá sér-
kennilegu menningu sem hér er.
Ef ég væri nógu frakkur ætti ég
að biðja Ferðamálaráð og Flugleiðir
að borga mér laun aftur í tímann
fyrir alla þá kynningu og þau ár
sem ég hef eytt í að lofa land og
þjóð. Nei, nei verið alveg rólegir!
Þetta var gert skemmtuninnar
vegna, endurgjaldslaust og af öllu
mínu hjarta. Mín var ánægjan!
Ég er ekki góður „pólitíkus" og
hef aldrei verið duglegur við að ota
mér áfram. Að vera sá besti er
ekki það sem skiptir máli og málið
snýst ekki um það
Hins vegar er til hvimleiður skap-
gerðargalli í mannlegu eðli og ég
viðurkenni í dag að hann finnst
ekki bara hjá Islendingum. Þessi
galli getur líka flokkast undir
smekkleysi eða það að stunda ekki
„Fairplay".
Ég hef oftar en einu sinni hitt,
að vetrarlagi, inni á öræfum íslands
skíðaleiðangra samansetta af ung-
um og hraustum mönnum sem hafa
verið studdir af pylsugerð eða ein-
hveiju líftryggingafélagi.
Við sátum saman, höfðum það
notalegt skröfuðum og sungum og
drukkum skál hvers annars í mesta
bræðralagi eins og sannir fjalla-
menn. Svo þegar grein um háska-
legan en vel heppnaðan leiðangur
þeirra birtist i einhveiju dagblað-
anna, ekki orð um fund okkar.
Hugrekki felst líka í því að viður-
kenna að maður sé ekki aðeins sá
eini sem er hugrakkur.
Ég segi oft við mig upp á síðkast-
ið , nýbúann (takk fyrir þetta heiti
ég hef búið hér 22 ár og borga
skatta), að þó að ég hafi aldrei
haft fjölskyldu-klíku-tengsl þá er
nú mál til komið að fara að láta
heyra í sér. Þetta er lífsspursmál
um að komast af í þessum heimi
ijölmiðla og samskipta. Ég þyrfti
að reyna að komast í auglýsingarn-
ar „matur fyrir nútíma íslendinga
En þar sem ég er ekki nógu nútíma-
legur og við borðum þennan mat
jafnvel ekki í leiðangrunum mínum
þá afskrifa ég þessa hugmynd og
byija frekar á því að skrifa ráð-
herra mínum þessar línur.
Eina fólkið sem ég þekki og sem
þekkir mig og mína starfsemi er
það fólk sem ég hef unnið með út
um allt land í öll þessi ár. Ég vil
segja þeim að ég sé ennþá á lífí
og sendi þeim mínar bestu kveðjur.
Höfundur er leiðsögumaður.
Heilsuvika
i
Þumalínu
Kíktu inn:
Þú finnur lífrænt ræktaðar jurtasnyrtivörur, sem ekki valda ofnæmi, eru
ekki með rotvarnarefni (parabenar/kathon), eru ekki með ertandi ilmefni
(fragance) og hafa ekki verið prófaðar á dýrum.
Þú finnur ekta Rósmarin/Furunála/Lavandella baðolíur og Arnika/Calend-
ula/Citrus gigtarolíur, sem gefa vellíðan og losa spennu.
Þú finnur orku/vítamín drykki og hárvörur, sem gefa hárinu næringu og
glans og losa flesta við flösu og hárlos.
Þú finnur tannkrem fyrir alla fjölskylduna án skaðlegra skrúbb- og slípi-
efna, fáðu prufu.
Þú finnur NOVAFÓNINN, sem hefur hlotið gullverðlaun á læknaþingum,
frábært tæki til sjálfshjálpar gegn gigt og vöðvabólgu.
Þú finnur barna calendula/camomill snyrtivörurnar. Óll litlu börnin fá bos-
sakrem, mamma fær möndluolíu, pabbi húðolíu, afi og amma frá arnikuolíu.
Að auki gefum við 20% afmælisafslátt alla vikuna.
Ullar- og silkinærfatnaður, svissnesk hágæðavara. Við rýmum fyrir nýjum
vörum og gefum 50% afslátt. Allt fyrir heilsuna. Umhverfisvænar bleyj-
ur. Námskeið í notkun þeirra og 10% afsláttur út heilsuvikuna.
Öll börn fá bleyju gefins. Það borgar sig að koma við.
Opið virka daga kl. 10-18 og nk. sunnudag kl. 14-17.
Leifsgötu 32. Sími 12136 og fax 626536.
Sendum í póstkröfu.
Þumalína,
sameinast undir merki Neytenda-
samtakanna, því öflugri og vand-
aðri þjónustu getum við veitt félags-
mönnum okkar. Jafnframt styrkist
staða okkar til að hafa almenn áhrif
á stöðu neytenda í þjóðfélaginu og
stuðla að aukinni neytendavernd,
meðal annars með bættri löggjöf
um neytendamál. í þessu er fólginn
óbeinn og þó beinn ávinningur af
því að ganga til liðs við samtökin.
I starfi okkar reynum við að stuðla
að því að neytendur fái notið lág-
marksréttindanna sem áður var
getið.
Við höfum mikilla hagsmuna að
gæta sem neytendur. Hagsmunir
neytenda rekast iðulega á hags-
muni þrengri hópa og verður því
ekki borgið átakalaust. Það fá
starfsmenn Neytendasamtakanna
að reyna við dagleg störf sín.
Höfundur er ritstjóri
Neytendablaðsins.
Bílamarkaðurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
671800 ^
MMC Lancer EXE '92, hlaðbakur, dökk-
blár, 5 g., ek. aðeins 15 þ., rafm. í öllu
o.fl. V. 1160 þús., sk. á ód.
Volvo 440 GLT '89, svartur, 5 g., ek. 80
álfelgur, spoiler o.fl. V. 850 þús., sk.
á ód.
Ford Ranger XLT '92, 4x4, V-6, 4,0I
vél, blár, rafm. í rúðum, álfelgur, 31“ dekk.
Einn m/öllu.Tilboðsverö 1250 þús., sk. á
ód.
Subaru Legacy Artic 2.0 '92, rauöur,
sjálfsk., ek. aðeins 20 þ., álfelgur, rafm. f
rúðum o.fl. V. 1880 þús.
_ -----------
Toyota Carina E Wagon '93, hvitur,
sjálfsk., ek. 10 þ., rafm. í rúðum o.fl. Sen
nýr. V. 1790 þús.
Honda Clvic LSi Sedan '92, rauður
sjálfsk., ek. 36 þ., rafm. í rúðum, 2 dekkjag
o.fl. V. 1290 þús.. sk. á ód.
MMC Pajero V-6 '91, 5 g., ek. 40 þ., ál-
felgur, rafm. i rúöum o.fl. V. 1890 þús.,
sk. á ód.
Nissan Sunny SLX 4x4 station '91, silf-
urgrár, 5 g., ek. 37 þ., rafm. í rúöum, ál
felgur o.fl. V. 1050 þús., sk. á ód.
MMC L-300 4x4 '88, hvítur, 5 g., ek. 78
þ. V. 1090 þús., sk. á ód.
MMC Lancer QLX station 4x4 ’87, 5
g., ek. 114 þ., sóllúga, álfelgur. Toppein
tak. V. 670 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL '91, rauður, 3ja dyra
5 g., ek. 58 þ. V. 790 þús., sk. á ód.
BMW 325i M-Tecnil ’88, sjálfsk., ek. 96
þ., m/öllu. V. 1750 þús., sk. á ód.
Isuzu Pick Up 4x4 diesel '84, ek. 158
þ. Gott eintak. V. 290 þús.
Toyota 4Runner EFi '85, 5 g., ek. 113
þ., sérskoöaður, 4:10 hlutf., sóllúga o.
V. 1080 þús., sk. á ód.
MMC Pajero langur V-6 '91, sjálfsk., ek.
52 þ. V. 2.2 millj.
MMC Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 66 þ^
Toppeintak. V. 690 þús.
Chevrolet Blazer Thao S-10 '87, sjálfsk.
rafm. í öllu, ek. 108 þ., álfelgur o.fl. Gott
eintak. V. 1150 þús., sk. á ód.
VW Golf GL 1.8 ’92, rauður, 5 g., ek. 39
þ., 2 dekkjag. V. 970 þús.
Nissan Sunny SLX 1.6 ’92, grænsans, 5
g., ek. 33 þ., rafm. í rúðum, álflegur, (Ath!
GTI útlit). V. 1030 þús.
Cherokee Laredo ’88, sjálfsk., ek. 81 þ
m/öllu. V. 1580 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLXi '93, rauður, sjálfsk.,
ek. 22 þ., rafm. í öllu. V. 1350 þús.