Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
37
Um valdníðslu og
trúnaðarbrest
eftir Arthúr
Björgvin Bollason
í „Staksteinum" Morgunblaðsins
hinn 25. febrúar síðastliðinn er end-
urprentuð ritstjórnargrein nýjasta
heftis tímaritsins „Fijálsrar versl-
unar“.
Þar er um að ræða vangaveltur
ritstjórans, Jóns G. Haukssonar, um
brottvikningu mína úr starfí „sérráð-
ins aðstoðarmanns útvarpsstjóra“.
í upphafi greinar sinnar víkur Jón
að því að maður sem ynni hjá einka-
fyrirtæki yrði látinn gjalda orða
sinna, ef hann „dæmdi opinberlega
yfírmann sinn, vinnubrögð hans og
stefnu þess fyrirtækis, sem hann
vinnur hjá“.
Með þessum orðum er ritstjórinn
bersýnilega að skírskota til ummæla
minna í títtnefndu bréfí til formanns
Stéttarsambands bænda.
Auðvitað hefur ritstjórinn nokkuð
til síns máls. Starfsmaður fyrirtækis
sem réðist á yfirmann sinn í opin-
beru skrifí bryti að sjálfsögðu trúnað
gagnvart yfirmanninum. Um það
verður ekki deilt.
Hins vegar er tvennt við röksemd
ritstjórans að athuga. í fyrsta lagi
er í umræddu bréfí mínu til for-
mánns Stéttarsambands bænda ekki
fólgin nein árás á yfírmann minn
fyrrverandi, þ.e.a.s. útvarpsstjóra.
Þvert á móti var ég í þessu skrifi
að andmæla því órétti sem útvarps-
stjóri mátti þola, þegar menntamála-
ráðherra endursendi með valdboði
starfsmann inn í stofnunina sem
útvarpsstjóri var nýbúinn að reka.
Mér þætti gaman að vita, hvort
slík vinnubrögð ættu sér einhverja
hliðstæðu á hinum frjálsa markaði?
Mér segir svo hugur að aldrei hafí
forstjóri einkafyrirtækis orðið fyrir
sambærilegri móðgun.
Ef stjóm fyrirtækis á hinum
ftjálsa markaði kæmist að þeirri nið-
urstöðu að forstjóri fyrirtækisins
hefði rekið deildarstjóra af annarleg-
um hvötum geri ég fastlega ráð fyr-
ir að forstjórinn fengi ofanígjöf eða
væri látinn víkja. í siðaðra manna
Arthúr Björgvin Bollason
„Mér segir svo hugur
að aldrei hafi forstjóri
einkafyrirtækis orðið
fyrir sambærilegri
móðgun.“
samfélagi hlyti það að flokkast und-
ir hreinræktaðan skrílshátt að refsa
forstjóranum með því að ráða deild-
arstjórann aftur, að ekki sé minnst
á þá háðung að setja hann ofar í
metorðastigann en áður. Mér er til
efs að ritstjóri „Frjálsrar verslunar“
þekki dæmi þess að slíkt hafi átt sér
stað í nokkru einkafyrirtæki.
Annað sem mig langar að gera
athugasemd við er sú staðhæfíng
ritstjórans að felli opinber starfs-
maður „gijótharða sleggjudóma um
yfírmenn, samstarfsmenn og innri
starfshætti" hljóti hann að bijóta
trúnað.
Hér hefur ritstjórinn eins og áður
nokkuð til síns máls. Þó verður enn
að taka fram að þetta á einungis
við, þegar um eðlilegar aðstæður er
að ræða.
í títtnefndu bréfí mínu til for-
manns Stéttarsambands bænda var
ég að gagnrýna þær óeðlilegu að-
stæður sem starfsfólk Ríkisútvarps-
ins hefur þurft að búa við undan-
farna mánuði.
Settum framkvæmdastjóra Sjón-
varps var af ráðherra beinlínis
þröngvað upp á stofnunina.
Eins og fram kom í greinargerð
útvarpsstjóra um brottrekstur
Hrafns Gunnlaugssonar í Morgun-
blaðinu 22. apríl í fyrra var um það
samstaða í framkvæmdastjórn RUV,
að útvarpsstjóri viki umræddri per-
sónu úr starfí sem dagskrárstjóra
innlendrar dagskrárdeildar Sjón-
varps. Ástæðan var eins og þar seg-
ir sú skylda útvarpsstjóra að
„tryggja starfhæfar aðstæður innan
stofnunarinnar".
Hvernig litist ritstjóra „Frjálsrar
verslunar“ á, ef hann væri forstjóri
í fyrirtæki, að ráðherra skipaði hon-
um með valdboði að taka við starfs-
manni sem hann væri nýbúinn áð
reka?
Án þess að lengja mál mitt um
of vil ég einungis segja þetta: með
því að setja burtrekinn dagskrár-
stjóra innlendrar dagskrárdeildar í
stöðu framkvæmdastjóra Sjónvarps
var ráðherra að skapa trúnaðarbrest
og girða fyrir eðlilega stjórnunar-
hætti í Ríkisútvarpinu. Þess vegna
er það í sjálfu sér fráleitt að meta
umrædd skrif mín til formanns
Stéttarsambands bænda út frá ein-
hveijum stjórnunarlegum sjónarmið-
um. Staðreyndin er sú að ráðherra
var búinn að greiða stjórnkerfí Ríkis-
útvarpsins þvílíkt högg að það var
lamað eftir.
Gagnrýni mín í umræddu bréfi
var því hvorki gagnrýni á yfirmann
minn né eiginlega samverkamenn
heldur fyrst og fremst gagnrýni á
það ranglæti sem útvarpsstjóri og
aðrir starfsmenn Ríkisútvarpsins
höfðu orðið að þola.
Höfundur er fv. skipulags- og
dagskrárráðgjafi útvarpsstjóra.
RAÐA UGL YSINGAR
Auglýsing
Vamarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins
verður lokuð dagana 16. til 18. mars vegna
flutninga frá Skúlagötu 63.
Skrifstofan verður opnuð aftur mánudaginn
21. mars á Rauðarárstíg 25.
Menningar-, upplýsinga- og fjölmiðladeild
ráðuneytisins er flutt á sama stað og hefur
verið opnuð.
Varnarmálaskrifstofa
utanríkisráöuneytisins.
I.O.O.F. Rb. 4 = 1433158 - Lh.
□ EDDA 5994031519 III 2 Frl.
□ HAMAR 5994031519 -1 - Eri.
I.O.O.F. Ob. 1 = 1753158’/! =
□ HLfN 5994031519 VI 2 Frl.
AD KFUK
Holtavegi
Fundurinn f kvöld fellur inn í
kristniboösviku í Kristniboðs-
salnum. Sjá auglýsingu þar um.
auglýsingar
□ FJÖLNIR 5994031519 I 1
atkv.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Kristniboðsvika -
Með nýtt land undir fótum
Samkoman í kvöld verður í
Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58-60 kl. 20.00. „Flutt á
nýjar slóðir" - Benedikt Arnkels-
son talar. Upphafsorð hefur
Ástrfður Haraldsdóttir, KSS-
gengið syngur og fluttur verður
skyggnuþáttur um útvarps-
kristniboð, „I lausu lofti“. Um-
sjón hefur Friðrik Hilmarsson.
Bænastund verður kl. 19.40 og
kaffi á könnunni eftir sam-
komuna. Allir eru velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Árshátíð F.í. og Horn-
strandafara 19. mars
Hátíðin verður laugardaginn
19. mars á Hótel Selfossi.
Skemmtun sem félagsmenn og
gestir þeirra ættu ekki að láta
fram hjá sér fara. Fjölbreytt dag-
skrá, s.s. ávarp leiðtogans, gítar-
spil, einsöngur, karlakvartett,
Skollertrióið, stuttmynd sérstak-
lega framleidd fyrir hátiðina,
spumingakeppni, tískusýning
með nýjustu straumum í útilífs-
fatnaði og Jóhannes Kristjánsson
kynnir persónur með sínum hætti.
Veglegir happdrættisvinningar.
Fordrykkur og glæsilegt kvöld-
verðarhlaðborð. Hljómsveitin
Karma leikur fyrir dansi.
Rútuferð frá Mörkinni 6 kl.
18.00. Miðar óskast sóttir fyrir
fimmtudag. Skemmtun fyrir
alla ekki bara Hornstrandafara.
Ferðafélag Islands.
skólar/námskeið
tungumál
Enska málstofan
■ Enskukennsla:
★ Einkakennsla fyrir einn eða fleiri á
afar hagstæðu verði.
★ Aðstoð og ráðgjöf til fyrirtækja
vegna þjálfunar og sjálfsnáms í
ensku.
★ Viðskiptaenska, aðstoð við þýöingar
o.fl.
Upplýsingar og skráning
i síma 620699 frá kl. 14-18
alla virka daga.
ýmlslegt
■ Barnfóstru-
námskeið 1994
1. 16., 17., 21. og 22. mars.
2. 6., 7., 11. og 12. apríl.
3. 13., 14., 18. og 19. apríl.
4. 27., 28. apríl og 2. og 3. maí.
5. 4., 5., 9. og 10. maí.
6. 25., 26., 30. og 31. maí.
7. 1., 2., 6. og 7. júní.
'8. 8., 9., 13. og 14. júm.
Kennsluefni:
Umönnun bama og skyndihjálp.
Upplýsingar/skráning:
■ Kryddnámskeið
Pottagaldra
Ilmandi, fræðandi og skemmtileg kvöld-
stund fyrir alla sem elska að matbúa.
Upplýsingar í síma 628788.
■ CRANIO - SACRAL
Kynningamámskeiö í höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferö, 26. og 27. mars.
Upplýsingar og skráning
í síma 641803.
tölvur
■ Hagnýtt tölvubókhald
35 klst. kvöldnámskeið sem hefst
15. mars. Hentar þeim, sem vilja afla
sér hagnýtrar kunnáttu í tölvubókhaldi.
Upplagt fyrir aöila með sjálfstæðan
rekstur.
Ókeypis skólaútgáfa af ÓpusAllt fylgir.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1
- PC grunnnámskeið
- Word fyrir Windows og Macintosh
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel fyrir Windows og Macintosh
- PageMaker fyrir Windows/Macintosh
- Paradox fyrir Windows
- Tölvubókhald
Sfmi 688188 kl. 8-16.
■ Fyrirlestur um Hvíta bræðralagið
- helgistjórn jarðarinnar
veröur í Ljósheimum í kvöld kl. 20.00
á Hverfisgötu 105, 2. hæð. Fyrirlesari
er Huld Jónsdóttir. Verö kr. 300.
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Word og Excel framhaldsnámskeið
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning í síma 616699.
r^| Tölvuskóli Reykiavíkur
‘....' Borflartúni 28, simi 618699
STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69
62 1 □ 66
<33>
NÝHERJI
■ Nýjar leiðir i innkaupastjórnun
Leiðbeinandi: Baldur Guðgeirsson,
Vífilfelli hf.
21.-23. mars, kl. 13.00-16.00.
■ Að vinna úr viðskiptahugmynd
Leiðbeinendur: Aðalsteinn Magn-
ússon, MBA, Sigurður Smári Gylfa-
son, viðskiptafræðingur, o.fl.
Hvemig á að koma viðskiptahugmynd á
framfæri. Námskeiöiö hefst 24. mars.
■ Windows kerfisstjórnun
Hagnýtt námskeið fyrir þá sem sjá um
Windows uppsetningar. Hefst 22. mars.
■ Barnanámskeiðin vinsælu
fyrir 5-6 ára og 7-9 ára.
Námskeið, sem veitir baminu þínu verð-
mætan undirbúning fyrir framtíðina.
Námskeiðinu er m.a. ætlað að þroska
rökhugsun bamsins, minni og sköpun-
argáfu og hjálpa því við lestur og reikn-
ing. Kennt er tvisvar í viku. Svona nám-
skeið hafa slegið í gegn í Bandarikjunum
og Kanada.
Næstu námskeið hefjast 19. apríl.
Hringið og fáið sendar upplýsingar.
STJÚRNUNARFÉLAGS ISLANDS
OG NÝHERJA
69 77 69 (Q)
62 1 □ 66 NÝHERJI
1 myndmennt
stjórnun
■ Breytum áhyggjum í
uppbyggjandi orku!
ITC námskeiðið Markviss málflutningur.
Upplýsingar: Kristín Hraundal,
simi 34159.
starfsmenntun
■ Námskeið hjá
Stjórnunarfélagi
íslands:
Þekking - þjálfun - þátttaka
(námskeið f. konur)
15. mars kl. 13.00-17.30.
Leiðin til árangurs (Phoenix)
16., 17. og 18. mars kl. 12.00-18.00.
■ Næstu námskeið Tölvu- og verk-
fræðiþjónustunnar, s. 688090:
■ Windows og PC grunnur. 9 klst.
um gmnnatriði tölvunotkunar og
Windows. 28.-30. mars kl. 9-12.
■ Word ritvinnslan fyrir Macintosh
og Windows. 15 klst. fjölbreytt rit-
vinnslunámskeið. 21.-25. mars kl.
13-16.
■ FileMaker gagnagrunnur. 15 klst.
um gagnagrunnin fjölhæfa fyrir Windows
ogMacintosh. 21.-25. mars kl. 13-16.
■ QuarkXPress umbrotsforritið.
15 klst. námskeið um útgáfu bæklinga,
fréttabréfa o.fl. 21.-25. mars kl. 16-19.
■ Macintosh og System 7.0. (tar-
legt stýrikerfisnámskeið fyrir þá, sem
vilja kynnast stýrikerfi Macintosh betur.
Gagnleg hjálparforrit fylgja.
28.-30. mars kl. 9-12.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16, s. 688090.
■ Myndlist fyrir börn
8 vikna námskeið fyrir 7-12 ára.
Mæting einu sinni í viku.
Upplýsingar og innritun í síma 611525
eftir kl. 13.00 alla daga.
Rúna Gísladóttir.
■ Málun - myndlist
Vomámskeið fyrir byijendur að hefjast.
Laus örfá sæti framhaldsnemenda.
Vatns- og/eða oh'ulitir.
Upplýsingar eftir kl. 13.00 alla daga.
Kennari Rúna Gísladóttir, listmálari,
sími 611525.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Nú er rétti tíminn til að sauma sumarföt-
in. Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður
kennari.
Upplýsingar í síma 17356.
Meðferð upplýsinga f ýmsu formi
(skjalastjórnun)
16. og 17. mars kl. 13.00-17.00.
Sölunámskeið fyrir verslunarfólk
21. og 22. mars kl. 09.15-12.15.
Leiðin til árangurs (Phoenix)
22., 23. og 24. mars kl. 16.00-22.00
Valddreifing og verkstjórn
23. mars kl. 13.00-17.00.
Markviss fundaþátttaka
og stjórnun
23. og 24. mars kl. 13.00-17.00.
Yfirburðaaðferð
við markmiðasetningu
29. mars kl. 15.00-19.00.
Nánari upplýsingar
í síma 621066.