Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
51
STÆRSTA
TJALDIÐMEÐ
DOMSDAGUR
★ ★ ★ A.I.Mbl.
Á leið út á lífið tóku
þeir ranga beygju inn í
martröð. Þá hófst æsi-
legur flótti upp á líf og
dauða þar sem enginn
getur verið öruggur
um líf sitt.
Aðalhlutverkið er í
höndum Emilio Este-
ves (Loaded Weapon 1)
og leikstjóri er Stephen
Hopkins sem leik-
stýrði m.a. Predator 2.
Sýnd kt. 5,7,9 og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
BANVÆN MÓDIR
SKILNAÐURI^JN
ÁTTI EFTIR AÐ
BREYTASTI
MARTRÖÐ
Einn mesti sálfræðiþriller seinni tíma.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð i. 14 ára.
* * * a.i. Mbi. Rómantísk gamanmynd
Aðalhlutv. Matt Dillon, Annabella Sciorra, Marie-Louise Parker
og wiiiiam Hurt. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
SÍMI: 19000
Vegna gífurlegrar aósóknar setjum vió
Far vel frilla mín í A-sal í nokkra daga
Kosin besta myndin í Cannes ’93 ásamt Píanó.
Tilnefnd lil Óskarsverólauna ’94 sem besta
erlenda myndin.
„Ein sterkasta og vandaðasta mynd síóari ára.“
★ ★★★ Rás 2.
„Mynd sem enginn má missa af.“
★ ★★★ S.V. IWbl.
mKiriL|Ri\ic „Einhver mikiifenglegasta mynd sem sést hefur
^ ^ á hvíta ijaldinu." ★★★★ H. H., Pressan.
Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára.
Arizona Dream
Einhver athyglisverðasta mynd
sem gerð hefur verið.
Aðalhl.: Johnny Depp, Jerry Lewis,
Fay Dunaway og Lili Taylor.
Leikstjóri: Emir Kusturica.
Sýnd kl. 5 og 9.
KRYDDLEGIN HJÖRTU
Aðsóknarmesta erlenda myndin í USA frá upphafi.
★ ★★★ H. H., Pressan. ★★★!. K., Eintak. ★★★H. K., D.V.
★ ★★1/2 S. V., Mbl. ★★★hallar í fjórar, Ó. T., Ras 2.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Flótti
sakleysingjans
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stranglega b. I. 16 ára.
Síðasta sýning.
Miðav. kr. 350
PÍANÓ
Tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna
m.a. besta myndin.
„Píanó, fimm stjörnuraf fjórum mögul.
★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan
Sýnd kl. 4.50,6.55,9 og 11.05.
Til þjónustu
reiðubúinn
Tilfinningalegur daudadalur; Thompson og Hopkins í Dreggjum
dagsins.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
DREGGJAR dagsins („The
Remains of the Day“). Sýnd í
Stjörnubíói. Leikstjóri: James
Ivory. Handrit: Ruth Prawer
Jhabvala eftir samnefndri
skáldsögu Kazuo Ishiguro.
Framleiðendur: Mike Nichols,
John Calley og Ismail Merch-
ant. Aðalhlutverk: Anthony
Hopkins, Emma Thompson,
James Fox, Christopher
Reeve, Peter Vaughan, Hugh
Grant, Michael Lonsdale og
Tim Pigott-Smith.
Fyrstu áhrifin eru endurómur
af öðrum mögnuðum breskum
uppfærslum reyndar fyrir sjón-
varp. Endurómur af sunnudags-
kvöldunum þegar sjónvarpið
sýndi hágæðaþætti á borð við
„Brideshead Revisited" eða „The
Jewel of the Crown“ svo ekki
sé talað um forsögulega þætti
eins og Húsbændur og hjú þar
sem spennandi sagan, trúverð-
ugur og eftirminnilegur leikur
og yfirlætislaus og gersamlega
heillandi frásöguhátturinn hélt
áhorfendum límdum við tækið.
Þannig áhrif hefur nýjasta mynd
Ismail Merchant/James Ivory/
Ruth Prawer Jhabvala-hópsins,
Dreggjar dagsins, eftir sam-
nefndri sögu Kazuo Ishiguro,
sem sýnd er í Stjörnubíói. Maður
gleymir stað og stund en dregst
í rúma tvo tíma inní atburðarás
og sögu sem heldur manni alger-
lega föngnum og áður en maður
getur svo mikið sem deplað auga
er maður kominn út á götu aftur
en eftir situr minningin um frá-
bæra mynd, ríkulega endurskap-
aða veröld sem var, heillandi
sögu sem gagntekur mann þótt
ekkert virðist í raun gerast nema
í hálfu hljóði og átökin eru alltaf
eins og kæfð í fæðingu. Og leik-
list sem ber með sér líf og sál
alls hins besta í breskum leikhús-
heimi. Þannig mynd er Dreggjar
dagsins.
Þríeykið kann réttu tökin sem
leiða til safaríkra og sígildra
bókmenntalegra uppfærslna sem
þessarar. Enginn blandar saman
bókmenntum við kvikmyndir
með ánægjulegri og skemmti-
legri árangri. Það er þeirra sér-
svið eins og við höfum áður séð
í kvikmyndaútgáfum þeirra á
m.a. sögum E. M. Forsters eins
og Herbergi með útsýni og nú
nýlega í Hávarðsenda, þar sem
aðalleikararnir, Anthony Hopk-
ins og Emma Thompson, sem
bæði hafa verið útnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn í
Dreggjum dagsins, fóru með
aðalhlutverkin. Sumir vilja kalla
Dreggjar dagsins Hávarðsenda 2
vegna sömu leikaranna og höf-
unda og kannski á sá saman-
burður einhvern rétt á sér. Allar
myndir þríeykisins byggjast á
hárfínni samfélagslegri skoðun í
bland við persónulegt drama:
Framleiðandinn, Merchant, sér
kvikmyndaframleiðslunni fyrir
bestu starfskröftum sem völ er
á; handritshöfundurinn, Jhabv-
ala, snýr bókmenntaverkunum
af einskærri alúð og snilld yfir
í form kvikmyndahandritsins þar
sem það sem ekki er sagt er
ekki síður mikilvægt en skrifuðu
samtölin; og leikni leikstjórans
James Ivory liggur ekki síst í
því að ná fram því besta sem
leikarar hans búa yfir og endur-
skapa heim bókmenntanna í
landslagi, leikmyndum og bún-
ingum. Utkoman er að sönnu
einstaklega gefandi bíó þar sem
hið næma handbragð kvik-
myndagerðarhópsins ber vott um
einstaka fagmennsku og gæði.
Það er Anthony Hopkins sem
fer á kostum sem yfírþjónninn
Stevens í Dreggjum dagsins.
Persóna hans, ef hann þá hefur
einhverja, er hin mesta ráðgáta
og eiginlega jafnmikil í upphafi
og lok myndarinnar. Hann er
fyrst og fremst settur hér á jörð-
ina til að þjóna húsbónda sínum.
Það er allt og sumt. Til að svo
megi vera hefur hann neitað sér
um einkalíf, einkahugsanir,
einkatilfinningar, einkaþrár,
einkaást, einkapersónu. Hann á
ekkert líf utan veggja Darling-
ton-setursins þar sem hann þjón-
ar Darlington lávarði (James
Fox) og það sem meira er, hann
tekur ekki ábyrgð á lífinu utan
þess.
Húsbóndi hans er breskur nas-
isti sem heldur nasistaráðstefnur
á setri sínu rétt fyrir seinni
heimsstyijöldina, en það hefur
engin áhrif á þjónustulund Stev-
ens. „Ég hef ekki tíma til að
hlusta á ræðurnar," segir hann
og hefur mun meiri áhyggjur af
því að rétt fjarlægð sé frá borð-
brún að glasi. Hann hefur valið
þann einfalda og auðvelda kost
að fría sig ábyrgð á lífinu þar
til ekkert er eftir orðið en blind
þjónustan við lávarðinn. Og þeg-
ar ný ráðskona kemur á setrið
(Emma Thompson) og sýnir hon-
um velvilja og áhuga og reynir
á sinn yfirvegaða, háttvirta og
hæverska hátt að brjóta skelina
og komast inn að manninum er
höfnunin svo sterk og alger og
lífleysi hans fullkomið að það er
eins og myndin frjósi fyrir fram-
an mann.
Líkt og Martin Scorsese gerði
í Öld sakleysisins leggja Ivory
og Jhabvala alla áhersluna á
undirölduna í mannlegu sam-
skiptunum, það sem sýður undir
daglegu atgervi persónanna og
er alltaf haldið niðri og bælt og
fæst aldrei sagt nema undir yfír-
varpi einhvers annars. Þannig
verður leikurinn alltaf lág-
stemmdur í samræmi við hóf-
stillta frásögnina og enginn er á
stilltari nótum en hinn yfirvegaði
Hopkins, sem vinnur leiksigur.
Leikur hans er könnun inn í al-
gert tómarúm, tilfinningalegan
dauðadal þess sem veit að hans
innri maður er liðið lík. Hopkins
tekst að vinna samúð áhorfand-
ans allan tímann því hann finnur
til með kvíða hans við snertingu
og takmörkunum í mannlegum
samskiptum og hljóti Hopkins
Óskarinn (samkeppnin er óvenju
hörð í ár) er liann vel að honum
kominn.
Emma Thompson sýnir einnig
frábæran leik í hlutverki ráðs-
konunnar ákveðnu og skynsömu
sem tekst ekki að bijóta skel
Stevens. Þótt leikur hennar sé
a.m.k. hálfkæfður hefur hún yfír
mun meiri tilfinningasemi en
Hopkins að ráða og gerir löngun ;,
konunnar og síðar ráðleysi og
sársauka góð skil. Aðrir leikarar
á borð við Peter Vaughan,
Christopher Reeve, James Fox
og Hugh Grant fylla mjög vel út
í myndina og auðga hana.
Umgjörðin er hið gullfallega
herrasetur Darlingtons en frá-
sögnin er byggð á endurliti, hefst
á pílagrímsferð Stevens vestur í
land þar sem hann lítur yfir far-
inn veg og sér kannski hvers
hann hefur farið á mis. Á einn
hátt er þetta mynd um hið öfluga j
stéttskipta þjóðfélag, ábyrgðar-
leysið sem við sýnum með lífi
okkar og viljann til að taka gagn-
rýnislaust við skipunum að ofan
en fyrst og fremst er Dreggjar
dagsins kannski viðvörun um til-
finningaleysið sem ríkir á vorum
dögum í samskiptum okkar við
hvert annað.