Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
53
Sameiginlegt umferðarátak
Frá Ómarí Smára Ármarmssyni
Lögreglan á Suðveturlandi verður
með sameiginlegt umferðarátak dag-
ana 16.-23. mars nk. Athyglinni mun
að þessu sinni verða sérstaklega beint
að stöðvunarskyldu, akstri um um-
ferðaljósastýrð gatnamót og notkun
öryggisbelta. Jafnframt mun vegfar-
endum verða afhentur könnunarseðill
þar sem þeim mun verða gefinn kost-
ur á að segja til um forgangsröðun
umferðareftirlitsverkefna lögreglu.
Akstur gegn rauðu Ijósi
Rautt ljós gagnvart umferð á
umferðarljósavitanum táknar ein-
faldlega að stöðva skuli við stöðvun-
arlínu. Allir eiga að vita að umferð-
arljósin eru sett upp til þess að auka
öryggi vegfarenda og jafnframt til
þess að greiða fyrir umferð þar sem
álagið er mikið. Gengið er út frá því
sem vísu að allir þekki litina og/eða
viti hvað mismunandi litur á ljósavit-
anum táknar. Gildir það jafnt um
akandi og gangandi vegfarendur.
Samt verða mörg umferðaróhöpp og
slys þar sem vegfarendur virða ekki
umferðarljósin. Astæðan er talin að-
allega þrenns konar: í fyrsta lagi eru
ökumenn að hugsa um eitthvað allt
annað en að aka og gera sér þá
ekki grein fyrir því að þeir eru að
aka gegn rauðu ljósi, jafnvel ekki
fyrr en þeir hafa lent í umferðar-
óhappi eða hafa ekið yfir slík gatna-
mót. í öðru lagi freista sumir öku-
menn þess að aka inn á gatnamótin
á „bleiku“ ljósi. Á sama tíma ekur
einhver aðeins of snemma af stað
úr þverstæðri átt. Og í þriðja lagi
eru því miður til svo tillitslausir og
forhertir ökumenn að þeir „láta
vaða“ á rauðu, vitandi vits og með
tilheyrandi áhættu fyrir þá og aðra.
Hlutfallslega flest alvarlegustu um-
ferðarslysin verða á umferðarljósa-
stýrðum gatnamótum.
Við umferðarljósastýrð gatnamót
eru aftanákeyrslur algengar, annað
hvort vegna þess að ökumenn stöðva
of skyndilega við gatnamótin eða
vegna þess að þeir aka ekki nægilega
fljótt af stað þegar Ijósin hafa skipt
af gulu yfir á grænt. Það er að mörgu
að hyggja, en öllu máli skiptir að all-
ir reyni að virða rauða ljósið á umferð-
arljósastýrðum gatnamótum.
Þakka ber það
sem er þakkarvert
Frá Reyni Ármannssyni:
Þau ár sem ég starfaði sem for-
maður Neytendasamtakanna bárust
ótal margar kvartanir í sambandi við
verslun og þjónustu, en það var ör-
sjaldan sem okkur bárust þakkir fyr-
ir góða þjónustu fyrirtækja.
Það hefur verið áberandi upp á
síðkastið við lestur á þáttum Velvak-
anda að það hefur sífelit aukist að
fólk tjáir þakklæti sitt fyrir góða þjón-
ustu, er það þakkarvert. Efni þessa
lesbréfs er að koma á framfæri þakk-
læti til tveggja aðilar sem ég hef
skipt við og notið frábærrar þjónustu
hjá. Þar hef ég í huga bílaverkstæði
Hrafnkels, Bíldshöfða 14, Reykjavík,
og Miklubrautarútibús Landsbanka
íslands, Grensásvegi 22, Reykjavík.
Þar sem undirritðaur ekur gamalli
bifreið þarf ég oft að huga að við-
gerðum og eftirliti á bifreiðinni.
Hrafnkell og starfsmenn hans eru
ætíð reiðubúnir að aðstoða og veita
góð ráð og þjónustu. Eftir áratuga
viðskipti við bifreiðaverkstæði borg-
arinnar, gef ég bílaverkstæði Hrafn-
kels mín mestu meðmæli.
Annað fyrirtæki sem einnig á
miklar þakkir skildar fyrir frábæra
þjónustu er Miklubrautarútibú
Landsbanka íslands, Grensásvegi 22,
Reykjavík. Undirritaður hefur átt
viðskipti við þetta bankaútibú sl. 10
ár. Allir starfsmenn bankaútibúsins
eru einkar þægilegir í alla staði, í
fyrirgreiðslu og framkomu við við-
skiptavini bankans. Það er áberandi
hvað margir aldraðir eiga viðskipti
við þetta bankabútibú, enda muna
margir aldraðir búa í þessu hverfí.
Yfírstjórn Landsbankans má vera
stolt af þessum starfsmönnum sínum.
Að lokum þakka ég konunni sem
ber út Morgunblaðið í hverfíð þar
sem ég bý. Það er sama hvort er í
sumri og sólaryl eða í hrakviðrum
vetrarins, alltaf er hún komin með
blaðið um kl. 7 á morgnanna.
REYNIR ÁRMANNSSON,
Furugerði 19,
Reykjavfk.
VELVAKANDI
Ábending til
forsætisráðherra
Hæstvirtur forsætisráðherra.
Varðandi þingræðu hæstvirts
landbúnaðarráðherra, Halldórs
Blöndals, fímmtudaginn 10.
mars þar sem aðalinntak ræð-
unnar fólst í aðskilnaði tveggja
pósta íslensku þjóðarinnar, sem
fólst í þremur setningum sem
voru þannig: íslendingar og
bændur, bændur og íslendingar,
íslendingar og bændur. Sem
sagt: Þjóðinni var greint frá því
að hún væri íslendingar annars
vegar og bændur hins vegar.
Með þessum upphrópunum í
ræðustól gerði landbúnaðarráð-
herra öllum íslendingum það ljóst
að á íslandi byggju tvær þjóðir
og fínnst mér komið að yður,
hæstvirtur forsætisráðherra, að
víkja landbúnaðarráðherra úr
ríkistjórn og úr Sjálfstæðis-
flokknum ef okkur sjálfstæðis-
mönnum á að takast að bjarga
því sem eftir stendur af Sjálf-
stæðisflokknum.
Virðingarfyllst,
Friðþjófur Þorgeirsson.
EBAS-gjafavörur
MIG langaði að þakka fyrir hlý-
legt viðmót sem ég fékk í versl-
uninni EBAS-gjafavörur, Snor-
rabraut 29, á milli Laugavegs
og Hverfísgötu. í sem stystu
máli sagt þá kom ég inn í þessa
verslun til að selja vöru og var
alveg ógurlega kalt. Afgreiðslu-
konan bauðst til að hita kaffi
handa mér, sem hún og gerði,
og eftir spjall yfír kaffínu leysti
hún mig út með gjöfum.
Ég vil benda fólki á þessa
verslun því þarna eru seldar ódýr-
ar og fallegar gjafavörur.
Þ.F.
Fjallahjól tapaðist
SVART trekk-fjallahjól, 10 gíra,
glænýtt, tapaðist úr hjólreiða-
geymslu í Engjaseli 84 eftir jólin.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 71602. Fundarlaun.
Seðlaveski tapaðist
SVART seðlaveski tapaðist í
Vesturbænum fýrir rúmri viku.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 13419.
Linsubox fannst
LINSUBOX með linsum í fannst
á Brávallagötu sl. miðvikudag.
Eigandi má hafa samband í síma
615933 frá 9-17 eða í sima 22928
á kvöldin. Guðrún.
- GÆLUDÝR
Kanína
KANÍNA fæst gefins. Upplýs-
ingar í síma 23842.
Notkun öryggisbelta
Hver sá sem nota sæti bifreiðar
sem búið er öryggisbelti skal nota
beltið þegar bifreið er á ferð.
Börn yngri en 6 ára skulu nota
öryggisbelti ef það er unnt. Annars
skal nota barnabílstól, beltispúða eða
annan sérstakan öryggis- og vernd-
arbúnað ætlaðan bömum. Ökumaður
skal sjá um að farþegi yngri en 15
ára noti öryggis- og vemdarbúnað
bifreiðar.
Leigubílstjórar eiga að nota örygg-
isbelti þegar þeir em ekki í leigu-
akstri með farþega.
Almennari notkun öryggisbelta í
seinni tíð hefur orðið til þess að draga
verulega úr alvarlegri meiðslum í
umferðinni þó svo að umferðarslysum
f heildina hafí ekki fækkað. Það ætti
því að verða hverjum og einum kapps-
mál að virða reglur um notkun öiygg-
isbelta því slysin verða venjulega fyr-
irvaralaust og vegfarendum að óvör-
um. Þá er orðið of seint að spenna
beltin.
Könnun um forgangsröðun
umferöareftirlitsþátta
í tengslum við umferðarátakið
mun lögreglan afhenda vegfarendum
umferðarkönnunarseðla þar sem
þeim verður gefínn kostur á að for-
gangsraða hinum ýmsu umferðarlög-
gæsluverkefnum og skila tillögum
sínum síðan á næstu lögreglustöð.
Ætlunin er að kanna viðhorf vegfar-
enda til vægis hinna ýmsu umferðar-
verkefna lögreglunnar og reyna að
taka tillit til þeirra eftir því sem nið-
urstöður segja til um. Fólk er hvatt
til þess að taka þessu framtaki lög-
reglunnar með velvilja.
ÓMAR SMÁRI ÁRMANNSSON
aðstoðaryfírlögregluþjónn
Reykjavík
LEIÐRÉTTING
Lína féll niður
í minningargrein Helgu, Ragn-
heiðar, Lilju og Ásdísar um Kristin
Sveinsson á Hólmavík á blaðsíðu 37
í Morgunblaðinu á laugardag féll
niður heil lína úr texta. Efnisgreinin
sem línan féll úr er svona: „Afí fædd-
ist og ólst upp á Kirkjubóli í Staðard-
al í Steingrímsfirði. 15 ára fór hann
til sjós og reri frá Bolungarvík og
þrítugur hóf hann búskap á Kirkju-
bóli. Hann kvæntist Gunnlaugu
Helgu Sigurðardóttur, f. 3.9. 1901,
d. 6.5.1991, frá Geirmundarstöðum.
Börn Kristins og Helgu eru Lilja,
húsmóðir á Akureyri, Sveinn, vél-
virkjameistari í Hafnarfirði, Guð-
björg, bóndi í Brautarholti, Hrúta-
fírði, Sigurður, vélvirkjameistari í
Reykjavík, og Guðmundur Trausti,
látinn. Barnabörn Kristins eru 21
talsins og barnabarnabörn 31.“
Hlutaðeigendur eru innilega beðnir
afsökunar á þessum mistökum.
Vmnlngstotur
iaugardaginn
FJÖCDÍ
VINNINGSHAFA
UPPHÆÐ Á HVERN
VINNINGSHAFA
1.
2.
1Q.668.717
146.970
3.
203
7.493
4.
6.621
536
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
16.620.472 kr.
1
«)f'
TÓÍILflKflP
RflUÐ ÁSKRIfTflPPÖÐ
ttflSÓflbíÓI
fimmtudaginn 17. mars, kl. 20.00
Hljómsueitarstjórí: Rico Saccáni
Einleikari: Erling Blöndal Bengtsson
ffniSSKPfl
Hector Berlioz:
Roman Carnival, forleikur
Robert Schumann:
Sellókonsert í a-moll
Pjotr Tsjajkofskíj:
Cappriccio Italien, op. 46
Ottorino Réspighi:
Furur Rómarborgar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITISLANDS Sími
H 11 ó m s v e 11 allio Islendinga 622255
(Tki
ftin m RAFnnuNftíZ!
L f* B » B
HAGST/ETT VERÐ OG
GREIÐSLUSKILMALAR.
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndur við íslenskar aðstæður.
Einar Farestveít&Co.hf.
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
FAGOR
bVÚtfAVáLAtJ FfSð &
FAGOR FE-54 (550 SN/MIN.)
39.900-
AFBORGUNARVERÐ KR. 42.000-
Magn af þvotti 5 kg
Þvottakerfi 17
Hitar síöasta skolvatn
Sér hitastillir 0-9CPC
Ryöfrí tromla og belgur
Hraöþvottakerfi
Áfangaþeytivinda
Sjálfvirkt vatnsmagn
Hæg vatnskæling
Sparneytin
Hljóölát
r
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ NÝTT HEIMIUSFANG
RÖNNING BORGARTÚNI 24 SÍMI 68 58 68