Morgunblaðið - 15.03.1994, Síða 56
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: llAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Rómeó á
svölum í
austurbæ
UM HELGINA var til-
kynnt til lögreglu að
unglingspiltar hefðu
klifrað upp á svalir húss
í austurborginni og væru
að reyna að komast þar
inn. I ljós kom að annar
piltanna hafði heillast svo
af heimasætunni á bæn-
um, að hann ákvað að
reyna að ná athygli henn-
ar.
Annar gripinn
Þegar lögreglan kom á
staðinn hélt húsráðandi öðrum
piltanna, en hinn hafði stokkið
niður af svölunum og látið sig
hverfa. Sá gripni gaf þá skýr-
ingu að hafa haft mikla löngun
til dóttur húsráðanda og því
ákveðið með aðstoð félaga síns
að leika Rómeó, klifra upp á
svalirnar og reyna þannig að
ná athygli hennar. Þá hefði
' heimilishundurinn vaknað og
hann vakið húsráðanda. Hús-
ráðandinn var álíka hrifinn af
heimsókninni og faðir Júlíu á
sínum tíma og pilturinn var
gripinn glóðvolgur.
Pilturinn var færður á lög-
reglustöðina og haft var sam-
band við foreldra hans sem
komu og sóttu hann.
Arni Sigfússon tekur við borgarstj óraembættinu á fimmtudaginn kemur
Atvinnu- og fjölskyldu-
mál verða sett á oddinn
••
Markús Orn Antonsson hættir sem borgarstjóri og víkur úr efsta sæti lista sjálfstæðismanna
MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri segir að niðurstöður skoðanak-
annana hafi ráðið mestu um að hann ákvað að draga sig í hlé og
gefa ekki kost á sér í framvarðasveit Sjálfstæðisflokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar í vor. Markús Örn tilkynnti forsætisráðherra
um ákvörðun sina sl. fimmtudag og kallaði borgarstjórnarflokk Sjálf-
stæðisflokksins saman tii fundar í gær. Þar var samþykkt samhljóða
Morgunblaðið/Sverrir
Borgarstjóraskiptin kynnt fréttamönnum
MARKÚS Örn Antonsson, fráfarandi borgarstjóri, og Árni Sigfússon,
borgarfulltrúi og tilvonandi borgarsijóri, gerðu grein fyrir aðdrag-
anda afsagnar Markúsar Arnar og þeim málum sem Árni Sigfússon
hyggst beita sér fyrir sem nýr oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins á blaðamannafundi á Hótel Borg í gær,
að Árni Sigfússon yrði borgarstjóraefni flokksins við borgarstjórnar-
kosningar í vor og tekur Árni við embætti borgarstjóra á borgarstjórn-
arfundi nk. fimmtudag. Árni kvaðst myndu leggja áherslu á atvinnu-
og fjölskyldumál, fjölga þyrfti vel launuðum störfum og útrýma at-
vinnyleysi. Þar væri mikilvægt að byggja á reynslu sjálfstæðismanna
í eflingu atvinnulífs.
Markús Örn gerði grein fyrir
ástæðum afsagnar sinnar í bréfi til
kjörnefndar í gær. Á sameiginlegum
blaðamannafundi Markúsar Arnar
og Árna Sigfússonar í gær sagði
Markús Örn að það hefði valdið sér
miklum vonbrigðum að skoðana-
kannanir að loknu prófkjöri sjálf-
stæðismanna hefðu ítrekað bent til
þess að Sjálfstæðisflokkurinn ætti
undir högg að sækja í höfuðborg-
inni. Hann sagðist vænta þess að
samhentur frambjóðendahópur und-
ir nýrri foiystu gæti snúið vörn í
sókn og stuðlað að sigri Sjálfstæðis-
flokksins.
Dirfska og sigurvilji
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að ákvörðun Markúsar Arnar
hafi komið sér mjög á óvart en eftir
að hafa hlustað á rök hans hafi
hann fallist á þessa niðurstöðu. Dav-
íð sagði að forystumenn flokksins
hefðu ekki beitt Markús neinum
þrýstingi. Afstaða hans væri mjög
óvenjuleg, hann hefði ákveðið að
víkja til hliðar persónulegum hags-
Breytingar á veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í kjölfar togararalls ólíklegar
1993 þorskárgangurmn
virðist sá stærsti í átta ár
munum og metnaði í þágu hagsmuna
sem hann hafi metið meira. Sagði
Davíð að framboði sjálfstæðismanna
væri nú gefinn nýr svipur með ung-
um manni sem tæki við og það sýndi
bæði dirfsku og sigurvilja af hálfu
flokksins.
Kjörnefnd leggur fram tillögu um
endanlegan framboðslista flokksins
fram til afgreiðslu á fundi fulltrúa-
ráðs sjálfstæðisfélaganna í kvöld.
Að sögn Baldurs Guðlaugssonar,
formanns stjórnar fulltrúaráðsins,
getur fulltrúaráðið gert breytingar
á tillögu kjörnefndar en hann sagði
að reikna mætti með að frambjóð-
endur færðust upp um eitt sæti á
listanum í kjölfar ákvörðunar Mark-
úsar Arnar. „Markús telur að þrátt
fyrir gott gengi i prófkjöri innan
flokksins vanti kannski eitthvað á
að kjósendur, sérstaklega þeir sem
yngri eru, séu sáttir við listann und-
ir hans stjórn. Hann metur það svo
að yngri maður geti brotist út úr
þessari kyrrstöðu og herkví sem
komin var upp í þessari stöðu. Hann
mat það þannig og tók sínar ákvarð-
anir í framhaldi af því og þá hlýtur
maður að vera sáttur við það og
treysta því að það mat hans hafi
verið rétt,“ sagði Baldur.
Ingibjörg Sólrún lýsir yfir
framboði
í gær lýsti Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir alþingismaður yfir að hún
hefði samþykkt að taka 8. sæti á
sameiginlegum framboðslista minni-
hlutaflokkanna og verða borgar-
stjóraefni listans.
Sjá nánar á miðopnu.
VÍSBENDINGAR hafa komið fram um það í togararalli Hafrann-
sóknastofnunar sem er að ljúka þessa dagana að 1993 árgangur-
inn af þorski sé sá stærsti sem komið hefur síðastliðin átta ár,
en seiðatalning síðastliðið sumar hafði reyndar gefið til kynna
að svo gæti verið. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur
ekkert komið í ljós í togararallinu sem gefur til kynna nokkrar
bréytingar á heildartölum varðandi stærð þorskstofnisins við
^Jandið, og því ólíklegt að nokkrar breytingar verði á veiðiráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunar í kjölfar togararallsins. Togararall-
ið sem hófst 3. mars og er hið 10. í röðinni hefur aldrei gengið
jafn hratt og vel fyrir sig, og var Rauðinúpur fyrsta skipið til
að Ijúka sínum rannsóknum, en hann var væntanlegur til hafnar
á Raufarhöfn í gærkvöldi.
Þorskárgangurinn frá 1993 sem
virðist vera svo sterkur sem vísbend-
ingamar nú gefa til kynna kemur
ekki inn í veiðamar fyrr en eftir
fjögur ár, en hins vegar er hann
einn og sér ekki nægilegur til að
bæta ástand þorskstofnsins þar sem
þess þarf nýliðunin að vera góð
nokkur ár í röð. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins hafa aflabrögð
togaranna sem þátt hafa tekið í
togararallinu nú í ár almennt verið
mjög svipuð og í fyrra, og því ekk-
ert sem bendir til þess að veiðistofn-
inn sé stærri en áður hafði verið
áætlað. Þetta liggur hins vegar ekki
'að fullu ljóst fyrir fyrr en unnið
hefur verið úr þeim gögnum sem
aflað hefur verið í togararallinu.
Niðurstöður ættu að liggja
fyrir í byrjun næstu viku
Sem fyrr tóku fimm togarar
þátt í togararallinu, en auk Rauða-
núps tóku þátt í því Bjartur NK,
Brettingur NS, Múlaberg ÓF og
Vestmannaey VE. Alls taka skipin
600 tog allt í kringum landið og
auk þess 30 tog á grunnslóð. Að
sögn Ólafs Karvels Pálssonar
fiskifræðings, sem er leiðangurs-
stjóri í togararallinu, verða þær
upplýsingar sem fengist hafa á
skipunum fimm bornar saman um
leið og þau verða öll komin í land,
en hann sagði að sæmilega trygg
niðurstaða ætti að liggja fyrir í
byrjun næstu viku.
^ # # Morgunblaðið/Einar M. Magnússon
Isklifur við Glym
SÍÐASTLIÐINN laugardag klifu þrír ungir menn úr að klakabrynju á gilveggjunum sitt hvoru megin við
Hjálparsveit skáta í Reykjavík og íslenska alpaklúbbn- fossinn. Klifurleiðin var um 170 metrar og tók ferðin
um upp lóðrétt ísstál við fossinn Glym í Botnsdal í um 7 klukkustundir. Páll Sveinsson var í fararbroddi
Hvalfirði. Glymur er hæsti foss landsins, 198 metra og sést hann á myndinni. Meðklifrarar hans voru
hár, og er talið að þetta sé lengsta ísklifur hér á landi. Þorvaldur V. Þórsson og Magnús Gunnarsson, aðstoð-
Fossinn sjálfur var ekki freðinn en isúðinn hafði mynd- armaður þdya var Geir. Gunnarsson.