Morgunblaðið - 03.05.1994, Page 4

Morgunblaðið - 03.05.1994, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994 I- Morgunblaðið/Sverrir Útför Hans G. Andersen ÚTFÖR Hans G. Andersen, sendiherra, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Séra Bragi Friðriks- son jarðsöng, Dómkirkjukórinn söng við athöfnina, Gunnar Kvaran lék á selló og Elísabet Waage söng einsöng. Samstarfsmenn hins látna úr utanríkisþjónustunni báru kistuna úr kirkju, en þeir voru Róbert Trausti Árnason, ráðuneytisstjóri, Hörður H. Bjarnason, prótókolstjóri, Sveinn Björnsson, forsetaritari, Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, Pétur Thorsteinsson, sendifulltrúi, Guðmundur Eiríksson, sendi- herra, Helgi Gíslason, sendifulltrúi, og Benedikt Jónsson, sendifulltrúi. VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 3. MAI YFIRLIT: Skammt noröaustur af landinu er 1005 mb lægð sem hreyfist norðaust- ur. Yfir suövestanverðu Grænlandshafi er 999 mb lægð sem grynnist. Langt suður í hafi er vaxandi 990 mb lægð sem hreyfist austnorðaustur. SPÁ: Suðaustan kaldi eða stinningskaldi ó landinu. Léttskýjað norðanlands en skýjað með suður og austur ströndinni. Þar verða skúrir og siðar rigning eða súld. Með vesturströndinni verða einnig skúrir. Hiti á bilinu 6 til 12 stiga víöast hvar að deginum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Fremur hæg austlæg átt. Súld eða rining víðasi hvar um landið austanvert en skýjað með köflum vestanlands. Hiti verður á bilinu 7 — HORFUR Á FIMMTUDAG: Nokkuð hvöss austan átt. Suðaustanlands verður súld, rigning sunnan til ó Suðvesturlandi en annars skýjað með köflum. Afram verður HORFUR Á FÖSTUDAG: Nokkuð hvöes austanótt norðan til á landinu en hœg- ari suðlæg átt sunnan til. Súld eða rigning víöast hvar. Áfram veröur hlýtt íveðri. O <Sk Heiðskirt Léttskýjaö / / / * / * / / * / f f f f * / Rigning Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma Skýjað V $ Skúrír Slydduél Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og f|aðrimar vindstyrk, Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.^ * 10° Hitastig V V Súld Él = Þoka j FÆRÐA VEGUM: (Kt. 17.30 ígær) Vegir á landinu eru greiðfærir. Nú er hafinn vormokstur á nokkrum vegum, sem yfirleitt eru lokaðir allan veturinn. Má þar nefna Strandveg á milli Bjarnarfjarðar og Trékyllisvíkur. Þá er Snæfjallastrandarvegur, fyrir Kaldalón orðinn fær og sama er að segja um Vestfjarðaveg á milli Reykhólasveitar og Vatnsfjarðar, hann et einn- ig orðinn fær en vegna aurbleytu er umferð um hann fyrst um slnn miðuð við litla bíla. Verið er að moka veginn yfir Eyrarfjall í isafjarðardjúpi. Upplýsingar um færð eru velttar hjá Vegaeftlrllti í síma 91-631500 og f grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavík hiti veður 9 skýjað 7 skýjað Bergen 9 léttskýjaö Heleinki 7 hétfskýjað Kaupmannahöfn 13 léttskýjað Narssaresuaq 2 snjókoma Nuuk +2 snjóél Óaló 12 léttskýjað Stokkhólmur 9 léttskýjað Þórshöfn 8 léttakýjað Algarve 24 léttskýjað Amslerdam 11 léttskýjað Barcelona 21 Iétt8kýjað Berlín 13 léttskýjað Chicago 6 heiðskirt Feneyjar 19 heiðskírt Frankfurt 14 léttskýjað Glasgow 14 alskýjað Hamborg 12 léttskýjað Landon 15 skýjað Los Angeles 13 alskýjað Lúxemborg 15 heiðskírt Madríd 28 skýjað Malaga 22 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Montreal 5 léttskýjað New York 9 léttskýjað Orlando 23 þokumóða Parla 17 skýjað Madelra 20 hálfskýjað Róm 19 þokumóða Vín 12 alskýjað Washington 9 léttskýjað Winnipeg 2 heiðskfrt Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspé kl. 16.30 (gær) v íDAG kl. 12.00 Ólafur G. Einarsson menntamálaráð- herra um byggingarmál Þjóðminiasafnsins Byggt verði sýning- arhús við Suðurgötu ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra segist vilja að sú stefna verði mörkuð að byggt verði nýtt sýningarhús fyrir Þjóðminjasafnið og að í núverandi húsakynnum safnsins verði eingöngu skrifstofur °g geymslur. Hann segir að endurbætur á núverandi húsakynnum safnsins og bygging sýningarhúss kosti uni einn milljarð króna. Byggingarnefnd Þjóðminjasafns- ins hefur sett fram þijá kosti varð- andi framtíðaruppbyggingu safnsins. Fyrsti kosturinn er að byggja nýtt hús undir skrifstofur Þjóðminja- safnsins og nota gamla húsið áfram undir sýningar. Annar kosturinn er að byggja sérstakt sýningarhús og nota gmala húsið undir skrifstofur, geymslur og fleira. Þriðji kosturinn er að semja við Háskólann um að fá Félagsstofnun stúdenta og Gamla garð til afnota fyrir Þjóðminjasafnið. Olafur G. sagðist þegar vera búinn að útiloka síðasta kostinn. „Ég spái því að annað hvort verði mörkuð sú stefna að byggja nýtt sýningarhús eða nýbygging fyrir skrifstofur, geymslur og fleira. Ég hallast að sýningarhúsi," sagði menntamála- ráðherra. Taiað er um að nýtt sýningarhús vérði byggt vestan Suðurgötu, við hlið eða suður af Þjóðarbókhlöðu. Háskólinn á lóðina sem um ræðir, en stjórnendur skólans hafa tekið vel í hugmyndir um að Þjóðminjasafnið fái hana. Fyrri tillögur lagðar til hliðar Fyrri byggingarnefnd setti fram tillögur árið 1990 um að byggja við Þjóðminjasafnið á lóð safnsins. Hluti nýbyggingarinnar átti að vera neðan- jarðar. Ólafur G. sagði að þessar hugmyndir hafi nú verið lagðar til hliðar. Hann sagði að ýmsar ástæður séu fyrir því, m.a. að erfitt sé með aðkomu að safninu. „Ég lít á þetta sem mjög mikil- vægt verkefni. Núverandi húsnæði er engan veginn forsvaranlegt til þess að geyma þessi verðmæti. Það er unnið að því að endurbæta húsið, en endurbygging þess fer að nokkru leyti eftir því hvernig það verður notað i framtíðinni." Ólafur G. sagði að allir þeir kostir sem menn séu að skoða í þessu dæmi geri ráð fyrir að framkvæmdir við Þjóðminjasafn kosti um einn milljarð króna og er þá bæði verið að tala um endurbætur á gamla hús- inu og nýbyggingu. Á þessu ári er um 80 milljónum varið til viðgerða á safninu. Umboðsmaður um kvörtun veitingamanna Endurskoða þarf gjald- töku vegna löggæslu UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur að endurskoða verði gjaldtöku vegna löggæslukostnaðar af skemmtunum. Mismunur sé milli lögsagnarum- dæma á framkvæmd gjaldtökunnar og núverandi lagaframkvæmd tryggi ekki nægiiega að gjaldtaka sé samræmd. Umboðsmaður kemst að þessari niðurstöðu eftir að hafa fjallað um kvörtun aðila, sem laut að því að greiðsla löggæslugjalds hefði verið sett sem skilyrði fyrir veitingu skemmtanaleyfis. Með slíkri gjald- töku væri atvinnurekstri á þessu sviði mismunað eftir landshlutum. Fram kom, að veitingastaður þess aðila sem kvartaði hafði greitt nær 800 þúsund krónur í gjald fyrir kostnað vegna löggæslu á skemmt- unum árið 1992, en á sama tíma hafi sambærilegir skemmtistaðir í Reykjavík og á Akureyri ekki þurft að greiða nein slík gjöld. Jafnræðis verði gætt í niðurstöðu umboðsmanns kemur fram, að dóms- og kirkjumálaráð- herra skipaði nefnd í febrúar 1993 til að gera tillögur að nýjum reglum um greiðslu þessa löggæslukostnað- ar. Sú nefnd hafi komist að þeirri niðurstöðu, að mismunandi væri, hvernig staðið væri að innheimtu kostnaðar vegna löggæslu á skemmtunum. Byggði nefndin álit sitt á upplýsingum, sem ráðuneytið aflaði frá lögreglustjórum haustið 1992. Umboðsmaður segir að með tilliti til þeirra gagna, sem fyrir hann hafí verið lögð, sé það niðurstaða hans, að núverandi lagaframkvæmd tryggi ekki nægilega, að gjaldtaka vegna löggæslukostnaðar af skemmtunum sé samræmd, þannig að jafnræðis sé gætt af stjórnvöldum við þá stjórnsýsluframkvæmd. Það séu því tilmæli sín, að ráðuneytið taki umrædda gjaldtöku til endur- skoðunar, að því leyti að ekki liggi fyrir málefnaleg og frambærileg sjónarmið til grundvallar þeim mis- mun, sem sé á framkvæmd hennar milli lögsagnarumdæma. Bflar með veðböndum seldir til Rússlands ANDRI Árnason lögfræðingur sagði að færa megi fyrir því rök að verið sé að stunda veðsvik í þeim tilvikum þar sem verðsettir bílar hafa verið seldir til Rússlands. Veðið falli ekki niður þó bílinn sé seld- ur úr landi, en í flestum tilvikum sé verið að gera veðhafa ókleift að nýta sér veðréttinn þegar bílar séu seldir alla leið til Rússlands. Nokkuð hefur verið um að rúss- neskir sjómenn hafi keypt gamlar veðsettar Lödur hér á landi og flutt þær með sér til Rússlands. í fæstum tilvikum er hér um að ræða háar veðsetningar. Andri sagði að oftast sé ekki neitt kveðið á um það í skuldabréfum að ekki megi selja við- komandi bíl úr landi. Veðið fylgi því bílnum sé hann seldur úr landi og í sjálfu sér sé ekkert því til fyrirstöðu að veðhafi sæki viðkomandi bíl út fyrir landsteinana standi skuldari ekki í skiium. Hann sagði hins vegar að ef bíll væri seldur alla leið til Rússlands án þess að kaupandinn væri nokkurs staðar skráður megi færa fyrir því rök að verið ‘sé að gera veðhafanum ómögulegt að nýta sér veðið. Staða veðhafans sé þá svipuð og ef bílnum hefði verið farg- að. Á sumum þeirra bíla sem seldir hafa verið til Rússlands hafa hvílt opinber gjöld, s.s. bifreiðagjöld. Andri sagði að þau fymist ekki þó bíllinn sé seldur úr landi. Ríkissjóður geti innheimt bifreiðagjöld þó að bíll- inn sé ekki til staðar. ------♦ ♦ ♦----- Borgarstjóri veitir ekki tóbak ÁRNI Sigfússon borgarstjóri veit- ir ekki tóbak í boðum á vegum Iteykjavíkurborgar. Árni sagði í samtali við Morgun- blaðið að reykingar gesta hjá borg- inni séu ekki óheimilar en hann líti svo á að menn eigi að koma með sifct tóbak sjálfir. fc fc i fc I í I * fc I i i i l i I i fc fc

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.