Morgunblaðið - 03.05.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
5
Ný verðskrá tekur gildi hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Verð á innfluttum bjór lækk-
ar að meðaltali um 3,5%
NÝ verðskrá gekk í gildi hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í
gær. Samkvæmt henni hækkar verð á víni og sterkum drykkjum
um 1% en verð á innfluttum bjór lækkar að meðaltali um 3,3%. Verð
á íslenskum bjór er óbreytt og verð á tóbaki hækkar að meðaltali
um 2,5%.
Lækkunin á innfluttum bjór kem-
ur til af 15% lækkun gjalds sem
hingað til hefur verið sett á inn-
kaupsverð á erlendum bjór inn-
lendri framleiðslu til verndar. Er
það nú 35%. Verðhækkun á víni og
sterkum drykkjum, sem er 1% að
meðaltali, kemur til af verðbreyt-
ingum erlendis og gengisbreyting-
um samkvæmt upplýsingum frá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
Tóbak hækkar um 2,5% að meðal-
tali og stafar verðhækkunin einnig
af breyttu gengi og breyttu inn-
kaupsverði í erlendri rnynt, til dæm-
is hefur bandaríkjadalur hækkað
um 4,8% frá því vet'ð tóbaks var
ákvarðað síðast samkvæmt upplýs-
ingum frá ÁTVR. Sem dæmi unr
Bensínið
hækkarum
eina krónu
OLÍUFÉLÖGIN hækkuðu
bensín um eina krónu síðast-
ljðinn sunnudag eða um 1,5%.
Ástæða verðhækkunarinnar
er hækkun á innkaupsverði,
en verð á bensíni hefur verið
að hækka síðustu vikurnar á
alþjóðlegum mörkuðum.
Dollarinn hefur á sama tíma
verið að lækka og dregur það
úr áhrifum hækkunarinnar
hér á landi.
Olíufélögin hækkuðu bensín-
ið um eina krónu, öll á sama
tíma. Talsmenn þeirra þvertaka
fyrir að um samráð sé að ræða.
Þeir segja að fyrirtækin bregð-
ist einfaldlega skjótt við
ákvörðunum hvers annars
vat'ðandi verðlagningu á bens-
íni.
Bensínverð hækkar að jafn-
aði á alþjóðlegum mörkuðum á
vorin þegar eftirspurn eftir
bensíni eykst. Verðið hefur síð-
an tilhneigingu til að lækka
aftur þegar líður á árið. Tals-
ntenn olíufélaganna segja of
snemmt að spá fyrir unt hvort
bifreiðaeigendut' mega eiga von
á lækkun síðar á árinu. Það
fari m.a. eftir því hvernig gengi
dollars þróast.
verðbreytingar má nefna 50 króna
lækkun á sex 33 cl flöskum af
Heineken-bjór, sem fer úr 930 krón-
um í 880. Piat de Beaujolais-rauð-
vín, 750 ml flaska, lækkar um 10
krónur í 920. Absolut-vodka, 700
ml, hækkar um 60 krónur og fer í
2.260, pakki af Winston-sígarettum
hækkar um 7 krónur í 267 en verð
á London Docks-vindlum helst
óbreytt.
Innfluttur bjór lækkar
Innfluttur flöskubjórKippan
900 „„„ DDn„„„ kostar
nu j
J§0 660
860 850
850
verði
Flöskubjór framleiddur
innanlands
Beck’s
6x35,5cl
Bitburger
6x33 cl
Holsten
6x33cl
Pripps
6x35,5cl
Viking Löwenbráu Tuborg
6x33cl 6x33cl 6x33cl
Egils gull
6x33cl
Fékk þýskt
seguldufl
í vörpuna
SKUTTOGARINN Þuríður Hall-
dórsdóttir GK fékk þýskt segul-
dufl í botnvörpuna þar sem það
var að veiðum um 20 sjómílur
suðut' af Stafnesi aðfaranótt
mánudags. Skipið kom með dufl-
ið að landi í Sandgerði snemma
í gærmorgun. Þar tók Landhelg-
isgæslan við því og eyddi duflinu
í Sandvík.
„Svona dufl eru viðkvæm fyrir
hnjaski," segir Gylfi Geirsson hjá
Landhelgisgæslunni. í duflinu var
sprengiefni sem samsvarar um
hálfu tonni af dýnamíti. Þegar það
þornar kristallast sprengiefnið og
verður viðkvæmt, segir hann.
Gylfi segir að duflið hafi verið
stærra en gengur og gerist. Það
væri síðan úr seinni heimsstytjöld-
inni og hafi það virkað j)annig að
það skynjaði segulsvið skipa sem
framhjá því sigldu. Sá búnaður sé
fyrir löngu ónýtur. í gegnum tíðina
segir hann að fundist hafi um 20
slík dufl við landið.
Við tökum gamla bílstólinn sem
2000 lcr.
upp i
nyjan
Framundan er mesta ferðasumar allra tíma.
Við hjá Skeljungi viljum leggja okkar af mörkum
til að auka öryggi bama í umferðinni.
Þess vegna tökum við notaða bílstóla óháð
tegund, aldri og ásigkomulagi upp í nýjan
og öryggisprófaðan Britax-stól.
Kynntu þér Britax-úrvalið og komdu með gamla
stólinn í Skeljungsbúðina Suðurlandsbraut 4,
Skeljungsbúðina Keflavík, Skeljungsbúðina
Akureyri, Skeljungsbúðina Vestmannaeyjum
eða á bensínstöðvar Skeljungs uin allt land
- og skiptu.
Skeljungur og Britax
setja öryggi barnanna ofar öllu
ö
Skógrækt meó Skeljungi
Bensínstöðvar Skeljungs
Skeljungsbúðin
Suðurlandsbraut 4 • Sími 603878
Opið mán. - fös. kl. 9.00-18.00, laug. kl. 10.00-14.00
• Ath. einn nolaður stóll upp í hvern nýjan