Morgunblaðið - 03.05.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
7
Veríu á heimaveUi en fjárfestu
í erlenduni verðbréfasjóðum
Islenskur læknir fær
háan styrk í Bretlandi
NÝLEGA veitti Welcome-stofnunin í Bretlandi Reyni Arngrímssyni
lækni nítján milljóna króna styrk til genakortlagninga og erfðafræði-
rannsókna á hækkuðum blóðþrýstingi í meðgöngu og fæðingarkrömp-
um. í samtali við Morgunblaðið sagði Reynir að markmið rannsóknar-
innar, sem væri hluti af samstarfsverkefni rannsóknastofnanna í Bret-
landi og Kvennadeildar Landspítalans, væri að kortleggja erfðaþætti
sem geta stuðlað að fjölskyldtilhneigingu í þessum sjúkdómi.
Auk fyrrgreindra aðila taka þátt
í verkefninu rannsóknarstofur í Par-
ís, Sidney og Melborne í Ástralíu og
Seoul í Kóreu. „Á sl. ári birtust í
hinu virta tímariti Nature genetics
niðurstöður rannsóknahópanna í
Glasgow, París og Reykjavík sem
benda til þess að gen sem er í litn-
ingi 1 geti átt hlut að máli,“ sagði
Reynir. Til þess að rannsaka þetta
frekar ákvað Wellcome-stofnunin,
sem er einn stærsti styrkveitandi
læknisfræðilegra rannsókna á Bret-
landseyjum, að veita Reyni Arn-
grímssyni þennan 19 milljóna króna
styrk. I kjölfar þess hefur verið efnt
til alþjóðlegs samstarfs um þessar
rannsóknir sem Reynir mun stjórna.
Að sögn Reynis eru hækkaður
blóðþrýstingur í meðgöngu og fæð-
ingarkrampar sem geta fylgt því
sjúkdómsástandi meðal alvarlegustu
fylgikvilla þungunar. Um 2% af
þunguðum konum fá alvarlegt form
þessa sjúkdóms sem kallast með-
göngueitrun, en þá fylgir eggjahvíta
í þvagi blóðþrýstingshækkuninni.
Orsök sjúkdómsins er óþekkt en
rannsóknir sýna að ef þunguð kona
hefur fjölskyldusögu um meðgöngu-
eitrun aukast líkur a.m.k. fimmfalt
á því að hún veikist.
Reynir Arngrímsson lauk lækna-
prófi frá HÍ 1986 og starfaði að loknu
kandídatsári við Kvennadeild Land-
spítalans. Hann býr nú í Glasgow
ásamt konu sinni Þorbjörgu Hólm-
geirsdóttur jarðverkfræðingi og son-
um þeirra tveimur. Reynir hefur frá
árinu 1990 starfað við Duncan Gut-
hrie-stofnunina í læknisfræðilegri
erfðafræði í Glasgow, en hún er
meðal stærstu stofnana á Bretlands-
eyjum sem sinnir sjúkdómsgreining-
um á arfgengum sjúkdómum og erfð-
aráðgjöf. Ásamt samstarfsmönnum
sínum hefur Reynir birt greinar um
erfðafræði meðgöngueitrunar og
fleiri sjúkdóma í læknisfræðitímarit-
um.
Hjartavernd mun safna sýnum
Fyrir tilhlutan styrks frá Vísinda-
sjóði, sem Reyni Árngrímssyni var
veittur í samvinnu við Reyni Tómas
Geirsson prófessor á Kvennadeild
Landspítalans, er að hefjast í Hjarta-
vernd söfnun á sýnum til frekari
erfðafræðirannsókna. Vönast er til
að konur sem fengið hafa fæðing-
arkrampa og konur með fjölskyldu-
sögu um hækkaðan blóðþrýsting í
meðgöngu, sérstaklega systrapör,
muni hafa samband við Hjartavernd
sem veitir frekari upplýsingar um
rannsóknina.
„íbúð á efri hæðimíi“
Reykjavík
leg’grir til
9,9 millj.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að veija 9,9 milljónum til tilrauna-
verkefnisins „íbúð á efri hæð“.
Gert er ráð fyrir að verkefninu
verði lokið um áramótin og skal
verkefnisráð leggja fyrir skýrslu
um framkvæmdir og tillögur að
framtíðarfyrirkomulagi.
í erindi til borgarráðs segir að
eitt merkasta nýmæli sem fram
hafi komið í framkvæmdum við
endurlífgun miðborga sé „íbúð á
efri hæð“. Þar sé lögð áhersla á
að breyta hæðum fyrir ofan versl-
unar- og þjónustuhúsnæði í íbúðir.
Síðasta sumar hafi farið fram
könnun á nýtingu húsnæðis í mið-
borginni sem leitt hafi í ljós að víða
á starfssvæði Þróunarfélags
Reykjavíkur sé að finna húsnæði
sem nýta mætti mun betur en nú
er gert. Á sama tíma hafi komið
fram veruiegur skortur á litlum
íbúðum á svæðinu.
Verkefnisráðið verður skipað
fulltrúa frá Borgarskipulagi, bygg-
ingafulltrúa og Þróunarfélagi
Reykjavíkur. Ráðgert er að auglýsa
eftir aðilum sem áhuga hafa á sam-
starfi við framkvæmd verkefnisiiís.1
New York Stock Excfumge á okkar hcimavelii
NÝSÝNFYMR
ÍSLENSKA FJÁRFESTA
Skandia
Fjárfestingarfélagið Skandia hf.
...greiðir götu þína á alþjóðlegum verðbréfamarkaði
Löggilt verðbréfafyrirtæki • Laugavegi 170, sími 61 97 00 • Útibú: Kringlumi, sími 68 97 00 • Akureyri, sími 1 22 22 • Fjárfestingarfélagið Skandia hf. er alfarið í eigu Skandia-samsteypunnar
Leitað er tilboða í eignina
Bergstaðastræti 66 í Reykjavík
Tilboðum skal skila til Skúla H. Norðdahl, sem gefur
frekari upplýsingar.
Skúli H. Norðdahl ark. F.A.I.,
Víðimel 55, 107 Reykjavík, stmi 12160.
■
HUI
Fjárfestingarfélagið Skandia hefur bent
á nýja möguleika fyrir íslenska fjárfesta
°g tryggt þeim aðgang að alþjóðlegum
verðbréfamörkuðum.
Viðskiptavinir Skandia eiga þess nú
kost að kaupa hlut í erlendum verð-
bréfasjóðum sem fjárfesta um allan
heim.
Skandia er fjölþjóðlegt fyrirtæki með
umtalsverða reynslu á alþjóðlegum
peningamarkaði.
Nýttu þér þekkingu og faglega ráðgjöf
starfsfólks Skandia við val á erlendum
verðbréfasjóðum.
Nú gefst einnig tækifæri tíl að kaupa ein-
stök hlutabréf í arðbærum,
erlendum fyrirtækjum
með litlum tilkostnaði.
Erlendar fjárfestingar
em eðbleg viðbót við
umsýslu íslenskra fjárfesta.
Kynntu þér möguleikana sembjóðast!
iauuii