Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
Haphasardess-hópurinn.
KVENDÝRIÐ
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Hlaðvarpinn,
Haphasardess-hópurinn,
opið alla daga 14-18, til 7.
maí.
Það eru reiðinnar ósköp sem
kvendýrið gerir sér til dundurs
í nafni kvenréttindabaráttunn-
ar.
Konan á að vera eitthvað svo
„gasalega" spennandi fyrirbæri
og gerðir hennar allar helgast
af þeim mikilfenglegu sannind-
um. Hingað til íslands hafa
þrjár valkyrjur ratað frá Finn-
landi, til að kynna okkur hér á
hjara veraldar kvenímynd eina,
sem hefur hlotið enska heitið
„Haphazardess", og útleggja
má á ýmsa vegu, t.d. „tilviljan-
atáta“.
Söguhetjan er alitaf í góðu
skapi og sér jafnan björtu hlið-
amar á hlutunum hvað sem á
bjátar, á að sjálfsögðu margar
hliðstæður í karlímyndinni, og
er sem slík í meira lagi upplífg-
andi í önn og grámyglu hvunn-
dagsins. En er þetta ekki þegar
allt kemur til alls ein tegund
veruleikaflótta samtíðarmanns-
ins, er allir eiga að líta vel út
og vera í góðu skapi ásamt
skeíjalausri, jafnvel skelfilegri
dýrkun yfirborðsins, og grunn-
færðra kennda um leið?
Allt á að gerast svo hratt
og áreynslulaust og vera baðað
ljósi og birtu, eins og myrkrið
sé ekki til og lífið vari að eilífu,
- jafnvel brandararnir skulu
vera svo einfaldir og grunn-
færðir að ekki þurfi að beita
neinni hugsun né dýpri kennd-
um til að skilja þá. þeir eiga
helst að vera galopnir, fram-
kalla hrossahlátur og gleymast
jafharðan.
Hvar eru eiginlega brandar-
ar gærdagsins, sem maður hló
tvisvar að, fyrst er þeir voru
fram bornir af mikilli list og
svo þegar maður skildi þá? Við
lifum á tímum er fólk hneigist
til að sópa vandamálunum und-
ir teppið eins og það heitir, og
helst vill það t.d. nálgast uppv-
askið og slík leiðindi seint og
um síðir, vígklætt múnderingu
stórhreingerninga í bak og fyr-
ir, ef heila klabbinu hefur ekki
einfaldlega verið stungið inn í
uppþvottavél.
En af hveiju gera einhver
störf að ímynd leiðindanna í
stað þess að sjá ljósu hliðarnar
við þau líka og finna til djúprar
gleði við að sjá óhreina hluti
verða tandurhreina á ný?
Satt að segja hefur mér allt-
af fundist einhver minnimáttar-
kennd á bak við konur og karla,
sem álíta sig eitthvað alveg
sérstakt og segja sex. Hins
vegar má hafa fjarska gaman
af slíkum á teiknimyndasögum
svo Iengi sem aulafyndnin tek-
ur ekki yfirhöndina og verður
leiðigjörn.
Mér gekk að vonum ekki of
vel að skilja finnsku textana í
teiknimyndunum, en þeir hljóta
að vera mjög sniðugir eins og
ímyndin sjálf. Hún er annars
hópverk þeirra Maikki Haij-
anne barnabókahöfundar og
veflistakonu, Eppu Niotio leik-
konu og rithöfundar og Jó-
hönnu Bruun tízkuhönnuðar.
Helst get ég dæmt um teiknif-
ígpiruna sem er einföld og glað-
hlakkaleg hönnun, ef svo má
komast að orði, og ekki fortek
ég eitt augnablik að hér geti
verið um mjög merkilegt sam-
starf að ræða. I þeirri mynd
sem við blasir er gjörningurinn
í sínu rétta umhverfi, enda
höfðar hann aðallega til
kvenna.
Sýnishorn úr söluskrá:
★ Garðyrkjustöð í Rvík. Framtíðarstaður.
★ Vélar og tæki fyrir bakarí.
★ Vinsæl flytjanleg leiktæki. Góð sumarvinna.
★ Verktakafyrirtæki. Grafa og bíll fyrir garða.
★ Framleiðsla á sælgæti. Gott aukastarf.
★ Bifreiðaþjónusta. Öll tæki. Mjög snyrtilegt.
★ Bifreiðaverkst. Réttindi til fullnaðarskoðunar.
★ Auglýsingaskiltagerð. Öll tæki.
★ Framleiðsla á garðhúsum, gluggum o.þ.h.
★ Trésmíðaverkstæði. Stórt og fullkomið.
★ Sólbaðsstofa á góðum stað.
★ Innflutningur og sala á innréttingum.
★ Gjafavöruverslun við Laugaveginn.
★ Fríkuð tískuvöruverslun.
★ Byggingavöruverslun. Mikill annatími.
★ Söluturn með yfir 3 millj. mánaðarveltu.
★ Ljósaskilti fyrir fjáröflun íþróttafélaga.
★ Mikið úrval að ýmsum fyrirtækjum.
r^7TTÍTí?i?!?7?pyiTViT71
SUÐURVE R I
SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Karlakorinn Þrestir heldur söngskemmtanir í Viðistaðakirkju næstu
daga.
Söngskemmtim Þrasta
í Hafnarfirði
KARLAKÓRINN Þrestir í Hafnarfirði heldur sínar árlegu söng-
skemmtanir fyrir styrktarfélaga og aðra velunnara í Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði miðvikudaginn 4. mai og fimmtudaginn, 5. maí klukk-
an 20.30 og laugardaginn 7. maí klukkan 17.
Stjórnandi Karlakórsins Þrasta
er Eiríkur Árni Sigtryggsson. Ein-
söngvarar með kórnum að þessu
sinni eru Sigríður Gröndal sópran
og Óskar Pétursson tenór. Við
flygilinn verður Bjarni Jónatansson.
Á efnisskrá eru fjölbreytt tónlist
úr ýmsum áttum. Miðar verða seld-
ir við innganginn.
Starfsstyrkir Hagþenkis
LOKIÐ er veitingu helstu styrkja og þóknana sem Hagþenkir, félag
höfunda fræðirita og kennslugagna, úthlutar i ár. Starfsstyrkir voru
veittir 22 höfundum, samtals 1.550.000 krónur en umsóknir bárust um
rúmlega fimm og hálfa milljón.
Hæstu styrki til ritstarfa, 150
þús. krónur, hlutu tvö verkefni. Ann-
ars vegar Bjarni Þorsteinsson og
Michael Dal vegna hlustunarefnis við
dönskukennslubækurnar „Dam-
markmosaik 1 og 2“, hins vegar
Þórunn Valdimarsdóttir vegna ritsins
„Landsmálablöðin um síðustu alda-
mót“. Hildigunnur Halldórsdóttir
hlaut 100 þús. krónur vegna ritunar-
forrits handa börnum og Sigurður
Konráðsson sömu upphæð vegna
handbókar um máltöku barna og
máluppeldi. Aðrir styrkir til ritstarfa
námu ýmist 75 eða 50 þús. krónum.
Félagið veitti í fyrsta sinn í ár styrki
til að vinna að gerð fræðslu- og heim-
ildarmynda. 200 þúsund krónur
hlutu Ari Trausti Guðmundsson og
Jón Gauti Jónsson en Tryggvi Jak-
obsson hlaut 100 þús. krónur. Þeir
vinna að myndum um náttúru lands-
ins og sögulegum heimildarmyndum.
Hagþenkir, félag höfunda fræði-
rita og kennslugagna, greiddi í apríl
26 höfundum þóknun vegna ljósrit-
unar úr verkum þeirra í opinberum
skólum. Fimmtán höfundar fengu
greidda þóknun vegna þess að þeir
höfðu annast gerð og samið handrit
að fræðslu- og heimildarmyndum
sem sýndar voru í sjónvarpi 1988-
1993.
Hagþenkir veitir árlega um það
bil 20 höfundum ferða- og menntun-
arstyrki. Fyrri úthlutun ársins fór
fram í apríl og hlutu þá 13 höfundar
slíkan styrk.
Félagar í Hagþenki eru nú 280.
Formaður er Hjalti Hugason.
Nýjar bækur
Ljóð tengd
hafinu
Út er komin ljóðabókin Kuð-
ungahöllin eftir Þórunni
Björnsdóttur. Þetta er fyrsta
bók höfundar.
í Kuðungahöllinni eru 23 ljóð
sem „tengjast mörg hver töfrum
og leyndardómum hafsins“ eins
og segir í kynningu:
í undirdjúpunum
skín í kuðunga
og marglita
steina
sem læðast upp
á yfirborðið
á nóttunni
inn í
draumalandið
Útgefandi er höfundur. Kuð-
ungahöllin er 52 blaðsíður. Kápa
er eftir Þorfinn Skúlason. Bókin
kostar 500 krónur.
Þórunn Björnsdóttir
DAGBÓK
TALSÍMAKONUR halda hádeg-
isfund á Loftleiðum nk. laugardag
6. maí.
KVENFÉLAGIÐ Heimaey held-
ur sitt árlega lokakaffi kl. 14
sunnudaginn 8. maí nk. á Hótel
Sögu. Tekið verður á móti kökum
eftir kl. 10 f.h. þann sama dag.
GJÁBAKKI, félagsheimili eldri
borgara, Kópavogi. Munum sem
vera eiga á basar og sýningu í
Gjábakka 10. og 11. maí þarf að
skila í þessari viku. Gangan með
Guðmundi kl. 14 í dag. Uppl. í
síma 43400.
FÉLAGSSTARF aldraðra, Mos-
fellsbæ. Ásthildur Pétursdóttir
verður með ferðakynningu í dag
kl. 15 í dvalarheimili aldraðra,
Skráning í ferð til Snæfellsness
stendur yfir.
SAMTÖK sykursjúkra halda
aðalfund í kvöld, 3. maí, kl. 20 á
Eiríksgötu 34, áður Hjúkrunar-
skóli Islands.
GÓÐTEMPLARASTÚKURN-
AR í Hafnarfirði eru með spila-
kvöld í Gúttó nk. fimmtudag kl.
20.30.
BRIDSKLÚBBUR félags eldri
borgara, Kópavogi. í kvöld kl.
19 verður spilaður tvímenningur
í Fannborg 8, Gjábakka.
MENNINGAR- og friðarsam-
tök íslenskra kvenna halda fund
í kvöld kl. 20.30 á Vatnsstíg 10.
Gestur fundarins verður Sigrún
Magnúsdóttir, borgarfulltrúi.
Kaffi.
BÚSTAÐASÓKN. Fótsnyrting
fimmtudag. Uppl. í s. 38189.
DÓMKIRKJUSÓKN. Fótsnyrt-
ing í safnaðarheimili kl. 13.30.
Uppl. í s. 13667.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir alla
aldurshópa í dag kl. 14-17.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Starf
10-12 ára barna (TTT) í dag kl.
16.30. Bænaguðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 18.30. Fyrirbæn-
um má koma til sóknarprests í
viðtalstíma.
BÚSTAÐAKIRKJA: Starf
11-12 ára krakka í dag. Húsið
opnar kl. 16.30.
DÓMKIRKJAN: Mömmumorg-
unn í safnaðarheimilinu Lækjar-
götu 14a, kl. 10-12.
GRENSÁSKIRKJA: Kyrrð-
arstund kl. 12. Við upphaf stund-
arinnar er orgelleikur í 10 mínút-
ur. Altarisganga, fyrirbænir, sam-
vera. Opið hús kl. 14. Sr. Halldór
S. Gröndal verður með biblíulest-
ur. Síðdegiskaffi.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 10.30.
Beðið fyrir sjúkum.
LANGHOLTSKIRKJA: Vina-
fundur kl. 14-15.30 í safnaðar-
heimilinu. Leiðsögn í lestri ritning-
anna. Leiðbeinandi sr. Flóki Krist-
insson. Aftansöngur í dag kl. 18.
NESKIRKJA: Mömmumorgunn í
safnaðarheimilinu kl. 10-12.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Foreldramorgunn kl. 10-12.
Starf fyrir 10-12 ára í dag kl. 17.
FELLA- og Hólakirkja: For-
eldramorgunn í fyrramálið kl.
10-12.
HJALLAKIRKJA: Mömmu-
morgnar á miðvikudögum frá kl.
10-12.
KEFLAVÍKURKIRKJA: For-
eldramorgnar á miðvikudögum kl.
10-12 í Kirkjulundi og fundir um
safnaðareflingu kl. 18-19.30 á
miðvikudögum í Kirkjulundi.
LANDAKIRKJA, Vestmanna-
eyjum: Mömmumorgunn kl. 10.
SKÓGRÆKTARFÉLAG Mos-
fellsbæjar heldur aðalfund í
Harðarbóli, félagsheimili hesta-
manna, á morgun kl. 20.30. Óli
Valur Hansson fyrrverandi garð-
yrkjuráðunautur sýnir myndir og
heldur erindi um plöntusöfnun á
Kamtsjaka haustið 1993. Allir
velkomnir.
SKIPIN_________________
REYKJAVÍKURHÖFN: í fyrra-
dag komu Siglfirðingur, Brúar-
foss, Stapafell og þýska eftir-
litsskipið Walther Herwig III
sem fór samdægurs. Þá fór
Drangey á veiðar._ í gær komu
til löndunar Ásbjörn og
Hólmadrangur. Stapafell fór.
Þá var búist við að Hvassafell
færi út og Engey á veiðar.