Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
15
verulega aflann við landið. Ef vel
tekst til má síðan stórauka þessar
seiðasleppingar. Ennfremur er hugs-
anlegt að hagkvæmt sé að ala þorsk-
inn upp í sláturstærð eins og gert
er við lax, silung og fleiri físktegund-
ir.
Kostnaðinn við þennan sjávarbú-
skap verður ríkið að greiða fyrstu
árin en síðar væri eðlilegt að ríkið
innheimti veiðileyflsgjald sem greiðir
kostnaðinn niður enda eru flskistofn-
arnir sameign þjóðarinnar.
Þar sem þessar tilraunir hafa al-
þjóðlega þýðingu og árangur þeirra
kemur öllum þjóðum heims að gagni
er heppilegt að yflrumsjón þeirra sé
í höndum FAO (Food and Agricult-
ure Org.) sem greiði þá stóran hlut
af kostnaðinum enda er hlutverk
þeirrar stofnunar m.a. að auka mat-
vælaframleiðslu úr hafínu. Vegna
einstakrar reynslu Norðmanna af
fiskirækt og eldi á þorskseiðum er
mikilvægt að þeir séu hafðir með í
ráðum.
Þetta verkefni getur orðið mikil
lyftistöng fyrir íslenskar fiskirann-
sóknir og skapað fjölmörg störf fyr-
ir sjávarlíffræðinga og aðra vísinda-
menn, svo ekki sé talað um sjómenn
og fiskverkafólk sem hagnast mest.
Lokaorð
Nú er rétti tíminn til að rífa ís-
lensku þjóðina upp úr þeim drunga
og vonleysi sem lamar þjóðfélagið í
dag. Ríkisstjórnin verður að hafa
þor og dug til að fara nýjar leiðir
og breyta áratugsstöðnun í lífskjör-
um í nýja framfarasókn. Stórauka
þarf framlög til rannsókna, þróunar
og nýsköpunar í atvinnulífi og gera
íslendinga að virkum þátttakendum
í ört vaxandi markaði fyrir tónlist,
kvikmyndir, hugbúnað og hverskyns
hönnun.
Nú er að koma á vinnumarkaðinn
glæsileg kynslóð af þróttmiklu, vel
menntuðu, ungu fólki.
Það er hlutverk ykkar forystu-
mannanna í stjórnmálum að virkja
þessa krafta. Ef það tekst eru bjart-
ir tímar framundan fyrir íslenska
þjóð.
Með bestu kveðjum.
Höfundur er verkfræðingur.
--------» ♦ ♦--------
Tónlistarskólinn í
Grafarvogi
Styrkur
vegna
húsnæðis-
kaupa
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að greiða Tónlistarskólanum í
Grafarvogi fyrirfram 5 milljóna
króna styrk vegna launakostnað-
ar og gera skólanum þar með
kleift að festa kaup á húsnæði.
Styrkurinn kemur til frádráttar
framlagi úr borgarsjóði á næstu
fimm árum.
í greinargerð framkvæmdastjóra
lögfræði- og stjórnsýsludeildar segir
að Reykjavíkurborg taki þátt í
rekstri átta annarra tónlistarskóla
í borginni. Tveir þeirra séu í hús-
næði í eigu borgarsjóðs og Tón-
menntaskólinn í Reykjavík sé til
húsa í húseign Reykjavíkurborgar
við Lindargötu 51. Skólinn greiði
ekki húsaleigu en annist á eigin
kostnað viðhald innanhúss. Borgar-
sjóður kostar utanhússviðhald og
samkvæmt reikningum fyrir árið
1992 var greidd rúmlega 1,1 millj.
kr. til viðhalds á húsnæðinu en rúm-
ar 3,1 árið 1993.
Tónlistaskólinn í Grafarvogi
hyggst festa kaup á 145 fermetra
húsnæði og er lagt til að borgarsjóð-
ur greiði fyrirfram styrk vegna
launakostnaðar, sem komi til frá-
dráttar á næstu fimm árum. Miðað
við óbreyttar 125 kennslustundir á
viku fengi skólinn rúma 8,1 millj. í
styrk á næstu fimm árum.
ÁFRAM HAFNARF JÖRÐUR - TIL SIGURS
eftir Ingvar
Viktorsson
Það er alltaf gaman að vera
Hafnfirðingur, en þessa dagana
er gleðin meiri en endranær. Frá-
bærir handknattleiksmenn úr
Hafnarfirði eru þessa dagana bún-
ir að næla í tvo bikara af þeim
þremur sem eru í boði og nú hillir
undir þann þriðja.
Við sem stöndum í forystu
bæjarmála í Hafnarfirði höfum
lagt mikla áherslu á uppbyggingu
íþróttastarfs og ekki síður íþrótta-
mannvirkja. Okkur til mikillar
gleði er uppskeran í samræmi við
það.
Ingvar Viktorsson
FH-ingar, sem hafa náð frábær-
um árangri á undanförnum árum,
urðu bikarmeistarar fyrir skömmu
og nokkru síðar bættu Hauka-
menn um betur, þegar þeir
tryggðu sér deildarmeistaratitil
íslandsmótsins.
Enn eitt gleðiefnið á þessu sviði
er frábær gangur íþróttafélags
Hafnarfjarðar, ÍH, sem tryggði sér
rétt til að leika í fyrstu deildinni
í handknattleik. Þrjú lið í fyrstu
deild er árangur sem við Hafnfirð-
ingar erum allir stoltir af.
Framundan eru hörku baráttu-
leikir milli Hauka og Vals um sjálf-
an íslandsmeistaratitilinn í hand-
bolta. Þar stöndum við Hafnfirð-
ingar allir sem einn að baki Hauk-
um og setjum stefnuna á þriðja
bikarinn.
Áfram Haukar — Áfram
Hafnarfjörður.
Höfundur er bæja.rstjóri í
Hafnarfirði.
Höföar til
fólks í öllum
starfsgreinum!
ilvlIiliSld
IIiÍSKi
I JL. flt jSft áPSs § __8|
iSiitfli
m sk ísa
illflP
fiðPÍlf 81
£88 Ciiil
llilliTil
tsilf llll.2llli
íÍi fe-iS?
OH mmm
tf ijif iii
ÍlfSÍÍlfiflH
B SiW B&MM ma *4 y y. VJ '■
„
Of langt yrði að telja upp öll þau
svið þar sem Macintosh LCIII kemur
að notum, því þessi tölva hentar í
næstum alla tölvuvinnslu.
Hún er með mikla stækkunar-
möguleika. Vinnsluminni má auka í
36 Mb og án aukabúnaðar má tengja
við hana ýmiss konar jaðartæki, s.s.
prentara, mótald, harðdisk, mynd-
skanna og geisladrif.
Macintosh LCIII er, eins og aðrar
Macintosh-tölvur, með innbyggt net-
tengi og því má með sáralidum til-
kostnaði tengja hana við aðrar
Macintosh-tölvur og á þann hátt vinna
í sameiginlegum gögnum, senda skjöl
upplýsingar og skilaboð á milli tölva,
auk þess að samnýta t.d. prentara.
Og svo er stýrikerfi Macintosh-
tölvanna auðvitað allt á íslensku !
Aukalega máfáApple CD300-geisladrif
á 13.579,- kr. eða aðeins 12.900,- kr. stgr.
ogeinnig Apple StykWriter II-bleksprautu-
prentara með 360 x 360 punkta upplausn
á 39-000,- kr. eða aðeins 37.050,- kr. stgr.
Sértilboð'á Macintosh LCIII-
tölvunni er 113.684,- kr. eða aðeins
108.000,
kr. stgr.
Innifalið í verði tölvunnar:
4 Mb vinnsluminni, 80 Mb harðdiskur, hljóðúttak, hljóðhemi, SCSl-tengi, nettengi, prentaratengi,
mótaldstengi, 14” Performa Plus-litaskjár, hnappaborö, mús, ritvinnsluforrit og 5 skemmtilegir leikir.
Umboðsmenn:
Haftækni, Akureyri
Póllinn, ísafirði
-umboðið hf.
Skipholti 21, slmi: (91) 624800 Fax: (91) 624818