Morgunblaðið - 03.05.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
17
ein kvarta oftar en hin yfir höfuð-
verk, magaverk og því að þau
hafi miklar áhyggjur af einhveiju.
Börn, sem eru alein heima og horfa
oft á myndbönd, hafa meiri
áhyggjur en önnur börn. Margt
fleira umhugsunarvert kom fram
í könnun þessari. Samfélagið þarf
að gefa meiri gaum að líðan barna
bæði á heimilum og í skólum, því
að vellíðan barna er grunnurinn
að því að eðlilegur þroski og nám
eigi sér stað. Hafa ber í huga að
sumir þættir uppeldis eins og til-
finningar barnsins verða aldrei
ræktaðir annars staðar á sama
máta og innan fjölskyldunnar.
Hins vegar getur fjölskyldan af
einhverjum ástæðum verið ófær
um að sinna barninu og þá mega
stuðningsstofnanir eins og skólinn
ekki bregðast börnunum.
Hagsmunir foreldra, barna
þeirra og kennara fara saman og
því hljóta þeir að eiga samleið í
baráttunni fyrir bættum uppeldis-
skilyrðum æskunnar. í raun eru
það fyrst og fremst foreldrarnir
sem ættu að setja á oddinn kröfu
til samfélagsins um betri og gjör-
breytta leik- og grunnskóla, því
að þeir eru sífellt að kalla á aukna
þjónustu frá skólunum. Kröfur um
skóla sem hafa bæði rými, tíma
og starfsfólk til að sinna á fagleg-
a n máta hinu aukna og vandasama
hlutverki uppeldis og fræðslu. Fólk
á ekki að sætta sig við neinar
skyndi- eða bráðabirgðalausnir.
Þetta er mál málanna. Öll börn
eiga rétt á að fara til vinnu sinnar
— í skólann að morgni dags og
fá hádegisverð eins og hinir full-
orðnu fá á sínum vinnustað. Skapa
verður umhverfi til að líkamlegum
slysum á börnum fækki, en þau
eru langtum fleiri en gerist meðal
nágrannaþjóða okkar. En við þurf-
um ekki síður að koma í veg fyrir
hin andlegu og tilfinningalegu
slys, sem eru einnig alltof mörg,
þótt þau séu oft ekki eins sýnileg.
Við eigum góðan efnivið þar
sem íslensk æska er. En, ef vel á
til að takast, þurfum við ekki síð-
ur að skeyta um bömin okkar en
plönturnar í garðinum, ef þær eiga
ekki að fara á kaf í illgresi. Verum
minnug þess að uppeldið er skuld
nútímans við framtíðina.
Höfundur er fræðslustjóri
Reykjavíkurumdæmis.
Weetahix $
Háir sem lágir, mjóir sem breiðir, ungir sem aldnir
þurfa Weetabix til að halda athygli sinni og
starfsgleði í erli dagsins.
ÞÚ KEMST LANGT Á EINNI KÖKU.
Anna Björgmundsdóttir.
„Það hlýtur á hinn bóg-
inn að vera krafa sam-
félagsins á tímum sam-
dráttar að nýta þekk-
ingu og starfskrafta
sjúkraliða þar sem þess
er kostur.“
ráðherra var hvattur til að leggja
frumvarpið sem fyrst fram. Þegar
þessir listar með á þriðja þúsund
nöfnum voru afhentir tilkynnti
ráðherra að hann myndi leggja
frumvarpið fyrir ríkisstjórnarfund
18. mars. Þegar þetta er skrifað
í lok mánaðarins hefur frumvarpið
ekki enn verið lagt fram.
Aukin gæði
heilbrigðisþj ónustu
Þá bregður einnig svo við að
þriðja grein frumvarpsins mætir
andstöðu, en hún tryggir sjúkralið-
um rétt til þessara sjúkraliða-
starfa. Hygg ég að það sé eins-
dæmi að ef t.d. ófaglærður starfs-
maður aflar sér starfsmenntunar
gæti það valdið því að hann fengi
ekki starf að því loknu vegna þess
að annar ófaglærður starfsmaður
hefði verið ráðinn. Ég vil líkja
þessu við t.d. kennarastéttina. Hér
á Vestfjörðum bjuggum við við
mikinn kennaraskort og var þá
stór hópur leiðbeinenda við störf
en ég hef ekki heyrt neinn deiia
um það að ráða skuli menntaðan
kennara sé þess kostur, sama
hversu góður leiðbeinandinn er.
Við erum ekki að vanmeta störf
þeirra sem unnið hafa um árarað-
ir við þessar stofnanir og margir
öðlast mikla og góða reynslu en
sjúkraliðar verða í harðnandi sam-
keppni um störfin. Þeir verða eins
og aðrir að standa vörð um störf
sín og sína stöðu. Lögin eru í þessu
sambandi að okkar mati lífsspurs-
mál þessarar stéttar og liður í
auknum gæðum heilbrigðisþjón-
ustu í landinu.
Höfundur er formaður
Vestfjarðadeildar
Sjúkraliðafélags íslands.
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð. Símar: 91-880900, 880901,880902.
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í Reykjavík,
Ármúlaskóla, virka daga kl. 10-12,14-18 og 20-22.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosningum.
Aðstoð við kjörskrárkærur.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins! Vinsamlega látið okkur vita um
alla kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, 28. maí n.k.
Reykjavik
€>
ORKURÍKT
( EINNIG Á SUNNUDÖGUM )
TREFJARÍKT
FITUSNAUTT
HOLLT OG GOTT
ÖRKIN 1012