Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
Morgunbiaðið/Rúnar Þór JÓNAS Jónsson búnaðarmálastjóri afhendi Ingi-
HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra var björgu Sigurðardóttur verðlaun en hún hlaut
viðstaddur útskriftina og ávarpaði kirkjugesti. hæstu einkunn á búfræðiprófi.
Búfræðingar brautskráðir frá Bændaskólanum á Hólum
Stúlkur fleiri en piltar í
fyrsta sinn í sögu skólans
í FYRSTA skipti í sögu Bænda-
skólans á Hólum voru stúlkur í
meirihluta við brautskráningu
búfræðinga sem fram fór við
hátiðlega athöfn í Hóladóm-
kirkju síðastliðinn sunnudag að
viðstöddum landbúnaðarráð-
herra Halldóri Blöndal. AIIs voru
brautskráðir 23 búfræðingar við
athöfnina, 11 piltar og 12 stúlkur
og þá lauk einn piltanna einnig
stúdentsprófi frá skólanum.
I máli Jóns Bjamasonar skóla-
stjóra Hólaskóla við athöfnina kom
fram að sú breyting hefði verið
gerð á búfræðináminu að það er
nú tekið á einu ári í stað tveggja
áður og munu fyrstu búfræðing-
arnir brautskrást eftir þvi kerfi síð-
sumars. Hvarvetna væri hvatt til
aukinnar hagræðingar í starfí án
þess að dregið væri úr gæðum og
afköstum og hefði skólinn brugðist
við með því að taka upp heilsárs-
nám. Það stóryki nýtingu mann-
virkja, búnaðar og afkastagetu
stofnunarinnar jafnframt því að
skapa henni svigrúm til að takast
á við ný verkefni. Námið væri hið
sama en það tæki skemmri tíma
og yrði ódýrara.
Hólaskóli leggur áherslu á að
bjóða alla almenna grunnþætti
búnaðamámsins en að auki býður
hann upp á sérhæfðar brautir.
Vaxandi áhugi er á starfsnámi í
fiskeldi og er á Hólum miðstöð
rannsókna á silungi auk þess sem
skólinn tekur þátt í samstarfsverk-
efni um könnun á lífríki íslenskra
vatna. Undirbúningur er hafínn að
stofnun rannsóknarmiðstöðvar fyr-
ir hross að Hólum en hrossaræktar-
braut skólans nýtur mikilla vin-
sælda og þá má nefna ferðaþjón-
ustu sem er ein sérgreina skólans.
Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
Búfræðingar við Hólakirkju
í FYRSTA skipti í sögu Hólaskóla voru stúlkur fleiri en piltar í
hópi nýútskrifaðra búfræðinga en alls voru 23 búfræðingar braut-
skráðir frá skólanum við hátíðlega athöfn í Hólakirkju siðasta
sunnudag.
herra flutti ávarp við brautskrán-
inguna og ræddi m.a. um mikil-
vægi rannsókna varðandi bleikju-
eldi sem fram færi við skólann og
það mikla starf sem unnið væri á
sviði hrossaræktar laðaði að er-
lenda nemendur og styrkti skólann.
Tiyggvi Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, flutti
einnig ávarp við athöfnina og sagði
skólann sem ætti upphaf sitt að
rekja til Hólaskóla vilja eiga við
hann gott og aukið samstarf. Færði
hann skólanum að gjöf sögu
Menntaskólans á Akureyri.
Einar Ingi Siggeirsson, gamall
Hólasveinn, og eiginkona hans
Kristín Friðriksdóttir færðu skól-
anum 47 bækur úr safni sínu en í
þeim er m.a. að fínna greinar um
fiskisjúkdóma.
Jónas Jónsson búnaðarmála-
stjóri afhenti Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur frá Viðinesi viðurkenningu
en hún hlaut hæstu einkunn á bú-
fræðiprófi að þessu sinni. Þá voru
veittar viðurkenningar fyrir besta
námsárangur einstakra greina og
hlaut Helga Haraldsdóttir viður-
kenningu fyrir góðan árangur í
bústjórnargreinum, Ingibjörg Sig-
urðardóttir fyrir besta árangur í
verknámi og jarðræktargreinum,
Ester Pálmadóttir fyrir besta
árangur í sauðfjárrækt, Knútur
Rafn Ármann fyrir besta árangur
í hrossarækt og Pálína S. Halldórs-
dóttir fyrir besta árangur í hrossa-
kynbótum. Tvær norskar stúlkur,
Gro Övland og Helene Berthelsen,
luku búfræðiprófí frá Hólaskóla nú
og hlutu þær viðurkenningu einnig
og þá afhenti skólastjóri Hanne
Korsgard sem stundaði starfsnám
við skólann viðurkenningu. Að end-
ingu hlaut Erlingur Guðmundsson
sem laauk stúdentsprófi frá Hóla-
skóla viðurkenningu.
Séra Bolli Gústafsson vígslubisk-
up annaðist helgistund við athöfn-
ina og dóttir hans Gerður Bolla-
dóttir söngkona söng nokkur lög.
Um 300 konur á landsmót saumaklúbba
Reyna með sér í
kökukeflakasti og
hnyklakörfubolta
TÆPLEGA 300 konur í yfir 35 saumaklúbbum hafa tilkynnt um
þátttöku í landsmóti saumaklúbbanna sem hefst á Akureyri næst-
komandi föstudag. Yfirskrift landsmótsins er Landið og miðin.
Landsmótið verður sett í íþrótta-
höllinni á Akureyri kl. 20.00 föstu-
dagskvöldið 6. ma\ og verður þá
þegar hafist handa við að prjóna
trefil sem ganga mun á milli
saumaklúbbskvenna meðan á
skemmtidagskrá stendur og er
markmiðið að gera hann sem
lengstan.
Á meðal skemmtiatriða er
íþróttakeppni saumaklúbbanna og
má nefna að m.a. verður keppt í
kökukeflakasti og hnyklakörfu-
bolta. Saumaklúbbskonur sjálfar
koma með atriði og þá verður
fjöldasöngur og margt fleira á
dagskránni.
Síðari landsmótsdaginn verður
gestum boðið í Sundlaug Akur-
eyrar og þá munu Folda og ístex
kynna þeim nýjungar í pijónabandi
og efna til tískusýningar. Skoðun-
arferð verður að Laufási og að
Grund og loks má nefna að færi
gefst á að kynna sér silkimálun
hjá Gallerí AllraHanda í Grófargili.
Verslanir, m.a. í verslunarmið-
stöðinni Krónunni, verða opnar
fram eftir laugardegi í titefni af
landsmóti saumaklúbbanna. Um
kvöldið munu gestir síðan sækja
Geirmundarsýninguna Látum
sönginn hljóma í Sjallanum.
Hjörtur Narfason sem ásamt
Sigurði Pétri Harðarsyni hefur
undirbúið landsmótið sagði að
áhugi væri mikill og konur hvað-
anæva af landinu myndu sækja
mótið sem haldið er í fyrsta sinn.
Hann sagði að miðað við góðar
undirtektir saumaklúbbskvenna
mætti búast við að framhald yrði
á slíkum samkomum. Hjörtur sagði
að enn væri möguleiki á að skrá
þátttöku og yrði fram að lands-
móti á föstudag.
Innbrot voru framin í sex hesthús
Hnökkum og reið-
tygjum var stolið
BROTIST var inn í 6 hesthús á Akureyri aðfaranótt sunnudagsins
1. maí. Þremur hnökkum var stolið úr húsunum og reiðtygjum
auk þess sem nokkrar skemmdir voru unnar við innbrotin.
Hesthúsin sem brotist var inn í
eru i Breiðholtshverfi skammt of-
an Akureyrar og í Lækjargili en
þar var farið inn í ijögur hús.
Þrír hnakkar hurfu úr hesthús-
unum og úr þeim öllum var stolið
reiðtygjum, beislum, taumum og
múlum.
Nokkrar skemmdir voru unnar
við innbrotin en spenntar voru upp
hurðir eða gluggar til að komast
inn. Málið er óupplýst að sögn
Gunnars Jóhannssonar hjá Rann-
sóknarlögreglunni á Akureyri en
þeir sem orðið hafa mannaferða
varir við hesthúsahverfin á um-
ræddum tíma eða geta veitt upp-
lýsingar eru beðnir að láta rann-
sóknarlögreglu vita.
FFA auglýsir eftir starfsmanni í 75% starf á skrifstofu félags-
ins í júní - ágúst í sumar. Um er að ræða mjög fjölbreytt
starf með sveigjanlegum vinnutíma. Starfsmaðurinn þarf að
hafa tungumálakunnáttu og góða þekkingu í landafræði.
Einníg hafa bíl til umráða.
Umsóknir sendist í pósthólf no. 48,602 Akureyri, fyrir 10. maí.
Upplýsingar hjá Sigurði í síma 96-12191 á kvöldin.
Listahátíð barna
BÖRN á leikskólum og skóladagheimilum á Akureyri ætla að halda
listahátíð í vikunni. Tilefnið er ár fjölskyldunnar.
Listahátíðin hófst í gær, mánu- - Hátíðinni lýkur 7. maí næstkom-
dag 2. maí. Myndlistasýning verður
í Deiglunni þar sem verða sýnd
listaverk barna frá öllum leikskól-
um og skóladagheimilum og er hún
opin frá kl. 10-12 og 13-16 virka
daga.
andi með Ijölbreyttri dagskrá í
Deiglunni þar sem fram koma hóp-
ar frá hveijum leikskóla og skóla-
dagheimilum og sýna stutt atriði
s.s. leikrit, söng, leikfimi eða ann-
að.
Arnarneshreppur
Gæsaskytt-
ur staðnar
að verki
ÞRÍR ungir piltar frá Akureyri
voru handteknir síðdegis á
laugardag en þeir voru að
skjóta gæsir sem stranglega er
bannað á þessum árstíma.
Lögreglu á Akureyri var til-
kynnt um skotmennina síðdegis á
laugardag en þeir voru staðnir að
því að skjóta gæsir á túni við bæ
í Arnarneshreppi.
Fjórar gæsir skotnar
Höfðu þeir skotið fjórar gæsir
er að var komið. Hald var lagt á
fenginn og einnig tvær byssur sem
þeir notuðu til verksins. Piltarnir
höfðu ekki byssuleyfi.
I MAI:
Fimmtudaga, föstudaga, sunnudaga
FRÁ JLJNÍ ALLA DAGA
Verð frá kr. 3.080
fluqfélaq
nordiirlands IiF
SÍMAR 96-12100 og 92-11353