Morgunblaðið - 03.05.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
29
>g viðsemjendur
fyrir
ðaner
því er samninganefnd ríkisins, sem
og aðrir sem ábyrgð bera á kjörum
þessarar stéttar, hvött til að ráðast
að rót vandans og koma fram með a
lausnir sem duga til lengri tíma.
Landlæknir
gagnrýndur
Edda Sóley Óskarsdóttir, formað-
ur Meinatæknafélagsins, lýsti yfir
ánægju sinni með stuðning hjúkrun-
arfræðinga þegar rætt var við hana.
Hins vegar gagnrýni hún staðhæf-
ingu landlæknis í útvarpsviðtali um
helgina þess efnis að enginn vafi
léki á því að legið hefði við stórslys-
um eða alvarlegum slysum í a.m.k.
3 til 4 tilfellum vegna verkfallsins.
Hann hefði brotið stjórnsýslulög
með því að kanna ekki hjá báðum
aðilum hvað hefði verið á seyði.
Borin var undir Eddu Sóleyju sú
staðhæfing Þorsteins Geirssonar,
formanns samninganefndar víkis-
ins, að meinatæknar úti á lands-
byggðinni hefðu ekki dregist aftur
úr í launum og því væri ekki sömu
rök fyrir launahækkun þeirra og
meinatækna úti á landsbyggðinni.
Edda Sólveig sagði staðhæfinguna
ranga. Eins og meinatæknar á höf-
uðborgarsvæðinu hefðu almennir
meinatæknar á landsbyggðinni
dregist aftur úr sambærilegum
stéttum í launum. Hins vegar mætti
ef til vill segja sem svo að meina-
tæknar í stjórnunarstöðum úti á
landsbyggðinni hefðu viðunandi
laun, a.m.k. miðað við aðra meina-
tækna. Hún sagði að eftir reynslu
samninganefndar á föstudag hefði
ekki þótt ástæða til að óska eftir
samningafundi í deilunni.
jtlgavík
Árni Sigfússon
að núvirði
90 1991 1992 1993 1994
*
Alyktun miðstjórnar
Framsóknarflokks
Nefnd vinni
að sókn í at-
vinnumálum
og bjartsýni
FORSENDA nýrrar framfarasókn-
ar í atvinnumálum er aukin sam-
vinna ríkisvalds, sveitarstjórna, at-
vinnulífs og launþegasamtakanna
að því er fram kemur í stjórnmálaá-
lyktun miðsljórnar Framsóknar-
flokksins sem samþykkt var um
helgina. Lagt er til að skipuð verði
föst samstarfsnefnd þessai-a aðila
til að vinna að sókn í atvinnumálum
og auka bjartsýni meðai lands-
manna.
í stjórnmálaályktuninni segir að á
valdatíma núverandi ríkisstjórnar hafi
ríkt stöðnun í íslensku atvinnulífi og
störf stjórnarinnar markist fyrst og
fremst af innbyrðis átökum og sundur-
lyndi og því sé ekkert samkomulag
um framgang mikilvægustu mála á
Alþingi. Þetta komi gleggst fram í
þeim átökum sem hafi verið um land-
búnaðar- og sjávarútvegsmál. Nauð-
synlegt sé að landsmenn sýni hug sinn
í sveitarstjórnarkosningunum í vor
með öflugum stuðningi við Frámsókn-
arflokkinn svo ríkisstórnin fái þau
skilaboð sem dugi til að koma henni
frá.
Ennfremur segir að stöðugleiki í
efnahagsmálum og festa í starfsum-
hverfi sé forsenda hagvaxtar og þar
með velferðar. Forgangsverkefni séu
að vextir lækki meira en orðið sé og
að þjónustugjöldum sé stillt í hóf,
beina þurfi útgjöldum sveitarfélaga
og ríkis þannig að þau skapi sem
mesta atvinnu, skattalög eigi að
hvetja einstaklinga til að leggja fram
áhættuíjármagn í atvinnulífið og
framlög lífeyrissjóða til slíkra verk-
efna þurfi að vaxa, skólakerfið þurfi
í ríkara mæli að sinna þörfum framtíð-
arinnar á sviði atvinnumála, opinbera
fjárfestingarsjóði eigi að enduskipu-
leggja. Þá er lagt til að ríkissjóður
leggi til verulegt Ijármagn til áhættul-
ána á næstu árum og þegar verði
farið fram á tvíhliða viðræður við
Evrópusambandið á grundvelli þings-
ályktunartlilögu Framsóknarflokksins
sem Alþingi hafi samþykkt.
Velferðar- og fjölskyldumál
Um velferðar- og fjölskyldumál
segir að flokkurinn líti þannig á „að
aðalatriði fjölskyldustefnu á íslandi
sé að útrýma atvinnuleysinu, auka
tekjur og skapa þannig grundvöll fyr-
ir heilbrigt og hamingjusamt fjöl-
skyldulíf. Þótt aðhald og sparnaður í
ríkisrekstrinum sé nauðsynlegur mega
aðgerðirnar ekki byggja á fljótfærnis-
legum ráðstöfunum sem vega að horn-
steinum velferðarþjóðfélagsins."
Yfirlitsskýrsla Aflvakans hf. um verk- og tæknimenntun
Morgunblaðið/Sverrir
Karpov dregur númer
KARPOV dró fyrstur um sæti á atskákmótinu í gær. Hann dró númer fjögur sem þýddi að hann keppti
fyrst með svörtu við Hannes Hlífar.
Karpov segir Islendinga vera mestu skákþjóð heims
Undrast styrk Fishers
og vill tefla við hann
ANATOLY Karpov, heimsmeistari FIDE, sagði á blaðamannafundi
í gær að hann vildi gjarna tefla við Bobby Fisher, en sagðist ekki
vera viss um að hann fengi tækifæri til þess. Hann sagði að sér
hefði komið á óvart hversu öfluga taflmennsku Fisher og Spasky
sýndu í sinni fyrstu skák í einvígi þeirra í Júgóslavíu fyrir tveimur
árum. I heild hefði taflmennska þeirra hins vegar verið misjöfn í
einvíginu.
Karpov er staddur hér á landi
fyrir frumkvæði atskáknefndar
Skáksambands íslands og keppti í
gærkvöldi á atskákmóti í Ríkissjón-
varpinu.
Karpov hefur sýnt frábæra tafl-
mennsku að undanförnu og náð
geysilega góðum árangri. Hann
sigraði á skákmóti í Linaris á Spáni
fyrir skömmu með fádæma yfir-
burðum, fékk 11 vinninga af 13
mögulegum. í öðru sæti varð Kasp-
arov með 8,5 vinninga. Flestir
fremstu skákmenn heims tóku þátt
í mótinu.
Karpov er orðinn heimsmeistari
að nýju, en hann sigraði hollenska
stórmeistarann Timmann í einvígi
í fyrra. FIDE svipti Kasparov
heimsmeistaratitli eftir að ágrein-
ingur kom upp á milli hans og skák-
sambandsins. Grunnt hefur verið á
því góða með Kasparov og Karpov
síðustu ár. Þeir hafa háð marga
hildi á skákborðinu, en ekki síður
utan þess.
Karpov kom inn á þessar deilur
á blaðamannafundinum í gær og
fór háðulegum orðum um fram-
göngu Kasparovs innan alþjóðlegu
skákhreyfingarinnar. Hann sakaði
Kasparov m.a. um að hafa gert til-
raun til að múta rússneskum stór-
meisturum gegn því að þeir létu
að hans vilja. Hann sagði að stór-
meistarasamtökin, sem Kasparov
stofnaði eftir að deila hans og for-
ystu FIDE kom upp, snérust fyrst
og fremst í kringum persónu Kasp-
arovs. í samtökunum væru í reynd
ekki nema hann, einn og tveir eða
þrír aðrir stórmeistarar.
Karpov sagði að sér hefði komið
á óvart hvað Fisher og Spasky
tefldu vel í fyrstu skák sinni í ein-
vígi þeirra í Júgóslavíu fyrir tveim-
ur árum, ekki síst sé það haft í
huga að þeir eru komnir yfir miðjan
aldur og Fisher hafði ekkert teflt
opinberlega í 20 ár. í heildina hefði
taflmennskan í mótinu hins vegar
verið misgóð. Karpov sagðist fagna
því ef Fisher héldi áfram að tefla.
Hann sagði ekki við því að búast
að hann gæti haldið sér í fremstu
röð skákmanna nema að hann tefldi
á stórmót.um við sterka skákmenn.
Karpov sagðist undrast út-
breiðslu skákíþróttarinnar á ís-
landi. Hann lýsti þeirri skoðun sinni
að Islendingar væru mesta skákþjóð
heims. Hvergi í heiminúm væri
skákiðkun jafn almenn og á íslandi.
Á atskákmótinu í gærkvöldi
keppti Karpov við íslensku stór-
meistarana Helga Ólafsson, Hannes
Hlífar Stefánsson og Margeir Pét-
ursson. Helgi og Hannes höfðu ekki
áður keppt við Karpov, en Margeir
tefldi við hann 1989 og tapaði með
svörtu mönnunum.
Qf niikil áhersla lögð á bóknám
YFIRVÖLD sýna verk- og tæknimenntuN takmarkaðan skilning, nem-
endafjöldi hefur dregist saman undanfarin 10-15 ár, verk- og tækni-
menntun virðist vera þrautarlending þeirra sem gengur illa í grunn-
skólum og foreldrar leggja of mikið kapp á að börn þeirra fari í bók-
nám. Þetta kemur fram I yfirlitsskýrslu sem Stefán Þór Herbertsson,
iðnrekstrarverkfræðingur, gerði nýlega fyrir Aflvaka Reykjavíkur hf.
I skýrslunni kemur einnig fram að þetta sé eitthvað að breytast og
meðal annars vísað í nýtt frumvarp til framhaldsskólalaga þar sem
áhersla er lögð á aukið starfsnám.
Einungis um 32% nemenda hér á
landi fara í verknám, á meðan hlut-
fall þeirra er 70% í nágrannalöndum
okkar. Allar tölur benda til þess að
fjöldi þeirra sem fer í bóknám fari
vaxandi og hugsanleg skýring geti
verið að við erum í auknum mæli
farnar að sækja í framhaldsnám og
þær leita frekar í bóknám.
Kynning á verk- og iðnnámi virð-
ist vera þokkaleg, en bent er á að
hún mætti beinast frekar að foreldr-
unum, sem virðast beina börnum sín-
um í bóknám. Fjölbreytni er tölu-
verði í verknámsgreinum, en nokkuð
vantar á námsframboð í mikilvægum
greinum eins og t.d. fiskiðnaði.
Hvað varðar takmarkaðan áhuga
stjórnvalda þá er hugsanleg skýring
að bóknám er ódýrara en verknám,
og höfðar frekar til stjórnvalda sem
beijast við að halda ríkisútgjöldum
niðri.
Verri einkunnir þeirra sem fara
í iðnnám
Þegar skoðað var hverjir leituðu
í verknám kom fram að meðalein-
kunn þeirra sem innritast beint í iðn-
nám er mun lakari úr samræmdum
prófum en þeirra sem fara í bóknám.
Meðaleinkunn þeirra sem innritast í
iðnnám er 4,5 úr samræmdu prófun-
um, meðaleinkunn allra þeirra sem
taka samræmdu prófin er 5,8 og
þeir sem innritast í bóknám eru með
meðaleinkunnina 6,8. Þess beri þó
að geta að Iðnskólinn í Reykjavík
væri með fornám fyrir þá sem hafa
fallið í grunnskólaprófunum og það
gæti verið hluti skýringarinnar.
Fjöldi iðnnema takmarkast einnig
af því að erfitt er orðið að komast
á samning, því sé aldrei um fjölgun
að ræða í-greinunum, heldur einung-
is um endurnýjun að ræða.
Breytingar til batnaðar
En þrátt fyrir þessa vankanta
bendir ýmislegt til þess að hlutur
verkmenntunar sé að aukast. í
skýrslunni er bent á að nýtt frum-
varp til framhaidsskólalaga leggi
áherslu á aukinn hlut hvers kyns
starfsnáms.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja hafi
unnið mikilvægt brautryðjendastarf
í skilgreiningu starfsnámsbrauta,
vísir að nemendafyrirtækjum lofi
góðu, samtök iðnaðarins hafa skipu-
lagt heimsóknir grunnskólabarna í
ýmsa iðnskóla og Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur hefur hrint af stað
þriggja ára kynningarverkefni í sam-
vinnu við aðila vinnumarkaðarins um
að koma inn markvissri fræðslu um
iðnað í skólakerfið. Þá væri nýsköp-
unarsjóður menntamálaráðuneylis-
ins vísbending um aukinn skilning
yfii-valda á vægi verk- og tækni-
menntunar hér á landi.