Morgunblaðið - 03.05.1994, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.05.1994, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994 BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI HVAR VAR ARNI? eftir Guðrúnu Ögmundsdóttur og Pétur Jónsson Þegar borgararnir kjósa mann til að gegna æðstu ábyrgðarstörfum í samfélagi sínu spyija þeir ekki síst um það hvort frambjóðendur til starfa hafi þá framsýni, heiðarleik og stað- festu sem þarf til að skapa trúverð- uga stefnu og veita trausta forystu. Ámi Sigfússon, fyrsti frambjóð- andi D-listans, Sjálfstæðisflokksins, hefur hafíð kosningabaráttu sína með fullyrðingum, yfírlýsingum og fyrir- heitum um málefni Reykvíkinga eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafí hvergi komið nærri stjórn höfuðborgarinnar undanfama áratugi. Árni sjálfur hag- ar sér eins og hann sé saklaus af öllum athöfnum sjálfstæðismanna í borgarstjóm undanfarin átta ár. Samt vita allir að Sjálfstæðisflokk- urinn hefur haldið um völdin í borg- inni nær samfellt eins langt aftur og elstu menn muna. Og Árni Sigfússon hefur verið borgarfulltrúi undir stjóm Davíðs Oddssonar og Markúsar Árn- ar Antonssonar í tvö heil kjörtímabil, allt frá árinu 1986. Ein af yfírlýsingum Árna Sigfús- sonar í kosningabaráttunni nú er að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ekki í hyggju að koma fleiri sameiginlegum fyrirtækjum borgarbúa í einkavæð- ingu. Einkavæðingin eigi ekki rétt á sér, sagði Ámi á regnhlífarfundinum á Ægissíðu, nema þá á þeim sviðum þar sem hið opinbera er í samkeppni við einkaaðila. Með þessu tekur Árni undir skoðanir sem undanfarin ár hafa verið fluttar af stjórnmálamönn- um, fræðimönnum og venjulegu fólki þegar menn hafa í nafni heilbrigðrar skynsemi mótmælt stórtækum einka- væðingaráformum Sjálfstæðisflokks- ins bæði hér í borginni og um allt land. Batnandi mönnum er best að lifa. En er Árni heiðarlegur? Er hann stað- fastur? Er hann trúverðugur? Markús Örn: Einkavæðum orkufy rirtækin í janúar 1992 — fyrir aðeins rúm- um tveimur árum — boðaði borgar- stjórinn Markús Örn Antonsson helstu fjölmiðla landsins á sinn fund til að kynna þeim helstu framtíðar- áætlanir sínar eftir fyrsta misserið í starfi. Morgunblaðið birtir frásagnir Markúsar 16. janúar með fyrirsögn- inni „Stórfelld einkavæðing á döfínni hjá Reykjavíkurborg". Þar segir borgarstjórinn meðal annars frá því að allt það haust hafí meirihluti borg- arstjórnar lagt á ráðin um einkavæð- ingu, ekki síst á sviði orkufyrirtækja borgarinnar, bæði Rafmagnsveitunn- ar og Hitaveitunnar. Markús segir orðrétt: „Menn eru þá fyrst og fremst með það í huga að Rafmagnsveita Reykja- víkur verði gerð að hlutafélagi, ann- aðhvort algjörlega í eigu borgarinnar eða tneð það að markmiði að selja hluta á almennum markaði. Þetta eru stórar pólitískar ákvarðanir og breyt- ing í þessa átt yrði mjög í anda þeirr- ar stefnu sem ríkisstjómin hefur mótað og stefnuskrár Landsfundar Sjálfstæðisflokksins. “ (Leturbr. greinarhöf.) í sjónvarpsviðtali 14. janúar sagði Markús Öm ennfremur að formbreyt- ing Rafmagnsveitunnar væri til þess hugsuð að „selja hlut úr henni þegar fram sækir“ og átti einkavæðingin einnig að ná til Hitaveitunnar „ef að Rafmagnsveita og Hitaveita samein- uðust í einu öflugu orkufyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu". Sjálfstæðisflokkurinn: Einkavæðing án samkeppni! í lok nóvember árið 1992 — fyrir einu og hálfu ári — hélt Sjálfstæðis- flokkurinn borgarmálaráðstefnu í Reykjavík. í frásögn Morgunblaðsins 2. desember segir m.a. svo frá niður- stöðum sjálfstæðismanna í borgar- stjóm í einkavæðingarmálum að til að efla efnahagskerfið þurfí víðtæka tilfærslu verkefna frá hinu opinbera til einstaklinga. Síðan er vitnað orð- „Batnandi mönnum er best að lifa. En er Arni heiðarlegur? Er hann staðfastur? Er hann trúverðugur?" rétt í samþykkt borgarmálaráðstefnu Sjálfstæðisflokksins: „Rétt er að einkavæðing borgar- fyrirtækja í samkeppni við einkafyr- irtæki hafí forgang en einnig er hægt að einkavæða ýmsan þjónustu- rekstur borgarinnar sem ekki er í beinni samkeppni við einkaaðila á markaðnum.“ (Leturbr. greinarhöf.) Ekki er annað að sjá en að þessi samþykkt hafí verið einróma á ráð- stefnu sjálfstæðismanna, enda er í hliðstæðum samþykktum ráðstefn- unnar hvatt til þess að sem flest fyrir- tæki Reykjavíkur verði gerð að hluta- félögum í átt til einkavæðingar, og einnig hvatt til þess að einkavæða rekstur félagsmiðstöðva fyrir ungt Guðrún Ögmundsdóttir fólk og koma þjónustumiðstöðvum aldraðra einnig í einkavæðingu. Hvar var Arni? Tók Ámi Sigfússon afstöðu gegn grundvallarályktun ráðstefnunnar í nóvember 1992 um einkavæðingu án samkeppni? Mótmælti Ámi Sigfússon ummælum Markúsar Amar Antons- sonar borgarstjóra í fjölmiðlum eða á vettvangi borgarstjórnar í janúar 1992? Greiddi Arni Sigfússon at- kvæði gegn stefnuskrá landsfundar Pétur Jónsson Sjálfstæðisflokksins um einkavæð- ingu? Var Ámi Sigfússon ekki sam- mála hinni opinberu afstöðu Sjálf- stæðisflokksins um einkavæðingu í höfuðborginni? Hvar er staðfesta Áma Sigfússonar? Hvar er heiðarleiki hans? Er Ámi Sigfússon trúverðugur? Hvar var Árni Sigfússon eiginlega árið 1992? Höfundar skipa 3. og 4. sæti Reykjavíkurlistans. Er Sjálfstæðisflokk urinn hræddur? Svar við grein Einars K. Guðfinnssonar „Kvennalistinn gegn Vestfjörðum“ í 3. tbl. „Vesturlands“ eftirJónu Valgerði Kristjánsdóttur Nú er kosningaskjálfti sjálfstæðis- manna farinn að beinast að þingkon- um Kvennalistans. Það kemur fram í boðskap Einars Guðfinnssonar í Vesturlandi, blaði sjálfstæðismanna Hafnarfjörður - vax- andi ferðamannabær eftir Helgu Ragnheiði Stefánsdóttur Ferðaþjónusta er ein þeirra greina atvinnulífsins sem hvað mestar vonir eru bundnar við að bætt geti lífskjör okkar á næstu árum. Mikil fjölgun ferðamanna hefur átt sér stað á síð- ustu árum og má nefna að á síðasta ári komu 160 þúsund ferðamenn til landsins. Þetta er há tala sé það haft í huga að um 25 erlendir ferðamenn skapa eitt starf á íslandi. Þótt ekki séu til neinar heildartölur um ferða- mannastraum til Hafnarfjarðar má fullyrða að bæjarbúar hafa notið góðs af auknum áhuga ferðamanna á landinu. Raunar er nú svo komið að þjónusta við þá skiptir fjölmarga Hafnfirðinga veralegu máli. Við hafnfírskir sjálfstæðismenn gerum okkur svo sannarlega grein fyrir mikilvægi ferðamannaþjónustunnar fyrir afkomu bæjarbúa og munum við gera allt sem í okkar valdi stend- ur til að auka hana, náum við meiri- hluta í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Þó að þjónusta við ferðamenn byggist í grundvallaratriðum á ein- staklingsframtaki teljum við sjálf- stæðismenn að bæjarfélagið geti lagt sitt af mörkum til að laða þá til bæjarins. Eitt það mikilvægasta er að huga að umhverfi bæjarins, sem með sarini má segja að sé sú auðlind sem ferðamannaþjónustan byggist á. Nauðsynlegt er að tryggja gott . aðgengi og auðvelda ferðamönnum ‘ að komast yfír upplýsingar um at- „Við hafnfirskir sjálf- stæðismenn gerum okk- ur svo sannarlega grein fyrir mikilvægi ferða- mannaþjónustunnar fyr- ir afkomu bæjarbúa og munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til að auka hana, náum við meirihluta í bæjarstjórn- arkosningunum í vor.“ hyglisverða staði og helstu náttúru- perlur í landi bæjarins. Bæjarfélagið getur skipulagt útivistarsvæði með það fyrir augum að auka fjölbreytni og möguleika á móttöku ferða- manna. Þá getur bæjarfélagið einnig stuðlað að samræmingu kynningar- starfs og eflt annað samstarf aðila í ferðaþjónustu. I Hafnarfírði er margt að sjá fyrir innlenda ferðamenn ekki síður en þá útlendu og má þar nefna athyglis- verð söfn eins og sjóminjasafnið, póst- og símaminjasafnið og byggða- safnið. Þá eigum við menningarmið- stöðina Hafnarborg, eram með sýn- ingaraðstöðu í Smiðjunni, Portinu og að Straumi. Við eigum sundstaði og góðan golfvöll í fögru umhverfí á Hvaleyri með nýjum og glæsilegum golfskála og tjaldstæði í fögru um- hverfi við Víðistaði. Þjónusta við ferðamenn, hvaðan Helga Ragnheiður Stefánsdóttir sem þeir koma, er hagur Hafnfírð- inga. Þeir njóta þess ekki aðeins í fegurra og líflegra mannlífi, heldur einnig í formi alls kyns þjónustu svo sem hjá hinum fjölskrúðugu og róm- uðu veitingastöðum sem starfa víða um bæinn. Nái Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarð- ar munum við sjálfstæðismenn leggja okkur fram við að laða ferðamenn til bæjarins því að fjölgun ferða- manna er hagur okkar allra. Höfundur er húsmóðir og skipar 10. sæti á framboðslista SjálfstiEðisflokksins / Iiafnarfirði í bæja rs tjórnn rkosninghn urn. á Vestfjörðum nú nýlega. Heldur er nú áróðurinn lítilfjörlegur og rökin máttlaus. Telur þingmaðurinn að tvær þingkonur Kvennalistans séu orðnar svo fjandsamlegar lands- byggðinni að hætta geti stafað af. Það er auðvitað gott til þess að vita að þingflokkur Kvennalistans skuli vera svo áhrifaríkur og sterkur í málflutningi að það geti ráðið úrslit- um um gang mála. En Einar K. Guð- fínnsson ætti kannske frekar að hafa áhyggjur af málflutningi eigin flokks- manna. Þingmaður sjálfstæðisflokksins óttast að Ingibjörg Sólrún muni reyna að breyta gildandi reglum um fram- kvæmdir í vegamálum til að auka framkvæmdir í Reykjavík. Raunar segir hann síðar í greininni að um þær framkvæmdir gildi ákveðnar skiptireglur milli kjördæma og þarf í raun ekki að svara því frekar. Undir- rituð á sæti í samgöngunefnd Alþing- is og þar eru ekki á döfinni neinar breytingar á þessum reglum. Réttara væri hjá sjálfstæðismönnum að gera grein fyrir hvernig standa á við lof- orð Árna borgarstjóra um auknar vegaframkvæmdir í Reykjavík. Ekki er annað að sjá en það eigi að ger- ast með framlagi af vegafé. Síðan hefur þingmaður Sjálfstæð- isflokksins miklar áhyggjur af því að Kristín Ástgeirsdóttir geti haft þau áhrif í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem hún á sæti að felld- ar verði tillögur ríkisstjórnarinnar um sértækar aðgerðir fyrir Vestfírði. í þeirri nefnd eiga sæti fjórir sjálfstæð- ismenn, einn krati, tveir framsóknar- menn, einn alþýðubandalagsmaður og ein kvennalistakona. Þar er ríkis- stjórninni því í lófa lagið að koma sínum málum fram, ef hennar þing- menn greiða málum hennar atkvæði. Kristín Ástgeirsdóttir hefur lýst því að hún skilji hina erfiðu stöðu Vest- firðinga en telur að þessar 300 millj- ónir segi lítið til að bæta ástandið. í sama streng tóku margir aðrir þing- menn í umræðum um málið og lögðu jafnframt áherslu á erfiðleika í at- vinnulífi annarra staða en Vestfjarða. Það má m.a. nefna að sjálfstæðis- mennirnir Tómas Ingi Olrich og Árni Johnsen höfðu báðir uppi gagnrýnis- raddir. Tómas Ingi taldi ráðstöfunar- afla á Vestfjörðum hafa minnkað minna en annarsstaðar á landinu., önnur iandssvæði, t.d. Akureyri, þyrftu að fást við meira atvinnu- leysi. Eiiinig að slík aðstdð sém hér Jóna Valgerður Kristjánsdóttir „Réttara væri hjá sjálf- stæðismönnum að gera grein fyrir hvernig standa á við loforð Arna borgarstjóra um auknar vegafram- kvæmdir í Reykjavík.“ væri fyrirhuguð skekkti samkeppnis- stöðu sjávarútvegsfyrirtækja. Árni Johnsen taldi þurfa að skilgreina vandann betur á Vestfjörðum. Vest- fírðingar hefðu ekki brugðist rétt við minnkandi veiði og skipulagt veiðar og vinnslu, heldur klárað þorskinn á undan öðram. Sérstaða Vestfjarða væri ekki fyrir hendi og allir ættu að sitja við sama borð um aðstoð. Þannig töluðu flokksbræður Einars Guðfínssonar og hygg ég að hann ætti frekar að beita sínum fortölum til að sannfæra eigin flokksmenn um nauðsyn sértækra aðgerða fyrir Vest- firði, en reyna að gera þingkonur Kvennalistans ábyrgar fyrir af- greiðslu á frumvörpum ríkisstjórn- arinnar. Þingkonur Kvennalistans hafa fulian skilning á hinni erfiðu stöðu landsbyggðarinnar sem stafar ekki síst af sjávarútvegsstefnu þeirri sem sjávarútvegsráðherra Sjálfstæð- isflokksins er málsvari fyrir og hyggst viðhalda með lítilsháttar breytingum. Höfundur crþingkonn Kvcnnnlistáns á Vcsifjörðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.