Morgunblaðið - 03.05.1994, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1994
Spennandi nýjungar
í sjúkraliðamenntun
eftir Guðrúnu ídu
Stanleysdóttur
Ríkisstjórnin mun á næstunni
leggja fram frumvarp til laga um
sjúkraliða. Eins og margir vita hef-
ur vægi menntunar sjúkraliða auk-
ist á síðustu árum og er nú svo
komið að menntun þeirra er ámóta
og menntun hjúkrunarfræðinga var
fyrir 18-20 árum eða svo. Þar sem
heilbrigðiskerfið tekur á okkar tím-
um hraðstíga breytingum eru
sjúkraliðar mikilvægir i þeim breyt-
ingum.
„Vissulega gæti falist
verulegur sparnaður
fyrir þjóðarbúið í því
að heilbrigðisstofnanir
gætu nýtt sér betur
störf sjúkraliða í stað
mun dýrara vinrtuafls.“
Aukið verksvið sjúkraliða
í gömlu lögunum var gert ráð
fyrir því að sjúkraliðar væru ein-
vörðungu starfandi undir stjórn
hjúkrunarfræðinga á hjúkrunar-
sviði en þróunin hefur fyrir löngu
sprengt þennan gamla lagaramma
af sér.
Nefndin sem vann að gerð frum-
varpsins náði ekki samstöðu en
meirihluti hennar leggur til að auka
verulega verksvið sjúkraliða, þeim
verði t.d. heimilt að starfa á lækn-
ingasviði undir stjórn lækna og sér-
fræðinga auk starfanna á hjúkrun-
arsviði. Hjúkrunarfræðingar telja
margir að þeir missi vægi við þessa
breytingu og fulltrúar þeirra í frum-
varpsnefndinni stóðu ekki að meiri-
hlutaáliti hennar.
í meirihlutaálitinu er lagt til:
1) Að sjúkraliðar hafi fortaks-
lausan rétt til sjúkraliðasiarfa og
aðeins verði heimilt að ráða ófag-
lærða starfsmenn tímabundið í að-
hlynningarstörf fáist ekki sjúkraliði
til starfa.
2) Að verksvið sjúkraliða verði
breytt og aukið, þeim verði heimilt
að starfa á lækningasviði undir
stjórn læknis eða annars sérfræð-
ings, til viðbótar því að starfa á
hjúkrunarsviði.
3) Að grunnnámi sjúkraliða verði
breytt frá og með skólaárinu 1994
og raki mið af auknu verksviði
þeirra á lækningasviði.
4) Að komið verði meiri festu á
viðbótarnám sjúkraliða, með það
að markmiði að sjúkraliðar auki
hæfni sína til að takast á við aukin
verkefni.
5) Að endurskoða verði hvort
hyggilegt sé að leggja niður launað
nám sjúkraliða, endurskipuleggja
það og gera starfsnámið markviss-
ara.
6) Að stofnað verði til samráðs
menntamálaráðuneytis, heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytis, landlæknis
og Sjúkraliðafélags íslands um að
hafa eftirlit með námi sjúkraliða.
Sparnaður fyrir þjóðarbúið
Það má segja að verið sé að bijóta
blað í menntunarmálum heilbrigðis-
stétta um leið og með formlegum
hætti er viðurkennt hver þróunin
hefur orðið. Vissulega gæti fylist
verulegur sparnaður fyrir þjóðar-
1 búið í því að heilbrigðisstofnanir
gætu nýtt sér betur störf sjúkraliða
í stað mun dýrara vinnuafls.
Svo spyija margir hvernig hægt
sé fyrir ófaglært starfsfólk sem
áhuga hefur á að halda starfi að
tryggja starfsréttindi sín með aukn-
um réttindum.
Viðbótarnám fyrir ófaglærða
Nú hefur framkvæmdastjórn
i Sjúkraliðafélags íslands leitað eftir
■ fjárhagsstuðningi frá starfs-
I menntaráði félagsmálaráðuneytis-
ins til að undirbúa og skipuleggja
nám fyrir starfsfólk sem unnið hef-
í ur um tiltekið árabil við aðhlynn-
Guðrún ída Stanleysdóttir
ingu og hjúkrun. í frumhugmynd-
um er reiknað með því að námi ljúki
með prófum sem veiti viðkomandi
rétt til að starfa sem sjúkraliði og
með því heiti.
Við þekkjum þetta úr atvinnulíf-
inu þegar réttindanám hefur verið
skipulagt með hliðstæðum hætti svo
sem fólk þekkir frá dæmum um
kennara, skipstjóra, vélstjóra og
fleiri faghópa.
Fyrstu hugmyndir gera ráð fyrir
að framkvæmd námsins verði í
höndum íjölbrauta- og verkmennta-
skóla um land allt, með það fyrir
augum að koma til móts við þarfír
landsbyggðarinnar. Alkunna er að
víða utan Reykjavíkur hafa elli- og
hjúkrunarheimilin verið mönnuð
ófaglærðum starfsmönnum að
verulegu leyti. Nú gefst tækifæri
til að bæta úr menntunarmálum.
Er það ekki hagsmunamál fyrir alla
faghópa í heilbrigðiskerfinu? Og
vissulega ætti það að koma sjúkl-
ingum og þjóðarbúinu öllu til góða.
Höfundur er sjúkraliði.
V
ÁTAK 6E6N UMFRAMÞYN6D FYRIR BYRJENDUR
r BURT MEÐ ÓÞARFA FITU!
Öruggur árangur í baráttunni viö aukakílóin
Nýtt árangursríkt námskeid sniðið að þörfum þeirra sem vilja
fræðast og ná markvissum árangri. Við leggjum áherslu á
hreyfingu og rétt matarræði, það ásamt öruggri handleiðslu
reyndra þjálfara tryggir góðan og varanlegan árangur.
Framhaldsnaniskeiö: Atak gegn umframþyngd
Vegna fjölda áskorana ánægðra viðskiptavina verður nú boðið upp á fram-
haldsnámskeið í þessu árangursríka námskeiði. Fjölbreytt heyfing fimm
sinnum i viku, þolfimi, tækjasalur, ganga eða skokk. Framhaldsnámskeiðið
viðheldur árangri í baráttunni gegn óþarfa fitu.
Afmæli
Valgerður Friðriks-
dóttir - 105 ára
Valgerður Friðriksdóttir verður
105 ára í dag, 3. maí. Hún fæddist
á Hánefsstöðum í Svarfaðardal
1889. Hún fluttist til Akureyrar
nokkru eftir aldamótin og bjó þar
alla tíð með manni sínum Jónasi
Franklín sem lést árið 1956. Þau
áttu tvö börn, Jóhann Franklín,
bakarameistara, og Þóru Franklín,
húsmóður. Þau eru bæði látin. Val-
gerður og Jónas bjuggu lengst af
í Aðalstræti 5, en sl. 20 ár hefur
Valgerður dvalið á Dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri.
Fyrstu ár sín á Akureyri vann
Valgerður hjá Pétri Péturssyni,
kaupmanni í Gránu, Onnu og Hend-
rik Sehiöth bankagjaldkera og á
I sumrum hjá Gísla útvegsbónda frá
I Svínárnesi sem gerði út frá Þor-
geirsfirði. Valgerður tók allmikinn
þátt í félagsmálum svo sem Slysa-
varnafélagi íslands, Kvenfélaginu
Framtíðinni og Góðtemplarareglu
I íslands.
) Valgerður er allvel frísk, fylgist
vel með og hugsar vel til allra sinn
afkomenda. Hún klæðist á hveijum
degi.
Ævar Karl Ólafsson.
Saab 9000 CS, árg. ’92, rauður, ek. 30 þ.
km., beinsk., central læs., cruise control,
álfelgur, rafm. í rúðum og speglum, spoiler.
Verð kr. 1830 þús., sk. á ód.
MMC Lancer 4x4 GLX, árg. ’89, hvítur,
ekinn 87 þús. km., sumar/vetrardekk.
Verð 820 þús. Sk. ód.
Toyota 4Runner V-6, árg. ’89, svartur, ek.
70 þ. km., álfelgur, 33“ dekk, mjög snyrtileg-
ur bíll. Verð 1.650 þús. Sk. á ód.
Cherokee Laredo 4,0L, árg. ’88, grásans.,
ek. 102 þ. km., álfelgur, 30" dekk, dráttar-
kúla. Verð 1.550 þús. Ath. skipti.
Mercedes Benz 1617, árg. ’84, blár, ek.
350 þús. km., er með föstum palli, 6 m löng-
um (fáanlegur með sturtum), loftpúðar, vél
með túrbínu, 170 hö. Verð 1.425 þús.
. BÍILASALAN, lH3z s r!T«Tj~ A 3, S [£2Œ3Œ
333