Morgunblaðið - 03.05.1994, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MAI 1994
35
Samtök dagmæðra
eftir Selmu
Júlíusdóttur
Vegna fjölmiðlaumfjöllunar um
mál Samtaka dagmæðra síðastliðið
eitt og hálft ár, óska ég eftir að
koma eftirfarandi á framfæri. í des-
ember 1992 lét ég af formennsku
í samtökunum. 5. janúar 1993 skil-
aði ég öllu af mér og afhenti lykla
að félagsheimili samtakanna ásamt
öllu bókhaldi frá upphafí samtak-
anna. Gjaldkeri var með bókhald
fyrir 1992 og afhenti það til þess
viðskiptafræðings sem annaðist
rekstrar- og efnahagsreikninga fé-
lagsins frá 1990.
Var það tilbúið til samþykktar á
aðalfundinum í mars 1993 en rétt
áður bað formaðurinn um bókhaldið
og neitaði síðan gjaldkera um að
leggja það fram á fundinum. Var
gjaldkeri orðinn það örinagna af
öllum þeim leiðindum og rógburði
sem hafði verið viðhafður af Höllu
Hjálmarsdóttur fonnanni að hann
gafst upp. Bókhaldið var því ekki
lagt fram til samþykktar. Stjórnin
sagði öll af sér á þessum fundi nema
formaðurinn.
Nokkrum dögum eftir aðalfund
þennan fáum við Guðrún gjaldkeri
skeyti þar sem við fáum frest til
26. mars til að yfirfara allt bókhald
frá 1990 þar sem það sé ekki full-
nægjandi. Bókhald 1990 og 1991
var samþykkt á aðalfundum en 1992
ekki vegna ofangreindra skýringa.
Það var búið að rugla öllu í möpp-
unum árin 1990 og ’91 og þurfti
að hvolfa úr þeim og vinna allt upp
á nýtt og einnig voru nótur frá
1988 og ’89 í þessum möppum.
Minna hafði verið fíktað í 1992.
Tekið skal fram að allar fj'árreiður
fóru fram í gegnum ávísanareikning
svo mjög auðvelt var að rekja bók-
haldið þar og í gegnum tölvuskrán-
inguna. Það komu ekki allar nótur
fram en þá var farið í bankann og
hann gaf Ijósrit af ávísanaúttekt.
Var síðan skilað aftur bókhaldi
þessara ára endurendurskoðuðu af
viðskiptafræðingi okkar. Bókhald
1991 og 1992 14. apríl 1992 og
bókhaldi 1990 26. apríl.
8. júlí fáum við bréf frá lögfræði-
skrifstofu Tryggva Agnarssonar
sem sagði að samkvæmt bókhalds-
endurskoðun Freys Magnússonar,
ófagiærðs bókhaldara núverandi
stjórnar samtakanna, vantaði
613.052,43 kr. í sjóð samtakanna
dráttarvextir væru 152.432 inn-
heimtukostnaður 55.204 og virðis-
aukaskattur 13.525.
Fyrst og fremst væri þetta vegna
ársins 1990. Stjórnin hefði ekki
haft heimild til stjórnunar á flestu
sem hún gerði og nótur væru ekki
að hans mati fullnægjandi.
Ef við greiddum ekki þetta fé
innan tíu daga færi málið fyrir dóm-
stóla og opinber rannsókn færi fram
á bókhaldinu.
Innkoma ársins 1990 var 785.031
og hagnaður fluttur á höfuðstól frá
þessu ári var 34.158 þúsund kr.
Stjórn samtakanna stóð einhuga
að öllum rekstri og aldrei var gert
neitt í stjórnun þessi ár án heimild-
ar allrar stjórnarinnar. Fengum við,
gjaldkeri og ég, lögfræðing í okkar
mál og tók Bergur Guðnason mál
okkar að sér. Lagði hann þá tillögu
fram að óvilhallur löggildur endur-
skoðandi væri fenginn til að yfirfara
bókhaldið en því neitaði stjórn Höllu
og sagðist senda málið rannsóknar-
lögreglu ef við borguðum ekki innan
fimm daga.
Við sáum þá enga ástæða til
annars en að rannsóknarlögreglan
færi yfír málið. Halla Hjálmarsdótt-
ir notfærði sér fjölmiðla mikið á
Selma Júlíusdóttir
„Við allar í fyrrverandi
stjórn samtaka dag-
mæðra þökkum Onnu
K. Jónsdóttur fyrir
samstarfið síðastliðin
öllum stigum málsins í rógsherferð
sinni og lýsti okkur Guðrúnu gjald-
kera þjófa og skjalafalsara hvað
eftir annað.
Rannsóknarlögregla ríkistns fékk
málið í hendur 23. september 1993.
Við höfum aldrei kynnst áður vinnu-
brögðum rannsóknarlögreglu og ég
held að hinn almenni borgari hræð-
ist eins og við þetta embætti þar
sem erfitt er að sætta sig við að
verða ákærður opinberlega þótt sak-
laus sé að eigin mati. Rannsókn-
arlögreglan sýndi frá upphafi mikla
kurteisi og failega framkomu. Hún
vann mjög vandvirknislega að þessu
máli og fór yfír öll gögn málsins frá
upphafi. í hugarangri okkar voru
það kynni okkar við þetta opinbera
embætti sem fyllti okkur aftur
trausti á réttlæti í meðferð þessa
máls. Við óskum rannsóknarlög-
reglu ríkisins góðrar starfsaðstöðu
í framtíðinni. Þar sem ekkert sak-
næmt fannst á mig og Guðrúnu
gjaldkera var kæran á okkur dregin
til baka 23. mars 1994.
Aldrei hefur bókhald fyrir árið
1992 verið lagt fram til samþykktar
á aðalfundi en samt hafa bókhalds-
reikningar fyrir árið 1993 verið
lagðir fram til samþykktar.
Inntekt félagsins 1992 var
1.061.164 kr. í lok árs voru 151.526
kr. í sjóði, útistandandi skuld frá
leikfangasafninu 6.199 kr. sem
borguð var 1993 og eignir metnar
á 460.519 kr.
Inntekt fyrir 1993 í tíð stjórnar
Höllu er 950.180, rekstrargjöld
1.627.969. Eignir voru keyptar fyr-
ir 151.117, bókhaldsaðstoð kostaði
123.507 kr. og lögfræðiaðstoð
568.246 kr. Skuldir eru gefnar upp
725.651 kr.
Við Guðrún þökkum innilega öll-
um sem studdu okkar á þessum
martraðartímum. Öll stjórnin stóð
einhuga við hiið okkar. Allir okkar
vinir og góðkunningjar stóðust
þessa raun og ættingjar okkar gáfu
aldrei eftir.
Leikfangasafn dagmæðra í
Reykjavík flæktist inn í þessi mál
og fór það fyrir dagvistarstjórn.
Anna K. Jónsdóttir formaður
hennar þekkti vel til allra mála og
fékkst ekki til að taka þátt í að
vera með í þessari eyðileggingarher-
ferð og Sveinn Andri kynnti málin
vel og vann heiðarlega að lausn
mála. Ólína Þorvarðardóttir og aðrir
í dagvistarstjórn notuðu þetta mál
til að ráðast á formann sinn stjórn-
málalega og fór hún ekki varhluta
Sundlaug i Árbæ
Breytt lóð
og hönnun
juku kostn-
aðum41%
BREYTINGAR á hönnun og
stækkun lóðarinnar við nýju
sundlaugina í Arbæ hækkuðu
áætlaðan byggingarkostnað um
41% frá upphaflegri kostnaðar-
áætlun. Heildarkostnaður er
áætlaður um 630 milljónir en
upphafleg kostnaðaráætlun frá
apríl 1990 var 380 milljónir á
verðlagi þess tíma en framreikn-
uð er hún um 445 milljónir.
í greinargerð embættismanna til
borgarráðs kemur fram að í maí
1990 var samþykkt að breyta stað-
setningu laugarinnar vegna
sprungu sem kom í ljós þegar jarð-
vinna hófst. Við það stækkaði lóðin
um 10 þús. fermetra og kostnaður
jókst um 40 millj.
í október 1990 kom fram hjá
vinnuhópi, sem stýrði frumhönnun
laugarinnar, að áætlaður kostnaður
yrði um 545 millj. Þá var tæplega
20% hönnunar lokið. í sama mánuði
var samþykkt að taka tilboði í hvolf-
þak og útvegg úr gleri sem kostaði
með viðbótarsamningi 63,3 millj.
í júní var samið við verktaka að
taka að sér framkvæmdir og var
samið um 415 millj., sem að við-
bættum kostnaði við jarðvinnu,
hvolfþak, búnað og hönnun svaraði
til 600 millj. Við opnun laugarinnar
var kostnaður 630 millj., og í grein-
argerð embættismannanna til borg-
arráðs, er skýringin sögð sú að
frumáætlun hafi verið lág, einkum
hvað varðar hvolfþak, lagnir, búnað
og innréttingar og að kostnaður
hafi hlotist af stækkun lóðar og
færslu hússins.
SOKKABUXURNAR
SaQpellegrino
ERIl NÚ FÁANLEGAR í ÖLLUM VERSLUNUM NÚATÚNS
NÓATIJNI 17, ROFABÆ 39, LAUGAVEGI 11 6, HRINGBRAUT 1g1, HAMRABORG, FURUGRUND 3.ÞVERHOLTI 6.
af rógburðinum sem fylgdi þessu
öllu. Við hörmum að heiðarleiki
Önnu skyldi skapa henni mikla erf-
iðleika. Við allar í fyrrverandi stjórn
samtaka dagmæðra þökkum Önnu
K. Jónsdóttur fyrir samstarfið síð-
astliðin ár. Hún vann ötullega að
uppbyggingu dagvistunar á einka-
heimilum og er það ekki síst henni
að þakka að dagvistunin er viður-
kennd löglega í dag.
Ég kveð nú þetta mál og við reyn-
um að jafna okkur eftir þessa lífs-
reynslu.
Ég vona að öflug umræða verði
í þjóðfélaginu um þann leiða róg-
burð sem svo víða virðist gróa og
hefur valdið miklum skaða og sár-
indum. Fjölmiðlar eru því miður oft
meðsekir í að ófrægja mannorð
fólks.
Höfundur er fyrrverandi
formaður Samtaka dagmædra í
Reykjavík.
Bílamarkadurinn
Nissan Micra GL ’91,5 g., ek. 45 þ. Topp
eintak. V. 590 þús.
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
571800
Nissan Sunny 1.6 SLX hlaðbakur ’91,
rauður, 5 g., ek. 53 þ., álfelgur, spoiler,
rafm. í rúðum o.fl. V. 890 þús.
Renault 21 GTX Nevada 4x4 station
90, dökkgrænn, 5 g., ek. 61 þ., rafm. í
rúðum o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód.
MMC Lancer EXE '92, hlaðbakur, dökk-
blár, 5 g., ek. aðeins 15 þ., rafm. í öllu
o.fl. V. 1160 þús., sk. á ód.
BMW 520 IA '90, grásans, sjálfsk., vél
nýuppt., rafm. í rúðum o.fl. V. 1790 þús.
Tilboðsverð kr. 1590 þús.
Tilboðsverð: Range Rover 4ra dyra '84,
hvítur, sjálfsk., ek. 129 þ., sóllúga o.fl.
Selst á kr. 630 þús. stgr.
Toyota Double Cab SR5 '92, hvítur, ek.
43 þ. Gott eintak. V. 1830 þús.
MMC Galant CTi ’89, drapplitaður, 5 g.,
ek. 84 þ., rafm. í rúöum, sóllúga, álflegur,
spoiler o.fl. V. 1190 þús., sk. á ód
Nissan Sunny SLX 4ra dyra '91, grásans,
sjálfsk., ek. 45 þ., rafm. í rúðum o.fl.
V. 890 þús.
MMC Colt GLXi '91, blásans, sjálfsk., ek.
62 þ., rafm. í rúðum, álfelgur o.fl. V. 960
þús.
Daihatsu Charade CS '88, rauður, 5 dyra
4 g., ek. 75 þ. V. 390 þús.
MMC Lancer GLX 4x4 station '88, silf-
urgrár, 5 g., ek. 70 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
MMC Colt GLi '93, rauður, 5 g., ek. að-
eins 2 þ. km. V. 1040 þús.
Lancer EXE '92, sjálfsk., ek. 31 þ., rafm.
í rúðum, central læsing o.fl. V. 1090 þús
sk. á Ód.
MMC Colt GTi '89, rauöur, 5 g., ek. 90
Honda Civic DX '89, 3ja dyra, sjálfsk., ek.
70 þ. V. 620 þús. stgr.
MMC Pajero V-6 langur '91, sjálfsk., ek.
39 þ. V. 2350 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 '90, 5 g., ek.
82 þ. V. 1370 þús., sk. á ód.
Saab 900i 5 dyra '86, sjálfsk., ek. 160
þ. TilboðsverÖ 395 þús. stgr.
Cherokke Laredo '88, sjálfsk., ek. 81 þ.,
m/öllu. Óvenju gott eintak. V. 1580 þús.
Honda Civic LSi Sedan '92, rauður,
sjálfsk., ek. 36 þ., rafm. í rúðum, 2 dekkjag.
o.fl. V. 1290 þús.
Fjörug bílaviðskipti
Vantar góSa bila á sýningarsvæiið.